Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fágu n A4 Q uatt ro ® Koparþræðir skila því sem ljósleiðaranum var ætlað Framtíðin kom í ljós á morgun FORMENN landssambanda verkalýðsfélaga, sem eiga aðild að ASÍ, luku tveggja daga vinnufund- um sínum í gær. Meðal verkefna var að undirbúa ársfund ASÍ, sem fram fer í næsta mánuði. Einnig varð mönnum tíðrætt um horfur í kjaramálum í kjölfar nýjustu mæl- ingar Hagstofunnar á neysluvísi- tölunni, sem sýndi 4,8% verðbólgu á ársgrundvelli. Fram komu þung- ar áhyggjur af þróun verðlags- og atvinnumála og horfum á næsta ári þess efnis að verðbólgan verði áfram töluverð og staða krónunnar veikist. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir menn gera sér vel grein fyrir því að nú reyni verulega á helstu for- sendur kjarasamninga, annars vegar verðbólguna og hins vegar þróun annarra samninga. Framundan séu viðræður um endurskoðun á kjarasamningum. „Verðbólgumarkmiðin hafa ekki náðst og svo hafa verið gerðir hér samningar á vinnumarkaði sem hafa farið langt fram úr okkar samningum. Mikið kraftaverk þarf að gerast til að þetta gangi til baka, enda engin verðhjöðnun til staðar,“ segir Kristján, sem ekki telur koma til greina að breyta neysluvísitölunni á þann veg að taka út húsnæðisliðinn. „Við skipt- um ekki um hest úti í miðri á.“ Kristján bindur vonir við að- komu ríkisins að launamálum. Margt komi til greina, m.a. með aðkomu að lífeyrissjóðsmálum lág- launafólks, en allar aðgerðir verði að hafa jöfnunaráhrif. Kristján segir ekki vera hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að kaup- máttur margra hafi aukist en ráða- menn megi þá heldur ekki gleyma því að verðhækkanir hafi að mestu étið upp þá aukningu. Rjóminn hafi ekki skilað sér til allra. Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur, segir forsendur kjarasamninga vera í uppnámi og ástæða sé til að hafa áhyggjur af stöðunni. Vonir séu bundnar við störf endurskoð- unarnefndar, sem í eiga sæti fulltrúar atvinnurekenda og laun- þega. Menn séu að ráða ráðum sínum um hvort segja eigi samningunum upp eða fá innspýtingu í þá, eink- um til hækkunar lægstu launanna. Vitað sé að nokkurt launaskrið hafi átt sér stað í ýmsum stéttum. Að því leyti megi taka undir orð forsætisráðherra í Morgunblaðinu í gær, um að kaupmáttaraukning hafi orðið meiri en reiknað var með. „Launaskrið er eðlilegur fylgi- fiskur uppsveiflu í efnahagslífinu, eins og hefur orðið, en alltaf eru einhverjir sem sitja eftir. Það eru þeir sem við höfum áhyggjur af,“ segir Gunnar Páll og vísar þar m.a. til fjölmargra VR-félaga, sem hafi orðið fyrir kaupmáttarrýrnun. Formenn landssambanda innan ASÍ stilltu saman strengi sína Þungum áhyggjum lýst af þróun verðlagsmála Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Samninganefndir atvinnurekenda og launþegafélaga á almenna markaðinum gengu frá samningum í mars 2004.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.