Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 19
Á RÖLTI mínu um verslunargötur
og miðstöðvar tók ég eftir ýmsu sem
væntanlega verður áberandi í
vetur um stræti og torg.
Það virðist vera að lit-
irnir séu á undanhaldi
og það er nokkuð mikið
af brúnum og svört-
um fatnaði sem á að
glæða vetrartísk-
una þótt einstaka
dökkbláir tónar
slæðist með og þá
helst dökkur „túrkís“-
litur.
Gallabuxur og pils eru
líka alltaf vinsæl, og
nokkuð er um styttri
gallabuxur sem henta
vel með t.d. þykkum
sokkabuxum. Hvað
varðar pilsasídd þá
er nokkuð ljóst að
það þykir ekki lengur
flott að vera með örmjó-
an þveng um mittið því nú
eru það helst hnésíðu pilsin sem hafa
vinninginn. Þau eru úr þægilegum
efnum og yfirleitt ekki mjög þykk.
Bolir og toppar eru að sjálfsögðu
fjölbreyttir en sýndist mér að það
væri svolítið um óvenjuleg hálsmál og
þykka hlýra. Bolir eru frekar einfald-
ir og margir einlitir. Þá er gert meira
af því að setja nokkur lög hvert ofan á
annað og bolir eru seldir saumaðir
saman tveir og tveir og þá hvor í sín-
um litnum. Inni á milli er hægt að
finna ansi skemmtileg
munstur þó að þau séu
ekki aðalatriðið í ár.
Í skófatnaði er
nauðsynlegt að eiga
einhver stígvél, hægt
er að hafa þau með til-
tölulega litlum hæl eins
og mótorhjóla- og kú-
rekastígvélin bjóða uppá
(ó já, þau eru enn í tísku)
eða aðeins hærri með
stöðugum hæl, þó ekki pinna-
hæl. Rúnnuð tá er málið
og margir gam-
aldags skór fást
með samfelldum
hæl sem verður
áfram með fram
á veturinn.
Ekki má gleyma
sparifatnaðinum, og
alveg eins og á tísku-
pöllunum er mikið um létt
efni eins og shiffon sem leggst
einkar vel að líkamanum.
Gott úrval er af fylgihlutum en
þar er helst mælt með stórum
perlufestum og hárskrauti eins og
spöngum.
TÍSKA| Helstu áherslurnar í haust-og vetrartískunni eru falleg stígvél, spariföt úr shiffoni, gallabuxur og látlausir bolir
Stígvél, shiffon
og brúnir tónar
Hlægilega þægilegur fatnaður. Hildur: Peysa og toppur úr
Karen Millen. Pils Oasis. Stígvél Kron.
Morgunblaðið/ÞÖK
Tapsár? Hildur & Kamilla: báðar í peysum úr Kronkron, bux-
um úr Oasis, skóm úr Kron, og hálsfesti á Hildi 38 Þrep.
Aldrei of fín
Hildur: Kjóll Karen Mil-
len. Taska og hálsmen 38
Þrep. Hálsmen og arm-
band f. miðju 38 þrep.
Gamlar 80’s-prjónauppskriftir. Kamilla: Toppur og ull-
arpeysa Oasis. Pils Kúltúr. Skór Kron. Hárspöng Kronkron.
Smáatriðin verða aðal.
Lítil smáatriði eins og tölur geta
gert heilmikið fyrir einlitar flíkur.
Fæst í Karen Millen.
Abbastelpur. Hildur: Pils Karen Millen. Kápa
Oasis. Stígvél Kron.
Kamilla: Peysa Karen Millen. Pils Oasis. Stígvél
Kron. Hárspöng Kronkron.
Háhæluð stígvél nauðsyn
Glæsileg stígvél úr Kron.
Hlýir sólskinsdagar verða sjaldgæfari með hverjum degi og því rétt að huga að
hausttískunni í boði fyrir verslunarglaðar valkyrjur. Sara M. Kolka fór á stúfana.
Svarta ekkjan. Hildur: Blússa og pils Karen Millen, skór Kron.
sara@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 19
DAGLEGT LÍF