Morgunblaðið - 15.11.2005, Side 20
Frábær fyrirtæki
1. Þjónustufyrirtæki sem selur, hleður og endurnýjar slökkvitæki
hjá fyrirtækjum og húsfélögum. Gott fyrir 1-2 menn. Langur við-
skiptamannalisti. Öll tæki sem þarf fylgja, auk þess tölva, bíll
og sérstakur klæðnaður. Laust strax.
2. Glæsilegt nýtt hótel í 40 mínútna fjarlægð frá Reykjavík. Miklir
stækkunarmöguleikar. Góð hagstæð lán sem hægt er að yfir-
taka. 21 tveggja manna herbergi og stór salur sem tekur 130
manns í sæti. Tilvalinn fyrir ráðstefnur, enda mikið notaður
fyrir það. Skipti á eign í Reykjavík möguleg.
3. Stór söluturn með tveimur bílalúgum. Mikið að gera enda 6-7
millj. mánaðarvelta. Vaxandi hverfi. Góðar tekjur fyrir duglegt
fólk.
4. Lítill söluturn í skrifstofuhverfi sem ekki er opinn á kvöldin eða
um helgar. Gott fyrir einstakling, mjög þægilegur vinnutími.
Mikið af föstum viðskiptavinum sem koma að versla og spjalla.
Skemmtilegt vinnuumhverfi.
5. Lítið framleiðslufyrirtæki sem merkir penna, sjúkrakassa og
þ.h. Mikil lager fylgir með og fyrirtækið á mjög góðu verði. Stór
viðskiptamannalisti. Laust strax.
6. Ný endurnýjaður pöbb í Reykjavík með píanói, vönduðu sjón-
varpi, nýjum innréttingum og litlu sviði. Margir möguleikar fyrir
hugmyndaríkan mann. Laus strax.
7. Lítil prentsmiðja á höfuðborgarsvæðinu. Er í eigin húsnæði sem
einnig er til sölu. 2-3 störf. Fastir viðskiptavinir, sterkir og
traustir. Laus strax.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Ólafsvík | Pólverjar í Snæ-
fellsbæ héldu upp á þjóðhátíð-
ardag Pólverja með hátíð í fé-
lagsheimilinu Klifi á laugardag.
Um hundrað Pólverjar eru
búsettir í Snæfellsbæ. Þeir tóku
sig saman og æfðu dansa og
söngva og útbjuggu ýmiss kon-
ar mat að hætti Pólverja. Þá var
flutt erindi um samskipti Pól-
verja við einstaklinga og fyr-
irtæki í Snæfellsbæ sem eiga
sér rúmlega 20 ára sögu en þau
hófust þegar útgerðarfyr-
irtækið Hrói lét byggja Jökul í
Gdansk 1984.
Eftir að þjóðsöngur Póllands
hafði verið sunginn var byrjað
að dansa Polonez. Dansinn er
frá sautjándu öld, upprunninn í
sveitum Póllands og er nokkurs
konar göngudans. Síðar varð
hann dans heldra fólks og loks
þjóðdans landsins.
Morgunblaðið/Alfons
Pólverjar dansa Polonez
Hátíð
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Skipulagsmál á Akureyri hafa verið til
umfjöllunar á síðum Morgunblaðsins að
undanförnu og sýnist sitt hverjum í þeim
efnum eins og vera ber. Bæjaryfirvöld
hafa slegið lagningu Dalsbrautar af og
framkvæmdir við Miðhúsabraut eru ekki
hafnar. Þetta hefur þýtt að íbúar á Eyr-
arlandsholti, sem búa næst Mýrarvegi,
hafa orðið fyrir miklu ónæði vegna um-
ferðar stórra vörubíla, sem þar fara um.
Það getur verið erfitt fyrir þá sem ekki
búa á þessu svæði, að gera sér í hugarlund,
hversu slæmt ástandið er en þeim sem
þarna búa er vissulega vorkunn.
Í Morgunblaðinu á laugardag fullyrti
Guðmundur Guðlaugsson, íbúi í Lund-
arhverfi, að það að hætta við lagningu
Dalsbrautar frá Þingvallastræti að
Miðhúsabraut væru afdrifaríkustu mistök
í skipulagsmálum bæjarins. Þessi orð Guð-
mundar eru athyglisverð, því hann er ekki
aðeins íbúi í áðurnefndu hverfi, heldur líka
fyrrverandi deildarstjóri framkvæmda-
deildar bæjarins. Enda er það svo að báð-
ar tengibrautirnar, Dalsbraut og Miðhús-
abraut, hafa verið á skipulagi í rúm 30 ár.
Í vikunni verða drög að rammaskipulagi
miðbæjarins lögð fyrir umhverfisráð en
um er að ræða verkefni í tengslum við Ak-
ureyri í öndvegi. Margir bíða eflaust
spenntir að sjá hvað þar er lagt til, t.d.
hvaða hugmyndir eru uppi varðandi Ak-
ureyrarvöllinn. Þar hefur Þyrping sótt um
að byggja verslunarhúsnæði undir Hag-
kaup og fleiri verslanir, auk þess að taka
þátt í uppbyggingu fjölskyldugarðs á hluta
vallarsvæðisins. Ekki eru þó allir á því að
leggja eigi Akureyrarvöll af sem íþrótta-
svæði og þar koma m.a. tilfinningar við
sögu.
Þeir sem stýra knattspyrnumálum hjá
KA og Þór hafa hins vegar lýst því yfir að
völlurinn megi fara og að heimaleikir fé-
laganna verði leiknir á þeirra svæðum, á
Brekkunni og í Þorpinu. Það kallar á um-
fangsmiklar og kostnaðarsamar fram-
kvæmdir á báðum svæðunum en það ætti
ekki að verða vandamál, því töluverða fjár-
muni ætti að vera hægt að fá fyrir bygg-
ingarrétt á Akureyrarvellinum.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
Eftir Kristján Kristjánsson blaðamann
Sigurjón ValdimarJónsson tróð upp á
hagyrðingakvöldi fyrir
austan:
Guð hvað er ég að gera hér,
grænn í framan og stamandi,
því Austfirðirnir eru mér
algjörlega framandi.
Sigurjóni leist vel á
ástandið:
Vonlaust margt hér var að sjá,
virtust menn á öðrum byrði,
nú eflaust vinnu allir fá
í álverinu á Reyðarfirði.
Stjórnmálamenn eru
alltaf vinsælt yrkisefni og
Sigurjón nýtti sér það:
Í Halldór var komin heilmikil
krísa,
höfðu ekki margir áformin
stutt,
austur á fjörðum skal álverið
rísa
þó auðvitað mótmæli
Hjörleifur Gutt.
Jón okkar Kristjáns, hann á
ekki aur
til öryrkja með götóttar
spjarirnar
ég trúi ekki margir toppi þann
gaur,
að tala og hreyfa ekki varirnar.
Álver
pebl@mbl.is
Vestmannaeyjar | Fyrirtæki sem hyggst
byggja íbúðar- og verslunarhúsnæði hefur
sótt um lóðina Miðstræti 20 til 24 í Vest-
mannaeyjum. Unnið er að deiliskipulagn-
ingu svæðisins en áður hefur Íslandspóstur
sótt um lóðina fyrir pósthús.
Þegar Íslandspóstur sótti um lóðina var
ákveðið að deiliskipuleggja svæðið. Fram
kemur á vef Frétta í Eyjum að tveir nefnd-
armenn í byggingarnefnd hafi viljað hafna
umsókn Íslandspósts þar sem pósthús ætti
ekki heima á þessum stað.
Nú hefur Þór Engilbertsson fyrir hönd
2Þ ehf. endurnýjað umsókn sína frá því í maí
2003 um sömu lóðir. Hugmynd Þórs er að
byggja íbúðar- og verslunarhúsnæði. Hug-
myndin er að sameina í byggingunni íbúðir
með bílskúrum, bílskúra fyrir íbúðir að
Vesturvegi 10, þ.e. Reynistað, og verslunar-
húsnæði sem snýr að göngustíg milli
Strandvegar og Skólavegar. Nefndin hafn-
aði umsókn Þórs á þeim forsendum að svæð-
ið færi nú í deiliskipulag og var skipulags-
og byggingafulltrúa falið að óska eftir fjár-
veitingu bæjarráðs til að vinna að deiliskipu-
lagningu svæðisins, segir á eyjafrettir.is.
Pósthús eða
verslun og
íbúðir við
Miðstræti?
Suðurland | Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
samþykkti að skora á þingmenn kjördæm-
isins og forystu flokksins að koma frekari
endurbótum á Suðurlandsvegi, milli
Reykjavíkur og Selfoss, inn á samgöngu-
áætlun. Vilja þeir að framkvæmdum við
fjögurra akreina upplýstan veg verði lokið
eigi síðar en 2012.
Kjördæmisráðsfundurinn sem haldinn
var í Höfn fagnaði í ályktun um samgöngu-
mál útboði á öðrum kafla tvöföldunar
Reykjanesbrautarinnar og vegabótum á
Hellisheiði. Fundurinn fagnaði að 3,1 millj-
arði hafi verið veitt til samgöngumála í
Suðurkjördæmi með ágóða af sölu Símans.
Það skapi svigrúm til aukinna vegafram-
kvæmda í kjördæminu, eins og brú yfir
Hvítá, Hornarfjarðarfljót, tvöföldun
Reykjanesbrautar og Suðurstrandarveg.
Auk annarra atriða lagði fundurinn
áherslu á að lokið verði við tvöföldun ein-
breiðra brúa á þjóðvegi 1 í kjördæminu.
Suðurlands-
vegur verði
tvöfaldaður
♦♦♦
Húsavík | Ómur af jólatónlist barst úr
sal Fosshótels á Húsavík. Þetta þótti
með fyrra fallinu og var því kannað
hverju það sætti. Þegar inn var komið
kom í ljós að laufabrauðsgerð stóð yfir á
hótelinu enda styttist í jólahlaðborðin
rómuðu sem þar eru haldin.
„Við höfum komið hér saman starfs-
fólkið, ættingjar okkar og vinir und-
anfarin ár og gert það laufabrauð sem
til þarf á jólahlaðborðin. Til að skapa
réttu stemninguna á meðan við skerum
út spilum við jólatónlist og borðum
nammi sem við skolum niður með malti
og appelsíni,“ sagði Olga Hrund Hreið-
arsdóttir hótelstjóri svona rétt á meðan
hún leit upp úr kökunum.
En það þarf að steikja laufabrauðið og
í eldhúsinu stóð við pottinn Hallmar
Hugi Aðalsteinsson, veitingastjóri hót-
elsins, naut hann aðstoðar eigendanna,
hjónanna Harðar Þórhallssonar og Ólaf-
ar Hallbjargar Árnadóttur, og þegar
upp var staðið voru sex hundruð kökur í
húsi.
Laufa-
brauðsgerð
á hótelinu
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Steikjarar Hallmar Aðalsteinsson sá um
að steikja laufabrauðið og naut m.a. að-
stoðar Harðar Þórhallssonar við það.