Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðjón JóhannJóhannsson fæddist í Stykkis- hólmi 15. septem- ber 1929. Hann lést í St. Franciskus- spítalanum í Stykk- ishólmi 6. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar Guðjóns voru Sigurborg Jónsdóttir, f. 9. október 1900, d. 3. febrúar 1943 og Jó- hann Guðjónsson, f. 14. október 1901, d. 28. desember 1998. Frá tveggja ára aldri ólst hann upp hjá föð- urömmu sinni, Rósu Þorvarðar- dóttur, f. 27. apríl 1870, d. 9. júlí 1958. Systir Guðjóns, sam- mæðra, er Hrefna Þorvarðar- dóttir, f. 18. september 1936, maki Hannes K. Gunnarsson, f. 12. október 1933. Bróðir, samfeðra, er Þór Jóhannsson, f. 21. ágúst 1935, maki Erna Arnórs- dóttir, f. 10. mars 1938. Guðjón bjó alla tíð í Stykkis- hólmi. Tvítugur keypti hann hús að Reitarvegi 6 og þar bjó hann ásamt ömmu sinni Rósu og dóttur hennar Pálínu Jónasdótt- ur, meðan þær lifðu. Hann stundaði ýmis verka- manna- og iðnaðarstörf, s.s. við rafvirkjun og múrverk, en lengstan hluta starfsævinnar vann hann hjá Stykkishólmsbæ. Útför Guðjóns verður gerð í dag frá Stykkishólmskirkju og hefst athöfnin klukkan 14. Aðfaranótt þriðjudagsins 6. sept- ember kvaddi móðurbróðir okkar, hann Guðjón Jóhannsson, þennan heim eftir stutta en grimma veik- indalegu. Minningarnar um Guðjón eru sveipaðar birtu, glettni, góð- mennsku, heiðarleika og snyrti- mennsku. Við sjáum hann fyrir okk- ur þar sem hann hjólar niður Aðalgötuna á svarta hjólinu sínu. Hann stígur petalana í barroktakti, hægt en örugglega. Fötin hans eru kannski ekki eftir nýjustu tísku, en á þeim er ekki hægt að finna óhrein- indablett. Það er numið staðar og plastrusl tekið upp af jörðinni og stungið í töskuna á stýrinu. Hann gefur sig á tal við þungbúinn mann. Eftir stutt spjall er maðurinn farinn að brosa og hlæja. Þeir kveðjast og Guðjón tekur til við barroktaktinn. Þegar heim er komið kemur frændi hjólinu fyrir á sínum stað og gengur inn í skúrinn með álbút sem nú á að fá framlengingu á tilveru sinni. Í skúrnum eru allar vélarnar. Sumar eru frá Bretanum, aðrar frá Þjóðverjanum og einhverjar frá Kananum eða jafnvel Japananum. Guðjón kveikir á útvarpinu sem stillt er á gufuna og raular með um leið og hann fer að brýna fjárklipp- urnar hans pabba og gera þær eins og nýjar í fjórða sinn. Hann getur gert við allt. Enda kallaður Gaui galdró. Þegar því er lokið er rölt inn í litla bæinn, skipt um gleraugu og við tekur lestur bókar um seinni heimsstyrjöldina. Síðan er ljósið slökkt í litla snyrtilega bænum á Reitarveginum. Og nú hefur lífsljós Guðjóns verið slökkt. Þegar hann kvaddi þennan heim gat hann litið yfir lífsveg sinn viss um að þessu lífi var vel lifað. Við erum stolt af því að hafa átt Guðjón fyrir frænda og þakklát fyr- ir að hafa kynnst eins heilum manni og hann var, því hann hafði bætandi áhrif á allt sitt umhverfi og sam- ferðafólk. Nú verða hjólatúrarnir ekki fleiri á þessari jörð og líklega verður pabbi oftar að kaupa sér nýjar klip ur. Heimurinn væri betri á allan hátt ef fleiri hefðu sama lífsstíl og hann Guðjón frændi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurborg, Gunnar og Lárus. Guðjón Jóhannsson verkamaður í Stykkishólmi er látinn. Hann verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju miðvikudaginn 14. september. Guðjón á Höfðanum eins og hann var oftast nefndur setti svip sinn á bæinn. Ekki vegna þess að hann væri fyrirferðarmikill í framgöngu sinni heldur vegna þess að hann var jafnan þar sem verk þurfti að vinna í þágu íbúanna. Hann stóð vaktina í þjónustu sinni við bæjarbúa í ára- tugi og var stoltur af bænum sínum. Viðgerðir og hverskonar snyrting og hreinsun gatna og torga voru hans helstu viðfangsefni sem starfs- maður bæjarins. Hann lifði sig inn í verkefni hvers dags af einlægni og áhuga, hvort sem um var að ræða lagningu vatnsveitunnar, viðgerðir skólplagna eða véla og tækja. Allt lék í höndum hans. Í hátt á annan áratug störfuðum við saman hjá Stykkishólmsbæ, en hann var starfsmaður bæjarins mestan hluta starfsævi sinnar. Á samstarf okkar brá aldrei skugga og hann var traustur og trúr starfsmaður. Guð- jón var spurull og vildi fylgjast með því sem bæjarstjórinn var að fást við. Hann leit gjarnan við hjá mér eða hringdi. ,,Hvað er að frétta, elskan mín“ var hans einlæga ávarp. Í senn formlegt, krefjandi í hægð- inni og elskulegt. Samtölin og sím- tölin voru stutt. Engar málaleng- ingar. Hann kom strax að kjarna hvers máls. Guðjón lagði sig eftir að læra tungumál. Virtist það vera sér- stakt áhugamál hans og hann naut þess ekki síst vegna þess að hann vildi geta lesið alla bæklingana og leiðarvísana sem tækjunum hans fylgdu. Það var hans ástríða að eiga góð ,,tæki“. Hann var jafnan fyrstur til þess að eignast nýjustu og bestu þvottavélarnar, svo ekki væri talað um borvélar og önnur verkfæri sem hann taldi sig þurfa á að halda. það var ævintýri líkast að koma í skúr- inn við húsið hans á Reitarveginn- um. Þar var allt á sínum stað, tilbúið til notkunar. En nú er Guðjón horf- inn. Hann fer ekki lengur á hjólinu sínu uppúr bænum til að líta eftir góðmálmum eins og hann sagði. En minningin um góðan og gegnan borgara og góðan vin lifir meðal þeirra sem þekktu hann og fengu notið vináttu hans. Ég hitti Guðjón síðast á spítalanum hjá St. Frans- iskussystrunum. Honum var óvenju mikið niðri fyrir. Hann ræddi um framkvæmdir og framfaramál í Stykkishólmi og á Snæfellsnesi í gegnum tíðina og hann gaf umsögn og einkunnir. Þessa síðustu sam- verustund okkar er mér ljúft að geyma með minningunni um góðan dreng. Blessuð sé minning hans. Sturla Böðvarsson. Guðjón vinur minn hefur kvatt þetta jarðlíf. Með honum er genginn einn af bestu borgurum Stykkis- hólms. Þar var hann fæddur og átti heima allan sinn aldur og vann bæn- um sínum allt það sem hann orkaði. Lengst var hann í bæjarvinnunni og alls hjá 6 bæjarstjórum. Hann hafði ekki tök á að mennta sig, en skólavist hans í barnaskól- anum hér var vel notuð, trúmennsk- an og hagvirkni voru stærstu liðir í lífssögu hans. Hann var alinn upp hjá ömmu sinni Rósu Þorvarðar- dóttur og ein af mínum kynnum við þau í fyrstu var að hjálpa þeim að kaupa hentugt húsnæði og gera fyr- ir þau afsal og aldrei gleymdi Guð- jón þessum greiða og margt vann hann fyrir mig þegar ég var í vand- ræðum með að fá eitthvað lagfært. Guðjón var feikilega lagvirkur og snemma kom í ljós handlægni hans og fjöldinn allur leitaði til hans í ýmsum vanda. Á síðari árum kom hann sér upp snyrtilegu og góðu verkstæði, fékk sér í það vélar og gat hann því unnið þar að sínu áhugamáli. Hann var feikilega greiðvikinn og eiga margir Hólm- arar honum margt upp að unna. Hann var jafnan í góðu skapi og gaman að ræða við hann. Hann var minnugur á allt sem hann sá og heyrði og fróður og nýtti sér það sem hann lærði og átti marga góða vini og viðmælendur. Mér fannst það alltaf ávinningur að hafa kynnst Guðjóni og geta talið hann til góðra vina minna. Það kom vinum hans mjög á óvart hversu brátt bar að með sjúkdóm hans sem leiddi hann til dauða, en hann var undirbúinn og í heimsókn minni til hans í veikindum hans fann ég hversu traust hans á annarri til- veru og Drottni var einlæg og örugg. Hann hafði lært mikið af líf- inu og alla tíð verið reglusamur og trúr hugsjónum sem honum voru innrættar í æsku, átti hóp vina og einlægari Hólmara var ekki hægt að hugsa sér. Það eru því fleiri en ég og mín fjölskylda sem sakna þessa góða drengs, sem alltaf færði yl inn í samfélagið. Ég vil því þakka honum sam- fylgdina, hans góða viðmót og allar þær skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Góður guð fylgi honum og bless- un hans vermi hann á nýjum vett- vangi. Árni Helgason, Stykkishólmi. GUÐJÓN JÓHANN JÓHANNSSON LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS FR. HAGALÍNSSONAR vélstjóra, Garðabraut 5, Akranesi. Sérstakar þakkir til læknanna Geirs Tryggvasonar og Önnu B. Magnús- dóttur og annars hjúkrunarfólks á háls-, nef- og eyrnadeildum A5 og B3 á Landspítala Fossvogi. Helga Guðjónsdóttir, Ingiríður B. Kristjánsdóttir, Ólafur Ólafsson, Smári H. Kristjánsson, Nikolína Th. Snorradóttir, Guðjón Kristjánsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðrún H. Kristjánsdóttir, Vicente Carrasco, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför sonar míns, ÁSGEIRS ARNARS JÓNSSONAR, Urðargerði 4, Húsavík. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hrefna Steingrímsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, FRIÐMEY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Bíldsfelli, Grafningi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði fimmtudaginn 1. september verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 16. september kl. 13.30. Ágústa Guðlaugsdóttir, Sigtryggur Einarsson, Svavar Valdimarsson, Valey Guðmundsdóttir, Guðríður Þorvaldsdóttir, Haraldur Ríkarðsson, Guðmundur Þorvaldsson, Krístín Gísladóttir, Sigurður Þorvaldsson, Pétur Þorvaldsson, Hjördís B. Ásgeirsdóttir, Árni Þorvaldsson, Sigrún Hlöðversdóttir, Rósa Þorvaldsdóttir, Sturla Pétursson, Þorsteinn Þorvaldsson, Fjóla Ægisdóttir, Guðmundur Öfjörð. Ruth Guðmundsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ELÍSABET JÓNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. september kl. 13.30. Kolbrún Árnadóttir, Valdimar Jónsson, Ólöf Árnadóttir, Friðrik Árnason, Kári Árnason, Ásdís Þorvaldsdóttir, Einar Árnason, Svandís Gunnarsdóttir, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Útför mannsins míns, GEIRS ÞORSTEINSSONAR verkfræðings, sem andaðist fimmtudaginn 8. september, verður gerð frá Langholtskirkju föstudaginn 16. septem- ber kl. 11.00. Inge Jensdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEINÞÓR GESTSSON á Hæli í Hreppum, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju þriðju- daginn 20. september kl. 13.30. Börn, tengdabörn og barnabörn. Maðurinn minn og bróðir, KRISTJÁN S. KRISTJÁNSSON fyrrv. fjárhagsáætlunarfulltrúi, Efstaleiti 10, Reykjavík, lést laugardaginn 10. september sl. Ólöf Steingrímsdóttir, Hulda Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.