Morgunblaðið - 14.09.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 14.09.2005, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKOÐA KAUP Á STERLING Forsvarsmenn FL Group kanna nú möguleika á kaupum samsteyp- unnar á norræna lággjaldafélaginu Sterling Airways. Viðræður hafa enn ekki hafist og óvíst hver niðurstaðan verður. Bondevik boðar afsögn Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, tilkynnti Haraldi konungi í gær að hann hygðist segja af sér í næsta mánuði þegar frumvarp til fjárlaga næsta árs hefur verið lagt fyrir þingið. Þá tekur við stjórn undir forystu Jens Stoltenbergs, leiðtoga Verkamannaflokksins. Ákæran verði óbreytt Saksóknari í Baugsmálinu krafðist þess fyrir dómi í gær að ákæran í málinu yrði látin standa óbreytt, verknaðarlýsingar sem þar kæmu fram væru fullnægjandi. Verjandi eins sakborninga sagði gallana á ákærunni aftur á móti svo mikla að málinu ætti að vísa frá í heild sinni Bush kveðst axla ábyrgð George W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær axla ábyrgð á því sem fór úrskeiðis hjá stjórninni þegar hún tókst á við hamfarirnar við Mexíkó- flóa. Hann sagði þær vekja spurn- ingar um hvort yfirvöld gætu brugð- ist sem skyldi við náttúruhamförum og stórfelldum hryðjuverkum. Selja fisk fyrir 22 milljarða Fisksölufyrirtækið Atlantis Group undirritaði í gær samning við Daito Gyorui í Japan, stærsta fiskmarkað Tókýó. Samningurinn snýst um kaup Japana á fiski frá Atlantis næstu fimm árin, aðallega eldisfiski eins og lax og túnfiski, og nemur andvirði hans rúmum 22 milljörðum króna. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 26 Fréttaskýring 8 Umræðan 22/27 Viðskipti 13 Bréf 27 Erlent 14/15 Minningar 27/32 Minn staður 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/38 Akureyri 17 Staður og stund 37 Suðurnes 18 Leikhús 40 Landið 19 Bíó 42/45 Daglegt líf 20 Ljósvakamiðlar 46 Menning 21 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %     &         '() * +,,,                    Mikið úrval stórra og smárra heimilistækja ásamt lömpum, þráðlausum símum og farsímum á sann- kölluðum Búhnykks- kostakjörum. Komið og gerið frábær kaup. GH - SN 05 09 00 2 ÚTFÖR Guðmundar H. Kjærne- sted, fyrrverandi skipherra, var gerð frá Hallgrímskirkju í Reykja- vík í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Pálmi Matthíasson og séra Hjalti Þorkelsson jarðsungu. Kistuna báru úr kirkju: Björn Ingvarsson, Hafsteinn Heiðarsson, Halldór Gunnlaugsson, Hjalti Sæ- mundsson, Kristján Þ. Jónsson, Leif K. Brydde, Ólafur Pálsson og Tóm- as Helgason. Morgunblaðið/RAX Útför Guðmundar H. Kjærnested DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að við skoðun á nýjustu mælingu Hag- stofunnar á neysluvísitölunni verði að hafa í huga að hin raun- verulega verð- bólga, sem snerti almenning í land- inu, sé óveruleg. Það sé hins vegar húsnæðisliðurinn sem ýti undir verðbólguna, en hún er sem kunnugt er komin yfir markmið Seðlabankans. „Ef við skoðum samræmdar vísi- tölur í Evrópu, þar sem húsnæðislið- urinn er hafður sér, þá erum við með hvað lægstu verðbólguna,“ segir Davíð en honum kom það á óvart að sjá hve dagvaran hafi hækkað milli mánaða í mælingu á vísitölunni. Varðandi bensínið og hækkun þess segir Davíð það vera nokkuð sem ekki sé hægt að bæta sér upp. Hækkanir bitni á þjóðfélaginu öllu þar sem forsendur þeirra eru utan- aðkomandi. Varðandi kröfu bíleigenda um lægri álögur ríkisins á eldsneytis- verði bendir Davíð á að stjórnvöld hafi sýnt þá framsýni að breyta bensíngjaldi í fast gjaldi. „Sú ákvörðun ein, ef ég man rétt, hefur þýtt að álögur ríkisins eru 35% lægri en ella,“ segir Davíð. Hækkun dagvöru kom á óvart Davíð Oddsson Utanríkisráðherra um verðbólguna „MÉR finnst vera kominn tími til þess að karlar komi um borð,“ segir Árni Magnússon félagsmálaráð- herra, sem á fundi jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins í gær kynnti hugmynd um karlaráðstefnu. Að- spurður sagði Árni vonast til þess að hægt verði að fara af stað með inn- lenda karlaráðstefnu nú í haust og í framhaldinu alþjóðlega karlaráð- stefnu vorið 2006. „Ég tel að það sé mjög mikilvægt að karlar ræði þessi mál, því jafn- réttismál eru ekkert síður okkar mál en kvenna. Sem betur fer höfum við verið að ná góðum árangri hérlendis, en við getum gert betur,“ sagði Árni í samtali við Morgunblaðið. Aðspurð- ur sagði hann hugmyndina að karl- aráðstefnu ekki vera sína, heldur frá Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, en í ávarpi sínu á mál- þingi um jafnrétti í Borgarleikhús- inu fyrir ári gagn- rýndi Vigdís það að alltaf væru það aðeins konur sem mættu þegar ræða ætti jafn- réttismál. „Þá kviknaði ljós hjá mér og ég hef síðan rætt þessa hugmynd um karlaráð- stefnu bæði við hana og fleiri aðila og er sannfærður um að þetta sé það sem við eigum að gera,“ segir Árni og upplýsir að hann vonist til þess að í framhaldi af innlendu ráðstefnunni verði hægt að halda hérlendis alþjóð- lega karlaráðstefnu. „Því ég vil meina að við Íslendingar séum í ákveðnum fararbroddi í jafnréttis- málum og höfum einhverju að miðla.“ Aðspurður segist Árni búast við því að meginviðfangsefni innlendu ráðstefnunnar verði að fara yfir það hvað hafi áunnist á umliðnum árum og eins verði rætt með hvaða hætti karlmenn geti orðið virkari og haft meiri áhrif á jafnréttisbaráttuna. „Og hvernig við getum tryggt að ár- angur verði meiri.“ Spurður hvort hann sjái fyrir sér að jafnréttisumræðan verði öðruvísi þegar aðeins karlar taki þátt í um- ræðunni svarar Árni því játandi. „Ég er eiginlega alveg viss um að umræð- an verði svolítið öðruvísi og ég held að jafnréttisbaráttan hafi gott af því. Með því er ég ekki að gagnrýna hvernig hún er, heldur miklu frekar að segja að við getum útvíkkað hana,“ segir Árni og tekur fram að hann telji að til þess að hægt verði að ná næstu áföngum í jafnréttisbarátt- unni þá þurfi karlar að verða miklu virkari en þeir eru í dag. Félagsmálaráðherra kynnir karlaráðstefnu í haust „Kominn tími til að karlar komi um borð“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Árni Magnússon „HÉR var rífandi stemning og myndinni afar vel tekið,“ segir Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumað- ur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, sem viðstödd var frumsýningu á mynd Baltasars Kormáks A Little Trip to Heaven á kvikmyndahátíð- inni í Toronto sl. mánudagskvöld. Að sögn Laufeyjar var koluppselt á frumsýninguna og margir sem ekki gátu fengið miða. „Það er búið að vera rosalega fín stemning í kringum myndina hér úti og hún hefur farið virkilega vel af stað.“ Að frumsýningu lokinni sátu Baltasar Kormákur og Forest Whitaker fyrir svörum. Segir Lauf- ey að þar hafi komið fram mikil ánægja með annars vegar söguflétt- una og hins vegar hvaða tökum Baltasar tekur hin sammannlegu vandamál. Segir hún greinilegt að áhorfendur hafi þekkt vel til Baltas- ars því menn hafi verið að bera nýju myndina saman við fyrri myndir hans. Aukasýn- ing vegna góðrar að- sóknar ♦♦♦ RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum í gær að veita Bandaríkja- mönnum fjárhagsaðstoð til endur- uppbyggingar í þeim ríkjum sem verst urðu úti í fellibylnum Katr- ínu sem brast á 29. ágúst. Rík- isstjórnin samþykkti að verja hálfri milljón Bandaríkjadala, jafn- virði um 31 milljón íslenskra króna, til þessa verkefnis. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra lagði þetta til í samráði við Davíð Oddsson utanríkisráð- herra. Davíð Oddsson segir við Morg- unblaðið að hér sé um táknrænan stuðning Íslands að ræða, fyrst og fremst til að sýna Bandaríkja- mönnum samhug á erfiðum tímum. Ekki sé um háa upphæð að ræða miðað við þann gríðarlega kostnað sem þeir standi frammi fyrir. Bandaríkjamenn hafi hins vegar komið Íslendingum og mörgum öðrum þjóðum til hjálpar, þegar eitthvað hafi bjátað á. Styrkja Bandaríkja- menn um 31 milljón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.