Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AUSTURLAND AKUREYRI Borgarfjörður | Í Kjarvalsstofu, safni um ævi og störf Jóhannesar S. Kjarval listmálara á Borgarfirði eystra, er sérstök barnastofa til- einkuð myndsköpun barna. Þar get- ur ungviði komist í liti og léreft eða bara málað á veggina. „Krakkar, bæði íslenskir og út- lenskir, koma oft hér inn til að leika sér með dót og mála“ segir Elsa Katrín Ólafsdóttir, tíu ára snót sem stendur við málaratrönur og dregur býsna laglegar útlínur hests á striga. Kjarvalsstofa er á efri hæð Fjarð- arborgar, en móðir Elsu Katrínar vinnur einmitt í Fjarðarborg, þar sem seld er gisting og veitingar yfir sumartímann. Því á Elsa Katrín það til að bregða sér upp á loft í lit- astofuna og dunda sér dálítið við myndlist. „Krakkarnir sem búa hér máluðu á veggina og ég málaði ofnana þeg- ar Kjarvalsstofa var opnuð fyrir þremur árum“ segir hún stolt og bendir á litskrúðug myndverkin. M.a. má sjá Álfaborgina og tjöld við hana, Dyrfjöllin og hesta. „Svo koma stundum aðrir krakkar og klína lit í Álfaborgina og Dyrfjöllin. Ég hef prófað að mála Dyrfjöllin í skól- anum og gekk það bara vel. Það er samt dálítið erfitt að ná þeim. Kjar- val vissi hvernig átti að mála þau.“ Elsa Katrín er að byrja í fimmta bekk í vikunni og segist hlakka til. „Við erum bara tvö tíu ára í skól- anum og ég held að í honum séu átján krakkar í allt.“ Hún segist hafa átt heima á Borgarfirði alla ævi. „Það er skrítið þegar allt fyllist af fólki hér á sumrin. Mér finnst stund- um gaman á sumrin þegar svona mikið er af ferðafólki, en samt eig- inlega bara truflandi því þá þarf mamma alltaf að vinna svo mikið. Þá er ég bara með Snúði, hundinum mínum á meðan,“ segir Elsa Katrín og einbeitir sér svo aftur að hest- inum, sem er óðum að taka á sig skýrari mynd. Kjarval kom til Borgarfjarðar á fimmta ári og bjó hjá frændfólki sínu í Geitavík þar til hann fór til náms til Reykjavíkur 16 ára gamall. Hann sýndi æskustöðvunum ávallt mikla tryggð og málaði margar myndir á Borgarfirði, þar sem hann gekk undir nafninu Jói í Geitavík. Erfitt að ná Dyrfjöllunum Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hestur verður til Elsa Katrín Ólafsdóttir í Kjarvalsstofu á Borgarfirði. Kárahnjúkar | Í þessari viku verður hafist handa við að snúa risabornum TBM 3 í aðgöngum 3 í Glúmsstaða- dal við, en hann boraði í átt að Háls- lóni og komst lítt orðið áfram vegna gríðarlegs vatnsaga og erfiðs bergs. Var hann þá búinn að heilbora um fimm þúsund metra. Á hann í fram- haldinu að bora á móti TBM 2 sem borar frá Axará og í átt að Hálslóni, en þar hafa einnig verið vandkvæði vegna bergs og vatnsflaums og þarf mikið að þétta og styrkja göngin. Sá verkþáttur er um ellefu þúsund metrar og er búið að heilbora um þrjú þúsund og sexhundruð af þeim. Í aðgöngum 1 frá Teigsbjargi hefur gengið vel og TBM 1 náð að bora yfir meðallagi undanfarnar vikur. Hefur borinn þar nú heilborað ríflega sex þúsund metra af yfir þrettán þúsund áætluðum. Reiknað er með að það sem upp á vantar af verkinu frá aðgöngum 3 verði unnið með hefðbundinni gangnagerð, þ.e. bergið sprengt. Ljósmynd/Philippe Cazalis Kárahnjúkastífla Vatnskápa stíflunnar steypt með skriðmótum. Einum boranna snúið við Stálvinna hafin | Starfsmenn Fjarðaálsverkefnisins er byrjaðir að setja saman byggingarstál fyr- ir þak kerskála álversins í Reyð- arfirði. Kerskálarnir verða tveir, hvor um sig um 1,1 km að lengd. Um 25 þúsund tonn af burð- arvirkjastáli mun fara í byggingu verksmiðjunnar. Í mánaðar- byrjun komu 10.521 stykki af byggingarstáli í nýju álvershöfn- ina. Þessi stykki voru síðan af- fermd úr MV Aalsmeergraght og færðir á byggingarstað kerskál- anna, þar sem er nú verið að setja þá saman. Seyðisfjörður | Veðrið hefur leikið við Seyðfirðinga undanfarið og bæj- arbúar spókað sig úti við eftir bestu getu. M.a. hafa krakkar á Seyðisfirði tekið dýfu af brúnni, sem liggur yfir skil Fjarðarárinnar og Lónsins í inn- bænum, og ekki látið töluverða fall- hæð á sig fá. Tvær stúlkur á tólfta ári, þær Halla Björk Ólafsdóttir og Pálína Haraldsdóttir, svömluðu til dæmis bísperrtar um í blautbún- ingum í Lóninu og sögðu að krakkar væru stundum að stökkva af brúnni í góðu veðri, en sjórinn væri samt sem áður talsvert kaldur. Þær segjast gjarnan stunda sjóskíði og sjóbretti, en pabbi annarrar þeirrar eigi hrað- bát og því auðvelt um vik að stunda vatnaíþróttir. Hitinn var 11 stig á Seyðisfirði þennan dag, en fólk sat fáklætt utan við Hótel Ölduna með kaffið sitt og ljóst að menn halda fast í sum- arstemninguna þrátt fyrir að haust blasi nú við. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Buslað Halla Björk Ólafsdóttir og Pálína Haraldsdóttir sækja í sjóinn. Seyðfirðingar í sjósporti FÉLAGAR í Golfklúbbi Akureyrar fögnuðu 70 ára afmæli klúbbsins sl. föstudag, ásamt góðum gestum, m.a. frá Golfsambandi Íslands, Golfklúbbi Reykjavíkar, Golf- klúbbnum Oddi, Íþróttabandalagi, Akureyrar, Íþrótta- og ólympíu- sambandi Íslands og Akureyrarbæ. Klúbbnum bárust góðar kveðjur og gjafir á þessum tímamótum en GA er næstelsti golfklúbbur landsins, ári yngri en Golfklúbbur Reykja- víkur. Fjölmargir félagsmenn klúbbsins voru heiðraðir í afmæl- isfagnaðinum. Gunnar Sólnes, sem hefur verið einn ötulasti fé- lagsmaður GA í gegnum tíðina og formaður til margra ára, var gerð- ur að heiðursfélaga klúbbsins og hann var jafnframt sæmdur æðsta heiðursmerki Golfsambands Ís- lands, gullkrossinum. Með heið- ursnafnbótinni hjá GA er Gunnar kominn í félagsskap manna eins og Magnúsar Guðmundssonar, Björg- vins Þorsteinssonar og vinar síns Jack Nicklaus, hins heimsþekkta kylfings frá Bandaríkjunum. GSÍ sæmdi Halldór Rafnsson, formann GA, gullmerki sambands- ins og Ómar sonur hans, Sigurpáll Geir Sveinsson, Skúli Ágústsson, Haukur Jakobsson og Þórhallur Sigtryggsson voru sæmdir silf- urmerki GSÍ. Halldór formaður GA sagði að fé- lagsleg staða klúbbsins væri sterk á þessum tímamótum. Félagsmenn eru tæplega 600 talsins og hefur fjölgað um 10–15% á ári nú í seinni tíð. „Við höfum staðið í miklum breytingum á vellinum, þeim mestu frá því hann varð 18 holur. Völl- urinn uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru í dag en það hefur verið unnið að umfangsmiklum lag- færingum á brautum og flötum. Fyrirhugaðar eru enn frekari lag- færingar og við gerum okkur vonir um að þeim verði lokið innan fjög- urra ára.“ Halldór sagði það einnig hafa háð starfi klúbbsins að hafa ekki par þrjú holu völl fyrir börn og nýliða. Gunnar Sólnes heiðursfélagi GA Morgunblaðið/Kristján Hinn nýi heiðursfélagi GA, Gunnar Sólnes, er hér með skjalið sem fylgir heiðursnafnbótinni, ásamt Halldóri Rafnssyni, formanni GA. DÝRAGARÐURINN á Krossum í Dalvíkurbyggð var opnaður um verslunarmannahelgina og hefur rekstur hans farið vel af stað, að sögn Snorra Snorrasonar bónda á Kross- um. Hann sagði að viðtökur hefðu verið mjög góðar, um 1.000 manns komið í heimsókn og hann er því bjartsýnn á framhaldið. Snorri sagði að enn væri ýmislegt eftir að gera en hann stefnir að því að vera kominn með starfsemina á fullt næsta vor. Bærinn Krossar er í um 35 km fjar- lægð frá Akureyri og skammt sunnan Dalvíkur. Þar hefur lengst af verið hefðbundinn búskapur en undanfarin ár hefur þar verið nautgriparækt. Snorri sagði að hugmyndin að dýra- garðinum væri ekki gömul. „Maður varð að finna sér eitthvað frekar að gera, ég veit ekki af hverju rekstur dýragarðs varð fyrir valinu en þetta lofar góðu.“ Í garðinum eru hestar, kýr, kindur, geitur, svín, hænur, endur, kanínur, kettir, hrafnar, refir, fashanar, skrautdúfur, skjaldbaka og ungviði þeirra og þá eru kalkúnar á leiðinni. Einnig er á svæðinu veitingatjald og stór hoppudýna sem börnin hafa hrif- ist mjög af. Dýragarðurinn er opinn alla daga í ágúst frá 10 til 18 en í haust og vetur verður ekki reglulegur opn- unartími. Snorri sagði að hugmyndin væri að taka á móti hópum í vetur og auglýsa starfsemina m.a. skólum. Dýragarður í Dalvíkurbyggð Morgunblaðið/Kristján Dýragarður Frændsystkinin Snorri Eldjárn Hauksson t.v., sem heldur á kanínuunga, Andrea Sól Þórðardóttir með naggrís og kanínuunga í fang- ingu og Kristján Eldjárn Sveinsson með ljónakanínu. Fjölbreytt dýralíf er á Krossum Fjárhagsaðstoð | Á síðasta fundi félagsmálaráðs var lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 6 og 7 mánuði ársins. Veitt aðstoð fyrstu 7 mánuðina nemur 28 milljónum króna sem er 10,5% hærra en á sama tíma fyrir ári. Á sama fundi voru lagðar fram upplýsingar um biðlista eftir leiguíbúðum Akureyrarbæjar 1. júlí sl. Á biðlista voru 81 en voru 106 fyrir ári. Samtals eru 250 íbúðir leigðar út hjá Akureyrarbæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.