Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 19 MINNSTAÐUR Þóra lærði myndlist hjá Kristni Pálmarssyni myndlistarmanni. „Hann kom manni til að vera mað- ur sjálfur og vera með eigin hug- hrif og það hefur heltekið mig,“ segir Þóra. „Ég hef yfirleitt engar fyrirmyndir. Ég byrja og hætti ekki fyrr en ég er ánægð sjálf.“ Þóra byrjaði fyrst að mála í Amager malerier – tegninger skól- anum í Danmörku 1985 en eftir að hún flutti heim árið 1989 hefur hún sótt fjölda námskeiða. Garður | Þóra Jónsdóttir myndlist- arkona sýnir þessa dagana mál- verk sín í Byggðasafninu á Garð- skaga. Sýningin stendur næstu tvær vikur. Um er að ræða abstraktmyndir en Þóra segist hneigjast til slíkrar túlkunar. „Ég er að brjóta upp landslagið, þetta eru nokkurs kon- ar hughrif,“ segir Þóra, sem er fædd árið 1933. „Mér þykir meira gaman að abstrakt myndlist heldur en hinu formfasta.“ Ljósmynd/Víkurfréttir Listakona Þóra Jónsdóttir sýnir óhlutbundin verk. Þóra Jónsdóttir sýnir abstrakt- málverk í Byggðasafninu meðferðarúrræði og framtíðarsýn. Markmið Stuðningshópsins Sunn- an 5 er að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein hitti aðra sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu og til að fá fræðslu og styrk hvert frá öðru. Allir eru velkomnir og heitt er á könnunni. Reykjanesbær | Krabbameinsfélag Suðurnesja og stuðningshópurinn Sunnan 5 halda opinn fræðslufund í kvöld kl. 20 að Smiðjuvöllum 8 (húsi Rauða krossins). Þar mun doktor Þórarinn Guðjónsson frumulíf- fræðingur halda fyrirlestur um stofnfrumur og krabbamein og ný Fræðslufundur Sunnan 5 Kópasker | Um síðustu helgi var korn skorið rétt norðan við Kópa- sker. Átta bændur í Öxarfjarð- arhreppi sáðu byggi í vor í um átta hektara lands þar sem einu sinni var flugvöllur. Að öllum líkindum er þetta nyrsti kornakur landsins en upp- skeran, sem þótti nokkuð góð, verður notuð sem fóður fyrir sauðfé í vetur. Nyrsti kornakur Íslands Hvammstangi | Í upphafi skóla- ársins á dögunum var tekinn í notkun nýr sparkvöllur á Hvammstanga að viðstöddu fjöl- menni. Völlurinn er á lóð Grunn- skóla Húnaþings vestra og er hinn veglegasti. Hann er með gervi- grasi, upphitaður með hitaveitu- vatni og með góðri timburgirðingu umhverfis. Völlurinn er einn af mörgum í átaki KSÍ og er sagður sá 21. af 63 völlum sem gerðir eru á tveimur árum. Smiður vallarins er Benja- mín Kristinsson á Hvammstanga, en einnig komu að verkinu Skjanni ehf., starfsmenn áhaldahúss og vinnuskóla Húnaþings vestra und- ir yfirstjórn tæknideildar sveitar- félagsins. Eyjólfur Sverrisson, hinn kunni fótboltamaður, var fulltrúi KSÍ og hvatti hann ungmenni Húnaþings vestra til að nýta sér völlinn, en einnig að hugsa vel um hann í framtíðinni. Afhenti hann Umf. Kormáki nokkurn fjölda fótbolta í tilefni dagsins. Forráðamenn sveitarfélagsins héldu tölur, og m.a. sagði Skúli Þórðarson frá því að fyrir nokkr- um árum hefði hann fengið bréf frá tveimur ungum sveinum, þar sem því var lýst að mikil þörf væri á litlum velli við skólann. Nú mættu þeir sömu koma og klippa á borðann við opnun vall- arins. Ungmenni léku því næst boltaleik á vellinum ásamt Eyjólfi, við hvatningu áhorfenda. Gestir þáðu að lokum veitingar í boði sveitarstjórnar. Nýr sparkvöllur tekinn í notkun Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Ánægt íþróttafólk Krakkar á Hvammstanga kætast nú þegar þeir fá sparkvöll til að leika sér á. FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS - UGLUHÓLAR 12 - 111 REYKJAVÍK Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is OPIÐ HÚS Í KVÖLD FRÁ KL 20-22. MJÖG GÓÐ, OPIN OG BJÖRT TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI Í LITLU 8 ÍBÚÐA FJÖLBÝLI Í UGLUHÓLUM Í REYKJAVÍK. Íbúðin er mjög opin og sérstaklega vel skipulögð. Forstofa og bjart alrými, sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu. Stórar svalir frá stofu með frábæru útsýni yfir Elliðaárdalinn. Svefnherbergi er rúmgott. Flísalagt baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Snyrtileg eldhúsinnrétting. Snyrtileg sameign. MJÖG GÓÐ ÚTSÝNISÍBÚÐ Í HÓLAHVERFI Í REYKJAVÍK. Verð kr. 13,5 milljónir. Steinþór Hilmarsson tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í kvöld frá kl. 20-22. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.