Morgunblaðið - 15.12.2005, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
Opið til
22 til jóla!
Arnaldur
heldur efsta
sætinu
ARNALDUR
Indriðason held-
ur efsta sætinu á
Bóksölulista
Morgunblaðsins
en glæpasaga
hans, Vetrar-
borgin, var mest
selda bókin á
landinu dagana
6. til 12. desem-
ber samkvæmt
samantekt Félagsvísindastofnunar
HÍ. Harry Potter og Blendings-
prinsinn eftir J.K. Rowling kemur
sem fyrr á hæla Vetrarborginni og
bókin Með lífið að láni – Njóttu þess
eftir Jóhann Inga Gunnarsson og
Sæmund Hafsteinsson er í þriðja
sæti. Landsliðsréttir Hagkaupa
koma svo í fjórða sæti og fimmta
söluhæsta bókin á landinu er Fíasól
í hosiló eftir Kristínu Helgu Gunn-
arsdóttur. | 32
Arnaldur
Indriðason
FULLT var út úr dyrum á fundi Reykjavíkurdeild-
ar Félags leikskólakennara um launamál leikskóla-
kennara sem haldinn var í gær á Grand Hóteli. Yf-
irskrift fundarins var Til hvers að mennta sig? –
Skiptir menntun engu máli?
Í lok fundarins var samhljóma samþykkt ályktun
með yfirskriftinni „Þolinmæðin er á þrotum“. Í
ályktuninni segir m.a.: „Leikskólakennarar fagna
kjarabótum annarra starfsmanna leikskóla en
sætta sig ekki við að leikskólakennarar hafi lægri
laun en réttindalausir starfsmenn og krefjast launa
í samræmi við menntun sína og mikilvægi starfsins.
Fundurinn skorar á Launanefnd sveitarfélaga að
taka strax til endurskoðunar kjarasamning leik-
skólakennara. Ella blasir við að leikskólakennarar í
Reykjavík grípi til örþrifaráða og segi upp störf-
um.“
Þá segir að árum saman hafi leikskólakennarar
beðið þolinmóðir eftir þeim degi er starf þeirra og
menntun verði metin að verðleikum í launum.
Segja þolinmæðina á þrotum
Áfangasigrar hafi unnist, launin smám saman
batnað og aukinn skilningur fengist á mikilvægi
starfa sem unnin séu í leikskólum. Leikskólakenn-
arar hafi sýnt mikla ábyrgð í kjarasamningagerð
síðustu ára en nú sé þolinmæðin á þrotum. Hvað
eftir annað hafi borgaryfirvöld, með Steinunni Val-
dísi Óskarsdóttur borgarstjóra í broddi fylkingar,
sýnt leikskólakennurum og menntun þeirra lítils-
virðingu og hroka. Steininn hafi tekið úr þegar
gerður var kjarasamningur við aðra starfsmenn í
leikskólum borgarinnar sem feli í sér að þeir eru á
hærri launum en það fólk sem hafi tilskilda háskóla-
menntun til að sinna þessum störfum.
„Mér heyrðist baráttuandinn hafa verið þónokk-
ur, fólk er tilbúið í allt, held ég,“ sagði Björg Bjarna-
dóttir, formaður Félags leikskólakennara, eftir
fundinn. „Mér fannst ánægjulegt að sjá hversu
margir mættu, það var troðfullt alveg út úr dyrum
og það er hugur í fólki. Mér heyrðist að fólk muni
ekki sætta sig við það að vera á lægri launum en fólk
sem hefur ekki réttindi til starfa,“ sagði Björg.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Grípa til uppsagna ef samning-
ur fæst ekki endurskoðaður
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
siguhanna@mbl.is
Endurskoðunarákvæði | 6
yfirtökuskyldu. Var salan tilkynnt í
Kauphöllinni nokkrum mínútum eftir
að álitið lá fyrir í gærmorgun en máls-
aðilar höfðu fengið vitneskju um álit
nefndarinnar á þriðjudag og gengið
var frá samningum í fyrrinótt.
Setur yfirtökunefnd í vanda
Greiningardeild KB banka bendir
á það í Hálffimmfréttum sínum í gær
að með umræddum afleiðusamningi
hafi félögin gert framvirkan samning
og komist hjá yfirtökuskyldu. Bent er
á að umræddir samningar hljóti að
setja yfirtökunefndina í vanda. Það
SAMHLIÐA sölu Oddaflugs, eignar-
haldsfélags Hannesar Smárasonar,
og Baugs Group á samanlagt 10%
hlut í FL Group til Landsbankans í
gær, var gerður svonefndur afleiðu-
samningur við bankann sem felur í
sér að félögin bera bæði fjárhagslega
áhættu og njóta fjárhagslegs ávinn-
ings af umræddum hlutabréfum. At-
kvæðisréttur bréfanna er hins vegar
hjá Landsbankanum.
Sala bréfanna var gerð í kjölfar
álits yfirtökunefndar Kauphallar Ís-
lands, þess efnis að samanlagður hlut-
ur félaganna upp á tæp 50% hafi þýtt
liggi í hlutarins eðli að fyrst hægt sé
að hanna samninga með þessum
hætti til að komast hjá yfirtökuskyldu
verði úrræði nefndarinnar að teljast
bitlítil. „Hins vegar má til dæmis
velta því fyrir sér í hvaða stöðu
Landsbankinn væri ef kosið yrði á að-
alfundi félagsins, er líklegt að bank-
inn mundi kjósa gegn viðskiptavinum
sínum? Er það jafnframt heppilegt
fyrir aðra hluthafa félagsins að banki
fari með 10% atkvæðisréttar án þess
að bera neina fjárhagslega áhættu af
bréfunum? Niðurstaða yfirtöku-
nefndar í dag skilur eftir fleiri spurn-
ingar en hún svarar,“ segir greining-
ardeild KB banka.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður FL Group, segir
yfirtökunefndina hafa látið þá vita,
sem málið varðaði, á þriðjudaginn og
þá hafi menn farið yfir málið og
ákveðið að bregðast við með þessum
hætti.
Skarphéðinn segir það hafa tekist
þótt það hafi kostað nokkra nætur-
vinnu en fyrir vikið hafi ekki orðið
órói á markaðnum.
Baugur og Oddaflug seldu LÍ hluti í FL Group eftir álit um yfirtökuskyldu
Greining KB banka telur úrræði
yfirtökunefndar vera bitlítil
Álit yfirtökunefndar | 6, B 12–13
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
hyggst skerpa reglur um boðsgesti
úr röðum áskrifenda á lokuðum
tónleikum á borð við tónleika
hljómsveitarinnar með Bryn Terfel
í síðustu viku. Þetta var rætt á
stjórnarfundi hljómsveitarinnar í
gær.
Að sögn Þorkels Helgasonar,
stjórnarformanns, hefur hann
heyrt um fólk sem lengi hafi verið
áskrifendur og samt ekki fengið
boðsmiða á tónleikana. „Ef við
höldum þessu áfram, sem er ekkert
sjálfgefið, ætlum við að skerpa
reglurnar um hvernig við útdeilum
þessum miðum til áskrifenda,“ seg-
ir hann.
Ennfremur kom fram á fundinum
sú tillaga að hluti miðanna að slík-
um tónleikum yrði seldur á opnum
markaði. | 33
Fyrirhugað að skerpa
reglur um boðsgesti
Morgunblaðið/Kristinn
PLATA Garðars
Thors Cortes er
langmest selda
plata vikunnar
samkvæmt Tón-
listanum. Í öðru
sæti er Ár og öld
Björgvins Hall-
dórssonar og í
því þriðja Ég
skemmti mér
með Guðrúnu
Gunnars og Friðriki Ómari.
Salan er enn að aukast enda
styttist til jóla og seljast allar plöt-
urnar á topp tíu og flestar plöt-
urnar á listanum í þó nokkuð fleiri
eintökum en vikuna á undan. | 62
Garðar Thor
söluhæstur
Garðar Thor
Cortes
Í haldi vegna
falsaðra
vegabréfa
KARLMAÐUR um þrítugt sem tal-
inn er vera frá Afganistan var í gær
úrskurðaður í einnar viku gæslu-
varðhald að kröfu lögreglunnar í
Reykjavík þar sem lögregla telur að
fullkomin óvissa ríki um hver mað-
urinn er.
Skömmu áður en úrskurður um
gæsluvarðhald var kveðinn upp ósk-
aði maðurinn eftir hæli hér á landi.
Þegar lögregla hafði afskipti af
honum í fyrradag framvísaði hann
vegabréfi sem er talið falsað og við
rannsókn fannst annað vegabréf sem
maðurinn er talinn hafa notað og
leikur vafi á því að það sé ósvikið, að
sögn Harðar Jóhannessonar, yfir-
lögregluþjóns í Reykjavík.
♦♦♦