Morgunblaðið - 25.10.2005, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl.10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6 og 8
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
“Fótfrá gamanmynd”
Variety
Gamanmynd úr
íslenskum raunveruleika frá
framleiðendum Blindskers
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
SÁ BESTI Í BRANSANUM
Frá leikstjóranum David Cronenberg
kemur ein athyglisverðasta mynd ársins.
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Sýnd kl. 6 B.i. 16 ára
Viggo Mortensen, Maria Bello, Ed Harris
og William Hurt fara á kostum í þessari frábæru spennumynd.
Africa
UnitedHörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Þeir eru hér til
að spila fótbolta,
ekki til að gera
mistök
Africa
United
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
450
kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA
kl. 4, 6, 8 og 10
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
Hún fílar vinnuna,
Hann íþróttir .
Munu þau fíla
hvort annað?
Sýnd kl. 3.50
Sýnd kl. 4,
kl. 6, 8 og 10
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
Gamanmynd úr íslenskum raunveruleika
frá framleiðendum Blindskers
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
SÁLIN hans Jóns míns heldur enn
dampi eftir að hafa verið að í tæpa
tvo áratugi. Í gær kom út tólfta plata
sveitarinnar, Undir þínum áhrifum,
sem sýnir að þeir félagar eru ekki
við það að láta deigan síga.
Margir þeir sem heyrt hafa plöt-
una hafa haft á því orð að léttara sé
yfir tónlistinni en oft áður og Guð-
mundur Jónsson gítarleikari og
helsti lagasmiður sveitarinnar tekur
undir það, segir að vinnan við þessa
plötu hafi verið óvenju skemmtileg
og það komi ekki á óvart að það
skuli skila sér í tónlistinni. Platan
var annars tekin upp á tiltölulega
skömmum tíma, enda segir Guð-
mundur að þeir félagar hafi komið
að verkinu vel hvíldir og fullir
áhuga. „Við hittumst eftir átta mán-
aða frí og vorum mjög samtaka um
að hafa plötuna heldur léttari en síð-
ustu plötur okkar sem voru óneit-
anlega þyngri en það sem við höfð-
um gert áður, nokkurskonar
söngleikur á tveimur plötum og svo
plata með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands,“ segir Guðmundur og bætir
við að þeir hafi líka einsett sér að
hafa léttara yfir textunum til að allt
myndi nú haldast í hendur. „Text-
arnir eru léttir og bjartsýnir, jafnvel
væmnir sumir, en Stefán getur
manna best sungið slíka texta, hefur
einlægnina sem þarf til að skila til-
finningunni sem í þeim felst.“
Unnið af krafti
Platan var tekin upp að mestu í
Danmörku, í hljóðverinu skammt frá
Randers á Jótlandi. Guðmundur seg-
ist að það hafi gefist einkar vel að
vinna þar, aðstaðan góð og miklu
hafi skipt að losa sig frá argaþrasi
daglegs lífs. „Það var frábært að
vera þarna úti og okkur gekk mjög
vel að taka upp, tókum 70% af plöt-
unni upp á einni viku, enda unnum
við af krafti, fjórtán tíma á dag.“
Fjögur laganna hafa þegar komið
út áður sem smáskífur, það fjórða
gátu eigendur iPod spilastokka sótt
sér á dögunum, en Guðmundur segir
að þeim Sálarfélögum þyki mjög
gaman að geta tekið þátt í slíkri út-
gáfu enda sé smáskífuformið að
ganga í endurnýjun lífdaganna með
nýrri tækni.
Lögin á skífunni eru flest eftir
Guðmund að vanda, en Jens Hans-
son leggur einnig til lög – Guð-
mundur á níu lög og Jens tvö. Hann
segir að þeir hafi haft það að leið-
arljósi að hvert einasta lag á plöt-
unni yrði að vera líklegt til vinsælda,
„eins og hjá Bítlunum,“ segir hann
og hlær við. „Við höfum alltaf reynt
að hafa plötunar þéttar, að vera ekki
með neitt uppfyllingarefni og hefur
tekist mjög vel hingað til að mér
finnst.“
Þetta verður gaman
Útgáfutónleikar Sálarinnar verða
á óvenjulegum stað, í tónleika-
klúbbnum Vegas í Kaupmannahöfn
5. nóvember nk. Guðmundur segir
að þeir félagar hafi ekkert verið
áfjáðir í að halda tónleikana þar
þegar hugmyndin kom upp en síðan
lítist þeim æ betur á það eftir því
sem nær dregur. „Þetta verður gam-
an, við spiluðum síðast í Kaup-
mannahöfn fyrir fjórtán árum og
vorum þá ekkert mjög ánægðir með
að vera að spila þar og syngja á
ensku. Tónleikarnir núna verða
venjulegir Sálartónleikar, þriggja
tíma keyrsla, blanda af gömlum og
nýjum lögum,“ segir hann og bætir
við að það verði gaman að fá að spila
fyrir þann fjölda Íslendinga sem búi
þar ytra. „Mér skilst að þetta sé einn
sterkasti tónleikastaður Kaup-
mannahafnar, 1.500 manna staður,
og það verður gaman að fá að
spreyta sig þar. Þeir sem heima sitja
fá mörg tæknifæri til að sjá okkur á
tónleikum áður en við förum í næsta
frí, til dæmis næstkomandi laug-
ardag, en þá leikum við á Nasa.“
Sálin hans Jóns míns, anno 2005.
Létt yfir
Sálinni
Tónlist | Undir þínum
áhrifum kemur út
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational sýnir heimildarmynd um
dauðarefsinguna í Alþjóðahúsinu í
kvöld. Myndin heitir Too Flawed to
Fix og „skoðar og afhjúpar brotalam-
ir í bandarísku réttarkerfi, sem gera
það að verkum að saklausir ein-
staklingar eru teknir af lífi fyrir
glæpi, sem þeir frömdu ekki“, segir í
tilkynningu frá Amnesty.
„Þó að heimildamyndin líti sér-
staklega til beitingar á dauðarefsing-
unni í einu ríki Bandaríkjanna, Illin-
ois, horfir heimildamyndin einnig til
dauðarefsingarinnar almennt, fjallar
um röksemdir, sem fylgjendur
dauðarefsinga halda fram, og reynir
að svara þeim,“ segir þar ennfremur.
Að myndinni lokinni gefst gestum
kostur á að skrifa undir bréf til
stjórnvalda í Japan og þrýsta á afnám
dauðarefsingar í Japan. Einnig að
skrifa undir bréf til stjórnvalda í
Sádi-Arabíu vegna einstaklinga, sem
eiga á hættu að verða afhöfðaðir.
Heimildarmynd um dauðarefsingu
Myndin er sýnd í Alþjóðahúsinu
við Hverfisgötu kl. 20. Aðgangur
er ókeypis.
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefursnúið sér að því að yrkja ljóð en
hún dvelur nú á endurhæfingarhæli í
Arizona í Banda-
ríkjunum í þeim
tilgangi að losa
sig við eitur-
lyfjafíkn sína.
Kate, eða „Kóka-
ín-Kata“ eins og
hún er kölluð í
breskum götu-
blöðum, les ljóð
sín upp í símtölum við elskhuga sinn
Pete Doherty. Þetta hefur breska
dagblaðið Daily Mirror eftir vinkonu
fyrirsætunnar.
„Henni finnst afar róandi að færa
hugsanir sínar á blað. Vinir hennar
og fjölskylda eru hæstánægð með að
hún hafi fundið sér eitthvað að gera
til þess að beina athyglinni að á með-
an hún jafnar sig,“ segir vinkona
hennar. Mamma Kate heimsótti
hana á hælið í seinustu viku og hefur
stutt dóttur sína af mikilli ástúð í
baráttunni við fíknina.
Fólk folk@mbl.is
Vinir leikkonunnar Keiru Knig-htley segja að hún hafi grátið
nær stanslaust í sólarhring eftir að
hún las gagnrýni
um frammistöðu
sína í nýjustu
kvikmynd sinni
Domino í banda-
ríska tímaritinu
New Statesman.
Í tímaritinu er
leikkonunni líkt
við fimm ára barn
sem hafi fengið þau válegu tíðindi að
kremið á afmælistertunni hennar
hafi verið úr vanillu en ekki úr
súkkulaði.
Í kvikmyndinni á persóna Knight-
ley að dansa eggjandi kjöltudans. en
gagnrýnanda fannst dansinn heldur
ómerkilegur. Þótti honum skrif-
stofustóll, sem hann eitt sinn henti
út um gluggann hjá sér, hafa sýnt
mun meira eggjandi tilburði en
stúlkan.