Morgunblaðið - 15.12.2005, Qupperneq 22
Skagafjörður | Verktakinn G. Hjálmarsson
á Akureyri átti lægsta tilboð í endurgerð
gatnamóta Hringvegar og Sauðárkróks-
brautar í Varmahlíð í Skagafirði. Býðst
hann til að vinna verkið fyrir 21,8 milljónir
kr. sem er nærri átta milljónum undir
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Eitt annað tilboð barst í verkið, frá Firði
ehf. í Varmahlíð.
Vinna á verkið í ár þannig að unnt verði að
skila fyrri áfanga í vor og þeim síðari í haust.
Bauð best í
gatnamót við
Varmahlíð
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR
A.K.A. SHOPLIFTER
028
Fimmtudagurinn
15. desember
28. tölublað
1. árgangur
Forsíðumynd
Silja Magg
12
FRÍTT
Nýtt í
Nonnabúð
Jólavarningurinn
4
Jólafötin
Uppstríluð og flott
Best geymda
leyndarmál
Reykjavíkur
Viltu koma í ratleik?
7
Hrópandinn í
heita pottinum
Rokland eftir Hallgrím
Helgason
Grátið bak
við grímuna
Identity Crisis eftir
BradMeltzer og
Rags Morales
8
Þokkagyðjan
Svala Björgvins
10
Ampop
Skyggni ágætt!
Jólalagatalið
Á X-FM
16
Daníel Ágúst
Swallowed a Star
plata vikunnar
Jólahjól
Dægurlagið
17
Górilla í hæstu
hæðum
King Kong er stórmynd
18
Takk fyrir addið
Allir á MySpace
Villta, villta
vestrið
Gun á PS2
20
Undir fjögur
augu
Árni Matthíasson
22
MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Akureyri | Börnin á leikskól-
anum Lundarseli voru í sann-
kölluðu jólaskapi í gær, þar
sem þau léku sér í snjóskafli
við leikskólann sinn. Þau höfðu
heimsótt Jólahúsið í Eyjafjarð-
arsveit fyrr um daginn, þar
sem þau hittu jólasveininn
Stekkjarstaur, sem leysti þau
út með gjöfum. Þá átti hún
Steinunn, ein úr hópnum, fimm
ára afmæli og því enn meiri
ástæða til að vera í hátíð-
arskapi. Veðrið var hins vegar
nokkuð sérstakt, hiti yfir frost-
marki, rok og rigning. Börnin
létu það ekki á sig fá og
skemmtu sér konunglega.
Morgunblaðið/Kristján
Heilsuðu upp á Stekkjarstaur
Í jóla-
skapi
laginu Hjálpum þeim. Að-
standendur og velunnarar
fjölmenntu og rann að-
gangseyrir óskiptur til
þeirra sem eiga um sárt að
binda vegna hamfaranna í
Pakistan. Það var sr. Ósk-
Tveir bekkir í Odd-eyrarskóla á Ak-ureyri, 1. og 6.
bekkur, buðu nýlega til
samkomu þar sem boðið
var upp á jólalög, helgileik
og glæsilegan flutning á
ar H. Óskarsson, sókn-
arprestur við Akureyr-
arkirkju, sem veitti
peningunum viðtöku fyrir
hönd hjálparstarfs kirkj-
unnar. Alls söfnuðust
40.481 króna.
Söfnuðu fyrir hjálparstarf
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Ljósvíkingurinn | Örn Elías Guðmunds-
son frá Ísafirði, tónlistarmaðurinn Mug-
ison, hefur gert lag með hljómsveitinni
Hjálmum úr Kefla-
vík. Lagið ber heitið
Ljósvíkingurinn og
gefst aðdáendum
kostur á að sækja
lagið sér að kostn-
aðarlausu af heima-
síðu Mugison, mug-
ison.com. Kemur
þetta fram á vef Bæj-
arins besta á Ísafirði.
Þess er getið að
Mugison, Hjálmar og Trabant halda tón-
leika á skemmtistaðnum Nasa í Reykjavík
á morgun, föstudag. Á mugison.com er lof-
að „rosa-jólastemningu“ á tónleikunum.
Mugison
♦♦♦
Landið | Höfuðborgin | Austurland | Akureyri
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes
Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland
Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir,
austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Innbrot í Ástjörn | Vegfarendur tóku eft-
ir því að viðvörunarljós logaði á Sumarbúð-
unum við Ástjörn eitt kvöld í vikunni. Þegar
þeir fóru að athuga málið nánar kom í ljós
að brotist hafði verið inn í eitt húsanna og
eldvarnarviðvörunarkerfið farið af stað
vegna reykinga að því er fram kemur á vef-
síðunni dettifoss.is.
Lögreglan var kölluð til en talið var að
um fólk í eiturlyfjaneyslu væri að ræða sem
vantaði afdrep. Lítið var skemmt og virtist
engu vera stolið en svolítill sóðaskapur var
af heimsókninni.
Einar K. Guðfinns-son sjávarútvegs-ráðherra varð
fimmtugur 2. desember
sl. og orti Halldór Blöndal
limru af því tilefni:
Standa hamsar hans
hjarta næst.
Hákarlsbeita ef fæst
er hans veisludiskur
og fiskur og fiskur
súr hvalur og skata kæst.
Séra Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprestur orti
vitaskuld einnig til Ein-
ars:
Kannski prýðir piltinn mest
pólitíska listin.
Annað finnst mér allra best:
Einar er líka kristinn.
Davíð Hjálmar Haralds-
son yrkir jólastemmn-
ingu, en ekki fyrir hrúta!
Hangiketslykt nærir nef,
nú fer mig að svengja.
Aðeins hrútar annan þef
óðar jólum tengja.
Þá Sigrún Haraldsdóttir:
Nóttin lengist, nálgast jól,
nagar frostið vanga.
Lýsir himin lágreist sól,
litar fell og dranga.
Hann á
afmæli …
pebl@mbl.is
Selfoss | Kjörnefnd fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Sveitarfélaginu Árborg
hyggst leggja til að prófkjör verði viðhaft
við uppstillingu á lista flokksins við kom-
andi sveitarstjórnarkosningar. Kom það
fram á fundi hjá sjálfstæðismönnum um
helgina.
Tillaga nefndarinnar verður lögð fram á
fundi fulltrúaráðsins sem haldinn verður
fljótlega á nýju ári, að sögn Ólafs Hafsteins
Jónssonar, formanns fulltrúaráðsins. Þeg-
ar hafa tveir menn lýst því yfir að þeir gefi
kost á sér í fyrsta sæti listans, Páll Leó
Jónsson bæjarfulltrúi og Sigurður Jóns-
son, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar. Þá
hefur Þórunn Jóna Hauksdóttir lýst því yf-
ir að hún gefi kost á sér í 2. sæti listans.
Fleiri eru að íhuga framboð.
Tillaga um
prófkjör D-
lista í Árborg
♦♦♦
FM Óðal hefur útsendingar | Árlegt
jólaútvarp unglinga í Borgarbyggð, FM
Óðal 101,3, fór í loftið fyrr í vikunni og hófst
útsending með ávarpi útvarpsstjóra, Írisar
Gunnarsdóttur, formanns nemendafélags-
ins. Sent er út frá félagsmiðstöðinni Óðali í
Borgarnesi og er næsta víst að það verður
fjör þegar bekkjaþættir og unglingaþættir
fara í loftið, segir á vef Borgarbyggðar.
Dagskrá yngri bekkja er tekin upp fyr-
irfram en unglingaþættir eru í beinni út-
sendingu. Fréttastofa verður á sínum stað í
hádeginu alla daga og sérstakur bæjar-
málaþáttur í beinni útsendingu kl. 13 á
morgun, föstudag, en þar mæta fulltrúar
bæjarstjórnar og fleiri gestir. Unglingar
frá Varmalandi verða með þætti í útvarpinu
og ungmenni úr Mími ungmennahúsi verða
með sérþátt á fimmtudagskvöld.
Hægt er að nálgast útsendingu á netinu á
heimasíðu Óðals, www.borgarbyggd.is/
odal. Undirbúningur og handritagerð ung-
linga í 8. og 9. bekk er liður í íslenskunámi
og framsögn.
Jólatónleikar í Duus | Þessa vikuna og
fram á mánudag munu kennarar Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar, einn eða fleiri sam-
an, halda jólatónleika með nemendum sín-
um. Tónleikastaðir eru Listasafn Reykja-
nesbæjar, Ytri-Njarðvíkurkirkja og salir
skólans á Austurgötu og Þórustíg.
Lúðrasveitir skólans, A-, B- og C-sveit,
halda jólatónleika sína í dag, fimmtudag, kl.
19.30 í Kirkjulundi. Léttsveit skólans,
yngri, heldur jólatónleika sína sunnudaginn
18. desember nk. kl. 19.30 í Frumleikhús-
inu. Strengjasveitir skólans, A- og B- sveit,
halda jólatónleika sína mánudaginn 19. des-
ember nk. kl. 19.30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Aðgangur á alla þessa tónleika er ókeyp-
is og allir eru hjartanlega velkomnir.