Morgunblaðið - 06.10.2005, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD klukkan 20 verður danska
kvikmyndin Strengir frumsýnd á Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík. Myndin er merkileg fyrir
þær sakir að hér er um að ræða
fyrstu myndina í fullri lengd sem er
gerð um strengjabrúður – með
strengjabrúðum. Engin hreyfi-
myndatækni var notuð við gerð
myndarinnar en alls stjórnuðu
sautján brúðumeistarar brúðunum
en um tvö hundruð manns í það heila
unnu að gerð hennar.
Yfirbrúðumeistari myndarinnar er
Þjóðverjinn Bernd Ogrodnik, en
hann hefur búið hér á landi um árabil
og starfað meðal annars hjá Þjóðleik-
húsinu. Segir hann að sagan hafi
meðal annars krafist þess að ný gerð
strengja yrðu hannaðir.
Brúður kafa og klifra
„Brúðurnar eru að gera mjög
óvenjulega hluti í þessari mynd eins
og að kafa og klifra – nokkuð sem
strengjabrúður hafa aldrei áður gert.
Hún var einnig gerð með það í huga
að notast við eins lítið af tæknibrell-
um og mögulegt var. Strengirnir
sjást því vel og eru meira að segja
hluti af sjálfri sögunni.“
Bernd segir að kvikmyndin hafi
kostað um fimm milljónir evra sem
sé í raun og veru lítill peningur miðað
við verkefni af þessari stærðargráðu.
„Hvert einasta skot tók óralangan
tíma og til gamans má nefna eitt flók-
ið atriði þar sem tíu strengjabrúður
draga áfram vagn í eyðimörkinni.“
Bernd Ogrodnik verður bæði við-
staddur sýninguna í kvöld og seinni
sýningu myndarinnar 8. október. Að
sýningum loknum mun hann sitja
fyrir svörum.
Besta evrópska
„fantasíu“ myndin
Í tilkynningu frá kvikmyndahátíð-
inni segir að kvikmyndin sé óvenju-
leg, dramatísk og spennandi fantasía
fyrir börn og fullorðna. Myndin fjalli
um konungssoninn Hal Tara sem
leggur upp í ferðalag til að hefna
dauða föður síns. Á leið sinni lærir
hann margt um þegna sína og finnur
ástina þar sem hann á síst von á
henni. Sagan segir frá ótrúlegu æv-
intýri Hal Tara, hugrekkinu, hætt-
unum sem bíða hans, ástinni, hatr-
inu, og örlögum hans.
Strengir hefur verið tilnefnd til
fjölda verðlauna og hlaut meðal ann-
ars verðlaun sem besta evrópska
fantasíumyndin á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni á Spáni, 2004.
Myndin var fjögur ár í vinnslu og
alls voru um tíu kílómetrar af
strengjum notaðir til þess að hreyfa
útlimi brúðanna.
Nýir strengir voru hannaðir af Bernd Ogrodnik fyrir kvikmyndina.
Tíu kílómetrar
af strengjum
Kvikmyndir | Strengjabrúðumynd
frumsýnd í kvöld
Strengir er sýnd kl. 20 í Há-
skólabíói, Sal 2.
www.filmfest.is
SKEYTINGARLEYSI fjögurra
barna móður er lýst á miskunn-
arlausan hátt í japönsku myndinni
Enginn veit, og er sögð byggð á
hliðstæðum atburði.
Hvað sem því líður er myndin
einstaklega frumleg og umhugs-
unarverð á tímum þegar foreldrar
hafa æ minni tíma til að sinna börn-
um sínum.
Keiko (You) er einstæð japönsk
móðir sem flytur með börnin sín í litla
íbúð í Tókýó. Tilvera barnanna er á
reiki, hún hefur átt þau hvert með
sínum manninum. Tvö þeirra eru
flutt inn í íbúðina í töskum og mega
ekki láta neitt á sér bera. Ekkert
þeirra stundar skólanám en öll eru
þau myndarbörn, vel af guði gerð.
Keiko er slæm móðir, það kemur
fljótlega í ljós að hún hefur vanrækt
börnin í gegnum tíðina og fjölskyldan
verið leyst upp af þeim sökum, einu
sinni í það minnsta, og krakkarnir
óttast ekkert meira og gera allt til að
sá harmleikur endurtaki sig ekki.
Fyrr en varir tekur móðirin upp
fyrri lífshætti, lætur sig hverfa í
nokkra daga, síðan mánuðum saman.
Hrollvekja er skásta inntakslýs-
ingin á Enginn veit, áhorfandinn fylg-
ist með hvernig börnin
drabbast niður með hverj-
um deginum og íbúðin
sömuleiðis. Þau eru öll ein-
angruð frá umheiminum ut-
an Akira (Yagira), elsti
drengurinn, sem þessi „fyr-
irnyndarmóðir“ leggur alla
ábyrgðina á. Litli snáðinn
reynir ásamt systkinunum
að leysa vandamálin sem
hrannast upp á hverjum
degi, en allsherjarskortur á
umönnun, ekki síst pen-
ingaleysi, ber þau smám
saman ofurliði.
Leikstjórinn hefur slík
tök á umfjöllunarefninu að engu er
líkara en áhorfandinn sé að horfa á
heimildamynd. Niðurníðsla barnanna
og umhverfisins, einangrun þeirra og
umkomuleysi er svo sannfærandi að
nístir inn að beini. Börnin leika af ein-
skærri snilld, fáeinar gleðistundir
inni á milli eru ekki síður einlægar og
undirstrika enn frekar glæp van-
hirðunnar.
Utangarðsbörn
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: AKR 2005
Leikstjóri: Hirokazu Koreeda. Aðal-
leikendur: Yûya Yagira (Akira), Ayu
Kitaura (Kyoko), Hiei Kimura (Shi-
geru), Hanae Kan (Saki), You (Keiko,
móðirin). 141 mín. Japan. 2005.
Enginn veit (Nobody Knows / Dare mo
shiranai) „Leikstjórinn hefur slík tök á umfjöllunarefninu
að engu er líkara en að áhorfandinn sé að horfa á
heimildarmynd,“ segir m.a. í dómi.
HVAÐ ef veröldin sem við búum í
væri bara blekking? Að raunveru-
leikinn væri eitthvað allt annað en
við héldum? Um þetta fjalla margar
bíómyndir; The Truman Show með
Jim Carrey í aðalhlutverki er þar
kannski einna þekktust. Í The
League of Gentlemen’s Apocalypse
komast aðalpersónurnar að því að
heimur þerra er aðeins hugar-
heimur, þeir eru persónur í vinsæl-
um sjónvarpsþætti, The League of
Gentlemen, sem hóf göngu sína á
BBC árið 1999 og var sýndur í um
þrjú ár. Þegar myndin hefst á að
hætta framleiðslu þáttanna og það
þýðir að dómsdagur er á næsta
leiti. Hvað er til ráða? Jú, nokkrar
persónurnar fara inn í raunheiminn
í gegnum hlið undir kirkju og reyna
að fá höfunda þáttanna til að hætta
við að hætta.
Eins og nærri má geta er húm-
orinn í myndinni býsna vitfirrings-
legur og minnir að mörgu leyti á
uppátæki Monty Python-hópsins.
Sjálfsagt er það matsatriði hvernig
til hefur tekist; vart verður þverfót-
að fyrir tilvísunum í ótal hrollvekjur
sem oft eru skondnar, en hvort
manni finnst púki með gleraugu eða
sáðfall gíraffa fyndið eða ekki fer
eftir smekk. Persónulega fannst
mér það ekki, en maður gat samt
brosað að mörgu sem bar fyrir
augu. Miðað við að um grínmynd
var að ræða var það þó engan veg-
inn nóg.
Í það heila eru þættirnir
skemmtilegri og sennilega er nauð-
synlegt að sjá þá ef maður á að
botna eitthvað í myndinni eða hafa
yfirleitt áhuga á að sjá hana.
Er púki með
gleraugu fyndinn?
KVIKMYNDIR
Tjarnarbíó: AKR 2005
Leikstjórn: Steve Bendelack. Aðalleik-
arar: Mark Gatiss, Steve Pemberton,
Reece Shearsmith. 91 mín. Bretland
2005.
The League of Gentlemen’s Apocalypse
Jónas Sen
TÍU er harla óvenjuleg mynd, þar
sem tvær myndavélar, njörvaðar nið-
ur á mælaborði bíls, segja söguna.
Annarri er beint að eigandanum, öku-
manninum (Akbari), konu á fertugs-
aldri. Hin fangar atburði í framsæt-
inu þar sem sonur hennar ungur
(Maher) kemur mest við sögurnar tíu
(sem myndin dregur nafn sitt af), aðr-
ir sem koma við sögu eru konur á
ýmsum aldri.
Einn farþeganna er systir bílstjór-
ans, önnur gleðikona, sú þriðja reynd
og aldurhnigin o.s.frv.
Kiarostami notar bílinn á nýstár-
legan hátt, sem málstofu þar sem
rætt er fram og til baka um stöðu
kvenna í landinu. Rödd ökumannsins
bergmálar skoðanir nútímakonunnar
sem vill rísa upp gegn aldagamalli
kúgun karlaveldisins, hún reynir að
vekja kvenpersónurnar til lífsins með
litlum árangri. Þær eru fastar í
farinu. Ein grenjar yfir missi á karl-
rembunni sinni sem hefur yfirgefið
hana fyrir aðra konu. Sjálfur er ekill-
inn fráskilinn, karlinn floginn og gift-
ur aftur, sonur þeirra flakkar á milli
foreldra sinna og samræður mæðg-
inanna í bílnum eru linnulaust rifrildi,
oft á tíðum seigdrepandi en segir
okkur að karlremban hefur djúpar
rætur í Íran og það þarf örugglega
nokkrar kynslóðir byltingarsinna á
borð við ekilinn, til að breyta þeim
rótgrónu viðhorfum í stöðu kynjanna
sem landlæg eru þar um slóðir.
Framvindan er tilbrigðalítil en
áfram þokast hún og ferðalagið skýr-
ist með hverjum kílómetranum sem
ekinn er um höfuðborgina Teheran.
Kiarostami er frægur fyrir rólynd-
islegan frásagnarmáta, að þessu sinni
notar hann bifreið, þetta alkunna
tákn hraða og spennu, til að halda ut-
an um samræður og skoðanaskipti.
Hér ræður markviss einfaldleikinn
ríkjum, en þegar upp er staðið kemur
í ljós að frásagnarmátinn er ótrúlega
kraftmikill, leikstjóranum tekst með
látleysinu að fanga athygli áhorfand-
ans og setja hann inn í framandi við-
fangsefnið. Kiarostami nýtur a.m.k.
tveggja stórleikara, Akbari og ekki
síður drengsins Mahers sem er ótrú-
lega þroskaður og lifandi, óstöðvandi
vaðallinn er jafnan trúverðugur og
rökréttur þó svo að maður hafi á til-
finningunni að mæðginin séu mest-
megnis að spinna.
Það er athyglisvert að konan segir
aðspurð, að hún aki jafnan í þriðja gír
(af fimm), það eitt segir okkur tals-
vert um stöðu kvenna í Íran.
Kona í
þriðja gír
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: AKR 2005
Leikstjóri: Abbas Kiarostami. Aðalleik-
endur: Mania Akbari, Amin Maher.
85mín. Íran. 2002.
Tíu (Ten) Sæbjörn Valdimarsson
EINS og flestir hafa tekið eftir er
fjöldi manns
kominn til
landsins vegna
Alþjóðlegrar
kvikmyndahá-
tíðar í Reykja-
vík. Í kvöld
verða þrír að-
standendur há-
tíðarmynda
viðstaddir sýn-
ingar.
Áhorfendum gefst tækifæri til að
spyrja þá spjörunum úr að sýn-
ingum loknum.
Aðstoðarmaður leikstjóra Moo-
ladé, Samba Gadjigo, verður á
sýningu í Háskólabíói kl. 17.40.
Leikstjóri Zero Degrees of Se-
peration, Elle Flanders, verður í
Tjarnarbíói kl. 17. Loks verður
brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik
á frumsýningu Strings í Há-
skólabíói kl. 20.
Gestir AKR í kvöld
www.filmfest.is
Elle Flanders
ÞAR sem upp-
selt hefur verið
á sýningar Al-
þjóðlegu kvik-
myndahátíð-
arinnar í
Reykjavík á
kanadísku heim-
ildarmyndinni
Okkar arfur
(What Remains
of Us), hefur há-
tíðin fengið leyfi framleiðanda til
að bæta við sýningu á myndinni.
Sýning fer fram í Háskólabíói á
morgun, föstudagskvöld kl. 20. At-
hygli er vakin á því að einungis
verður hægt að kaupa miða í Há-
skólabiói.
Okkar arfur er afrakstur ferðar
tíbesku flóttakonunnar Kalsang
Dolma til Tíbet á árunum 1996 til
2004, en árið 1996 flutti hún
þorpsbúum í Himalayafjöllum
skilaboð frá Dalai Lama. Aðeins
eru til þrjú eintök af myndinni í
heiminum og er hún aðeins sýnd
gegn því að öryggisverðir tryggi
að enginn fari með mynd- eða
hljóðupptökutæki inn í salinn.
Þetta er gert til þess að tryggja
öryggi þeirra sem fram koma í
myndinni og tjá sig um ástandið í
Himalayafjöllum.
Kvikmyndir | What Remains of Us
Aukasýning á föstudag
Leikstjórinn
François Prévost
Háskólabíó kl. 20:00
Fimmtudaginn 6. október
Fyrsta strengjabrúðumyndin
í fullri lengd
www.filmfest.is
Háskólabíó
17:40 Moolaadé
20:00 Strengir
22:00 Heilaga stúlkan
22:00 Enginn veit
Regnboginn
18:00 Beint á vegginn
18:00 06/05, sjötti maí
20:15 Dagrenning
22:00 Rekkjusögur
Tjarnarbíó
17:00 Enginn aðskilnaður
19:00 Bölvun
21:00 Heimavinna
NÝR BÚNAÐUR
Í TJARNARBÍÓI
Danska kvikmyndin Strengir er fyrsta
strengjabrúðumyndin sem gerð er í fullri
mynd. Engin hreyfimyndatækni var notuð
við gerð myndarinnar. Yfirbrúðumeist-
arinn Bernd Ogrodnik er búsettur hér á
landi og svarar spurningum áhorfenda.