Morgunblaðið - 06.10.2005, Qupperneq 20
Seyðisfjörður | Strákar og
stelpur gera sér ýmislegt til
dundurs þegar sólarglenna
brýst fram úr haustskýjunum,
en þau hafa verið þaulsætin yfir
Austurlandi undanfarnar vikur.
Þessi stuttbuxnaklæddi
pjakkur lætur sig ekki muna um
að dýfa sér til sunds af brúnni á
Seyðisfirði ofan í kaldan sjóinn
blandinn ferskvatni úr Fjarð-
aránni.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Dýfði sér í kaldan sjóinn
Ídýfa
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Austfirskt hráefni | Menningarráð Aust-
urlands og Handverk og hönnun auglýsa
eftir fjölbreyttum munum úr hráefni sem
tengist Austurlandi, þ.e. hreindýraskinni,
hreindýrshorni og beini, lerki og líparíti, til
að setja á sýningu. Til stendur að opna hana
á Egilsstöðum 17. nóvember nk. Gert er ráð
fyrir að sýningin verði sett upp á fleiri stöð-
um á landinu í ársbyrjun 2006. Í tengslum
við sýninguna verður haldinn opinn fundur
á Egilstöðum um stöðu handverks og list-
iðnaðar á Austurlandi.
50 ára útgerðarfélag | Opnuð verður
sýning um sögu útgerðarfélagsins Gunn-
varar í Safnahúsinu á Eyrartúni á Ísafirði á
föstudag, en þá verður hálf öld liðin frá því
félagið var stofnað, að því er segir á vef
Bæjarins besta á Ísafirði.
Um er að ræða samstarfsverkefni Safna-
hússins og Hraðfrystihússins – Gunnvarar,
sem varð til með sameiningu Gunnvarar og
Hraðfrystihússins í Hnífsdal. Sýningin
verður opnuð kl. 17 á föstudag og verður
opin áfram næstu vikur á afgreiðslutíma
Safnahússins.
vatnssýslum um stund.
Eigendur smábáta hafa
hlustað á veðurfregnir og
híft báta sína á þurrt og
forðað þeim undan öldum
hafsins en norðanvindar
sýna enn klærnar. Á
myndunum má sjá öldur
leggja til atlögu við
ströndina við botn Húna-
Öldur Atlantshafsinsskiluðu sér í dagað landi við botn
Húnaflóa í takti við öfl
náttúrunnar. Hvasst hef-
ur verið á landinu vest-
anverðu en aðeins hefur
hlýnað og hefur það rifið
hálkuna af þjóðvegum að
minnsta kosti í Húna-
fjarðar hvar Blönduós-
bær hvílir og hins vegar
að tvær trillur Dagbjört
Inga og Jakinn horfast í
augu á hafnarkanti
Blönduósbryggju við þær
staðreyndir ógnarkrafta
náttúrunnar að nú sé
kominn tími til að draga
sig í hlé.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ógnarkraftar vetrarins heilsa
Höfundur þessararhaustvísu erBjörn Hall-
dórsson í Laufási:
Girnast allar elfur skjól
undir mjallar þaki,
þorir varla að sýna sól
sig að fjallabaki.
Þessi vísa er um umhleyp-
inga sýnist mér, veit ekki
höfund.
Verður svalt því veðri er
breytt,
vina eins er geðið,
þar sem allt var áður heitt
er nú kalt og freðið.
Halldór Blöndal kvað:
Þú skáld, ef að blendið er
blóðið
og bágt er og görótt allt
ljóðið
í stefjunum þínum,
steldu þá línum
frá öðrum sem á, það er
lóðið.
Þú
skáld
pebl@mbl.is
Skagafjörður | Tillaga um að segja sveit-
arstjóra Skagafjarðar upp störfum verður
borin upp á sveitarstjórnarfundi í Sveitar-
félaginu Skagafirði í dag. Tillagan um að
segja Ársæli Guðmundssyni, sveitarstjóra
og fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, upp störfum kemur frá Gísla
Gunnarssyni, forseta sveitarstjórnar og
oddvita Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn.
VG og Sjálfstæðisflokkur mynda meiri-
hluta í Skagafirði, en Ársæll og Gísli hafa
deilt opinberlega undanfarið á vef sveit-
arstjórnarinnar.
Fram kemur í yfirlýsingu VG á vef sveit-
arfélagsins að upphaf deilu Ársæls og Gísla
megi rekja til þess að fulltrúar sjálfstæðis-
og framsóknarmanna hafi hafnað erindi
Ársæls um heimild til að sækja málþing
EFTA um stöðu sveitarstjórnarstigsins í
EES-samstarfinu.
Færsla Ársæls tekin út
Í framhaldi mun Ársæll hafa skrifað
pistil á heimasvæði sitt á vef sveitarfé-
lagsins þar sem hann sagði m.a. að Gísla
ætti ekki að líðast að notast við tiktúrur
eða dagsform geðslags við afgreiðslu mála.
Gísli svaraði þessu og sagði m.a. að hon-
um þætti líklegt að Ársæll sveitarstjóri
myndi biðjast afsökunar á orðum sínum, en
það hefur Ársæll ekki gert. Umrædd
færsla Ársæls á vef sveitarfélagsins hefur
þó verið tekin út, og í staðinn vitnað í
gestaþátt Hávamála.
Vill segja upp
sveitarstjóranum
VEGAGERÐIN hefur óskað eftir fram-
lengingu á fresti til að ná samkomulagi við
skipamiðlara á Írlandi um kaup á nýrri
Grímseyjarferju. Þetta kemur fram á vef-
miðlinum dagur.net. Þar segir að aðeins
eitt tilboð hafi borist í nýja ferju sem Rík-
iskaup bauð út fyrir hönd Vegagerðarinnar
nú í sumar og var þar um að ræða írskt
skip, Olean Arann, smíðað 1992 þar í landi.
Haft er eftir Kristínu Sigurbjörnsdóttur
hjá Vegagerðinni að tilboðið hafi verið of
hátt að mati Vegagerðarinnar og var
ákveðið að fara í samningaviðræður við
miðlarann. Þær viðræður eru enn í gangi.
„Fulltrúar frá Vegagerðinni og úr
Grímsey hafa skoðað skipið og álíta það
þokkalegan kost að undangengnum tölu-
verðum lagfæringum á innréttingum o.þ.h.
Olean Arann er skip af svipaðri stærð og
Sæfari sem heldur uppi ferjusiglingum til
Grímseyjar en burðargetan er minni,“ seg-
ir Kristín.
Verð Grímseyjar-
ferju þykir of hátt
♦♦♦
!"
#
$% !
% &
'
()*
% + , *
-.
%
/%)%%
0 /% /1%
-
$2
2%
2% 3% 1 4%5 -
%
2 )
% 6% -#
3&8
-'
9%% 32*
.
%
3% :
MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Minnast snjóflóðsins | Minningardag-
skrá verður á Flateyri hinn 26. október nk.
þegar 10 ár eru liðin frá hinum hörmulega
atburði þegar snjóflóð féll á þorpið. Minn-
ingardagskrá verður í íþróttahúsinu þar
sem flutt verður tónlist, ljóð verða lesin,
bænir fluttar og Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands flytur ávarp.
Flateyrarkirkja verður opin allan daginn til
að þeir sem það vilja geti átt þar hljóðláta
bæna- og minningarstund.
Til þess að greiða fyrir því að sem flestir
sem þess óska geti komið mun Flugfélag
Íslands veita sérstakan afslátt af fargjaldi í
tengslum við minningardagskrána og veitir
undirbúningsnefnd nánari upplýsingar á
vefnum www.flateyri.is.
„Það er ósk Flateyringa að sem flestir
geti verið með þeim á minningardag-
skránni. Þeir vona að hlýjar kveðjur og
þakklæti berist þeim fjölmörgu sem veittu
þorpsbúum lið fyrir tíu árum þegar nátt-
úruhamfarirnar riðu yfir – björgunarsveit-
armönnum, Rauða krossi Íslands, þeim sem
lögðu fé í landssöfnunina Samhugur í verki
og öllum öðrum sem studdu þá á erfiðum
stundum og við uppbyggingu eftir snjóflóð-
ið,“ segir í tilkynningu frá undirbúnings-
nefndinni.