Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 14

Morgunblaðið - 14.09.2005, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT JENS Stoltenberg, leiðtogi Verka- mannaflokksins, verður næsti for- sætisráðherra Noregs en hið rauð- græna bandalag stjórnarandstöðu- flokkanna, Verkamannaflokks, Sósíalíska vinstriflokksins og Mið- flokksins, fékk hreinan meirihluta í kosningunum í fyrradag, 87 þing- menn á móti 82 stjórnarflokkanna en alls sitja 169 menn á Stórþinginu. Kosningarnar í gær voru um sumt sögulegar. Nú mun taka við valda- taumunum fyrsta meirihlutastjórnin í Noregi í 20 ár og þetta verður í fyrsta sinn, sem Verkamannaflokk- urinn tekur þátt í samsteypustjórn. Sigurvegarar í kosningunum í fyrradag voru þrír: Verkamanna- flokkurinn, sem fékk 61 mann kjör- inn og bætti við sig 18; Framfara- flokkurinn, sem fékk 37 menn, bætti við sig 11, og Venstre, einn stjórn- arflokkanna, sem fór úr tveimur mönnum í 10. Hinir stjórnarflokk- arnir tveir guldu afhroð. Kristilegi þjóðarflokkurinn, flokkur Kjell Magne Bondeviks forsætisráðherra, missti helming þingsætanna, fór úr 22 í 11, og Hægriflokkurinn missti 14 menn, fór úr 38 í 24. Fyrir kosningar var talið hugsanlegt, að smáflokkar, fyrrverandi maóistar og Strand- byggðaflokkur Steinars Bastesens, kynnu að ráða úrslitum um stjórn- armyndun en hvorugur þeirra fékk mann kjörinn. Umskipti í stjórnmálunum Hér er um að ræða allmikil um- skipti í norskum stjórnmálum. Verkamannaflokkurinn er ekki leng- ur „fremstur meðal jafninga“ eins og verið hefur um skeið, heldur hefur hann endurheimt stöðu sína sem langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Noregi. Þá er Hægriflokkurinn, sem verið hefur forystuafl borgaralegu aflanna í Noregi, ekki lengur næst- stærstur, heldur í þriðja sæti á eftir Framfaraflokknum. Veitti Fram- faraflokkurinn minnihlutastjórn Bondeviks brautargengi á þingi á síðasta kjörtímabili en með honum vill þó enginn mynda stjórn. Er hann sakaður um lýðskrum og ábyrgðar- leysi en framhjá því verður þó ekki horft, að hann nýtur nú stuðnings rúmlega fimmta hvers kjósanda í Noregi. Rune Karlsen, stjórnmálafræð- ingur við Óslóarháskóla sagði í gær, að lesa mætti það út úr kosningun- um, að skattalækkanir væru ekki mesta áhugamál kjósenda, heldur jafnari skipting þjóðarauðsins. Kjell Magne Bondevik forsætis- ráðherra hefur þegar tilkynnt Har- aldi konungi Ólafssyni, að hann muni segja af sér í næsta mánuði þegar hann hefur lagt fyrir þingið fjárlög fyrir næsta ár. Að því búnu mun rík- isstjórn Jens Stoltenbergs taka við og er mikið um það rætt í norskum fjölmiðlum hvers af henni megi vænta. Helstu stefnumálin Engar skattalækkanir eru í far- vatninu og er heldur búist við, að skattar á þá, sem eru með um fjórar milljónir ísl. kr. í árslaun eða meira verði hækkaðir lítillega. Á móti verði skattar á lág laun lækkaðir. Búist er við, að svokallaðir um- hverfisskattar verði hækkaðir. Samt er gert ráð fyrir, að bílakaup verði nokkru auðveldari en áður en aftur á móti verði reksturinn dýrari. Frá 1. janúar næstkomandi verður hámarksgjald fyrir leikskólapláss rúmar 17.000 ísl. kr. og er stefnt að því að útrýma biðlistum fyrir árslok 2007. Einkavæðing heilbrigðisþjónust- unnar verður alveg stöðvuð. Skilyrði fyrir stofnun einkaskóla verða stórhert og líklegt, að sumir þeirra, sem fyrir eru, verði sviptir ríkisstyrknum. Talið er sennilegt, að nemendur í framhaldsskólum fái námsbækurnar ókeypis og hugsan- lega einnig skólamatinn. Í húsnæðismálum er stefnt að aukinni byggingu ódýrs leiguhús- næðis. Ágreiningur um olíumál og ESB Í þessum efnum eru flokkarnir samstiga en þá greinir á um margt annað. Verkamannaflokkurinn vill hefja olíuboranir í Barentshafi en Sósíalíski vinstriflokkurinn ekki og Verkamannaflokkurinn vill reisa raf- orkuver, gasaflsstöð, með þeim skil- yrðum, sem um það gilda innan Evr- ópusambandsins. Þar er ekki gert ráð fyrir sérstakri hreinsun á koltví- sýringi. Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn vilja hreinsunar- búnað og einnig, að starfsleyfi ann- arra slíkra stöðva verði afturkallað nema hreinsunarbúnaði verði komið upp. Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn vilja seilast aðeins dýpra í olíusjóðinn en gert hefur ver- ið en Verkamannaflokkurinn er því algerlega andvígur. Verkamanna- flokkurinn vill sækja um aðild að Evrópusambandinu en hinir flokk- arnir ekki. Fyrir kosningar fékk norska við- skiptablaðið Dagens Næringsliv alla flokka á þingi til að gera grein fyrir helstu kosningaloforðunum og kostnaði við þau. Sósíalíski vinstri- flokkurinn áætlaði hann vera um 600 milljarða ísl. kr. en Verkamanna- flokkurinn taldi sín mundu kosta um 300 milljarða kr. Fyrsta meirihlutastjórn í Noregi í tvo áratugi Ný stjórn Stoltenbergs vill stöðva einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni Reuters Rauðgræna bandalagið: Kristin Halvorsen, leiðtogi Sósíalíska vinstriflokksins, Jens Stoltenberg og Åslaug Haga, leiðtogi Miðflokksins. Ekki er búist við að deilur flokkanna um ESB-aðild muni strax valda erfiðleikum. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is (  ""   ) ! %*+ " ! !, ,&'    "",  -#& ./ , " + %       0&'   ""  * 1 + +  ".# ,16" %5# " && >.& . 23 5 !0" && D & &# "F 2 >.0&&C " &&   /6 4"4   &  " &&  - " && 5 #".# "&  54 6 +,,  - 70  8  ( "! ""         !    " #    STJÓRNMÁLAFERILL væntanlegs forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenbergs, hefur verið ærið skrautlegur, allar götur síðan hann var ungur uppreisnarseggur sem braut rúður í bandaríska sendiráðinu í Ósló til að mót- mæla Víetnamstríðinu. Stoltenberg hefur nú, fyrst- um manna, tekist að fá vinstri- flokkana í Noregi til að mynda kosningabandalag og sigra borgaraflokkana. Þetta verður reyndar ekki í fyrsta sinn sem Stoltenberg sest í forsætisráðherrastólinn. Fyrir fimm árum fór hann fremstur í flokki þegar Kjell Magne Bondevik var hrakinn frá völdum og var Stoltenberg þá við völd í hálft annað ár. En í kosningunum 2001 galt Verkamannaflokkurinn mesta afhroð sitt í heila öld. Á yngri árum var Stolten- berg andvígur Atlantshafs- bandalaginu, NATO, og Evrópusambandinu, þótt hann sé núna orðinn þeirrar skoð- unar að Noregur eigi að vera í hvorum tveggja samtökunum. Hann er menntaður í hagfræði og starfaði stuttlega sem blaðamaður en að mestu hafa stjórnmálin átt hug hans allan. Gro Harlem Brundtland hafði hann í hávegum á meðan hún var forsætisráðherra á níunda áratugnum og hann var kos- inn á þing 1991. Uppreisnar- seggur og leiðtogi NAZILA, 15 ára gömul pastúna-stúlka í Kandahar í Afganistan, á baráttufundi kvenna í gær en þingkosn- ingar verða í landinu á sunnudag. Um 6.000 karlar og konur eru í framboði. Forseti landsins, Hamid Karzai, hvatti í gær alþjóðasamfélagið til að endurskoða stefnuna í stríðinu gegn hryðjuverk- um í Afganistan, ráðast yrði gegn uppsprettunni. „Ég tel að við þurfum að huga að stöðum þar sem þeim er veitt aðstoð,“ sagði Karzai. Er spurt var hvort hann ætti við Pakistan, þar sem vitað er að margir talíbanar og al-Qaeda menn halda sig, sagðist hann ekki eiga við neitt ákveðið land. Reuters Kosninga- fundur í Kandahar London. AFP. | Bretar verja stórfé á hverju ári í tæki eins og baðvogir og brauðristar sem síðan eru sjaldan eða aldrei notuð og rykfalla í skápum og geymslum. Trygg- ingafélagið Esure lét kanna þessi mál og var niðurstaðan að samanlagt hefðu Bret- ar eytt um 9,5 milljörðum punda, sem sam- svarar rúmum 1.000 milljörðum króna, í slík kaup á ævinni. Drjúgur hluti fjárhæðarinnar fer í gjafir til vina og vandamanna. Um 24% þeirra sem tóku þátt í könnuninni viðurkenndu að þeir héldu að tækin yrðu aldrei notuð. Tækið sem var efst á listanum yfir þau sem safna ryki var brauðristin, um 45% að- spurðra sögðust ekki nota hana, 31% sagð- ist aldrei nota baðvogina, 22% nota ekki fótanuddtækið, 21% ekki rafknúna hnífinn. Önnur tæki sem enda í geymslunni eru rafknúnir dósaopnarar, brauðgerðartæki, grænmetistæki eins og kartöfluflysjarar, soda stream-tæki og andlitsgufutæki. Tækjakaup til einskis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.