Morgunblaðið - 15.12.2005, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bagdad. AFP, AP. | Líklegt þykir að
mikil kjörsókn verði í þingkosning-
unum í Írak í dag og að bandalag
Ibrahims al-Jaafaris forsætisráð-
herra fái flest þingsæti.
Íraska bandalagið, undir forystu
Jaafaris, er spáð allt að 40% at-
kvæðanna. Skoðanakannanir, sem
gerðar voru fyrir Sameinuðu þjóð-
irnar og fleiri alþjóðleg samtök,
benda ennfremur til þess að flokk-
ur Iyads Allawis, fyrrverandi for-
sætisráðherra, fái um það bil 20%
atkvæðanna. Bandalagi Kúrda er
spáð þriðja sætinu og 15–20% kjör-
fylgi.
Í könnun sem birt var á miðviku-
daginn var sögðust 93% aðspurðra
ætla að kjósa og kannanirnar
benda til þess að kjörsóknin verði
mikil, að minnsta kosti 70%. Kann-
anirnar byggjast á viðtölum sem
hundruð manna tóku við fólk á
kjörskrá í öllum héruðum landsins
nema Anbar, helsta vígi uppreisn-
armanna. Engar skoðanakannanir
voru gerðar þar vegna hættu á
árásum á spyrla.
Búist er við að mikill meirihluti
súnní-araba kjósi ólíkt þingkosn-
ingunum í janúar þegar bráða-
birgðaþingið var kosið.
Yfir þúsund klerkar súnní-araba
gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem
þeir mæltust til þess að allir súnn-
ítar greiddu atkvæði.
Stjórn Bandaríkjanna vonar að
mikil kjörsókn meðal súnní-araba
verði til þess að mynduð verði
stjórn sem ávinni sér traust þeirra
og dragi úr stuðningnum meðal
þeirra við uppreisnarmenn.
Geysiströng öryggisgæsla
Gríðarmikill öryggisviðbúnaður
verður í Írak í dag vegna hættu á
árásum á kjörstaði. Akstur einka-
bíla er til að mynda bannaður að
mestu og aðeins sérmerktir bílar
eru leyfðir á götunum.
Útgöngubann var einnig í gildi í
nótt og óbreyttum borgurum er
bannað að bera vopn þar til á laug-
ardaginn kemur. Flugsamgöngur
lögðust niður og landamærin voru
lokuð. Nánast allar öryggissveitir
landsins, eða um 190.000 manns,
eru á varðbergi.
Ummælum um
Sistani mótmælt
Tveir lögreglumenn biðu bana í
sprengjuárás nálægt kjörstað í
borginni Mosul í gær og einn íbúa
Bagdad lét lífið í sprengjutilræði í
miðborginni í gærkvöldi. Uppreisn-
armenn sprengdu einnig kjörstað í
loft upp í grennd við borgina Fall-
ujah í gær en engan sakaði.
Hópur sjíta kveikti í skrifstofum
flokks Iyads Allawis og íraska
kommúnistaflokksins í bænum
Nasiriyah í sunnanverðu landinu.
Hermt er að hópurinn hafi ráðist á
skrifstofurnar til að mótmæla um-
mælum eins af bandamönnum Al-
lawis í viðtali við arabíska sjón-
varpið Al-Jazeera.
Er hann sagður hafa sýnt Ali al-
Sistani, æðsta klerk sjíta, óvirðingu
í sjónvarpsviðtalinu með því að
saka hann um að hafa stutt innrás-
arherinn í Írak og setið á svikráð-
um við súnní-múslíma.
Mikilli kjörsókn
spáð í Írak
+
BC%&$'
C&$
-""
> +)+
D()
! . / 0
EFC>%&$'
E +
3
37&89:;< =; ,41
,
G
/ ,
/ ,41
/ ,41
G
>/
>/
01.234/.5
%5!>#(/?1,+?21/
35@A4
,
/ ,
6 ( 6
& 6
:>A @A4
&1
>/
& ;
! " # $
%&' ()*
/
*7 +8
9
+
7
.
:
+*+:
1/
#
.
'B C
8 * 8 :&"
#
@(++
1 *!
.H:
@ 1. )
*
@ 1. I
"$
>/)
9:
#
+
>( )
@:
#
- !
+
1 ! )
J, K
9:
"
- !
6
"
@
+)
:@(++
+ )
++
:
- !
+
,-" #
"++%.
+
1 !
3 !
>/
(++)
&L
&
@(++
;234<=2
>. )
!
+
:
#!
+* * )
@:
+)++
@*!)
@H
,
,
+)++
.
+
!
+(
,
@ :
* )
3 ,+) )
3
(!
5"+
! * *:& # "
8:$ # 8>
* '
8
# ! * #
@( )
@(++
6)
3 H4
@(++
H
(!
!9
++
+*! !
5)@
:
#
- !
+*
H) @+( !)
,
: :
HA) )
Reuters
Íraskur piltur gægist út um glugga bíls sem íraskir lögreglumenn stöðvuðu á þjóðvegi í suðurhluta Íraks í gær.
Talið að bandalag
Jaafaris forsætis-
ráðherra fái allt
að 40% fylgi
Bagdad. AFP. | Önnur þeirra er frjáls-
lynd og aðhyllist veraldarhyggju en
hin íhaldssöm í trúmálum. Safiya al-
Suheil og Amira al-Baldawi eru báð-
ar sjítar og í framboði í þingkosning-
unum í Írak í dag en ekki í sama
flokki.
Suheil og Baldawi eru nær örugg-
ar um að ná kjöri á þingið vegna
ákvæðis í stjórnarskránni um að
konur eigi að fá fjórðung þingsæt-
anna.
Hlynntar dauðarefsingum
Þótt viðhorf þeirra séu að mörgu
leyti ólík eru þær á einu máli um að
það hafi verið rétt hjá bráðabirgða-
stjórninni að taka upp dauðarefs-
ingar að nýju eftir að hernáms-
stjórnin afnam þær.
„Þingmenn studdu frumvarpið
um að taka upp dauðarefsingar að
nýju,“ sagði Baldawi og bætti við að
dauðadómar væru nauðsynlegir í
baráttunni við hryðjuverkamenn.
Baldawi átti sæti á bráðabirgða-
þinginu og er í stærsta stjórn-
málaflokki sjíta, Íraska bandalag-
inu.
Suheil, sem segist leggja áherslu á
mannréttindamál, er á sama máli.
„Írakar standa frammi fyrir hryðju-
verkum og alvarlegum lögbrotum,
meðal annars morðum og sprengju-
árásum, og þeir sætta sig ekki við
lawis sem óháður leiðtogi með eigin
hugmyndir.“
Klæðaburður kvennanna tveggja
og viðhorf þeirra til trúmála eru
hins vegar ólík. Suheil er fertug,
glæsileg og klædd samkvæmt nýj-
ustu tísku, og fer ekki leynt með
frjálslyndi sitt í trúmálum.
Suheil tók þátt í kosningafundum
og blaðamannafundum Allawis. Hún
fylgdi honum meðal annars til Najaf,
hinnar helgu borgar sjíta, þar sem
andstæðingar hans gerðu aðsúg að
honum, köstuðu í hann grjóti og
skóm. Hún kom fram í sjónvarpi
með honum og fordæmdi árásina.
Suheil er gift fyrrverandi ráð-
herra mannréttindamála, Bakhtiar
Amin. Hún segist hafa hafið póli-
tíska baráttu sína þegar hún var
þrettán ára og flúði til Beirút ásamt
líbanskri móður sinni og íröskum
föður sem Saddam Hussein mun
hafa látið myrða síðar.
Baldawi er 49 ára, látlaus í klæða-
burði og notar höfuðblæju. Hún
kvartar yfir því að athygli fjöl-
miðlanna beinist aðeins að „þunga-
vigtarmönnum“ í flokki hennar.
Baldawi er jarðræktarfræðingur
og kennari við Bagdad-háskóla. Hún
er hlynnt því að hvert trúarsamfélag
í Írak fái að setja sínar eigin reglur
um mál eins og erfðarétt, hjónabönd
og skilnaði.
neitt minna en dauðarefsingu,“
sagði hún.
Suheil hefur ekki átt sæti á
þinginu og er nú í framboði fyrir
Íraska landslistann, flokk Iyads Al-
lawis, fyrrverandi forsætisráðherra.
Segjast vera óháðar
Báðar konurnar segjast vera
„óháðar“ og bjóða sig fram á eigin
forsendum þótt þær hafi gengið til
liðs við flokkana tvo. „Ég hef aldrei
tilheyrt stjórnmálaflokki,“ sagði Su-
heil. „Ég er frambjóðandi á lista Al-
Sækjast eftir þingsæti
á eigin forsendum
Reuters
Írösk kona í Teheran heldur á
mynd af kvenframbjóðanda í kosn-
ingunum í Írak. Yfir 80.000 Írakar
kusu í gær á kjörstöðum utan Íraks.