Morgunblaðið - 26.08.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 47
MENNING
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga
kl. 14. Baðstofan er opin frá kl. 9–13 í
dag. Sparikaffi kl. 15. Allir velkomnir.
Ath. við æfum boccia tvisvar í viku,
mánudaga og fimmtudaga kl. 10. Við
bjóðum þér að vera með. Vinnustofan
opin alla daga.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, fótaaðgerð, frjálst að
spila í sal.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í kvöld í Gjábakka kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dagsferð 3. september: Fjallabak
syðra, Emstrur. Ekið að Keldum og
um Fjallabak syðra að Álftavatni, síð-
an um Hvanngil og Emstrur, komið að
Markarfljótsgljúfri og ekið um Fljóts-
hlíð. Nokkur sæti laus. Ath. takmark-
aður sætafjöldi. Uppl. og skráning í
síma 588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og
11.30.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun. Kl. 14.15 verður Aðalheiður
Þorsteinsdóttir við píanóið fram að
kaffi kl. 15. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, kl. 9 baðþjónusta, fótaað-
gerð, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 pútt, kl.
12 hádegismatur, kl. 13 bókabíll, kl. 15
kaffi, kl. 14 bingó.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Brids
kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun virka
daga fyrir hádegi. Hádegisverður.
Dagblöðin liggja frammi. Fótaaðgerð-
ir 588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Púttvöllur er alltaf opinn.
Morgunkaffi, hádegisverður og síð-
degiskaffi. Gönguhópurinn Gönu-
hlaup kl. 9.30. Hárgreiðslustofa
568 3139. Fótaaðgerðarstofa
897 9801. Enn er möguleiki á að
koma með hugmyndir að starfsemi á
haustönn. Uppl. á staðnum og í síma
568 3132.
Norðurbrún 1 | Námskeið hefst aftur
í leirvinnslu fimmtudaginn 1. sept. kl.
9. Myndlist verður á mánud. kl. 9–12
og postulínsmálning kl. 13–16.30. Á
föstud. myndlist kl. 9–12, innritun er
hafin í síma 568 6960.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30
handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádegis-
verður. Kl. 13.30–14.30 sungið v/
flygilinn. Kl. 14.30–14.45 kaffiveit-
ingar. Kl. 14.30–16 dansað í aðalsal.
Vesturgata 7 | Kl. 13.30 sungið við
flygilinn við undirleik Sigurgeirs. Kl.
14.30 kynna Lilja Jónsdóttir og Hjör-
dís Geirs haust- og vetrarferðir frá
Úrvali Útsýn, ferðavinningar í boði.
Kl. 14.30–16 dansað við lagaval Sig-
valda. Rjómapönnukökur með
kaffinu. Allir eru velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, hárgreiðslu og fótaaðgerða-
stofur opnar, böðun, bingó kl. 13.30.
Skráning stendur yfir í námskeið
vetrarins t.d. bútasaum, penna- og
perlusaum, glerskurð, glerbræðslu,
bókband og leirmótun. Opið fyrir alla
á hvaða aldri sem er, uppl. í síma
411 9450.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10. Létt spjall og kaffisopi. Allir vel-
komnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja
unga fólksins. Samkoma kl. 20.
Bænastund kl. 19.30 fyrir samkomu.
Allir velkomnir. www.filo.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Föstudagur 26. ágúst
12.00: Tónlistarandakt. Einar
Jóhannesson klarínett og
Douglas A. Brotchie orgel. Jo-
hann Sebastian Bach: Preludi-
um í fís-moll BWV
883/1. John A. Speight:
Music, when soft voi-
ces die (frumflutn-
ingur). Wolfgang Ama-
deus Mozart: Tvær
kirkjusónötur, KV 67
og 336.
Sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson.
18.00 – 22.00: Kirkjulistaspjall
með kaffihúsastemningu.
Suðursalur Hallgrímskirkju.
„Þér eruð salt jarðar“, passí-
an og guðspjöllin í listinni.
Stutt innlegg, almennar um-
ræður. Umræðum stýra Ævar
Kjartansson og dr. Sigurður
Árni Þórðarson. Dagskráin er
fimmþætt:
18.00: Tónlist. Matteusarpassíur
Bachs og Kvernos. Umsjón:
Halldór Hauksson og sr. Hauk-
ur Ingi Jónasson. Trond
Kverno tónskáld og Terje
Kvam kórstjóri, sem stjórnað
hefur báðum verkunum, segja
frá.
19.00: Bókmenntir. Hallgrímur
og guðspjöllin. Um-
sjón: Margrét Egg-
ertsdóttir cand. mag.
og dr. Gunnar Krist-
jánsson guðfræðingur.
20.00: Myndlist. Guð-
spjöllin séð með aug-
um myndlistarmanna.
Umsjón: Þóra Krist-
jánsdóttir listfræð-
ingur og dr. Pétur Pét-
ursson guðfræðingur. Rúrí
segir frá verkum sínum á
Kirkjulistahátíð 2005.
21.00: Kvikmyndir. Fjallað um
Matteusarguðspjall Pasolinis.
Umsjón: Oddný Sen kvik-
myndafræðingur og dr. Arn-
fríður Guðmundsdóttir guð-
fræðingur.
22.00: Matteusarguðspjall. Kvik-
mynd frá 1964 eftir Pier Paolo
Pasolini.
Miðaverð: 500 kr.
Dagskrá Kirkjulistahátíðar
Á CAFÉ Rósenberg verða í kvöld
og annað kvöld tónleikar kvart-
ettsins Busy doing nothing. Kvart-
ettinn er skipaður þeim Birgi
Baldurssyni trommuleikara, Eð-
varð Lárussyni gítarleikara, Sig-
urði Perez saxófónleikara og
Þórði Högnasyni kontrabassaleik-
ara.
Þeir félagarnir hafa leikið með
ýmsum hljómsveitum í gegnum ár-
in en hafa núna tekið höndum
saman um að spila snarstefjaða
tónlist úr ýmsum áttum. Mest
verður þó leikið af blús- og djass-
efni með suðrænum áhrifum. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22.30 bæði
kvöldin og er aðgangseyrir 500 kr.
Morgunblaðið/Jim Smart
Uppteknir iðjuleysingjar á Rósenberg
LÍF og fjör er í Mosfellsbæ en þar
stendur nú yfir menningar- og úti-
vistarhátíðin „Í túninu heima“. Þar
er boðið upp á fjölbreytta röð við-
burða bæði fyrir yngstu kynslóð-
irnar og þá sem eldri eru.
Björn Þráinn Þórðarson er sviðs-
stjóri fræðslu- og menningarsviðs
Mosfellsbæjar og hefur yfirumsjón
með verkefninu: „Mosfellsbær vill
koma sér á viðburðadagatal sumars-
ins. Það má segja að við höfum hátíð-
ina milli Ljósanætur og Menning-
arnætur og stefnum við að því að
endurtaka viðburðinn að ári.“ Yf-
irskrift hátíðarinnar er lánuð frá
Nóbelsskáldinu sem eins og kunn-
ugt er gerði Mosfellsbæ að sínum
heimabæ: „Við reynum að tjalda því
sem best er í Mosfellsbæ. Við fáum
til okkar gesti til að skemmta en
fyrst og fremst verður það okkar
eigið listafólk sem treður upp,“ segir
Björn.
Mikil útivistar- og menningar-
dagskrá verður um helgina. Nefna
má að á laugardaginn verður vígð ný
fitness-braut við Útivistarmiðstöð-
ina á Varmá. Bekkjarkeppni verður
milli grunnskólabarna og hestar
teymdir undir börnum, svo nokkuð
sé nefnt. Sjöþúsundasti Mos-
fellsbæingurinn kom í heiminn á
dögunum og verður honum og fjöl-
skyldu hans færð sérstök viðurkenn-
ing og gjafir frá bæjarfélaginu og
fyrirtækjum í bænum.
Á sunnudag kl. 17 halda Ellen
Kristjánsdóttir, KK og Eyþór Gunn-
arsson tónleika í Lágafellskirkju en
yfir hátíðardagana stendur listasýn-
ingin Glerþræðir í listasal Mosfells-
bæjar. Á Gljúfrasteini munu síðan
Þórarinn Eldjárn og Ilmur Krist-
jánsdóttir lesa í lautinni á laugardag
kl. 14.
Á laugardag er líka útidansleikur
með hljómsveitinni Bermúda, grillað
verður fyrir gesti í boði fyrirtækja í
bænum og varðeldssöngur með lið-
sinni skátahóps bæjarins. Gengið
verður á fell, haldin stafgöngu-
námskeið og kynning á vetrarstarfi
íþróttafélaganna í íþróttamiðstöð-
inni, svo nokkuð sé nefnt.
Ókeypis er á alla viðburði hátíð-
arinnar.
Hátíð í Mosfellsbæ
◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
533 4200
eða 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Hef kaupanda að vönduðu einbýlishúsi
á stór-Reykjavíkursvæðinu
Seljendur vinsamlega hafið samband
í síma 533 4200 eða 892 0667
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
SÓLVALLAGATA — NÝLEG
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Einstaklega sjarmerandi og björt þriggja herbergja risíbúð á vinsælum
stað í vesturbæ Reykjavíkur. Fallegur stigi með stórum glugga. Komið
inn í hol. Baðherbergi er allt nýlega tekið í gegn á mjög smekklegan
hátt, flísalagt á gólfum og veggjum, fallegt frístandandi baðkar og
sturta, vönduð tæki og halogen-lýsing, hiti í gólfi. Tvö svefnherbergi
eru í íbúðinni. Eitt hjónaherbergi sem er rúmgott og bjart, parket á
gólfum. Barnaherbergi er parketlagt. Eldhús er rúmgott með nýlegri
snyrtilegri innréttingu. Stofa og borðstofa í alrými. Mjög fallegir glugg-
ar í stofu sem gefa íbúðinni mikinn svip. Parket er á gólfum. Íbúðin er
undir súð þannig að íbúðin er í raun um ca 76 fm. Bílastæði fylgir
eigninni. Verð kr. 17,9 milljónir.