Morgunblaðið - 23.08.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.08.2005, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DRÁPU TAMDA UNGA Veiðimenn í N-Múlasýslu drápu átta heimaalda æðarunga sem heim- ilisfólkið á Fremri-Nípum í Vopna- firði hefur alið fyrir æðarvarp. Ung- arnir voru einstaklega gæfir og voru nýbyrjaðir í aðlögun undir beru lofti. Krefjast starfsloksamnings Gæslukonur sem sagt hefur verið upp störfum vegna lokunar gæslu- valla í Reykjavík fara fram á starfs- lokasamninga. Formaður Félags gæslukvenna segir að Reykjavík- urborg hafi talað um starfsloka- samning en það eina sem þeim sé boðið séu réttindi sem þær eigi inni skv. kjarasamningum. Samið án súnníta Sjítar og Kúrdar í Írak hafa náð samkomulagi um drög að nýrri stjórnarskrá gegn mótmælum súnníta. Ætla þeir að leggja þau fyr- ir þingið þar sem þeir hafa mikinn meirihluta en vonast til, að þeir geti talið súnnítum hughvarf á næstu þremur dögum. Súnnítar mótmæla einkum fyrirætlunum um að gera Írak að sambandsríki og óttast, að þá verði þeir af olíutekjunum en ol- íuna er einkum að finna á svæðum Kúrda og sjíta í norðri og suðri. Engar birgðir af kjöti Í fyrsta skipti í langan tíma eru engar birgðir að ráði af lambakjöti í landinu og það er að myndast jafn- vægi milli framboðs og eftirspurnar. Þetta segir Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Búnaðarsamband- inu, en fyrstu fjárréttir haustsins verða um næstu helgi. Gefur dóttur sinni nýra Þorvaldur Örlygsson fótboltamað- ur gefur í dag þriggja ára gamalli dóttur sinni annað nýrað úr sér. Dóttir hans fæddist með nýrna- sjúkdóm og þarf nýtt nýra. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 22 Úr verinu 12 Viðhorf 24 Viðskipti 13 Bréf 21 Erlent 14/15 Minningar 24/29 Akureyri 18 Dagbók 32 Höfuðborgin 17 Víkverji 32 Austurland 18 Velvakandi 33 Suðurnes 20 Staður og stund 33 Landið 17 Menning 35/37 Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42 Menning 20 Veður 43 Umræðan 21 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %          &         '() * +,,,                  HÁTÍÐARKVÖLDVERÐUR var haldinn á Bessastöðum í gærkvöld til heiðurs Václav Klaus, forseta Tékklands og Liviu Klausová, eig- inkonu hans. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, rifjaði m.a. upp í ræðu sinni við það tækifæri, þegar hann og Klaus hittust í fyrsta sinn, hér á landi fyrir fimmtán árum. Þá voru þeir báðir fjármálaráðherrar. Ólafur sagði að Klaus hefði þá, á fundi með nokkrum hagfræðingum, haldið því fram að Sovétríkin myndu hrynja innan fárra ára. Ólafur sagði að eng- inn hagfræðinganna hefði heyrt slíka spádóma enda hefðu Vest- urlöndin enn litið á Sovétríkin sem stórveldi. Ekki svo löngu síðar hefði hins vegar komið í ljós að Klaus hefði haft á réttu að standa. Ólafur Ragnar fór í ræðu sinni einnig yfir samskipti landanna og framtíð Evrópu og sagði m.a. að margir Íslendingar hefðu tekið varnaðarorðum Klaus um þróun Evrópu fagnandi. | 23 Ljósmynd/Gunnar G.Vigfússon Dorrit Mousaieff forsetafrú, Livia Klausová, forsetafrú Tékklands, Václav Klaus, forseti Tékklands, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, voru prúðbúin á hátíðarkvöldverði á Bessastöðum í gærkvöldi. Tignir gestir í hátíðarkvöldverði Á FUNDI samstarfsráðherra Norðurlanda á Grænlandi um helgina var m.a. ákveðið að leggja niður norrænt ráðherraráð og embættismanna- nefnd á sviði neytendamála frá næstu áramótum. Neytendasamtökin á Norðurlöndum hafa verið af- ar ósátt við þessi áform og komið mótmælum á framfæri við viðkomandi stjórnvöld, m.a. samtök- in hér á landi. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra fer með neytendamál í ríkisstjórninni og er jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda. Hún segir að með þessari ákvörðun sé ekki verið að leggja niður norrænt samstarf í neytendamálum, þó að það verði ekki jafn formfast og áður. Áfram sé gert ráð fyrir að styrkir verði veittir til sameiginlegra verkefna er snerta hag neytenda. Tillögurnar séu þó ekki fullmótaðar og ráðherrar neytendamála á Norðurlöndum eigi eftir að koma saman til fundar í næsta mánuði. Samstarfið verði skilvirkara Valgerður segir að með því að fækka norrænum ráðherraráðum sé markmiðið að gera samstarf Norðurlandanna einfaldara í sniðum og skilvirk- ara. Átján ráðherraráð hafi verið starfandi, fleiri en innan ESB og hún m.a. átt sæti í fimm ráðum. Því hafi verið vel í lagt. „Ég lít alls ekki svo á að verið sé að slíta norrænu samstarfi í neytenda- málum. Menn eru fyrst og fremst að sníða sér stakk eftir vexti,“ segir Valgerður. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna, segist hafa sent Valgerði bréf í júlí sl. þar sem samtökin hvöttu hana og aðra neytenda- málaráðherra til að endurskoða áform sín, sem þá höfðu þegar verið kynnt. „Afleit ákvörðun“ Jóhannes segir Neytendasamtökin hafa mikið gagn af norræna samstarfinu, enda málefni og barátta fyrir hag neytenda lengra á veg komin í öðrum Norðurlöndum en á Íslandi. Samstaða sé meðal samtakanna um að ákvörð- un ráðherranna sé afleit. Samstarfið hafi til þessa skilað miklu, m.a. varðandi áhrif á löggjöf í neyt- endamálum innan Evrópusambandsins. Neyt- endasamtökin hafi til dæmis tekið þátt í fjölmörg- um verkefnum, sem skilað hafi árangri fyrir íslenska neytendur. Norrænt ráðherraráð á sviði neytendamála verður lagt niður Áfram er reiknað með styrkjum til verkefna Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is GEITUNGAR hafa verið þó nokkuð mikið á sveimi undanfarið, a.m.k. ef tekið er mið af þeim fréttum sem voru á vordögum að þeim hefði fækkað verulega hér á landi. Þeir hafa það fyrir sið að minna rækilega á sig með kólnandi veðri á síðsumardögum áður en þeir hverfa í nokkra mánuði. Geitungarnir í þessu holugeitungabúi í garði í Hafn- arfirði hafa greinilega nýtt sér hlýindin þar í bæ til að koma sér vel fyrir. Á þessum árstíma er vissara að amast ekki í þessum röndóttu vinum okkar því þeir geta orðið árásarhneigðir þegar kólnar í veðri og vet- urinn færist nær. Geitungar minna á sig fyrir haustið Morgunblaðið/ÓSÁ MAÐURINN sem stunginn var til bana á Hverfisgötu á laugardags- morgun, hét Bragi Halldórsson, til heimilis að Vesturgötu 50a. Hann var fæddur 7. mars árið 1985. Hann var ókvæntur og barnlaus. Foreldr- ar hans eru Birna Björgvinsdóttir og Halldór Bragason. Lést í hnífsárás SAUTJÁN ára piltur sem sætir gæsluvarðhaldi vegna hnífsárásar á 18 ára pilt í Tryggvagötu aðfaranótt sunnudags, hefur samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins játað á sig verknaðinn. Sá sem varð fyrir árásinni fékk tvær hnífstungur í bakið og féll ann- að lungað í honum saman. Árásarmaðurinn var handtekinn fljótlega eftir árásina og var að kröfu lögreglunnar úrskurðaður í gæslu- varðhald til 26. ágúst. Játar á sig hnífsárás ♦♦♦ ♦♦♦ Á FUNDI sóknarnefndar Garða- sóknar sem var haldinn í gærkvöldi var einróma samþykkt að boða til aðalsafnaðarfundar Garðasóknar þriðjudaginn 30. ágúst kl. 20 í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli. Í tilkynningu frá sóknarnefndinni segir að nú sé lokið erfiðu deilumáli innan sóknarinnar og hafi allir sókn- arnefndarmenn lýst yfir nauðsyn þess að menn tækju höndum saman um að byggja upp öflugt safnaðar- starf. Boðað til aðalsafnaðar- fundar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.