Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
HALLDÓRA
GUÐRÚN
JÓELSDÓTTIR
✝ Halldóra Guð-rún Jóelsdóttir
fæddist í Reykjavík
18. mars 1914. Hún
lést á heimili sínu
30. júlí síðastliðinn.
Foreldar hennar
voru Jóel Úlfsson, f.
á Eystra-Skagnesi í
Mýrdal 27. júní
1873, d. 18. janúar
1951, og Margrét
Einarsdóttir, f. í
Reykjavík 6. apríl
1871, d. 17. febrúar
1964. Systkini Hall-
dóru voru Þorgeir Ingi, f. 11. des-
ember 1909, d. 23. febrúar 1980,
og Guðjón Kristinn, f. 25. nóvem-
ber 1911, d. 9. september 1986.
Halldóra ólst upp í Reykjavík
og tók kvennaskólapróf frá
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hún starfaði hjá Rafmagnsveitum
ríkisins.
Útför Halldóru verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
skyldunnar sárt eftir
að ég flutti suður í
Leiru tveimur árum
seinna. Í Reykjavík
voru líka rafmagnsljós
en myrkrið var svo
dimmt í Leirunni. En í
hverri Reykjavíkur-
ferð var komið við á
Hverfisgötunni og oft-
ar en ekki gist. Dóra
kom líka í heimsókn til
okkar og það var alltaf
mikið tilhlökkunarefni
þegar hún kom í ber-
jatínsluna á haustin.
Eftir að ég giftist og eignaðist mína
fjölskyldu urðu heimsóknirnar enn
fleiri og segja má að hún hafi í raun
alltaf verið sem ein af fjölskyldunni.
Dóra lauk Kvennaskólaprófi en síð-
an varð hlutskipti hennar að halda
heimili í veikindum móður sinnar.
Eftir að móðir hennar dó vann hún
hjá Rarik meðan hún hafði aldur til.
Hvorki Dóra né bræður hennar stofn-
uðu eigið heimili né eignuðust börn.
Þau héldu bernskuheimilinu saman
og er nú síðasti hlekkurinn horfinn yf-
ir móðuna miklu.
Dóra var bókhneigð og bókasafn
heimilisins var stórt. Hún var fróð
kona og minnug á menn og málefni og
hélst það þó að heilsunni hrakaði.
Dóra var hjartahlý, hlédræg en
traust kona og öllum þótti vænt um
hana sem kynntust henni.
Það eru liðin áttatíu og eitt ár frá
því að foreldrar mínir fengu leigt hjá
foreldrum Dóru með mig kornunga.
Þar með hófst vinátta sem hélst alla
tíð.
Enn minnist ég áranna á Hverfis-
götunni og þeirrar athygli og umönn-
unar sem ég fékk og ég saknaði fjöl-
Ég minnist hennar með virðingu,
söknuði og þakklæti fyrir langa sam-
fylgd.
Inga.
Allar minningar um Halldóru Jó-
elsdóttur eða Dóru á ,,Hverfó“ eru
góðar. Dóra var hluti af tilverunni frá
því að ég man eftir mér. Hún var í
raun ein af fjölskyldunni og vart hægt
að hugsa sér traustari og heiðarlegri
manneskju. Hún var vinur vina sinna.
Á sunnudögum kom hún í kaffi á Æg-
isíðuna og eru minningarnar margar.
Jákvæð og fróð um menn og málefni
og hafði skoðanir. Frá henni stafaði
hlýja og væntumþykja.
Á jólum og afmælum voru pakk-
arnir frá Dóru alltaf spennandi og
ekki brást það að vel hafði verið valið.
Heim til Dóru var gaman að koma.
Hverfisgata 100A var lítið, fallegt hús
og hafði yfir sér dulúðlegan blæ því
það var svo stórt þegar komið var inn
í það. Klassískt og fallegt heimili
Dóru var eins og spennandi ævintýri.
Líf Dóru var í föstum skorðum og
vel skipulagt. Eftir að bræður hennar
dóu bjó hún ein. Síðari árin bjó hún á
Skúlagötunni og þegar heilsan fór að
gefa sig kom sjálfsagi hennar í ljós.
Hjá henni var engan uppgjafartón að
finna þó að hún væri orðin háöldruð.
Að lokum kom kallið fyrirvaralaust og
sjálfsagt hefur hún verið södd lífdag-
anna.
Við Helena minnumst hennar með
þakklæti og virðingu.
Blessuð sé minning hennar.
Guðjón Jóel Björnsson.
Það var einhvern veginn eins og
tíminn stöðvaðist þegar maður gekk
inn um dyrnar hjá Dóru gömlu. Það
✝ Guðbrandur Sæ-mundsson fædd-
ist í Veiðileysu í Ár-
neshreppi í
Strandasýslu 13.
nóvember 1921.
Hann andaðist á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 13. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Sæmund-
ur Guðbrandsson, f.
17.10. 1889, d. 30.7.
1938 og Kristín S.
Jónsdóttir, f. 29.7.
1892, d. 26.1. 1978.
Systkini Guðbrandar núlifandi
eru Kristín Halla, f. 1918, Ríkarð-
ur, f. 1920, Marta Sigurlilja, f.
1923, Líney Ólöf, f. 1925, Kristinn,
f. 1927, Sóley Ásta, f. 1931 og Jóna
Aldís, f. 1934. Látin eru, Vilhelm-
ína Pálína, f. 1913, Auðbjörg
Anna, f. 1914, Alfreð Gunnar, f.
1915, Páll Kristbjörn, f. 1924 og
Kristmundur, f. 1932.
Guðbrandur kvæntist 8. ágúst
1952 Kristínu Maríu Hartmanns-
dóttur frá Ólafsfirði, f. 3.12. 1929,
foreldrar hennar voru Hartmann
Pálsson, f. 5.1. 1908, d. 5.7. 1983
og María Anna Magnúsdóttir, f.
17.11. 1909, d. 5.4. 1999. Börn
Guðbrandar og Kristínar eru: 1)
María, f. 19.3. 1951, maki Svein-
björn Dýrmundsson, f. 31.3. 1950,
börn þeirra eru: a) Guðrún, f. 1.1.
1971, maki Sigurður Gíslason,
börn þeirra eru Daníel Hrafn,
Sindri Guðbrandur og Elmar Ingi.
b) Svava Kristín, f. 13.8. 1976,
maki Arnar Logi Ásbjörnsson, f.
18.8. 1972, börn þeirra eru Sunn-
eva María og Birnir Logi. c) Sonja
Lind, f. 15.10. 1988. 2) Kristín Sæ-
unn, f. 19.5. 1953, d. 2.8. 1998,
maki Kjartan Þórð-
arson, f. 16.12 53.
Þau slitu samvistir.
Dætur þeirra eru a)
Tinna, f. 4.11. 1975,
dóttir hennar
Thalia Kristín Gol-
den, b) Freyja, f.
22.3. 1977, maki
Sigurjón Örn Ólafs-
son, f. 4.10. 1973, og
c) Sæunn, f. 4.2.
1990. 3) Berglind, f.
31.1. 1958, maki
Sigmundur Dýr-
fjörð, f. 13.4. 1956
dætur þeirra eru Kristín María, f.
14.8. 1982, maki Halldór Guð-
mundsson, f. 26.2. 1982, og Sunna
Rós, f. 20.4. 1989.
Guðbrandur fluttist með fjöl-
skyldu sinni að Kambi í Árnes-
hreppi 10 ára gamall. Sæmundur
faðir hans lést aðeins 49 ára að
aldri. 16 ára gamall fór Guð-
brandur í sumarvinnu við síldar-
verksmiðjuna í Djúpavík. 27 ára
hóf hann nám í vélvirkjun í Héðni,
þar sem lauk sveinsprófi og fékk
síðar meistararéttindi. Hann
kynntist Kristínu Maríu og þau
stofnuðu heimili 1950. Lengst af
bjuggu þau í Eskihlíð þar sem
nokkrir kunningjar fengu lóð og
byggðu saman fjölbýlishúsið Eski-
hlíð 22. Fyrir um 9 árum fluttu
Guðbrandur og Kristín í Boða-
hlein 7 í Garðabæ. Guðbrandur
vann lengst af á vegum Héðins við
margvísleg störf. Eftir erfið veik-
indi vann hann hjá Gunnari Ás-
geirssyni þar til hann lét af störf-
um.
Útför Guðbrandar fer fram frá
Garðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Kambur í Árneshreppi. Við syst-
urnar sögðum stundum í gamni að
fyrsta orðið sem börnin okkar
myndu læra yrði Kamburinn. Þang-
að fluttist pabbi með foreldrum sín-
um og tólf systkinum tíu ára gamall.
Þegar pabbi var á sextánda ári lést
faðir hans aðeins 49 ára að aldri.
Fljótlega eftir það fór pabbi í sum-
arvinnu við síldarverksmiðjuna í
Djúpavík. Þær eru ófáar sögurnar
sem hann sagði okkur frá Ströndum,
æskuslóðunum sem honum þótti svo
vænt um. Margar þeirra kunnum við
og munum alltaf. Minnisstæðar eru
sumarferðirnar á Strandir og víðar
þegar við systurnar vorum litlar. Þá
var alveg sama hvernig viðraði, „allt-
af var sól á Ströndum“. Pabbi og
mamma kynntust ung í Reykjavík og
stofnuðu þar heimili, lengst af
bjuggu þau í Eskihlíð 22. Þar vorum
við systurnar aldar upp og bjuggum,
þar til við fluttum að heiman og
stofnuðum okkar eigin heimili. Sam-
heldni, gestrisni, örlæti og hlýja eru
þau orð sem koma fyrst í hugann
þegar hugsað er heim til pabba og
mömmu. Fyrir þremur árum veiktist
pabbi snögglega og ágerðust veik-
indin smám saman. Mamma stóð
eins og klettur við hlið hans í veik-
indunum og hefur þessi tími reynst
henni erfiður þar sem þau voru sam-
heldin í öllu sem þau tóku sér fyrir
hendur og reyndi ekki síst á það við
andlát dóttur þeirra og systur okkar,
Kristínar Sæunnar, sem lést aðeins
45 ára gömul. Síðasta mánuðinn sem
pabbi lifði dvaldist hann á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Elsku pabbi, nú ert þú kominn til
hinna eilífu stranda og þar er örugg-
lega alltaf sól.
Elsku mamma, missir þinn er mik-
ill en minningarnar lifa.
Guð styrki þig og blessi á þessum
erfiðu tímum.
María, Berglind og
fjölskyldur.
Það sem er mér efst í huga á þess-
ari stundu er ólýsanlegt þakklæti
fyrir að hafa átt þig að elsku afi
minn. Eitt af því skemmtilegasta
sem ég gerði þegar ég var lítil var að
heimsækja þig og ömmu. Ég á ótal
góðar minningar um þessar heim-
sóknir, margar hverjar tengdar
ferðalögum og bíltúrum þar sem ým-
ist var farið með teppi og nesti í
Heiðmörk, Öskjuhlíð eða Esjuna,
bryggjuferðir að sækja fisk í soðið,
fjöruferðir, berjaferðir og svo auð-
vitað ferðir um Strandir. Skemmti-
legast þótti mér að heimsækja þig í
vinnuna og „hjálpa“ þér við sauma-
vélaviðgerðirnar. Þau voru ófá
kvöldin á þessum árum sem við sát-
um saman og horfðum á sjónvarpið,
drukkum kvöldkaffi og þið amma
skiptust á að klóra mér á bakinu.
Þegar ég svo 15 ára gömul þurfti að
fara að heiman eins og jafnaldrar
mínir til að ljúka grunnskóla flutti ég
í Eskihlíðina til ykkar ömmu og bjó
til skiptis hjá ykkur og foreldrum
mínum þar til ég stofnaði mitt eigið
heimili. Það hefur örugglega ekki
verið auðvelt að fá allt í einu ungling
inn á heimilið en aldrei fann ég fyrir
öðru en hlýju og væntumþykju. Ég
naut þeirra forréttinda að eiga ekki
bara góða foreldra heldur voruð þið
mér sem foreldrar líka.
GUÐBRANDUR
SÆMUNDSSON
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ODDNÝ AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Rauðalæk 20,
Reykjavík,
áður Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði,
sem lést á Landakotsspítala föstudaginn
12. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir, Víðir Sigurðsson,
Guðný Björg Þorvaldsdóttir, Sigurður Þorgeirsson,
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
Kristján Þorvaldsson,
Ómar Ásgeirsson,
Helga Jóna Óðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON
fyrrverandi ráðuneytisstjóri,
sem lést laugardaginn 20. ágúst, verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni föstudaginn 26. ágúst
kl. 11.00.
Kristín Claessen,
Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir,
Soffía Ingibjörg Guðmundsdóttir, Þorsteinn Einarsson,
Solveig Lára Guðmundsdóttir, Gylfi Jónsson,
Eggert Benedikt Guðmundsson, Jónína Lýðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, fyrrverandi eiginmaður, sonur, bróðir
og vinur,
SZYMON KURAN,
lést á heimili sínu sunnudaginn 7. ágúst.
Sálumessa verður flutt fimmtudaginn 25. ágúst
kl. 13.00 í Landakotskirkju.
Jarðsett verður í Mszczonów í Póllandi miðviku-
daginn 31. ágúst kl. 13.00.
Szymon Héðinn, Anna Kolfinna og Jakob Kuran,
Guðrún Th. Sigurðardóttir,
Stanislawa og Tadeusz Kuran,
Halina Rozbiecka,
Esther Talia Casey,
Ragnhildur Þórarinsdóttir og Bergur Benediktsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
ÁSU SIGRÍÐAR INGVARSDÓTTUR,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður Hjarðarhaga 42,
Reykjavík.
Gunnar H. Ólafsson.
Seint fæ ég fullþakkað ykkur öllum sem hafið
heiðrað minningu eiginmanns míns,
HALLFREÐAR ARNAR EIRÍKSSONAR
þjóðfræðings.
Samúð ykkar og vinsemd hefur verið mér mikill
styrkur.
Olga María Franzdóttir.
Lokað
Söngskólinn í Reykjavík verður lokaður frá kl. 15.00 í dag vegna
jarðarfarar ÞORSTEINS GYLFASONAR.
Skólastjóri.