Morgunblaðið - 06.10.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 25
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
MIKIL samkeppni ríkir hér á mark-
aði í sölu á fartölvum. Fartölvur
kosta skildinginn og því er eins gott
að hafa vaðið fyrir neðan sig þegar
vanda skal valið. Það er að mörgu að
hyggja þegar kemur að fartölvu-
kaupum og einn lykilþátturinn lýtur
að ábyrgðarskilmálum, sem eru
mjög misjafnir eftir því hvar tölvan
er keypt.
Fartölvur kosta hér á landi allt frá
70 þúsundum króna og upp í 300
þúsund krónur og eru ýmist seldar
með tveggja eða þriggja ára ábyrgð.
Ábyrgð getur á hinn bóginn verið
misvíðtæk og því þarf að gaumgæfa
vel hvar best sé að kaupa vöruna til
að hún uppfylli þau skilyrði sem
kaupandinn er að leita eftir hverju
sinni. „Í fyrsta lagi þarf að ganga úr
skugga um að viðkomandi vara sé í
fullri ábyrgð og að viðurkenndir og
vottaðir viðgerðarmenn annist
ábyrgðarmálin, ef tölvan skyldi
bila,“ segir Guðmundur Zebitz,
vörustjóri fartölva hjá Opnum kerf-
um.
Margar söluleiðir
Opin kerfi ehf. er til að mynda eini
viðurkenndi dreifingar- og viðgerð-
araðili HP-tölva á Íslandi og dreifir
HP-tölvum til ýmissa smásöluversl-
ana hérlendis á borð við Office1,
Odda, Pennann, HP-búðina, BT og
fleiri verslanir. Fleiri tölvuverslanir
flytja þó inn sams konar tölvur, en
þá í gegnum milliliði og aðra dreif-
ingaraðila úti í heimi sem versla þá
beint við framleiðendur. Ein þessara
verslana er Tölvulistinn, sem fyrir
utan að selja HP-vélar er með fjöl-
mörg önnur tölvumerki í sölu. Að
sögn verslunarstjórans, Ólafs Stein-
grímssonar, koma fartölvurnar eftir
ýmsum leiðum frá nokkrum aðilum,
bæði hér heima og erlendis. „Ég get
ekki svarað því nákvæmlega hvaðan
tölvurnar okkar koma því ég fæ þær
bara inn á gólf til mín og sé ekki
reikningana fyrir þessum búnaði.“
Í svipaðan streng tók Halldór Óla-
son, verslunarstjóri hjá att.is, þegar
hann var inntur eftir því hvaðan
verslunin keypti inn fartölvur sem
hér væru á markaði. „Við erum ekk-
ert að ræða það við hverja við
verslum og því færð þú það ekkert
uppgefið hvaðan ég kaupi mínar
vörur,“ sagði Halldór.
Tuttugu þúsund krónur
Samkvæmt íslenskum lögum er
skylt að bjóða minnst tveggja ára
neytendaábyrgð með búnaði á borð
við fartölvur. Umboðsaðilar bjóða þó
ýmsa viðbótarþjónustu og mismun-
andi ábyrgð. Sem dæmi má nefna að
ákveðnar tölvulínur, til að mynda frá
HP, svokallaðar nc-fyrirtækjavélar,
bera þriggja ára alþjóðlega ábyrgð
við kaup sem þýðir að tölvueigand-
inn getur gengið inn á hvaða HP-
verkstæði sem er í heiminum og
fengið viðgert sér að kostnaðarlausu
á meðan tölvan er í ábyrgð auk þess
sem hægt er að kaupa viðbótar-
ábyrgð á tölvur þessar í allt að fimm
ár á 11.900 krónur fyrir hvert auka-
ár.
Auk þess bera þessar nc-fyrir-
tækjalínur frá Opnum kerfum svo-
kallaða „engar áhyggjur“-ábyrgð
sem þýðir að fartölvan er sótt, við-
gerð og send til baka innan sólar-
hrings fyrsta árið. Hins vegar er
ekki unnt að fá keypta alþjóðlega
ábyrgð á heimilislínur og þá þarf í
flestum tilfellum að senda bilaðar
vélar til upprunalandsins á kostnað
eigenda.
Framlengd ábyrgð
„Því miður bera fæstar fartölvur,
sem aðrir einstaklingar eða fyr-
irtæki flytja inn, alþjóðlega ábyrgð
og í mörgum tilfellum er ekki hægt
að kaupa uppfærða HP-verk-
smiðjuábyrgð á til dæmis HP Pavi-
lion- og nx-fartölvur frá Bandaríkj-
unum. Það er þó hægt að kaupa
framlengda ábyrgð á fartölvur í fyr-
irtækjalínu HP frá Evrópu og kostar
slík ábyrgð í kringum tuttugu þús-
und krónur,“ segir Pétur Bauer,
framkvæmdastjóri heildsölusviðs
Opinna kerfa. „Ef komið er með HP-
fartölvu með alþjóðlega ábyrgð til
viðgerðar til okkar sem keypt hefur
verið annars staðar en hjá okkar
söluaðilum, tökum við að sjálfsögðu
við henni og gerum við hana, eins og
allar aðrar vélar í ábyrgð,“ segir
Guðmundur Zebitz. „Ef vélin er aft-
ur á móti keypt utan okkar markaðs-
svæðis, sem er Evrópa, og án alþjóð-
legrar ábyrgðar er ábyrgð okkar
mjög takmörkuð og jafnvel engin.
Með öðrum orðum bera vélar, sem
fluttar eru inn frá löndum utan Evr-
ópu, mjög takmarkaða og jafnvel
enga ábyrgð á Íslandi,“ segir Guð-
mundur og bætir við að algengt sé að
smásöluaðilar verði sér úti um far-
tölvur með svokölluðum „gráamark-
aðsinnflutningi“ utan okkar mark-
aðssvæðis þar sem vélarnar séu á
misjöfnu verði. „Ef HP-vél hefur
verið keypt í Evrópu dekkar HP að-
eins eitt ár í ábyrgð hérlendis ef
vélinni fylgir ekki alþjóðleg
þriggja ára ábyrgð. Eftir það gerum
við að sjálfsögðu við vélarnar á
kostnað eigenda þar sem þær eru
ekki í ábyrgð lengur,“ segir Pétur og
bætir við að ef viðskiptavinir HP séu
í vafa með ábyrgðir sé hægt að fá
lista yfir viðurkennda HP-söluaðila á
vefslóð Opinna kerfa, www.ok.is.
Hjá verslunarstjórum Tölvulist-
ans og att.is fengust þær upplýs-
ingar að öllum fartölvum í báðum
búðunum fylgdi tveggja ára ábyrgð
auk þess sem viðgerðarþjónusta
væri á báðum stöðum. Hjá öllum
framleiðendum mætti verða sér úti
um alþjóðlegar ábyrgðir á fartölvum
og best væri að kaupa slíkar alhliða
ábyrgðir á Netinu í gegnum heima-
síður viðkomandi framleiðenda.
TÖLVUR | Alþjóðlegar ábyrgðir á fartölvum eru misjafnar og sumar gilda til allt að fimm ára
Að mörgu er að hyggja
við tölvukaupin
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir