Morgunblaðið - 15.12.2005, Page 26
daglegtlíf
ídesember
JÓLAKÚLUR Í ÚTLÖNDUM
TRYGGINGAR
ÍMundakoti á Eyrarbakka erbúð sem selur pólskar jóla-kúlur. Það eru hjónin Sig-urður Arnarson og Monika
Arnarson sem eru eigendur hennar.
„Það var fyrst árið 1995 sem ég fór
til Póllands og keypti nokkur stykki
af kúlunum og svo eftir þriggja ára
umhugsun byrjuðum við að selja
þær fyrir alvöru,“ segir Sigurður um
tildrög kúlusölunnar.
Hingað til hafa þau selt kúlurnar
heima hjá sér en í nóvember opnuðu
þau búðina. „Það var búið að standa
til í mörg ár að opna búð undir kúl-
urnar. Við létum svo verða af því
þegar við fluttum í Mundakot en
búðin er í litlu húsi við íbúðarhúsið,“
segir Sigurður en þau selja líka kúl-
ur í Jólaþorpinu í Hafnarfirði og á
netinu.
Monika er pólsk og segir Sigurður
það vera ástæðu þess að þau fóru að
flytja inn kúlurnar. „Hún var alltaf
að tala um þessar fallegu glerkúlur í
Póllandi og það væri ekki til neitt
þessu líkt hér á landi og það varð úr
að við fórum að flytja þetta inn og
selja. Í Póllandi er fjölskyldufyr-
irtæki sem handmálar kúlurnar fyr-
ir okkur. Fjölskylduformið er öðru-
vísi þar en hér, íbúðarhúsin eru stór
og það búa a.m.k. tveir ættliðir á
hverju heimili og því er svona heim-
ilisiðnaður nokkuð algengur. Í Evr-
ópu seljum við mest af kúlum frá
þessari fjölskyldu.“
Íslenskar kirkjur á kúlunum
Pólsku jólakúlunum hefur verið
vel tekið hér á landi enda gleðja
þær augað. „Pólverjar voru ein-
göngu með handmálaðar gler-
kúlur áður fyrr. Kúlurnar okkar
eru allar úr munnblásnu
gleri og þær eru ekki
eins viðkvæmar og
fólk heldur.“
Sigurður hef-
ur átt ein jól
með Moniku í
Póllandi og
segir jólahald-
ið þar ólíkt því
hérna heima.
„Þar er bara
ein gjöf á mann
og ekki öll þessi
neysluhyggja.“
Þau eru með mikið
úrval af mismunandi kúlum
í búðinni en Sigurður segir jóla-
sveinakúlurnar alltaf vera vinsælar.
„Við höfum líka látið mála kirkjur á
Suðurlandi og víðar af landinu á kúl-
urnar. Þær kúlur eru vinsælar enda
hefur fólk sérstakar tilfinningar til
þessara bygginga.“
Það eru eingöngu jólavörur í
búðinni en auk jólakúlnanna er
hægt að fá þar kertaskálar og
bjöllur, allt frá sama fjöl-
skyldufyrirtækinu í
Póllandi.
Mundakot er
beint á móti
kirkjugarðinum
á Eyrarbakka,
búðin er bara
opin fyrir jólin
en hægt er að
opna hana eftir
samkomulagi á
öðrum árstím-
um. Á netinu er
hægt að panta jóla-
kúlur allan ársins
hring.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Allar jólakúlurnar eru munnblásnar og handmálaðar í Póllandi. Hér er Sigurður ásamt
Elfari syni sínum í búðinni á Eyrarbakka.
Bara ein gjöf á mann
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Vefslóð jólakúlusölunnar á Eyr-
arbakka er: www.simnet.is/
jolakulur. Búðin er opin á virkum
dögum frá kl. 15:30 til 21:00 og um
helgar frá 14:00 til 19:00, fram að
jólum.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
JÓLATRÉ er í augum okkar
flestra fallega skreytt sígrænt
barrtré. Það getur verið íslenskt
eða útlenskt, þinur, greni eða
fura, jafnvel eilíft plast, allt eftir
hugmyndum okkar og óskum.
Fjölmargar sögur eru til um að
barrtré sé tákn um kristni. Ein
þeirra nær aftur til sögunnar um
Adam og Evu og hljóðar svo:
Þegar Eva tók forboðinn ávöxt
af skilningstrénu í aldingarðinum
Eden, breyttust lauf trésins í
barr. Tréð laufgaðist ekki aftur
fyrr en Jesús fæddist.
Ólíklegt er að mönnum þyki
þessi saga trúverðug, en önnur og
enn furðulegri saga greinir frá því
að Adam hafi laumað trjágrein
með sér út úr Eden og gróðursett
hana. Af greininni hafi síðan vaxið
sígrænt barrtré. Þess vegna megi
sem sagt tengja barrtré við jóla-
hald kristinna manna.
Heiðið tákn um frjósemi
Sumir vilja meina að jólatré
hafi ekkert að gera með jól, held-
ur sé einvörðungu um
að ræða tákn um frjó-
semi að heiðnum sið
eða einfaldlega
tákn um karl-
mennsku.
Árni Björnsson
fjallar meðal
annars um
jólatré í
Bjöllunni
1983 og
segir þar að elstu heim-
ildir um jólatré á Íslandi
séu frá því um 1850. Á þeim tíma
voru það einkum efnaðir Danir
sem settu upp jólatré, en smám
saman jókst áhugi Íslendinga á
þessu sígræna tákni um jólahátíð.
Árið 1952, um 100 árum eftir að
Danir og vinir þeirra fóru fyrst að
setja upp jólatré á Íslandi, gáfu
íbúar Óslóar Reykvíkingum stórt
jólatré að gjöf. Var trénu fundinn
staður í miðborg Reykjavíkur, á
Austurvelli. Á hverju ári, við upp-
haf aðventu, er nú kveikt á ljósum
hins svokallaða Óslóartrés og
segja má að það marki upphaf að-
ventu hjá mörgum.
JÓLATRÉ
Barrtré tákn um kristni
JÓLASKRAUT | Jólakúlubúðin Mundakot á Eyrarbakka
Ó
!
·
8
1
6
8
AUSTURHRAUNI 3 • 210 GAR‹ABÆ • SÍMI 533 3805 • MÁN. - FÖS. 10-18 • LAU. 11-14
F R A N S K U R Ú R V A L S K V E N F A T N A ‹ U R
H
V
E
R
N
IG
K
E
M
U
R
H
A
N
N
S
V
O
N
A
F
A
LL
E
G
R
I F
LÍ
K
Í S
V
O
N
A
L
IT
LA
Ö
S
K
JU
Á
N
fi
E
S
S
A
‹
K
R
U
M
P
A
H
A
N
A
?
-
S
E
T
U
R
G
J
A
F
A
B
R
É
F
Í
Ö
S
K
J
U
N
A