Morgunblaðið - 14.09.2005, Side 12

Morgunblaðið - 14.09.2005, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÖLL aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eiga að fá tækifæri til setu í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna og Ísland á góða möguleika á sæti þar eins og íslensk stjórnvöld stefna að, að sögn sir Marrack Gouldings, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Íslendingar vinna að framboði til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009– 2010. Tyrkland og Austurríki sækjast einnig eftir setu í ráðinu en tvö sæti eru í boði. Marrack Goulding segir að ein helsta hindr- un Íslendinga sé sú að vegna kosninga í ör- yggisráðið komi meðal annars fram í stofn- skrá SÞ að taka skuli til greina framlög þjóða til alþjóðlegrar friðargæslu. Ísland hafi ekki tekið mjög virkan þátt í þessari gæslu og til dæmis ekki sent her á vettvang vegna þess að landið hafi ekki her. Hins vegar eigi Ísland möguleika á að fá kosn- ingu í ráðið vegna þess að keppinautarnir verði útilokaðir á annan hátt en Ísland, Austurríki vegna fyrri setu í öryggisráðinu og Tyrkland vegna deilna í tengslum við ýmis vandamál varðandi aðild að Evrópu- sambandinu. Aðildinni fylgir aukið vægi Kostnaðaráætlun vegna baráttu Íslands fyrir að ná kjöri og vegna setu í ráðinu hljóðar upp á um 600 milljónir króna. Goulding segir að ríki verði að gera það upp við sig hvort þau vilji eyða miklum fjár- munum til að eiga aðild að öryggisráðinu. Aðildinni fylgi aukið vægi á alþjóðlegum vettvangi og þátttaka í mikilvægum, alþjóð- legum ákvarðanatökum. Þetta sé mikilvæg staða fyrir hverja þjóð og ef hann væri Ís- lendingur vildi hann að Ísland ætti setu í ör- yggisráðinu. Smáríki hafi átt aðild að ráðinu og þannig ætti það að vera. Sameinuðu þjóðirnar eiga við ýmis vanda- mál að etja og eiga í erfiðleikum þess vegna. Goulding segir að helstu vandamálin séu þau að friðargæslan hafi mistekist. Ekki hafi tekist að færa stefnuna í nútímalegt horf. Í öðru lagi hafi bandarísk stjórnvöld skaðað Sameinuðu þjóðirnar með einhliða stefnu sinni. Goulding var hér á landi á dögunum og flutti tvö erindi. Umbætur á Sameinuðu þjóðunum og leiðtogafundurinn mikli: er einhver von um árangur? kallaði Marrack Goulding erindi sitt sem hann flutti í hádeg- isfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands í gær. Um helgina hélt hann annað erindi á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og nefndi það Hvers vegna skipta smáríki svo miklu máli við friðargæslu Sameinuðu þjóð- anna? Marrack Goulding var aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 1986– 1997 (yfirmaður friðargæslusviðs 1986–1993 og yfirmaður stjórnmálasviðs 1993–1997). Áður gegndi hann ýmsum ábyrgðarstöðum innan bresku utanríkisþjónustunnar, en síð- an 1997 hefur hann verið forstöðumaður St. Antony’s College við Oxford-háskóla á Eng- landi. Sir Marrack Gouldings, fyrrv. aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Segir ríki eiga að skiptast á setu í öryggisráði SÞ Morgunblaðið/Þorkell Sir Marrack Goulding flutti erindi um um- bætur á Sameinuðu þjóðunum í hádeg- isfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í gær. SAMTÖK myndrétthafa á Íslandi, SMÁÍS, sendu í gær frá sér tilkynningu þar sem kem- ur fram hörð gagnrýni á Neytendasamtökin og yfirlýsingu þeirra vegna umræðu um áskriftir að SKY-sjónvarpsstöðvunum hér á landi. Í yfirlýsingu Neytendasamtakana kemur meðal annars fram að þau telji þá Íslendinga sem hafa aðgang að SKY-stöðvum ekki vera að brjóta gegn reglum, því eru SMÁÍS hins vegar ósammála. Meðal annars segir í til- kynningu SMÁÍS að „það [sé] með ólíkindum að Neytendasamtökin skuli taka upp hansk- ann fyrir ólögmæta starfsemi og vera með slíkar yfirlýsingar sem raun ber vitni. Það er ljóst að með yfirlýsingu sinni og rökleysu hafa Neytendasamtökin reynt að upphefja starf- semi sem er á skjön við íslensk lög og [...] get- ur slíkt seint talist til hagsbóta fyrir neyt- endur.“ SMÁÍS telur einnig að SKY og flestir þeir milligöngumenn sem selji áskriftir hér á landi brjóti á íslenskum skattalögum þar sem ekki séu greiddar upphæðir fyrir skatta og skyldur af starfseminni eins og lög gera ráð fyrir. Ennfremur borgi íslenskir fjölmiðlar háar upphæðir fyrir íslenska sýningarréttinn en enginn réttur hefur verið keyptur af SKY fyr- ir Ísland. Neytendasamtökin eru jafnframt talin halda hlífiskildi yfir starfsemi sem brýtur lög og reglugerðir og sögð eiga að endurskoða hlutverk sitt sé það ætlun þeirra. SMÁÍS gagnrýna Neytendasamtökin Segja samtökin halda hlífiskildi yfir ólöglegri starfsemi GISSUR Páll Gissurarson ten- órsöngvari lauk á mánudag, ásamt Hólmfríði Sigurðardóttur píanó- leikara, tónleikaröð á heimssýn- ingunni í Japan. Héldu þau alls 12 tónleika á fimm dögum og voru viðbrögðin mikil og góð. Sungu þau og léku á vegum norræna skálans á heimssýningunni, m.a. á stóru sviði á kvöldin fyrir framan tugþúsundir áhorfenda. Á fjölbreyttri söngskrá voru 23 íslensk lög og að sögn Gissurar fóru þau sérlega vel í japanska áhorfendur. Þeirra á meðal var Hamraborgin. „Viðbrögðin hafa verið frábær. Japanir hafa greinilega mikinn Flóvenz söngkonu. Bæði eru þau Kópavogsbúar en eftir söngnám í Söngskóla Reykjavíkur fluttu þau til Ítalíu árið 2001 og byrjuðu á ítölskunámi við háskólann í Siena. Þau héldu síðan söngnáminu áfram í Bologna en að auki hefur Gissur Páll sótt tíma að und- anförnu hjá stórsöngvaranum Kristjáni Jóhannssyni. Með nám- inu hefur Gissur víða komið fram á tónleikum og í óperum, bæði sem einsöngvari og í kór. „Kristján hefur reynst mér rosalega vel í söngnum og einnig hjálpað mér við að komast í sam- band við fólk í söngheiminum,“ segir Gissur Páll sem nú undirbýr sig m.a. fyrir áheyrnarpróf síðar í mánuðinum hjá þekktum umboðs- manni söngvara á Ítalíu. alls 24 þúsund gestir komu yfir einn sýningardag. Frá því að sýn- ingin hófst hafa yfir tvær milljónir manna kynnt sér það sem Norð- urlöndin hafa upp á að bjóða í menningu, viðskiptum og ferða- þjónustu. Spurður hvernig tónleikarnir í Japan hefðu komið til sagði Gissur Páll að þau Hólmfríður, sem starf- ar sem píanóleikari á Íslandi, hefðu sett saman söngdagskrá og sótt um að fá að syngja og leika ís- lensk lög á heimssýningunni. Um- sókninni hefði verið vel tekið og þau að sjálfsögðu gripið tækifærið. Í námi hjá Kristjáni Gissur Páll býr um þessar mundir í Parma á Ítalíu ásamt konu sinni, Sigrúnu Daníelsdóttur áhuga á óperusöng því eftir hverja tónleika á stóra sviðinu beið okkar fjöldi fólks sem vildi fá eiginhand- aráritanir og við vorum mynduð í bak og fyrir. Einnig komu margir á tónleikana aftur og aftur,“ segir Gissur Páll í samtali við Morg- unblaðið. Á síðustu tónleikunum á mánu- dag söng hann m.a. fyrir íslensku viðskiptasendinefndina sem er í heimsókn í Japan með Davíð Oddsson utanríkisráðherra í broddi fylkingar. Einnig hitti hann um helgina virta japanska óp- erusöngkonu, sem gaf sig á tal við þau Hólmfríði að tónleikum lokn- um, og vildi fá allar upplýsingar um þau og íslenska söngtónlist. Aðsóknarmet var slegið í nor- ræna skálanum um helgina þegar Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari vakti athygli með flutningi íslenskra sönglaga á heimssýningunni í Japan Ljósmynd/Ragnar Þorvarðarson Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari og Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari gefa japönskum áhang- endum eiginhandaráritanir að loknum tónleikum á heimssýningunni í Japan. Gissur Páll og Hólmfríður komu fram á 12 tónleikum á fimm dög- um við norræna skálann á Expo 2005 í Japan. Hamraborginni vel tekið Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is GUÐNÝ Hildur Magnúsdóttir, félagsráðgjafi og MA í félagsfræði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.–6. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarn- ar 2006. Guðný hefur setið í jafn- réttisnefnd Reykjavíkur- borgar frá árinu 2002 og verið varaborgarfulltrúi frá árinu 2003. Guðný hefur setið í stjórn VGR frá árinu 2002 og hefur stýrt Velferðarsmiðju VGR, sem m.a. stóð fyr- ir málþingi sl. vor um þátttöku feðra í uppeldi barna. Þau málefni sem eru Guðnýju mest hugleikin eru velferðarmál, jafnréttismál, mál- efni minnihlutahópa, þátttökulýðræði, fé- lagsauður og að draga úr neysluhyggju í sam- félaginu. Gefur kost á sér í forval VG ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.