Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16). Ver› á mann í tvíb‡li á Jurys Inn Glasgow 16.-18. des., 13.-15. jan., 27.-29. jan. og 10.-12. mars. Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld. www.icelandair.is/glasgow Glasgow Flug og gisting í tvær nætur Verð frá 29.900 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 29 01 3 0 8/ 20 05 VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið. NÝR grunnskóli í Norðlingaholti var formlega settur í gær en athygli vekur að skólinn er enn sem komið er án nafns og sömuleiðis án hús- næðis. Að auki tekur skólinn til starfa nánast áður en að fyrstu íbú- arnir eru fluttir í hverfið. Í skólanum eru 20 nemendur í 1.–6. bekk. Þeim mun hinsvegar fjölga jafnt og þétt og mun skólinn með tímanum verða heildstæður grunnskóli 1.–10. bekkjar með á bilinu 300–400 nemendur að sögn Sifjar Vígþórsdóttur skólastjóra. Ekki er byrjað að hanna skólann en myndaður verður hópur með fulltrú- um starfsmanna, foreldra, nemenda og skólayfirvalda í tengslum við það að sögn Sifjar. Til að byrja með fer kennslan fram í færanlegum skólastofum, skálum, sem reistir verða í útjaðri væntanlegrar skólalóðar en skólinn mun rísa á holti við Árvað þar sem nú standa hesthús. Áhersla er lögð m.a. á einstaklingsmiðað skólastarf og einnig verður samkennsla ár- ganga svo fátt eitt sé nefnt. Innleiðir sveitasið „Ég ákvað að innleiða þann sveita- lega sið í borginni að fara í svokall- aðar skólaboðunarheimsóknir, sem ég hef haft fyrir austan þar sem ég var skólastjóri áður,“ segir Sif en hún var áður skólastjóri á Hallorms- stað. Tilgangurinn með þessum heimsóknum er að samstarfið milli skólans og heimila virki í báðar áttir. „Foreldrarnir eiga ekki alltaf að koma til okkar því við eigum líka að vera færanleg,“ segir Sif og bendir á að sl. laugardagur hafi í raun verið fyrsti skóladagurinn í Norð- lingaholti en hann fór fram heima við eldhúsborð inni á heimilunum. „Það fóru tveir og tveir kennarar inn á hvert heimili og boðuðu börnin persónulega til skóla. Það var ofsa- lega gaman og svolítið öðruvísi en menn eru vanir,“ segir Sif og bætir því við að skólaárið leggist af- skaplega vel í hana og í raun alla. Nýjasti grunnskóli Reykjavíkur tók formlega til starfa í Norðlingaholti í gær Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Er enn án nafns og fram- tíðarhús- næðis Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is MEÐ haustinu fyllast skólabygg- ingar lífi á ný þegar frísklegir nem- endur mæta aftur til skyldustarfa eftir ærsl og fjör sumarsins. Í gær voru margir skólar settir og víða hefst kennsla samkvæmt stunda- skrá í dag. Í skólanum verja börn og ungmenni mestum tíma sínum og þar fást þau við verkefni hversdags- ins. Í skólanum er oftast skemmti- legt að vera, en það er ekki alltaf bara leikur að læra. Nám er vinna, sem er gaman að sinna. Á hverju ári sest stór hópur barna á skólabekk í fyrsta skipti og mörg börn mættu ásamt foreldrum eða forráðamönnum í viðtöl með kenn- urum sínum í gær. Eftirvænting og forvitni skein úr andlitum yngstu nemendanna enda er það stórt skref að hætta í leikskóla og byrja í skóla. Flestir muna eflaust fyrsta skóla- daginn og í skólanum leynast oft ný- ir vinir og áhugaverð viðfangsefni. Það er um að gera fyrir alla að njóta verunnar í skólanum og fyrr en varir verður aftur komið vor. En til að starfið gangi nú snurðu- laust fyrir sig þurfa skólarnir góðan og velskipaðan hóp starfsmanna. Víða hefur grunnskólum ekki tekist að ráða fólk í allar stöður, einkum í störf skólaliða og stuðningsfulltrúa. Sem dæmi um stöðuna þá vantar ÍTR enn tugi starfsmanna á frí- stundaheimilin í Reykjavík. Morgunblaðið/Jim Smart Júlía Rut Kristjánsdóttir var með foreldrum sínum og var búin í viðtali hjá kennaranum sínum. Hún er að byrja í sex ára bekk í Breiðagerðisskóla. Júlía segist hafa hlakkað til að byrja í skólanum, enda á hún átta ára systur í sama skóla og svo er hún búin að kaupa skólatösku, pennaveski og strokleður. Besta vinkona Júlíu verður með henni í bekk og býst hún við að skiptast á að leika við hana og aðra vinkonu sína. Hún er líka spennt að kynnast nýjum vinum en segir að næstum engir krakkar úr leikskólanum séu að fara í sama skóla og hún. Júlía heldur að allt verði jafnskemmtilegt í skólanum og er svo heppin að systir hennar er að kenna henni að lesa. Júlía verður ekki bara í skólanum heldur æfir hún sund og lærir dans í dansskóla Heiðars Ástvalds- sonar. Hún hefur dansað í nokkur ár, þar sem hún fékk að fylgja systur sinni til að byrja með og er hún líklega yngsti nemandi skólans frá upphafi. Auk alls þessa segir Júlía að hana langi til að læra á þverflautu. Hún segist hafa tíma fyrir þetta allt saman, þar sem æfingar séu ekki á sömu dögunum, en það verður örugglega nóg að gera hjá henni í vetur. Morgunblaðið/Jim Smart Þórdís, Hildur, Aníta, Andrea, Sólrún, Erla og Hulda eru allar að byrja í 9. bekk í Hlíðaskóla. Þær voru mis- ánægðar með að mæta í skólann eftir skemmtilegt sumarfrí en urðu samt jákvæðari gagnvart vetrinum eftir smá umhugsun. Þær voru sammála um að stytta þyrfti skóladaginn því þær væru ennþá í grunnskóla en þyrftu samt að vera í skólanum til kl. fimm suma daga vikunnar. Þær sögðu þátttöku í skólaleikritinu mesta tilhlökkunarefni vetrarins og ætluðu allar að vera með. Þátttaka í félagslífi er líka hollur og nauðsynlegur hluti þess að vera í skóla. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is Eftirvænting í upp- hafi skólaársins FERÐ nokkurra íslenskra ferða- manna um Gíbraltar á Spáni tafðist í gær vegna hótunar um að sprengja væri í símaklefa á einu torgi bæj- arins. Lögregla rýmdi torgið og nærliggjandi götur á meðan dular- full taska, sem hafði verið skilin eftir við klefann, var sprengd í loft upp. Um klukkustund síðar var umferð hleypt um torgið að nýju, að sögn eins ferðamanns úr íslenska hópn- um. Um 40 manns ákváðu að fara í dagsferð í gær frá Costa del Sol til Gíbraltar. Á hádegi kom hópurinn að torginu, til að setjast niður á veit- ingastaði og fá sér að borða. Skyndi- lega komu lögreglumenn og báðu fólk um að rýma torgið, fyrst hluta þess en síðan allt nærliggjandi svæði. Var fólk þá beðið að fara inn á veitingastaðina eða fá sér göngutúr á aðrar slóðir. Taskan var sprengd en í henni leyndist engin sprengja. Íslendingarnir héldu ró sinni, sem og flestir aðrir ferðamenn á torginu, á meðan lögreglumenn athöfnuðu sig fumlaust. Íslendingar töfðust vegna sprengjuhótunar KONAN, sem slasaðist alvar- lega í bílslysi á Hallormsstað fyrir hálfum mánuði, var í gær útskrifuð af gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Er hún á batavegi en var færð á aðra deild til áframhaldandi að- hlynningar. Slysið er enn í rannsókn hjá lögreglunni á Egilsstöðum. Bresk hjón, sem voru með kon- unni í bíl, létust. Komin af gjörgæsludeild

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.