Morgunblaðið - 06.10.2005, Síða 30

Morgunblaðið - 06.10.2005, Síða 30
 $76+*,> '<//# <!$2!$,#$,%73.5 +,$0,3;;*, @%> 0,3;;*, A8()*"% +$/$%5,8() ./*2!8,#*, $2%2!8,#*, +*,3<,. $*#1,+,"+*, $76+ ,6%3< ,3(.76+ -2%"% $,&$06# "$, !$53<,. 7$'$,#%3<,. $*/$(3% >@,%+"/%%4 ,$2($/. B,.%5(3% )"5(5(0, (5(0 1,' )*56#05% )07%  4  6'9. C'9$2!8). %$&5$%? 4 8    6'9$, Norður- Þingeyjar- sýsla ÍBÚAR Svalbarðshrepps og Þórs- hafnarhrepps greiða atkvæði um sameiningu þessara sveitarfélaga á laugardag, 8. október. Í Svalbarðs- hreppi búa 116 manns og 411 á Þórshöfn, þannig að í sameinuðu sveitarfélagi yrðu íbúarnir 527 tals- ins. Mikil samvinna er nú og hefur verið á milli sveitarfélaganna tveggja og er í raun um eitt at- vinnusvæði að ræða. B";$%+3, $*2$,082( D",%082( A$++$2!8,#*, -;($2!8,#*, )"5(5(0, (5(0 1,' C'9$2!8). %$&5$%?  )*#% 4 8   6'9$, 9' 8(8   6'9$, 30 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ KOSIÐ UM SAMEININGU UMRÆÐA varð- andi sameiningu sveitarfélaga í uppsveitum Ár- nessýslu hefur verið lítil að sögn Gunnars Þor- geirssonar, for- manns sam- starfsnefndar um sameiningu sveit- arfélaga á svæð- inu. Hann segir umræðuna helst hafa verið á íbúaþingum þar sem fundarsókn var með þokkalegasta móti. Hann segist hafa nokkrar áhyggjur af því að kosningaþátt- taka verði dræm. Þá sé spurning hvorir mæti, þ.e. þeir sem séu já- kvæðir eða neikvæðir gagnvart sameiningu. Hann hvetur þó alla til þess að mæta á kjörstað. Lagt er til að íbúar Bláskóga- byggðar, Hrunamannahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps greiði atkvæði um sameiningu sveitarfé- laganna fjögurra í eitt sveitarfélag. Gunnar segir að undanfarin ár hafi verið lögð drög að talsverðu samstarfi í uppsveitunum og menn hafi verið afar samstiga í því. „Við erum í umtalsverðu samstarfi og sjáum fyrir okkur að þetta sé kannski undirbúningur að samein- ingu þegar til lengri tíma er litið.“ Hann bendir á að sveitarfélagið sé dreifbýlissamfélag og yrði senni- lega það eina á landinu sem væri með um 2.500 íbúa og án afgerandi byggðakjarna. „Menn hafa svolítið horft til þess að þetta dreifbýlis- samfélag fái að þróast áfram sem slíkt en þá vantar okkur dálítið upp á samgöngur,“ segir Gunnar og bendir á að samgöngumál hafa einna helst þvælst fyrir mönnum. Það hafi komið fram bæði á sameig- inlegu íbúaþingi og á íbúaþingum í hverju sveitarfélaganna fyrir sig, þ.e. skortur á samgöngutengingum þvert í gegnum svæðið. „Til þess að ná fram öllum þeim kostum í svona dreifbýlissamfélagi bráðvantar okk- ur svona tengingu.“ Nefndin fékk ráðgjafarfyrirtækið Alta til liðs við sig við að kynna sameiningartillöguna og stýrði það íbúaþingunum. „Þannig að þetta var ekki karp heimamanna um hundahald eða þá að öll umræða snerist um fjallskil. Heldur snerist hún um framtíðarsýn íbúa í nýju samfélagi,“ segir Gunnar og bætir því við að þetta hafi gefist vel. Hægt er að nálgast bækling varðandi sameiningu uppsveita Ár- nessýslu á vefsíðunni www.sveitir- .is. Lagt til að uppsveitir Árnessýslu sameinist Rætt um framtíðarsýn íbúa í nýju samfélagi Gunnar Þorgeirsson Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Í UPPSVEITUM Árnessýslu búa rúmlega 2.500 manns í fjórum sveit- arfélögum, með þrjá minni byggðakjarna og umtalsvert dreifbýli. Stærsti hluti íbúanna býr í dreifbýli, enda er um eitt stærsta landbúnaðarhérað landsins að ræða. Skráður íbúafjöldi gefur í raun ekki rétta mynd af búsetu á svæðinu, því á svæðinu er stærsta sumarhúsabyggð landsins með um 5.000 sumarhús. Samkvæmt könnun sem Rannsóknaþjónusta Háskóla Ís- lands gerði árið 2002 er um þriðjungur allra sumarhúsa á Íslandi á þessu svæði. Sama könnun leiddi í ljós að í Árnessýslu eru um 900.000 gistinætur í sumarhúsum á ári hverju. Uppsveitir Árnessýslu 32-%% 73,$/3,#. $*/$,7$5( 3<+0-5 9#., $*/$,1% "03.&$,  *56#0 "*/" 5##0 " "5(5(0((: *(:5" *56#0 )"5(5(0, (5(0 1,' C'9$2!8). %$&5$%? 4 ;#< '0=00%  6'9$, >&" ( 4,0 >(5(0 8  6'9$, )5%4,0 >( *78  : 6'9$,  ("(( 8   6'9$, „HELSTU kost- ir sem ég sé í sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga er að það eru ótví- ræðir hagræð- ingarmöguleikar fyrir hendi, m.a. í skólamálum,“ sagði Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Þórshafnarhrepps og formaður sameininganefndar, en íbúar Þórshafnarhrepps og Sval- barðshrepps kjósa um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga á laugardag. Björn sagði að mikið samstarf væri með sveitarfélögunum og fulltrúar Svalbarðshrepps ættu til dæmis sæti í nokkrum nefndum á vegum Þórshafnarhrepps. „Stjórn- sýslan er í rauninni sameiginleg að mörgu leyti,“ sagði Björn. „Í mín- um huga er það að stíga þetta sameiningarskref bara að ganga formlega frá málum.“ Um eitt at- vinnusvæði væri að ræða og bú- seta manna í hreppunum tveimur skipti ekki öllu. Á kynningarfundi nú um liðna helgi var mikið rætt um hlunnindajarðir, að sögn Björns. „Mér sýnist þetta snúast dálítið um þær,“ sagði hann. Skýrt hafi komið fram að menn veltu fyrir sér eignarhaldi á hlunnindajörðum, „sem mér finnst bagalegt. Ég hefði talið að menn ættu að láta samfélagið í heild njóta þess eins og annarra hlunn- inda á svæðinu og eyrnamerkja ákveðinn arð af hlunnindum til uppbyggingar ferðaþjónustu.“ Hlunnindin í héraðinu tengjast einkum tveimur laxveiðiám, Sval- barðsá og Sandá, en Svalbarðs- hreppur á um 50% hlut í annarri og tæplega helmingshlut í hinni. „Þetta vefst svolítið fyrir mönn- um.“ Verði af sameiningu er lagt til að sveitarstjórnarmönnum verði fjölgað úr 5 í 7, þá með það í huga að fulltrúar sem flestra íbúa eigi þar sæti. Eins er tillaga um að áfram verði tvær aðskildar fjall- Tillaga um sameiningu Þórshafnarhrepps og Svalbarðshrepps Skynsamlegt að stíga skrefið nú Björn Ingimarsson Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is TÓLF sveitar- félög voru í Skagafirði í eina tíð, en árið 1998 sameinuðust ell- efu þeirra í eitt, Sveitarfélagið Skagafjörð. Íbú- ar Akrahrepps tóku ekki þátt í sameiningakosn- ingum þá, en nú er lagt til að þessi tvö sveitarfélög í Skagafirði sameinist og þar verði eitt sveitarfélag. Ársæll Guðmundsson, sveitar- stjóri og formaður samstarfsnefnd- ar um sameiningakosningar í Skaga- firði, sagði að kynningarfundir hefðu verið haldnir á fjórum stöðum, Hofs- ósi, Sauðárkróki, Varmahlíð og Héð- insminni í Akrahreppi og þá var gefinn út kynningarbæklingur. Aðsókn var dræm á þeim þremur fundum sem haldnir voru í Sveitar- félaginu Skagafirði og lítil umræða, en aftur á móti var ágætis mæting í Akrahreppi og stemmningin góð. Ársæll velti fyrir sér hvort íbúum Sveitarfélagsins Skagafjarðar þætti ef til vill stutt síðan þeir kusu um sameiningu og að nú væri komið að íbúum Akrahrepps að segja sína skoðun. Vilji íbúanna kom ekki fram við sameiningarkosningar 1998, sveitarstjórn þar ákvað að vera ekki með í viðræðum um sameiningu hreppanna allra í Skagafirði. Akra- hreppur stendur ágætlega fjárhags- lega og á fundinum kom að sögn Ár- sæls fram nokkur ótti við hvort menn væru að tapa peningunum sín- um við sameiningu. Þá var líka fjallað um skólamál, en í Akraskóla fer fram kennsla sjö yngstu bekkja grunnskólans. Fulltrúar Akrahrepps bóka í kynn- ingarbæklingi að ef sameining verði samþykkt muni starfsemi Akraskóla að líkindum falla niður fljótlega. Fulltrúar Sveitarfélagsins Skaga- Atkvæði greidd um tillögu um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar Nánast um samrekstur að ræða nú þegar Ársæll Guðmundsson Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Skagafjörður Í SKAGAFIRÐI búa um 4.400 manns í tveimur sveitarfélögum, Akrahreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði sem varð til við samein- ingu Fljótahrepps, Hofshrepps, Hólahrepps, Lýtingsstaðahrepps, Rípurhrepps, Sauðárkrókskaup- staðar, Seyluhrepps, Skarðshrepps, Skefilsstaðahrepps, Staðarhrepps og Viðvíkurhrepps árið 1998. Nú er lagt til að þessi tvö sveitarfélög, Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður, sameinist. Samgöngur eru góðar innan hér- aðs og það er nú þegar heildstætt atvinnu- og þjónustusvæði. Morgunblaðið/ÞÖK Kerið í Grímsnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.