Morgunblaðið - 15.12.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 21
ERLENT
Tómt,
en lofar góðu.
0,0%
HUNDRUÐ milljóna barna sæta mis-
munun og misnotkun víða um heim og
á ári hverju bætist gífurlegur fjöldi í
hópinn, sem í raun er ósýnilegur öðr-
um íbúum veraldar. Þetta er fullyrt í
nýrri skýrslu Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna (UNICEF).
Í ársskýrslu samtakanna, sem gerð
var opinber í gær, segir að þessi lýsing
eigi við um börn, sem seld séu, og sum
hver neydd til að sinna svonefndri
„kynlífsþjónustu“. Þetta eigi einnig við
um börn, sem dragi fram lífið á götum
borga og njóti ekki skólagöngu og heil-
brigðisþjónustu. Þá sé algengt að börn
séu ekki skráð við fæðingu og það auki
líkur á að þau hverfi og bætist í hóp
„gleymdu milljónanna“.
Ann M. Veneman, framkvæmda-
stjóri UNICEF, greindi frá helstu nið-
urstöðum skýrslunnar á blaðamanna-
fundi í Lundúnum í gær. Lagði hún
áherslu á að háleit markmið á borð við
þau að minnka fátækt í heiminum
yrðu aldrei uppfyllt nema sérstök
áhersla yrði lögð á að bæta líf barna í
þeim löndum heims þar sem kjörin
væru bágust og hætturnar mestar.
„Viðvarandi árangri verður ekki náð ef
við höldum áfram að horfa framhjá
þeim börnum, sem mest þurfa á að-
stoð umheimsins að halda, þeim sem
búa við mestu fátæktina, þeim sem fá
ekki varist og þeim sem sæta misnotk-
un,“ sagði Veneman.
Tugir milljóna hvergi til
Í skýrslunni kemur fram það mat,
að rúmur helmingur þeirra barna, sem
fæðast í þróunarríkjum, sé ekki skráð-
ur. Tölur þessar eiga ekki við um
Kína. Í Suður-Asíu einni eru um 24
milljónir barna ekki skráðar við fæð-
ingu á ári hverju. Í löndunum sunnan
Sahara ræðir um 18 milljónir barna
árlega.
Þetta hafi í för með sér að börnin
séu ekki skráð sem ríkisborgarar í við-
komandi löndum. Bein afleiðing þessa
sé sú, að börnin njóti hvorki mennt-
unar, heilsuþjónustu né annarra sam-
félagslegra réttinda. Að auki geri
þetta ástand mannræningjum lífið
léttara; óskráð börn geti auðveldlega
horfið og illmennin þurfi síður að ótt-
ast refsingu. Veneman lagði áherslu á
að líta bæri á barnasölu sem alþjóð-
legan vanda. Fráleit væri sú nálgun að
hann væri bundinn við þróunarríkin.
„Eftirspurn“ eftir börnum þessum
væri oftar en ekki að finna í þeim ríkj-
um, sem þróuð teldust.
Höfundur skýrslunnar, David Ant-
hony, lagði fyrir sitt leyti einkum
áherslu á mikilvægi þess að líf og
hagsmunir „gleymdu barnanna“ sneru
ekki einvörðungu að stjórnvöldum.
Mál þetta snerti samfélagið allt. Þörf
væri á afdráttarlausum aðgerðum í
fjölmörgum ríkjum til að takast á við
vandann.
Það er mat skýrsluhöfundar að um
tvær milljónir barna tilheyri nú „kyn-
lífsiðnaðinum“ svonefnda um heim all-
an.
Erfitt er sagt að fá fram nákvæma
tölu um barnasölu en telja megi að um
þrettán hundruð þúsund börn séu seld
á ári hverju. Um þessi börn gildi al-
mennt að þeirra bíði ömurlegt hlut-
skipti og þau hverfi í raun úr samfélagi
manna. Talið er að um 8,4 milljónir
barna vinni við „skelfilegar aðstæður“.
Þau séu neydd til þrælkunarvinnu,
„kynlífsþjónustu“, þátttöku í hern-
aðaraðgerðum og annars ólöglegs at-
hæfis. Talið er að hvorki meira né
minna en 171 milljón barna starfi við
aðstæður, sem teljast hættulegar lífi
þeirra og heilsu. Það á m.a. við um
vinnu í námum, við hættulegar vélar í
verksmiðjum og með eitruð efni í land-
búnaði. Af þessum fjölda eru 73 millj-
ónir yngri en tíu ára.
Í fátækustu ríkjum heims nýtur gíf-
urlegur fjöldi barna hvorki menntunar
né heilsuþjónustu. Sjötta hvert barn
nær ekki fimm ára aldri. Tíunda hvert
barn nær ekki að verða eins árs.
Helmingur stúlkna á grunnskólaaldri
fær ekki menntun. Þriðja hvert barn
undir fimm ára aldri – hér ræðir um 42
milljónir barna – er vannært. Fjórða
hvert barn fær ekki sprautu gegn
mislingum, sem leggja meira en hálfa
milljón barna í gröfina á ári hverju.
Þriðja hver stúlka er
gift fyrir 18 ára aldur
Í skýrslu UNICEF er sérstaklega
vikið að giftingum barnungra stúlkna.
Segir þar að hjónaband í æsku geti
orðið til þess að svipta viðkomandi
tækifærum til menntunar. Þetta fyr-
irkomulag auki líkur á að viðkomandi
bíði misnotkun á heimili og kynferð-
islegt ofbeldi, sem vara kunni alla ævi.
Fram kemur að í þróunarríkjum gift-
ist þriðja hver stúlka áður en hún nær
18 ára aldri. Í löndunum þar sem
skorturinn er mestur verður þetta
hlutskipti helmings þeirra stúlkna,
sem yngri eru en 18 ára. Hjónaband í
æsku auki og líkur á ótímabærum
þungunum, sem aftur auki hættu á
dauða bæði móður og barns.
Gleymdu og ósýnilegu börnin
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna segir
að hundruð milljóna barna sæti mismunun og misnotkun
Reuters
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
MAHMOUD Ahmadinejad, forseti
Írans, lýsti yfir því í gær að helför
gyðinga í síðari heimsstyrjöld væri
þjóðsaga ein og flytja ætti gyðinga-
ríkið til Alaska. Ummæli forsetans
voru fordæmd víða um heim og sögð
„yfirgengileg“.
„Þeir hafa fundið upp þjóðsögu um
fjöldamorð á gyðingum og setja þetta
ofar Guði, trúarbrögðum og spá-
mönnunum,“ sagði Íransforseti í m.a.
ræðu sem sýnd var beint í íranska rík-
issjónvarpinu.
„Ef einhver í landi þeirra viðrar
efasemdir um Guð segir enginn neitt,
en ef einhver lýsir efasemdum um að
gyðingar hafi verið drepnir byrja há-
talarar Zíonista og ríkisstjórna, sem
eru leppar Zíonista, að öskra.
Okkar tillaga er þessi: Gefum þeim
hluta af landi ykkar í Evrópu, Banda-
ríkjunum, Kanada eða Alaska svo
þeir geti stofnað eigið ríki. Verði það
gert mun íranska þjóðin ekki lengur
mótmæla ykkur og mun styðja
ákvörðun ykkar,“ sagði Ahmadine-
jad.
Forsetinn hefur áður valdið alþjóð-
legu uppnámi með ýmsum ummælum
sem hann hefur látið falla um Ísrael. Í
októbermánuði sagði hann að þurrka
bæri Ísraelsríki af landakortinu og í
liðinni viku sagði hann Ísrael vera
„æxli“ sem flytja bæri til Þýskalands
eða Austurríkis.
Hann hefur hins vegar ekki fyrr af-
neitað helförinni með jafnbeinum
hætti og nú. Talið er að þýskir nas-
istar hafi drepið sex milljónir gyðinga
á árunum 1933 til 1945.
„Ef þið segið að það sé satt, að sex
milljónir gyðinga hafi verið drepnar á
árum síðari heimsstyrjaldarinnar,
hvers vegna eiga þá Palestínumenn
að gjalda þess? Hvers vegna, undir
yfirskini þessa fjöldamorðs, hafið þið
komið inn í hjarta Palestínu og ísl-
amska heimsins … Hvers vegna hafið
þið stofnað zíonistaríki?“ sagði forset-
inn.
„Afbrigðileg heimssýn“
Talsmaður Ísraelsstjórnar sagði
síðustu ummæli forsetans til marks
um þá „afbrigðilegu sýn til heimsins“
sem einkenndi stjórnvöld í Teheran.
Talsmaður Bandaríkjaforseta
sagði yfirlýsinguna „yfirgengilega“
og kvaðst telja að „ábyrgir leiðtogar“
um heim allan gerðu sér það ljóst.
Breski ráðherrann Douglas Alex-
ander fordæmdi yfirlýsingar forset-
ans í nafni Evrópusambandsins.
Sagði hann þau „ólíðandi með öllu“.
Stjórnvöld í Þýskalandi brugðust við
með því að kalla fulltrúa sendiherra
Írans í landinu á fund í utanríkisráðu-
neytinu. Frank-Walter Steinmeier
utanríkisráðherra sagði yfirlýsingar
íranska forsetans með „öllu óþolandi“
og „uggvænlegar“.
Frances Harrison, fréttaritari
breska ríkisútvarspsins, BBC, í Te-
heran, segir að dagblöð í Íran hafi
fagnað mjög ummælum forsetans.
Þau séu „rökrétt“ og beinskeyttari en
yfirlýsingar fyrri ríkisstjórna í Íran.
Íransforseti afneitar
helför gyðinga
Reuters
Mahmoud Ahmadinejad Írans-
forseti flytur ræðu sína í Zahedan.
KONA hefur fundist á lífi í húsa-
rústum í Pakistan, tveimur mán-
uðum eftir að jarðskjálfti, sem reið
yfir Kasmírhérað, lagði hús hennar
í rúst. Leit hafði löngu verið hætt á
svæðinu en að sögn danskra fjöl-
miðla var það hrein tilviljun að kon-
an fannst. Danskur læknir veitir
henni aðhlynningu.
Að sögn fréttavefjar Jyllands-
Posten lá Naqsha Bibi, sem er fer-
tug að aldri, í 63 daga grafin undir
húsarústum í þorpinu Kamsar.
Konan fannst á sunnudag þegar
frændi hennar og fleiri menn voru
að róta í rústunum í leit að bygg-
ingarefni. Svo virðist sem Naqsha
Bibi hafi lifað þessa raun af með því
að drekka rigningarvatn, sem
seytlaði niður til hennar, og borða
rotna ávexti sem hún náði til.
Konan liggur nú á sjúkrahúsi í
borginni Muzaffarabad þar sem
danski læknirinn Martin Nørgaard
stundar hana. Hann segir að það sé
kraftaverk að konan hafi lifað þetta
lengi við þessar aðstæður.
Tvo mánuði á lífi
í rústunum