Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.09.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 37 DAGBÓK Viltu gerast ferðaráðgjafi? Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn hér á landi sem býður upp á alþjóðlegt nám frá IATA/UFTAA, sem eru alþjóðleg samtök flugfélaga og ferðaskrifstofa, og útskrifar skólinn á hverju ári „ferðaráðgjafa“ til starfa hjá flugfélögum, ferðaskrifstofum og við aðra ferðaþjónustu. Með aukningu ferðamanna hefur þörfin eftir fólki með slíka menntun aldrei verið meiri. Flestir, sem útskrifuðust í vor, fengu starf innan ferðaþjónustunnar að loknu námi. www.menntun.is Nafnið á fyrirlestrinum er tekið úrljóði eftir sjálfa mig og ég byrja áað tala um skáldskap út frá mínusjónarhorni sem ljóðskálds. Ég er að reyna að skilgreina mín viðhorf til ljóðlist- arinnar. Það getur reyndar verið erfitt en það er ekkert skemmtilegt sem ekki er erfitt,“ seg- ir Ingibjörg Haraldsdóttir spurð út í fyr- irlestur sinn sem haldinn verður í Norræna húsinu í dag klukkan 17, en í dag er fæðing- ardagur dr. Sigurðar Nordals og hefur verið venjan að halda fyrirlestur á þessum degi. „Undirtitill var einhvern tíma: Erindi og framtíð ljóðsins. Ég segi aðallega frá skáld- skapnum, hvernig hann verður til og hvernig hann gengur fyrir sig út frá mínu eigin sjón- armiði og nokkurra annarra sem ég vitna í. Ég kemst heldur betur að því að ljóð eigi er- indi við okkur. Ég segi eitthvað á þá leið að ljóðið hafi lifað með okkur frá ómunatíð og muni halda því áfram, enda er ég bjartsýn á það. Mér finnst fyrst og fremst vanta umræðu um ljóð og skáldskap hér hjá okkur. Það er skrifað mikið og talað mikið um skáldsögur en miklu minna um ljóðin – það heyrir til und- antekninga ef slíkt er gert og ég veit ekki hvers vegna, en það virðist vera eitthvað minni áhugi á ljóðum en sögum. Það eru mjög skiptar skoðanir um ljóð, eins og reyndar margt annað. Það er til fólk sem segir að skáld nú á dögum kunni ekki að yrkja og að þetta séu allt ómöguleg ljóð. Því fólki bendi ég á að það þarf ekki að kvarta. Það hef- ur verið ort á Íslandi í ein ellefuhundruð ár og það er til nóg af ljóðum. Þeir sem kunna ekki að meta samtímaljóð geta leitað í þann mikla sjóð sem við eigum og bókasöfnin eru full af. Ljóðskáld samtímans – sama hvaða samtími það er – halda alltaf áfram að yrkja. Þau ljóð halda áfram að koma og höfða til sumra og ekki annarra. Það er bara eins og það er, en að sjálfsögðu ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í ljóðum. Í stað þess að skrifa nöldurpistla ætti fólk frekar að lesa það sem því þykir skemmtilegt að lesa. Þorsteinn frá Hamri sagði einhverju sinni: … „Ljóðið ratar til sinna.“ Þetta er auð- vitað gullvæg setning. Ljóðin verða alltaf til og þau rata til sinna. Þeir sem kunna að meta þessa tegund af ljóði finna hana og aðrir finna einhverja aðra tegund,“ segir Ingibjörg, sem hefur gefið út sex ljóðabækur og hlaut meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin 2002 fyrir ljóðabókina Hvar sem ég verð. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn sem stendur í um 40 mínútur. Fyrirlestur | Ingibjörg Haraldsdóttir ræðir um erindi og framtíð ljóðsins Ljóð gripin sem hálmstrá  Rithöfundurinn og þýðandinn Ingibjörg Haraldsdóttir er fædd í Reykjavík 1942. Eftir stúdentspróf hélt hún til Moskvu þar sem hún lauk meistaraprófi í kvikmyndastjórn 1969. Þaðan lá leiðin til Kúbu þar sem hún var að- stoðarleikstjóri við leikhúsið Teatro Estu- dio í Havana á árunum 1970–75. Húnn vann sem blaðamaður um ára- bil eftir að hún kom heim, sat í stjórn Rithöf- undasambands Íslands 1992–98 og var for- maður sambandsins 1994–98. Mannréttindabrot á verkafólki Íslands NÚ eru margir Íslendingar á von- arvöl en ríkisstjórnin situr hjá og gerir ekkert í málinu. Hvað veldur? Getur það verið að þeir viti ekki af þessu með verkafólkið í landinu? Þeir vita nú allt um öryrkjana og aldraða, þau eru með málið fyrir mannréttindadómstóli. Var ekki hægt að gera betur þar? Þarf verkafólkið að fara fyrir mannréttindadómstóla líka til að þeir skilji að enginn getur lifað af þessari láglaunastefnu? Er ekki hægt að lækka alla þessa hluti niður í viðráðanlegt verð svo að allir ráði við það að lifa af launum sínum? Verður það þá ekki verðbólguletj- andi ef það gerist? Hækkar það ekki verðgildi krónunnar ef hægt er að kaupa allt á lægra verði? Hvar er bónushugsjónin? Er til nokkurt vandamál sem ekki er hægt að leysa skynsamlega – eða hvað? Heilinn má ekki verða úrræðalaus. Ég held að ný ríkisstjórn verði nú að gera betur en núverandi. Er ekki kominn tími til að snúa blaðinu við og sýna hjálpræðið í verki, hvað er náungakærleikur ef ekki er vit til að hjálpa sjálfum sér og þjóðinni? Er það kristilegt að brjóta mannréttindi á verkafólki? Þegar leigan er frá kr. 70–100 þús. á mánuði en laun verkafólks 86–100 þús., gleymdist þá ekki að reikna húsnæðið inn í taxta launa- fólks? Svo á eftir að borga hita, raf- magn og síma og Stöð 2. 25% vask, tolla af vörum og þá vantar fyrir matnum, skólanum og námskeiðum til að hækka kaupið. Pabbi og mamma geta ekki hjálp- að, þau eru öryrkjar og ellilífeyr- isþegar svo það er fátt um fína drætti hjá verkafólki, mikið um skilnaði þar. Skuldir verða til vegna neyslu en ráðamenn finna engar lausnir nema halda laununum niðri svo fyrirtækin fari nú fyrr á haus- inn. Þá er flutt inn fólk til að lág- launastefnan haldi sér. Fjölskylduvandamál ríkisstjórn- arinnar eru mýmörg og alltaf er lof- að upp í ermina, segir sá sem er að verða ermalaus, er húsnæðislaus vegna greiðslumats bankanna sem segja að launin séu of lág til að standa undir kostnaði til húsnæðis- kaupa, lágmarkstekjur þurfa að vera hjá einstaklingi hátt á þriðju milljón á ári. Launa verkafólks eru of lág. Taxtinn leyfir verkfólkinu ekki að standa skil því það gleymd- ist að reikna inn í hann lán fyrir hús- næði og öðrum útgjöldum, því mið- ur. Með von um skjót viðbrögð rík- isstjórnar nú, eða þeirrar sem tekur við í komandi kosningum og hefur verkafólkið í fyrirrúmi. Jón T. Halldórsson, verkamaður í Reykjavík. Hringur týndist í World Class MUNSTRAÐUR kven-gifting- arhringur týndist fimmtudaginn 8. september sl. í World Class í Spöng- inni í Grafarvogi. Finnandi vinsam- legast hringi í Stefaníu í gsm 693 6545 eða skili í afgreiðslu WC. Fundarlaun. Barnaburðarpoki í óskilum BARNABURÐARPOKI er í óskil- um hjá miðsölu Strætós á Hlemmi. Pokinn fannst á Holtavegi. Upplýs- ingar á staðnum og í síma 540 2701. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Í dag, 14. sept-ember, er sextug Anna Vil- hjálmsdóttir söngkona, Vættaborgum 1, Reykjavík. Hún er að heiman í dag en tekur síðar á móti gestum. Anna er stödd á heimili systur sinnar í Banda- ríkjunum: 15 Prescott Court, Baskin Ridge, N.J. 07920. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Fréttir á SMS Brúðkaup | Gefin voru saman 20. ágúst sl. í Bessastaðakirkju af sr. Friðriki J. Hjartarsyni þau Júlía Rós Atladóttir og Hermann Sigurður Björnsson. Heimili þeirra er í Hafn- arfirði. Mynd, ljósmyndastofa, Hafnarfirði 50 ÁRA afmæli. Í dag, 14. sept-ember, er fimmtugur Hall- grímur Thorsteinsson útvarpsmaður, Faxatúni 12, Garðabæ. Brúðkaup | Gefin voru saman 2. júlí sl. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af sr. Sigríði Kristínu Helgadóttur þau Anna Svanhildur Daníelsdóttir og Ásmund- ur Þór Steinarsson. Heimili þeirra er í Hafnarfirði. Mynd, ljósmyndastofa, Hafnarfirði KVENNAKÓR Kópavogs er að hefja sitt fjórða starfsár. Það er margt framundan hjá kórnum og fjölbreytt söngskrá. Jólatónleikar verða haldnir með Karlakór Kópavogs, og svo er stefnt að því að fara til Búda- pest árið 2007 og taka þátt í kóra- keppni. Aðstandendur kórsins vilja endilega bjóða fleiri konur vel- komnar í hópinn og auglýsa eftir öllum röddum og á öllum aldri. Kórinn æfir á mánudags- kvöldum í Digranesskóla kl. 20.00 til 22.00 og er fyrsta æfingin hinn 19. september næstkomandi. Áhugasömum er bent á að mæta eða hringja í Nataliu C. Hewlett kórstjóra í síma 699-4613 eða í formanninn, Hildi Káradóttur, í síma 554-3619. Kvennakór Kópavogs leitar eftir röddum KVARTETT Sigurðar Flosasonar heldur tón- leika í Garðabæ í boði menningar- og safna- nefndar Garðabæjar í dag. Tónleikarnir verða haldnir í sal Tónlistarskóla Garða- bæjar að Kirkjulundi og hefjast kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis en salurinn rúmar um 100 manns í sæti. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð sem kvartett Sigurðar Flosasonar heldur í tilefni af útgáfu geisladisksins „Leiðin heim“ en hann kom út í hér á landi í apríl síð- astliðnum og í Japan í júlí og hefur fengið góðar viðtökur. Kvartettinn skipa, auk Sigurðar sem leikur á saxófón, þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Pétur Östlund á trommur. Sigurður Flosason er bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2005. http://www.gardabaer.is Kvartett Sigurðar Flosasonar í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.