Morgunblaðið - 15.12.2005, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Helgi JósefssonVápni fæddist í
Reykjavík 7. febr-
úar 1947. Hann lést
3. desember síðast-
liðinn. Hann er son-
ur Jósefs Halldórs-
sonar, f. 12. október
1917, og Dýrfinnu
Helgadóttur, f. 4.
október 1925, d. 4.
september 1991.
Eiginkona Jósefs er
Ingibjörg Gísladótt-
ir, f. 13.október
1915. Bræður Helga
eru Gunnlaugur, f. 6. júlí 1945,
Halldór, f. 23. júní 1949, d. 18.
mars 1986, og Gunnar, f. 6. apríl
1953. Systkini Helga, samfeðra
eru: Hafsteinn, f. 21. nóvember
1936, Ingibjörg Erla, f. 21. maí
1939 og Þröstur, f. 17. desember
1940, d. 31. desember 1999.
Helgi kvæntist 26. desember
1970 Arnbjörgu Pálsdóttur, f. 17.
mars 1951. Þau skildu. Dætur
Helga og Arnbjargar eru: 1) Aðal-
björg Stefanía nemi, f. 28. júní
Sigurðsson, f. 7. maí 1970. Helgi
var í sambúð með Kristni S. Jóns-
syni, f. 14. október 1971, þeir slitu
samvistum.
Helgi tók sveinspróf í húsasmíði
frá Iðnskólanum í Reykjavík 1968
og varð síðar húsasmíðameistari.
Myndlistakennarapróf frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum 1974.
Lauk MA-prófi í sérkennslufræð-
um frá Háskólanum í Ósló 1993.
Helgi var í djáknanámi við Há-
skóla Íslands er hann lést. Hann
söng með kór Akureyrarkirkju og
síðar kór Laugarneskirkju. Kenn-
ari við Grunnskólann á Vopnafirði
1974–1989. Kennari og síðar
skólastjórnandi við Hvammshlíð-
arskóla, Akureyri, 1989–2002.
Kenndi við sérdeild Verkmennta-
skólans á Akureyri og einnig við
Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri. Hann lagði grunninn
að námi fyrir þá sem eru að fóta
sig að nýju í lífinu eftir áfall og var
í framhaldi af því verkefnisstjóri
við Fjölmennt-Geðhjálp, Reykja-
vík, frá 2002 til dánardags. Var
með myndlistarsýningar víða um
land, einnig í Færeyjum, Svíþjóð
og Noregi. Brautryðjandi snertil-
istar fyrir blinda og sjónskerta.
Útför Helga verður gerð frá
Laugarneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
1972, maki Heiðar
Ingi Svansson, f. 18.
janúar 1968, dætur
þeirra eru Birta
Björg, f. 17. janúar
2000 og Arna Dís, f.
26. september 2001.
Börn Aðalbjargar og
Konráðs W. Sigur-
steinssonar eru:
Daníel Máni, f. 16.
nóvember 1992, Sól-
ey Ylja, f. 8. febrúar
1996 og Unnur Blær,
f. 8. febrúar 1996.
Dóttir Heiðars er
Steinunn Lilja, f. 17. október 1986.
2) Sonja Dröfn grunnskólakenn-
ari, f. 1. maí 1975, maki Guðmund-
ur Egill Erlendsson, f. 14. júlí
1975, dóttir þeirra er Snæfríður
Dögg, f. 27. nóvember 2002. Sonur
Sonju og Sigurðar Magnússonar
er Gabríel Sólon, f. 3. desember
1995. Synir Guðmundar eru Reim-
ar Árni, f. 1. desember 1992 og Eg-
ill Valur, f. 6. september 1998. 3)
Þórdís Ósk leikskólakennari, f. 23.
janúar 1978, sambýlismaður Pétur
Undanfarna daga hefur þakklæti
og kærleikur til þín, pabbi minn, ver-
ið mér ofarlega í huga; fyrir allt sem
þú varst mér, allt sem þú kenndir
mér og allt sem þú gafst mér. Ég er
svo þakklát fyrir allar minningarnar
sem ég á um þig: Við fjölskyldan að
keyra hringinn á hvíta Skodanum
með kústskaft í bílnum sem var not-
að fyrir tjaldstöng; pabbi að stoppa á
ótrúlegustu stöðum á ferðalögum til
að taka myndir; ég og þú á Akureyri
þegar þú varst að byrja að byggja
húsið þar, og þú gafst mér kínaskó og
stóran poka af svörtum töggum en
gleymdir að taka með tannbursta
fyrir mig! Pabbi með stóru, skyggðu
gleraugun og permanentið; við fjöl-
skyldan á ferðalögum á gamla rauð,
bílnum sem þú innréttaðir á þinn ein-
staka hátt. Pabbi kennarinn; pabbi
myndlistarmaðurinn; pabbi kokkur-
inn; pabbi að sauma á okkur Sonju
náttsloppa þegar mamma fór suður
að fæða Þórdísi; pabbi smiðurinn;
pabbi sem var alltaf boðinn og búinn
að hjálpa þar sem hjálpar var þörf.
Pabbi hugsjónamaðurinn. Pabbi að
stjórna sunnudagaskólanum í Hvíta-
sunnukirkjunni á Vopnafirði. Sam-
komurnar þar sem þú talaðir og
söngst um Guð og þína einlægu trú á
hann. Þú og mamma óluð mig upp í
trúnni á Guð, og fyrir það verð ég
ævinlega þakklát. Það var okkur öll-
um, mér, Heiðari og þér svo dýrmætt
að eiga saman trúarsamfélag síðustu
misseri í Laugarneskirkju ásamt öllu
því einstaka fólki sem þar er.
Það var okkur öllum erfitt þegar
þið mamma skilduð, ekki síst barna-
börnunum. Þá breyttist margt í fjöl-
skyldunni, en ég vissi að í þínu lífi
væri nýtt upphaf. Þú kynntir okkur
fyrir Kristni sem þér þótti svo und-
urvænt um. Þau orð sem hve oftast
hafa verið sögð í þinni minningu und-
anfarna daga eru: traustur, góður
vinur, gefandi faðir og afi, hjálpsam-
ur, Guðsmaður, ósérhlífinn, huggari,
umburðarlyndur, fordómalaus og
einstaklega góð og hlý manneskja.
Þannig varst þú, pabbi minn. Og
minningarnar um þig eru ljúfar og
þær tekur enginn frá okkur.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta
þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.
(1. Korintubréf 13; 13.)
Guð geymi þig, pabbi minn. Ég
mun alltaf vera stolt af þér. Nú syng-
urðu fyrir okkur Liljuna á himnum.
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir.
Elsku pabbi minn. Þú varst ynd-
islegur faðir og frábær afi. Ég man
eftir öllum skiptunum sem ég sat
undir borðinu inn í vinnuherberginu
þínu og var að lita eða púsla á meðan
þú varst að mála. Allir ratleikirnir
sem þú varst með um jól, ég man sér-
staklega eftir því þegar við fengum
rúmin og vorum búnar að leita að
þeim um allt hús, en svo voru þau í
forstofunni í Salnum. Ég er svo stolt
af þér, pabbi minn. Allt sem þú kunn-
ir og allt sem þú vissir. Það eru ekki
margir sem eru húsasmiðir, mynd-
listarmenn, sérkennarar og að læra
til djákna. Það er vítt svið sem þú
fórst um, elsku pabbi minn, og alls
staðar fórst þér það vel úr hendi. Allt
sem þú vannst í höndunum var listi-
lega gert enda á ég margt sem þú
gerðir fyrir okkur systurnar, dúkku-
hús, vöggu, kistil, rúmteppi – því þú
gast líka saumað. Saumaðir meira
segja matrósaföt handa Öddu og við
vorum allar í – líka barnabörnin. Þú
varðst fyrir mörgum áföllum um æv-
ina sem skildu eftir djúp sár og ör.
Þú skildir ekki hvernig fólk gat kom-
ið fram við aðra, hvað fólk gat verið
vont. Þú sást ekki það slæma í öðr-
um, aðeins það góða og það kom illa
við þig þegar þú varðst fyrir rang-
læti. Þú talaðir aldrei illa um nokk-
urn mann, á allri minni ævi varð ég
aldrei vitni að því, sama hvað gekk á,
þá talaðir þú aldrei illa um náungann,
sást bara það góða í öðrum.
Mér fannst þú sýna svo mikinn
styrk þegar þú tókst á við þær breyt-
ingar sem urðu á lífi þínu. Þetta var
þér erfitt og braut gegn öllum þeim
gildum sem þú hafðir lifað við. En á
sama tíma svo rétt og ég er svo stolt
af þér. Ég vildi bara að þú værir
hamingjusamur, elsku pabbi minn,
ég veit að þú varst það. Það er þó svo
skrítið hvernig sorgin og gleðin virð-
ast ganga hönd í hönd. Ég veit að þú
fannst frið og vakir yfir okkur. Ég
veit að þegar ég bið þá heyrir þú í
mér, heldur um hendurnar mínar
með sterku höndunum þínum. Ég
sendi þér þessa bæn, því það er svo
rétt sem er sagt þar, að með bæninni
kemur ljósið og það er svo sannar-
lega það sem veitir okkur styrk á
þessum erfiðu tímum. Ég sakna þín
svo mikið, elsku pabbi minn.
Þegar næðir í mínu hjarta og í huga mér
engin ró
og ég þrái að sjá hið bjarta sem að áður í
mér bjó
þá er lausnin ávallt nálæg, ef um hana í
auðmýkt bið
og með bæninni kemur ljósið og í ljósinu
finn ég frið.
Ó, svo dapur er dagur vaknar,
dægurþrasið svo fjarri er.
Mundu þegar þú sárast saknar og sólin
skín hvergi nálægt þér
að í bæn er falinn máttur er þig magnar
þúsundfalt
því með bæninni kemur ljósið og í ljósinu
lagast allt.
Ég vil mæta þessum degi, fagna öllu
sem fyrir ber
og ég bið þess að ég megi njóta alls sem
hann gefur mér.
Ef ég bið á hverjum degi, hef ég von sem
aldrei deyr
því með bæninni kemur ljósið og í myrkri
ég geng ei meir.
(Páll Óskar/Brynhildur Björnsdóttir.)
Ég elska þig, þín dóttir
Sonja Dröfn.
Hlýr. Góður. Umhyggjusamur.
Kærleiksríkur. Gefandi. Tilfinninga-
ríkur. Besti pabbi í heimi.
Áhugasamur. Gaf sér tíma til að
tala við fólk og sýndi því áhuga. Tón-
list, myndlist. Garðyrkja, fagurkeri.
Húsasmiður, söngur. Ævintýri.
Elskandi. Námfús, fróðleiksfús. Bar
umhyggju fyrir þeim smæsta. Studdi
fólk á erfiðum stundum. Traustur.
Velviljaður. Talaði bara vel um fólk.
Stoltur af okkur. Leit á vini sína sem
höfðingja, flaggaði gjarnan fyrir
þeim og okkur þegar við lukum
ákveðnum áfanga í lífi/námi. Hug-
rakkur. Leiðandi. Vildi öllum vel.
Hugulsamur.
Ég man hann hlæjandi. Man hann
að grínast og geifla sig. Man hann að
styðja mig, klappa mér á kinn. Skiln-
ingsríkur. Man hann halda báðum
lófum um andlit mitt, kyssa ennið.
Halda á mér í bóndabeygju og kalla
mig krúsarbrús. Leyfa mér að
standa á tánum sínum og dansa með
mig um eldhúsið. Bera mig þegar ég
var of þreytt að ganga. Kenna mér,
leyfa mér að taka þátt. Leyfa mér að
fylgjast með sér mála mynd, hlusta á
skemmtilega tónlist, teikna á strig-
ann, lyktin af olíulitunum, stemmn-
ingin. Tíminn sem ég man. Man hann
hugga mig þegar mér leið illa.
Fæða mig og klæða.
Ommiletturnar hans og eplapæið.
Skemmtileg ferðalög.
Ég elska þig og sakna þín, pabbi
minn, þú ert besti pabbi sem ég hefði
getað hugsað mér að eiga. Hefði ekki
viljað neinn annan. Svona hjartahlýj-
an og umhyggjusaman mann. Að
eiga þig fyrir pabba, ég hef mikið að
þakka fyrir. Fyrir mér varstu full-
kominn, fullkominn pabbi fyrir mig.
Guð geymi þig pabbi minn. Þín
elskandi dóttir
Þórdís Ósk Helgadóttir.
Sæll Helgi minn.
Það fórst nú víst fyrir kveðju-
stundin þannig að ég skrifa þér bara
örfáar línur. Undanfarna daga hafa
margar minningar flogið í gegnum
huga minn af kynnum okkar og sam-
verustundum í gleði og í sorg. Ég
minnist þess að það tók mig töluverð-
an tíma að átta mig á þér. Fannst þú
sérvitur á margan hátt og gafst lítið
fyrir normin heldur fórst þínar eigin
leiðir. Það fyrsta sem ég tók eftir var
klæðaburðurinn, hermannadressið,
hatturinn, vasaúrið og skeggið sem
skar sig verulega úr gráma hvers-
dagsins. Síðar skerptist myndin af
innri manninum, barnakallinum, af-
anum, náttúruunnandanum, listmál-
aranum, hagleiksmanninum, smiðn-
um, framkvæmdamanninum og
hugsjónamanninum, sem þú varst
allt í senn. En í þér voru líka miklar
þversagnir og ég veit hver það var
sem reyndist þér erfiðust að glíma
við. Og þér fannst oft sárt að aðrir
hefðu ekki sama skilning og þú í þeim
málum. Enda fórst þú aldrei í mann-
HELGI JÓSEFSSON
VÁPNI Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
HELGA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Vallholtsvegi 17,
Húsavík,
lést á Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn
8. desember.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 17. desember kl. 14.00.
Jón Árnason,
Sigurgeir Jónsson, Guðrún S. Óskarsdóttir,
Björg Jónsdóttir, Pálmi Pálmason,
Guðmundur A. Jónsson, Sigríður Ingvarsdóttir,
Ásdís Jónsdóttir, Sigurgeir Á. Stefánsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
RICHARD JÓNSSON,
Krummahólum 2,
Reykjavík,
sem andaðist fimmtudaginn 8. desember, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 16. desember kl. 15:00.
Erla Þórðardóttir,
Þórdís Richardsdóttir, Per Otto Sylwan,
Ingibjörg Richardsdóttir, Kristinn Karl Dulaney,
afabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGIMAR SIGURÐSSON
járnsmiður,
Kópavogsbraut 1B,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 15. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi,
sími 560 4100.
Guðrún Kristinsdóttir, Helgi Stefánsson,
Alexander Ingimarsson, Edda Ástvaldsdóttir,
Guðmundur S. Ingimarsson,
Birna Rúna Ingimarsdóttir, Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og
vinur,
FINNUR INGI FINNSSON
frá Skerðingsstöðum
í Reykhólasveit,
verður jarðsunginn frá Reykhólakirkju laugar-
daginn 17. desember kl. 13.00
Steindór Finnsson,
Ása Guðrún Finnsdóttir,
Halldór Finnsson,
Bryndís Finnsdóttir,
Sæbjörg Jónsdóttir, Finnur Kristjánsson,
Jón Árni Sigurðsson, Steinunn Ó. Rasmus,
Kristján Finnsson,
Karlotta Jóna Finnsdóttir, Ásgeir Þór Árnason,
Agnes Finnsdóttir, Pálmi Jónsson,
Ásdís Árný Sigurdórsdóttir
og systkinabörn hins látna.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
MAGNÚS KOLBEINSSON,
Stóra Ási,
Borgarfirði,
sem lést mánudaginn 5. desember sl., verður
jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn
17. desember kl. 11.00.
Þórunn Andrésdóttir,
Andrés Magnússon,
Kolbeinn Magnússon,
Jón Magnússon,
Halla Magnúsdóttir.