Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
400 kr. í bíó!*
Sýnd kl. 6
Miðasala opnar kl. 15.00
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 10.30 B.i 16 árakl. 3.40 og 5.50 Í þrívídd
VINCE VAUGHN OWEN WILSONVINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.20Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 10 ára
KVIKMYNDIR.IS
I I .I
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
WWW. XY. IS
WWW. XY. IS
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 B.i 10 árawww.borgarbio.is
Sími 564 0000
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
S.K. DV
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
kl. 8 og 10.30
H.J. / Mbl.. . l.
H.J. / Mbl.. . l.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG ÍSLANDI
GUÐNI Gunnarsson batt bagga
sína ekki sömu hnútum og jafnaldr-
arnir þegar hann var yngri. Guðni,
sem er tvítugur og lauk námi í
Fjölbrautaskólanum í Ármúla um
jólin, byrjaði kornungur að safna
vínylplötum með The Beatles og
The Rolling Stones. Bítlarnir voru í
uppáhaldi hjá honum til að byrja
með, en Stónsararnir sóttu smám
saman í sig veðrið og nú er svo
komið að hann á allar plöturnar
með Rolling Stones í upprunalegri
útgáfu, yfir 200 talsins, stórar og
smáar. Guðni á einnig allar plöt-
urnar með The Beatles, en ekki all-
ar í upphaflegri útgáfu.
„Ég byrjaði á þessu þegar ég var
pínulítill,“ segir Guðni. Hann
gramsaði í plötusafninu hjá
mömmu og pabba og þótti gaman
að spila plöturnar; sérstaklega
Bítla- og Stonesskífurnar. „For-
eldrar mínir voru miklir aðdáendur
þessara sveita í gamla daga og áttu
töluvert af plötunum þeirra,“ bætir
hann við. Þeir voru þó ekki jafnein-
arðir safnarar og Guðni; áttu bara
þessar helstu plötur með Beatles
og Stones.
Ófáar ferðir í Kolaportið
Guðni fékk plöturnar á hinum
ýmsu stöðum. Hann vandi komur
sínar í Kolaportið, þar sem afla-
brögð hins unga vínylveiðimanns
voru einna best. „Vinir mömmu og
pabba grófu líka oft upp gamlar
plötur í geymslum og skúmaskotum
og gáfu mér,“ segir hann. „Síðan
breyttist þetta þegar netið kom; þá
gat maður pantað plöturnar frá út-
löndum,“ segir Guðni. Hann hefur
mest notast við uppboðsvefinn
eBay, sem hann segir vera gull-
námu plötusafnarans.
Guðni segist telja að hann eigi
hverja einustu plötu sem Rolling
Stones hefur sent frá sér. „Maður
heldur það að minnsta kosti, en svo
bætist alltaf eitthvað við.“ Hann
segir að oft hafi verið erfitt að finna
tilteknar plötur. „Stundum þarf
maður að borga töluverða upphæð
fyrir plöturnar og þær hækka sí-
fellt í verði. Oft sér maður alveg
hrikalegar tölur á netinu,“ segir
hann. Hann þvertekur fyrir að hon-
um hafi nokkru sinni dottið í hug að
innleysa „hagnaðinn“ og selja plöt-
ur. „Aldrei. Ég mun aldrei selja
neitt,“ segir hann ákveðinn.
Fólk hló
Guðni segir að sennilega hefði
hann tekið Bítlaplötusöfnun jafn-
föstum tökum og Stonesplötusöfn-
un hefði netið verið komið þegar
hann var yngri. „Ég var alltaf í
Kolaportinu og þangað komu afar
sjaldan plötur með Bítlunum. Það
var mjög erfitt að safna þeim.“
Fólk hló að Guðna, segir hann,
þegar hann var kornungur að safna
plötum. „Fólk skildi þetta ekki, en
það hefur auðvitað breyst,“ segir
hann. Hann segist ekki hafa flíkað
þessu áhugamáli sínu meðal jafn-
aldranna, „en þetta kvisaðist út, að
ég væri Bítlaaðdáandi og hlustaði
langmest á þá. Það þótti nátt-
úrulega stórfurðulegt og krakk-
arnir hlógu bara.“
Guðni segist ekki vita um jafn-
ötulan safnara Rolling Stones
platna á Íslandi, en vill ekki ganga
svo langt að segja að safnið sé eins-
dæmi í heiminum. „Það gæti verið
einsdæmi á Íslandi, þótt hér séu
auðvitað brjálaðir Stónsarar á borð
við Ólaf Helga Kjartansson sýslu-
mann. En maður veit aldrei. Ég hef
verið svolítið einangraður í þessari
söfnun minni og haft lítil samskipti
við aðra safnara.“
Tónlistaráhugi
Það er erfitt, segir Guðni, að
svara því hvað heillar helst við
gömlu mennina í Rolling Stones.
„Það er ekki bara tónlistin. Ég ólst
upp við að gramsa í þessum plöt-
um; skoða þær og spila. En það er
miklu frekar áhuginn á tónlistinni
en söfnunaráráttan sem rekur mig
áfram. Þessar plötur eru engir sýn-
ingargripir sem safna ryki; ég
hlusta mjög mikið á þær. Þær
skemmast ekkert þótt þær séu í
notkun.“
Guðni hefur tekið nýrri tækni
fagnandi og er búinn að færa allar
plöturnar sínar yfir á stafrænt
form. Hann á iPod-spilara, þar sem
hann geymir lögin á mp3 formi, auk
þess sem hann hefur brennt allar
plöturnar á geisladiska. „Þetta er
allt inni á tölvunni og þar að auki er
ég með myndir af öllum plötu-
umslögum inni á iPodnum, sem
birtast þegar ég spila plöturnar.“
Eins og flestir tónlistar-
áhugamenn vita er nú á leiðinni ný
plata með Jagger, Richards og fé-
lögum, A Bigger Bang. Fyrsta
smáskífan af þeirri plötu, með lög-
unum „Streets of Love“ og „Rough
Justice“, kom út í gær og að sjálf-
sögðu var hún komin inn um lúguna
samdægurs hjá Guðna, enda hafði
hann pantað hana fyrirfram af net-
inu. „Mér finnst þeir ennþá alveg
frábærir,“ segir Guðni og segist að-
spurður ekkert sjá að því að menn
rokki úr sér lungun á sjötugsaldri
eins og þeir félagar. „Það er skrýtið
að hugsa til þess að þeir séu svona
gamlir, en þeir eru bara alltaf jafn-
góðir. Batna jafnvel bara með aldr-
inum.“
Ætlar á tónleika
Guðni hefur meira dálæti á Mick
Jagger en Keith Richards. „Keith
er auðvitað frábær, en mér finnst
söngröddin skemma fyrir, þótt
hann hafi átt ágætis söngkafla á
tímabili.“
Guðni segist stefna á að fara á
tónleika með Stones í náinni fram-
tíð, en fyrstu tónleikarnir í Banda-
ríkjaferð Stones voru í Boston í
fyrradag og gert er ráð fyrir að
tónleikaferðalagið um Evrópu verði
á næsta ári. „Já, nú fer hver að
verða síðastur að sjá Stones á tón-
leikum. Það heldur maður að
minnsta kosti alltaf.“
Tónlist | Á allar plöturnar með Rolling Stones í upprunalegri útgáfu
„Ég mun aldrei selja neitt“
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Guðni Gunnarsson á allar Rolling Stones-plöturnar.