Morgunblaðið - 25.10.2005, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
KB ERLEND HLUTABRÉF er tilvalinn kostur fyrir flá sem
vilja fjárfesta í hlutabréfum traustra erlendra fyrirtækja en
horfa fyrst og fremst til ávöxtunar í íslenskum krónum. Vi›
st‡ringu sjó›sins er lög› sérstök áhersla á a› draga markvisst
úr gjaldmi›laáhættu. Kynntu flér máli› á kbbanki.is
KB ERLEND HLUTABRÉF
KB Erlend
hlutabréf
11,5%
3,8%
Heimsvísitala
hlutabréfa, MSCI
*Samkv. www.sjodir.is m.v. 30. sept.
hækkun frá áramótum
11,5%*
Hækkun frá áramótum m.v. 30. sept.
KB ERLEND HLUTABRÉF er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting
en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta
m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu
e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
5
6
5
NORRÆNA flugfélagið SAS mun
segja upp samstarfssamningi sínum
við Icelandair vegna kaupa íslenska
félagsins á Sterl-
ing. Þetta segir
Hans Ollongren,
upplýsingafulltrúi
SAS, í samtali við
Morgunblaðið.
„Tæknilega séð
munum við segja
upp samningnum
en uppsagnar-
fresturinn er hálft
ár og á meðan
hann stendur yfir munum við endur-
meta stöðuna,“ segir Ollongren og
bætir við að vel komi til greina að
semja á nýjan leik við Icelandair.
Forstjóri SAS í stjórn FIH
Hann segir SAS vera í sérstakri
stöðu þar sem einn helsti samstarfs-
aðili félagsins sé skyndilega einnig
orðinn samkeppnisaðili þess.
Danska Ritzau fréttastofan hefur
eftir Jørgen Lindegaard, forstjóra
SAS, sem einnig á sæti í stjórn FIH
bankans í Danmörku, dótturfélags
Kaupþings, að miðað við það sem
fram hafi komið um uppbyggingu FL
Group séu góðar líkur á að félögin
geti haldið áfram samstarfi sínu.
Öll helstu dagblöð Danmerkur, s.s.
Politiken, Berlingske Tidende, Jyl-
landsposten og Børsen, fjalla ýtar-
lega um kaup FL Group á danska lág-
fargjaldaflugfélaginu Sterling.
Berlingske Tidende fullyrðir að
Fons Eignarhaldsfélag, sem Pálmi
Haraldsson, stjórnarformaður Sterl-
ing á ásamt Jóhannesi Kristinssyni,
hafi hagnast um 1,1 milljarð danskra
króna á aðeins sjö mánuðum, jafnvirði
um 10,7 milljarða íslenskra króna á
sölunni til FL Group en söluverðið
var 14,6 milljarðar króna. Þá segir
Berlingske Tidende að vegna gríðar-
legs tapreksturs á Maersk Air sé talið
að eigendur þess hafi verið reiðubúnir
að greiða 300 milljónir danskra króna
bara til þess að losna við félagið.
Almar Örn Hilmarsson, forstjóri
Sterling, segir við blaðið að kaup FL
Group á félaginu opni ekki Sterling
leið inn á Bandaríkjamarkað. Ice-
landair, dótturfélag FL Group, hafi
flogið þangað í meira en 50 ár og hafi
staðið sig vel. Sterling sé öflugt
evrópskt lágfargjaldaflugfélag og það
myndi kosta gífurlegar fjárhæðir fyr-
ir það að sækja á Bandaríkjamarkað
þar sem félagið sé algerlega óþekkt.
Hærri flugfargjöld?
Stig Fredriksen, flugrekstrarsér-
fræðingur, segir við Netavisen
INFOPAQ að hann hafi ekki trú á því
að Sterling verði rekið sem sjálfstætt
félag í framtíðinni og það muni leiða
til hærra verðs á flugfargjöldum.
„Þegar til lengri tíma er litið verða fé-
lögin sameinuð til þess að ná fram
samlegðaráhrifum. Menn neyðast
einfaldlega til þess að til þess að ná
einhverju út úr fjárfestingum sín-
um,“ segir Fredriksen, sem telur að
Sterling, Maersk Air og Icelandair
muni fyrr eða síðar renna algerlega
saman og það þýði minni samkeppni.
„Þegar öllu er á botninn hvolft verður
tveimur flugfélögum færra að keppa
við.
Og ef fyrirtækin eiga að uppfylla
kröfur eigandanna um hagnað neyð-
ast menn til þess að auka tekjurnar.“
Gengi bréfa SAS hækkaði um
3,37% í viðskiptum gærdagsins og
bréf FL Group hækkuðu um 0,71%.
SAS segir upp samningi
Eftir Guðmund Sverri Þór
og Arnór Gísla Ólafsson Ítarlega fjallað um kaupin á Sterling-
flugfélaginu í dönskum fjölmiðlum
Hans Ollongren
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu í Kauphöll
Íslands í dag. Úrvalsvísitalan hækk-
aði um 0,74% og er 4.624 stig. Bréf
Össurar hækkuðu um 1,63%, bréf
Landsbanka hækkuðu um 1,38% og
bréf Actavis um 0,95%. Bréf Atorku
lækkuðu um 0,88% og bréf Granda
um 0,54%. Viðskipti með hlutabréf
námu 2,8 milljörðum, þar af 1,3
milljörðum með bréf Landsbankans.
Össur hækkar um
1,63%
● GEORGE W. Bush, Bandaríkja-
forseti, hefur ákveðið að skipa Ben
Bernanke, yfirmann efnahags-
ráðgjafanefndar sinnar, næsta seðla-
bankastjóra, en Alan Greenspan læt-
ur af því embætti í lok janúar.
Bernanke er sagður að flestu leyti
hallur undir sömu stefnu og Green-
span, nema hvað hann er hlynntur því
að alríkisstjórnin setji verðbólgumark-
mið, en því hefur Greenspan verið
andvígur.
Verðbréfamarkaðurinn tók jákvætt í
fregnirnar um væntanlega skipan
hans og hækkaði Dow Jones um sex-
tíu stig nokkrum mínútum eftir að þær
bárust í gær. Skipan Bernankes er
háð samþykki öldungadeildarinnar.
Eftirmaður Green-
spans ákveðinn
!
$>
2 ?! 0-&
(2?! 0-&
/;?! 0-&
/%?! 0-&
(? -&
< . -&
@4.! -&
0A ;( -&
; -&
% . < -&
B5-&
</-&
( 41 /1&. -&
C -&
"! # $ %
$
!?! 0-&
/ 4 < -&
04 -&
D>5 >?! 0-&
B! >/ -! -&
E7-5-&
F; 0
-&
G6/$
>G5
!5
H;; ; 4
4 -&
9
4 -&
& # ! '(
/ 5I4-&
% 3 < -& 1
J; 4 2&
H-&
'!)*
DKIL
34
24 &254
(5
;1
24 &254
M'N
M 'N
M'N
M 'N
M
'N
M'N
M'N
M
'N
M'N
M'N
M 'N
M 'N
524 0
;
H.!43!; :
0
&
&
&
&&
& &
&
&
& &
&
&
94 0
3AO &&
$H&P$
- ;
/
24 0
$H& :95;
.!4 &
E Q
RG
'
'
/HI
S$T
'
'
K$K FBT
'
'
/T
E5
'
'
DKIT S!U@! 5
'
'