Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 31 MENNING af flví besta! Brot Dunilin gerir flér kleift a› töfra fram glæsilega servíettuskreytingu í takt vi› tilefni›. Fjölbreytt litaúrval au›veldar flér a› ná fram fleirri stemningu sem flú leitar eftir. Í verslunum liggur frammi bæklingur frá Duni flar sem finna má fjölmargar hugmyndir a› servíettubrotum og bor›skreytingum. E N N E M M / S IA / N M 18 8 3 5 ÉG HEF áður vitnað í hið ágæta verk Halldórs Guðmundssonar um ævi nafna síns Laxness en þar kemur m.a. fram hversu mikla áherslu Kiljan lagði á hið ósagða. Hann kunni þann galdur að láta lesandanum eftir að upp- götva boðskap eða grundvöll sögu. Í slíku felst ákveðinn leik- ur, höfundur „felur boðskapinn“ en kemur honum fyrir í text- anum á annan hátt, stundum jafnvel ómeðvitað. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson er líka mikill meistari feluleiks, stundum felur hann merkingu málverka sinna í ofurraunsæju yfirborði, eða not- ar mjög svo viðeigandi felu- mynstur. Þetta hljómar svolítið eins og merkinguna sé hægt að finna bara er vel er leitað, rétt eins og Valla í barnabókunum með felu- myndunum, en það er víst frekar í huga áhorfandans sem hana er að finna, rétt eins og hjá les- endum Laxness. Miðað við þau orð sem í dag heyrast um samtímalistir er eins og mörgum finnist samtíma- listamenn vera dálítið í því að fela Valla, svo vel að enginn finni hann. Þetta er mesta firra og ótrúleg synd hversu margir eru á þessari skoðun, þegar hinir sömu skoða kannski eina sýningu samtímalistamanns á ári eða ekki einu sinni það. Lítil áhersla er á myndlistarkennslu í mörg- um skólum, dóttir mín í þriðja bekk hefur aldrei farið á mynd- listarsýningu með skólanum sín- um en ég get ekki talið þá tón- leika og tónlistaratriði sem hún hefur séð eða hafa komið í skól- ann hennar, þar er vel staðið að hlutunum. Önnur firra er sú að fáir hafi áhuga á samtímalistum og fáir skoði sýningar. Þvert á móti er áhuginn mikill og áhorf- endafjöldi á sýningu hjá ungum listamanni álíka og lesendafjöldi nýrrar bókar ungs höfundar. Sem er nokkuð gott miðað við að bækur fá þó nokkra umfjöllun í samfélaginu en myndlistin mun minni. Einu fjölmiðlarnir sem sinna myndlist að einhverju marki eru Gufan og Mogginn. Sjónvarpið missir þarna af ódýru efni, einföldu að gerð, með mikla möguleika og áhorf. En eitthvað virðist almenningur samt vera að kveikja á perunni, að minnsta kosti selja samtímamálarar grimmt og fá færri en vilja. Sigtryggur Bjarni málar vatn á sýningu sinni í Gallerí Turp- entine. Vatnsyfirborð, stundum ofurraunsætt og stundum eins og mynstur. Ofurraunsæjar myndir hans vekja athygli okkar á því að jafnvel þó þær líti út eins og vatn eru þær ekki blautar, mál- verkið er blekking. Hann leikur sér með þessa blekkingu í mynd- um sínum og það er heillandi að ganga að og frá myndum hans, sjá „vatnið“ birtast í vissri fjar- lægð og leysast upp í litafleti þegar nær er komið. Sigtryggur nefnir sum verkanna nöfnum eins og Brúará og Öxará, eins og til að hnykkja á þessum blekk- ingarleik og kannski til að stað- setja sig á írónískan máta í hópi íslenskra landslagsmálara, því auðvitað er málverk af landslagi aldrei landslagið sjálft, rétt eins og málverk Magritte af pípu var aldrei pípa í raun og veru. Sum heita Hylur, eins og til að minna á að yfirborðið hylur. Sigtryggur dansar hér á línu sætleikans, verk hans eru listilega máluð. En það er einmitt dans Sigtryggs á þessari fínu línu sem gerir verk hans jafn spennandi og raun ber vitni, hið stöðuga flökt milli litaf- lata og raunsæis, málverks og blekkingar sem hrífur mann með sér svo erfitt er að slíta augun af myndum hans. Það er ekki síst stóra myndin af Elliðaám sem er bæði kraftmikil og djörf, felulita- mynstrið býður upp á víðari túlk- un en hið raunsæja vatns- yfirborð, þetta er að mínu mati áhugaverðasta verk sýning- arinnar og mikið að gerast á myndfletinum. Hugmyndafræði Sigtryggs er ekki ný af nálinni en málverk hans eru það, mynd- efni og úrvinnsla eru fersk og í takt við samtíma okkar. Lista- maðurinn er augljóslega vaxandi í verkum sínum og spennandi að fylgjast með list hans þróast. Hér ætti enginn að vera í vand- ræðum með að finna Valla. Morgunblaðið/Ásdís „Hugmyndafræði Sigtryggs er ekki ný af nálinni en málverk hans eru það, myndefni og úrvinnsla eru fersk og í takt við samtíma okkar.“ Hvar er Valli? MYNDLIST Gallerí Turpentine Til 6. des. Gallerí Turpentine er opið þriðjud.–föstud. kl. 12–18 og laugard. kl. 11–16. Lög Málverk, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson Ragna Sigurðardóttir Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Fréttir á SMS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.