Morgunblaðið - 15.12.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 23
MINNSTAÐUR
Skagaströnd | Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- tryggingamálaráðherra,
tók fyrstu skóflustungu að nýrri
heilsugæslustöð á Skagaströnd í vik-
unni. Að því loknu undirritaði ráð-
herrann verksamning vegna ný-
byggingarinnar við Helga
Gunnarsson, verktaka á Skaga-
strönd. Verksamningurinn hljóðar
upp á 51,5 milljónir króna og skal
Helgi skila verkinu fullfrágengnu
fyrir 1. ágúst á næsta ári.
Nýja heilsugæslan verður reist
austan við dvalarheimilið Sæborg og
verður tengibygging milli húsanna
tveggja. Húsið verður 256 fermetra
timburhús á einni hæð byggt á
steyptri grunnplötu með sökkulbit-
um. Í húsinu verða skrifstofur lækn-
is og hjúkrunarfræðings ásamt til-
heyrandi aðgerða- og rannsóknar-
stofum. Þá verða einnig í húsinu
móttaka og biðstofa auk rýmis fyrir
sjúkraþjálfun.
Tvívegis hefur þurft að bjóða
verkið út því ekki fengust viðunandi
tilboð í fyrra skiptið. Í seinna skiptið
var verktímanum breytt lítillega og
þá bárust fjögur tilboð í smíðina sem
voru 11–24% yfir kostnaðaráætlun
hönnuða. Trésmiðja Helga Gunnars-
sonar ehf. átti lægsta tilboðið í verk-
ið og var því tekið.
Góðir hlutir gerast hægt
Í dag er heilsugæslan á Skaga-
strönd rekin á efri hæð í 40 ára
gömlu húsi þar sem aðgengi fyrir
hreyfihamlaða er langt frá því að
uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í
dag. Þegar húsið var byggt átti
heilsugæslan að vera á neðri hæðinni
en læknir að búa á þeirri efri. Nú eru
tannlæknastofa og apótek á neðri
hæðinni en heilsugæslan á þeirri efri
eins og áður segir. Það er heilbrigð-
isstofnunin á Blönduósi sem rekur
heilsugæsluna á Skagaströnd og hef-
ur gert það síðan á árunum fyrir
1970.
Í kaffisamsæti, sem haldið var að
lokinni skóflustungunni og undirrit-
un verksamnings, sagði ráðherra að
bygging heilsugæslunnar hefði verið
mjög lengi í undirbúningi og minnti
um leið á þau gömlu sannindi að góð-
ir hlutir gerast hægt. Talaði hann
um að dagurinn væri hátíðisdagur
því með þessari nýju byggingu
mundi aðstaðan gjörbreytast fyrir
íbúana, einkum þá sem eiga erfitt
með að ganga upp og niður stiga. Að
lokum óskaði hann Skagstrending-
um til hamingju með þessa nýju
byggingu sem hann sagðist vona að
risi hratt og örugglega.
Bygging heilsugæslustöðvar
er nú hafin á Skagaströnd
Grafið Ráðherrann var einbeittur þegar hann hóf framkvæmdirnar með
því að taka fyrstu skóflustunguna með vélgröfu með aðstoð verktakans.
Eftir Ólaf Bernódusson
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Fimm sóttu um
embætti sóknarprests á Skaga-
strönd. Starfið var auglýst í kjöl-
far þess að Magnús Magnússon
flutti sig til Ólafsvíkur og tók við
embætti þar.
Umsóknarfrestur um prestsemb-
ættið á Skagaströnd rann út 8.
desember sl. og höfðu þá fimm
sótt um stöðuna: Arndís Ósk
Hauksdóttir guðfræðingur, Einar
Sigurbergur Arason guðfræð-
ingur, séra Fjölnir Ásbjörnsson,
Ingólfur Hartvigsson guðfræð-
ingur og Þóra Ragnheiður Björns-
dóttir guðfræðingur.
Það er dóms- og kirkju-
málaráðherra sem mun skipa í
stöðuna til fimm ára eftir að hafa
farið yfir tillögur valnefndar. Í
valnefnd sitja fimm heimamenn
ásamt vígslubiskupnum á Hólum.
Fimm sækja
um embætti
sóknarprests
Skuldir minnka | Fjárhagsáætlun
Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir
árið 2006 hefur verið samþykkt í
bæjarstjórn. Fram kemur að launa-
kostnaður er afgerandi út-
gjaldaþáttur með um 65,6% af
skatttekjum og fræðslu- og uppeld-
ismál vega þyngst með um 57,4% af
skatttekjum. Bæjarstjórn hefur á
síðustu árum beitt aðhaldi í út-
gjöldum og lækkað skuldir bæj-
arsjóðs verulega. Með því móti
skapast svigrúm til að framkvæma
stærri verkefni. Á næsta ári er
áætlað að verja 150 m.kr. til fram-
kvæmda á vegum bæjarsjóðs. For-
gangsverkefni eru sundlaug og
íþróttasvæði. Jafnframt verður
framkvæmt á vegum vatnsveitu
fyrir 4 m.kr. og hafnarsjóðs fyrir
110,7 m.kr. en af þeirri upphæð
koma 75,0 m.kr. af samgönguáætl-
un. Áætlað er að taka 70 milljóna
kr. lán á vegum bæjarsjóðs og
greiða eldri lán um 90 m.kr. Því er
verið að lækka skuldir bæjarsjóðs
um 20 m.kr.
Stór og lítil heimilis-
tæki, símtæki og ljós
í miklu úrvali
Öll jólatilboð okkar eru á
heimasíðunni, www.sminor.is.
Smelltu þar á bæklinginn Fyrir jólin
og skoðaðu 16 glæsilegar síður
sem eru fullar af eigulegum
hlutum á góðu verði.
XE
IN
N
-S
N
05
12
00
3
Gigaset S450
Glæsilegur
þráðlaus sími.
Jólaverð:
9.600 kr. stgr.
Gigaset A140
Ódýr þráðlaus sími.
Jólaverð: 4.900 kr. stgr.
Fæst einnig með einu auka-
handtæki (DUO) á
5.900 kr. stgr. og með tveimur
auka-handtækjum á 7.900 kr. stgr.
TK 60001
Frábær espressókaffi-
vél. Ein með öllu.
Jólaverð:
57.000 kr. stgr.
MUM 4405EU
Öflug hrærivél á hreint
mögnuðu verði.
Jólaverð:
9.800 kr. stgr.
VS 06G1600
Kattþrifin 1600 W ryksuga.
Kraftmikil, létt og lipur.
Jólaverð:
9.900 kr. stgr.
Matador
Glæsilegur gólflampi á algjörum kostakjörum.
Jólaverð: 5.995 kr. stgr.
Rill
Fallegur
borðlampi.
Jólaverð:
2.900 kr. stgr.
HB 330550S
Fjölvirkur bakstursofn sem
á heima í eldhúsinu þínu.
Jólaverð:
69.000 kr. stgr.
ET 725501E
Smekklegt keramíkhellu-
borð með snertihnöppum.
Jólaverð:
69.000 kr. stgr.
HL 54725
Stórglæsileg eldavél og
svo er verðið ekki amanlegt
Jólaverð:
79.000 kr. stgr.
WXL 1257DN
6 kg þvottavél með
íslenskum merkingum.
Jólaverð:
63.000 kr. stgr.
SE 35E250SK
Hljóðlát og sparneytin fimm
kerfa uppþvottavél. A/A/A.
Jólaverð:
59.000 kr. stgr.
KG 36S310
Mjög vandaður kæli- og frystiskápur
með tveimur pressum. 185 sm.
Jólaverð:
79.000 kr. stgr.
UPPS
ELDU
R
NÝ S
ENDI
NG
Á LEI
ÐINN
I