Morgunblaðið - 26.06.2005, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÍU manns voru á föstudag komnir á svæðið
skammt frá Sauðárfossi vestan Jöklu, þar sem
til stendur að reisa alþjóðlegar mótmælabúðir
vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Tvö tjöld höfðu verið reist í fyrradag, en
verið var að flytja þau og annan búnað innar á
svæðið, þar sem þau höfðu verið sett upp
skammt frá námu sem verið er að taka í notk-
un af framkvæmdaaðilum virkjunarinnar.
Búðasvæðið, sem er um 3 km frá stíflustæði
Kárahnjúkastíflu og í lónstæði Hálslóns, er á
bakka Jöklu á þokkalega grónu grasstykki.
Þær Helena Stefánsdóttir og Sunna Jó-
hannsdóttir sátu utan við tjald sitt í blíðviðri á
meðan aðrir úr hópnum leituðu hentugs gras-
bala til að flytja búðirnar á. „Mér finnst mjög
sorglegt að verið sé að eyðileggja landið hér,“
sagði Helena í samtali við Morgunblaðið. „Það
er bæði hræðilegt og rangt. Mig langar að
sýna þá skoðun mína með því að njóta þess að
vera hér úti í þeirri náttúru sem fer undir
virkjunina. Það er hörmulegt að eyðileggja
þetta land fyrir peninga. Ég skil það ekki.“
Helena kom á fimmtudag og ætlar að
stoppa stutt að þessu sinni, en koma með barn
sitt og eiginmann síðar í sumar til lengri dval-
ar. „Okkur langar að ganga um svæðið og til
dæmis verður leiksýning hér í byrjun júlí sem
okkur langar að sjá.“
Öskruðu ókvæðisorð
Sunna segir svipuð sjónarmið uppi hjá sér.
„Það er svo margt sem mælir gegn virkj-
unarframkvæmdinni. Það virðist vera blásið á
alla þá vísindamenn sem hafa lagt fram gild
rök og mótmælt þessum framkvæmdum.
Jarðfræði og dýralíf eru þar ríkir þættir. Á
þetta eftir að borga sig? Það var skrítin upp-
lifun í nótt þegar allir voru farnir að sofa og
við Helena stóðum utan við tjaldið að bíll kom
keyrandi hér framhjá og út úr honum öskruðu
einhverjir útlendingar, á pólsku að ég held, að
við skyldum hypja okkur. Útlendingar að reka
okkur af okkar eigin landi. Það var rosalega
súrt.“
Hún segir upplifun þeirra af svæðinu tví-
skipta. Annars vegar sé fögur náttúra og góð-
ur andi og hins vegar framkvæmdirnar. „Við
vorum á útsýnispallinum og horfðum yfir stífl-
una og það líkist helst Mordor úr Hringa-
dróttinssögu; það er eitthvað svo illt að horfa
þarna yfir. Maður fær vonda tilfinningu. Mað-
ur hefur heyrt fólk segja að þetta svæði sé
ekkert sérstakt, en raunin er sú að það er
stórt og maður þarf aðeins að labba til að sjá.
Hér er fullt af grænum skikum, fallegum foss-
um, heitar lindir, trjágróður, mikið dýralíf og
annar gróður. Það er ekkert að marka að aka
hér í gegn þar sem búið er að ryðja öllu úr
vegi og eyðileggja.“ Þær segja að von sé á
hópi fólks nú um helgina og fleirum á þriðju-
dag, bæði innanlands frá og með Norrönu að
utan. Um sé að ræða einhverja tugi fólks. Þá
sé væntanlegur um 30 manna hópur lista- og
kvikmyndagerðarfólks í lok mánaðarins.
„Ég sé fyrir mér litríkar sumarbúðir; tjald-
búðir með allskonar fólki og list, þvott á snúr-
um og lífi og fjöri,“ segir Helena. „Fullt af lit-
um. Við sýnum hug okkar með því að vera hér
og okkar vilji stendur ekki til annars en frið-
samlegra mótmæla.“
„Fólkið sem stendur að virkjuninni, hefur
skipulagt hana og barist fyrir henni, notar all-
ar aðferðir sem það getur til að telja öðrum
trú um allskonar hluti,“ segir Sunna og bætir
við að nú sé búið að telja Austfirðingum trú
um að virkjunin sé nauðsynleg til að þeir geti
búið áfram á Austfjörðum. „Ég held að Aust-
firðingar eigi eftir að koma í þessar búðir,
annaðhvort til að forvitnast, rífast við okkur
eða vera með. Skoðanirnar eru jafnmargskipt-
ar á Austurlandi eins og annars staðar.“
Undanfarnar vikur hefur verið gerð gang-
skör í að afmarka öll vinnusvæði virkjunar-
innar enn frekar en verið hefur og búið að
setja upp nokkur öryggishlið. Er þetta sam-
kvæmt upplýsingum Landsvirkjunar ekki síð-
ur gert vegna vaxandi fjölda ferðamanna á
svæðinu.
Lögreglan á Egilsstöðum hefur auga á mót-
mælendum og að sögn Landsvirkjunar eru
menn þar á bæ rólegir vegna búðanna, þess
verður gætt að fólkið fari ekki inn á lokuð
framkvæmdasvæði virkjunarinnar og fari sér
ekki að voða, en að öðru leyti ekki fjargviðrast
vegna fyrirhugaðra búða. Vefsíða mótmæla-
búðanna er savingiceland.org og er talsmaður
mótmælenda Ólafur Páll Sigurðsson.
Okkar vilji stendur ekki til ann-
ars en friðsamlegra mótmæla
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þær Helena og Sunna vonast eftir litríkum
sumarbúðum þar sem fólk tjái hug sinn með
því að dvelja á svæðinu og skoða það.
Alþjóðlegar mótmælabúðir við Kárahnjúka eru farnar að taka á sig mynd
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá
Samtökum verslunar og þjónustu:
„Í fjölmiðlum undanfarna daga hafa birst
upplýsingar frá OECD varðandi það að styrkir
til landbúnaðar á Íslandi séu þeir hæstu sem
þekkjast í veröldinni eða sem nemur 69% af
framleiðsluverði íslenskra landbúnaðarvara.
Af þessu tilefni hefur talsmaður landbún-
aðarráðuneytisins upplýst að Ísland verði e.t.v.
á næsta ári knúið til þess að lækka vernd-
artolla á innfluttum landbúnaðarvörum um
50–70% vegna aðildar að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni WTO þar sem nú fara fram
samningar um alþjóðaviðskipti. Markmið
þeirra samninga er að auka fríverslun og jafna
aðstöðu sk. þróaðra landa og þróunarlanda til
viðskipta með vörur og þjónustu.
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa
margsinnis krafist þess að kvótasala og vernd-
artollar á innfluttar landbúnaðarvörur verði
lækkaðir í áföngum auk þess sem dregið verði
úr markaðsbjagandi styrkjum til innlends
landbúnaðar og samráð sem er ólöglegt sam-
kvæmt samkeppnislögum, en þrífst í þessum
geira undir vernd stjórnvalda, verði aflagt.
SVÞ hafa í þessu sambandi áréttað að ís-
lensk stjórnvöld geti hvenær sem er ákveðið
breytingu á þessu kerfi sem muni þá hafa mikil
áhrif á verðlag matvöru hér á landi og jafn-
framt á framboð innfluttra vara. Ekki þurfi að
bíða eftir því að alþjóðastofnanir knýi stjórn-
völd til aðgerða að þessu leyti.
Það er afar óeðlilegt á tímum vaxandi sam-
keppni á öllum sviðum, innan landa sem á milli
landa, að viðhalda hér á landi óhagkvæmu
kerfi í landbúnaði. SVÞ hvetja stjórnvöld til að
hefja nú þegar skipulega breytingu á þessu
kerfi sem lækkar verð matvöru í landinu og er
hagfelld fyrir allan þorra landsmanna. Jafn-
framt þarf að aðstoða landbúnaðinn við að um-
breytast í sjálfbærar og rekstrarlega hag-
kvæmar einingar á sem skemmstum tíma.“
Óeðlilegt að viðhalda
óhagkvæmu kerfi
í landbúnaði
JÓN Ársæll Þórðarson sjón-
varpsmaður mun ekki ljá rödd
sína lengur í auglýsingar fyrir
Útvarp Sögu. Á fundi hjá 365
ljósvakamiðlum var þess óskað
að hann hætti öllu slíku enda
Útvarp Saga sjálfstæð útvarps-
stöð sem heyrir ekki undir 365
ljósvakamiðla.
Jón Ársæll staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið. „Það
er ekki ætlast til að starfsmenn
Stöðvar 2 séu í annarri launa-
vinnu og þeir sem eru áberandi
séu að birtast annars staðar,
sæll myndi hætta því sem og
varð raunin. Hann segir regl-
una í samningum hjá Stöð 2
vera þá að ekkisé heimilt að
lesa inn á auglýsingar nema
með samþykki Stöðvar 2.
Arnþrúður Karlsdóttir, út-
varpsstjóri Útvarps Sögu, segir
mikinn missi vera að Jóni, en
hann hefur verið andlit út-
varpsstöðvarinnar frá upphafi
stöðvarinnar. Unnið sé að því
að fá nýja aðila til þess að lesa
inn á auglýsingar, bæði konu
og karl.
t.d. í auglýsingum,“ segir Jón
Ársæll og bætir því við að hann
skilji vel afstöðu stjórnenda 365
ljósvakamiðla. „Nú er komið að
leiðarlokum í þessu og ég kveð
Útvarp Sögu með söknuði, og
óska stöðinni alls hins besta.“
Páll Magnússon, sjónvarps-
stjóri 365 ljósvakamiðla, segir
að sér hafi fundist það vera
óviðeigandi að dagskrárgerð-
armaður hjá Stöð 2 skuli hafa
verið að lesa inn á auglýsingar
hjá öðrum fjölmiðli. Því hafi
hann óskað eftir því að Jón Ár-
Jón Ársæll ekki lengur rödd Útvarps Sögu
ÞAÐ er sjálfsagt mikið hnusað á sýningu
Hundaræktarfélags Íslands sem nú stendur
yfir í reiðhöll Gusts við Álalind í Kópavogi.
Sýningin hófst á föstudag og lýkur síðdegis í
dag, sunnudag. Alls verða sýndir um 400
hundar af fjölmörgum tegundum.
Hundalíf á sýningu
Morgunblaðið/ÞÖK
TALSVERÐAR reyk- og sót-
skemmdir urðu á einbýlis-
húsi við Holtastíg í Bolung-
arvík á föstudagskvöld
þegar eldur kviknaði í heitri
feiti á potti. Að sögn lög-
reglu fór sót og reykur um
alla íbúð.
Fólk var heima við þegar
eldurinn kviknaði og tókst
því að slökkva eldinn með
handslökkvitæki.
Skemmdir
frá eldi í potti
PERSÓNUVERND komst að þeirri niðurstöðu
í nýlegum úrskurði sínum að ekki hefði verið
heimilt að dreifa myndbandi úr eftirlits-
myndavél en myndbandið mátti um tíma m.a.
nálgast á heimasíðunni b2.is. Á myndbandinu
mátti sjá par stela fartölvu og í meðfylgjandi
texta á heimasíðunni voru þeir sem töldu sig
vita eitthvað um parið beðnir að hafa sam-
band.
Forsaga málsins er sú að eigandi fartölv-
unnar hafði sett sig í samband við umsjón-
armenn eftirlitsmyndavélanna á svæðinu og
fengið afhent myndbandið, til þess að koma
því til lögreglunnar, að eigin sögn. Hann hafði
hins vegar fyrst ákveðið að dreifa myndband-
inu meðal vina og kunningja sinna til að at-
huga hvort þeir þekktu til viðkomandi. Per-
sónuvernd taldi ágreiningsefnið vera hvort
umsjónaraðila eftirlitsmyndavélanna hefði
verið heimilt að afhenda eiganda fartölvunnar
myndbandið. Þrátt fyrir að sú rafræna vöktun
sem færi fram með eftirlitsmyndavélum á
svæðinu væri að mati Persónuverndar mál-
efnaleg var talið að miðlun myndbandsins til
óviðkomandi aðila hefði verið ólögmæt.
Óheimilt að dreifa
myndbandi úr
eftirlitsmyndavél
HERFERÐ Amnesty International gegn
pyntingum og annarri niðurlægjandi og
ómannúðlegri meðferð hefst í dag í tilefni af
alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna til
stuðnings fórnarlömbum pyntinga.
Félagar í Íslandsdeild Amnesty verða af
þessu tilefni með uppákomu á Austurvelli
milli 13 og 17 þar sem athygli verður vakin á
þeim aðferðum sem er beitt gegn föngum í
fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu.
Í herferðinni beina samtökin sérstaklega
athygli sinni að pyntingum og niðurlægjandi
meðferð í „stríðinu gegn hryðjuverkum.“
Amnesty hvetur bandarísk yfirvöld til að
efna til óháðrar rannsóknar á yfirheyrsluað-
ferðum, aðbúnaði og meðferð fanga í Bagram
í Afganistan, Abu Ghraib í Írak, Guantanamo
á Kúbu og annars staðar þar sem fólki er
haldið vegna stríðsins gegn hryðjuverkum.
„Einnig krefjast samtökin þess að greint
verði frá leynilegum fangelsum þar sem fólki
er haldið án dóms og laga. Amnesty Inter-
national hvetur til þess að Guantanamo búð-
unum á Kúbu verði lokað og þeir sem þar eru
í haldi fái réttláta málsmeðferð og ef engar
ákærur eru á hendur þeim verði þeir leystir
úr haldi tafarlaust,“ segir í tilkynningu.
Amnesty í herferð
gegn pyntingum