Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 2
2 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGLUFRÉTTIR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lét af störfum borgar- stjóra í gær. Einn af samstarfsmönnum hennar þar til margra ára er Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar- fulltrúi sjálfstæðismanna. “Væntanlega ekki þar sem hún er að reyna að elta mig á Alþingi.“ SPURNING DAGSINS Guðlaugur, áttu eftir að sakna Ingibjargar Sólrúnar? SYDNEY, AP Farþegalest fór út af sporinu í gljúfri skammt frá borg- inni Sydney í Ástralíu með þeim af- leiðingum að níu manns létust og 23 slösuðust alvarlega. Atvikið átti sér stað á háannatímanum í gærmorg- un og voru um 70 farþegar um borð í lestinni. Margir sátu fastir í flak- inu fram eftir degi en björgunar- menn urðu að fara fótgandi um eins og hálfs kílómetra leið yfir ógreið- fært landsvæði til þess að komast á slysstað. Læknar voru fluttir á stað- inn í þyrlum og hertrukkum. Aðkomunni á slysstað var líkt við vígvöll enda höfðu vagnar lest- arinnar oltið um koll og fjöldi far- þega kastast út í byltunni. Fremsti vagninn hafði auk þess lent á staur við hlið teinanna og kramist saman. Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig um tildrög slyssins en ljóst er að lestarstjórinn var meðal hinna látnu. Björgunarmenn telja að lest- in hafi verið á um 80 km hraða þeg- ar slysið varð og segja þeir að stór hluti farþeganna hafi verið háskóla- nemar á leið til skóla. Lestarslys í Ástralíu: Slysstaðnum líkt við vígvöll Fíkniefni: Þjóðverji í haldi LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir þýsk- um ríkisborgara sem grunaður er um aðild að fíkniefnamisferli hér- lendis. Þjóðverjinn hefur verið bú- settur í heimalandi sínu en sætt rannsókn á Íslandi vegna ætlaðra fíkniefnabrota. Hann fór úr landi áður en honum var birt ákæra. Maðurinn fékkst ekki framseld- ur frá Þýskalandi þar sem þarlend lög bann framsal þýskra ríkisborg- ara. Hann var hins vegar handtek- inn í Hollandi í fyrra og framseldur til Íslands fyrir tæpum mánuði. Gæsluvarðhald mannsins rennur út 7. mars. ■ DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur karl- maður úr Vestmannaeyjum á að sitja 15 mánuði í fangelsi fyrir að skjóta úr haglabyssu yfir höfuð eiginkonu sinnar og gestkomandi karlmanns sem sat með konunni í sófa á heimili þeirra hjóna. Hann er einnig dæmdur fyrir að höfuð- kúpubrjóta mann- inn með byssu- skeftinu. Hjónin og tveir karlar sem þau hittu á s k e m m t i s t a ð síðla nætur í lok október í fyrra fóru í samkvæmi heim til hjón- anna. Annar gesturinn segir fé- laga sinn hafa kysst og káfað á húsfreyjunni þar sem þau sátu í stofusófanum. Eiginmaðurinn sótti við þetta aðra af tveimur haglabyssum sínum og skaut þremur skotum ofan við fólkið í sófanum. Skotin fóru í gegnum tíu sentímetra þykkan vegginn. Mátti sjá för á veggjum og lofti svefnherbergis handan stofunnar. Eiginmaður- inn sagðist hafa viljað koma gestinum úr húsi. Sá hafi ekki látið sér segjast við fyrsta skot- ið. Því hafi hann ákveðið að slá gestinn í höfuðið með byssu- skaftinu: „Kvaðst ákærði hins vegar hafa þurft að tæma byssuna með því að skjóta úr henni svo ekki hlypi úr henni skot er byss- an yrði notuð sem höggvopn í væntanlegri árás. Verður sú við- bára ákærða síður en svo talin honum til hagsbóta þegar metin er sök hans með tilliti til refsi- ákvörðunar,“ segir Héraðsdóm- ur Suðurlands. Eiginmaðurinn sagðist hafa slegið gestinn nokkrum sinnum með byssunni. Við það hafi byssu- skeftið brotnað og gesturinn vankast. Þá hafi hann gripið í buxnastreng og hálskraga gestsins og borið hann úr húsi „eins og dyraverðir gera“ enda hafi hann sjálfur starfað sem dyravörður. „Ákærði nefndi að ástæða þess, að hann hefði skotið svo nálægt höfðum þeirra G (eiginkonunnar) og H sem raun bar vitni, væri sú að hann hafi ekki viljað skemma mál- verk eftir sig sem héngu á vegg fyrir aftan sófann er þau sátu í,“ segir héraðsdómur, sem telur manninn hafa á ófyrirleitinn hátt hafa stofnað lífi fólksins í sófanum í stórhættu. Skotmaðurinn, sem greiddi fyr- ir nokkrum árum 12 þúsund króna sekt fyrir að skjóta smáfugl úti í garði, á að greiða gestinum höfuð- kúpubrotna rúmar 500 þúsund krónur í bætur. Hjónin skildu að skiptum eftir árásina en eiginkonan sagði þó fyr- ir rétti að þau hefðu „í hyggju að freista þess að taka saman á ný.“ gar@frettabladid.is AFKOMA Hagnaður Bakkavarar nam 2,1 milljarði fyrir skatta á síð- asta ári. Hagnaður eftir skatta var rúmur einn og hálfur milljarður. Þetta er um 300% hærri hagnaður en í fyrra og sá langmesti í sögu fé- lagsins. Velta félagsins hefur þre- faldast, fer úr sex milljörðum í átján milljarða. Hagnaðurinn er í góðu samræmi við spár fjármála- fyrirtækja. Þrátt fyrir mikla veltuaukningu er eignastaðan svipuð og fyrir árið í fyrra. Það skýrist af því að Bakkavör keypti undir lok ársins fyrirtækið Katsouris í Bretlandi. Velta þess félags fór ekki að skila sér af fullum þunga inn í rekstur- inn fyrr en á síðasta ári. Almennt gekk rekstur dótturfé- laga vel nema í Póllandi. Starfsem- in þar hefur ekki staðið undir væntingum. Ekki er að mati stjórnenda fyrirsjáanlegt að hún muni uppfylla arðsemiskröfur í náinni framtíð. Því hefur verið ákveðið að leggja hana niður. ■ ERFITT BJÖRGUNARSTARF Björgunarmenn unnu hörðum höndum að því að losa fólk úr flaki lestarinnar og koma slösuðum undir læknishendur. Maðurinn á að greiða gestinum höf- uðkúpubrotna á sjötta hund- rað þúsund króna í bætur auk máls- kostnaðar. Skaut að eiginkonu og ástleitnum gesti Maður sem skaut úr haglabyssu rétt ofan við höfuð eiginkonu sinnar og gestkomandi manns segist hafa verið að tæma byssuna í varúðarskyni áður en hann höfuðkúpubraut manninn með byssuskeftinu. HELSTU TÖLUR Í AFKOMU BAKKAVARAR Í MILLJÓNUM KRÓNA 2001 2002 Tekjur: 6.114 18.287 Rekstrarhagnaður: 937 3.120 Hagnaður fyrir skatta: 533 2.112 Hagnaður: 382 1.556 RÍKISFANGELSIÐ LITLA-HRAUNI „Ákærði nefndi að ástæða þess, að hann hefði skotið svo nálægt höfðum þeirra G (eigin- konunnar) og H sem raun bar vitni, væri sú að hann hafi ekki viljað skemma málverk eftir sig sem héngu á vegg fyrir aftan sófann er þau sátu í,“ segir Héraðsdómur Suðurlands um eiginmanninn sem skaut fáum sentímetrum ofan við höfuð eiginkonu sinnar þar sem hún sat ásamt gestkomandi manni í stofusófanum á heimili þeirra hjóna. Skotmannsins bíður fimmtán mánaða fangelsisvist. Góð afkoma Bakkavarar: Met í sögu fyrirtækisins MÓTMÆLENDUR OG HERMENN Um 2000 mótmælendur skutu flýjandi Frökkum skelk í bringu. Flokkar hermanna: Lá við átökum ABIDJAN, AP Útlit var fyrir að til skotbardaga kæmi á milli franskra hermanna og stjórnarhermanna á Fílabeins- ströndinni á flugvellinum fyrir utan Abidjan, höfuðborg landsins. Hermennirnir voru á flugvell- inum til að halda aftur af mótmæl- endum sem gerðu aðsúg að frönskum ríkisborgurum sem voru að flýja landið vegna óeirða sem þar hafa geisað undanfarna daga. Frönsku hermennirnir brugðu á það ráð að beina vopnum sínum að mótmælendum. Við það sneru stjórnarhermenn, sem höfðu haldið aftur af mótmælend- um, sér við og beindu vopnum sín- um að frönsku hermönnunum. Þannig liðu spennuþrungnar mín- útur áður en hermennirnir létu vopn sín falla. ■ Eimskipafélagið hagræðir: Segir upp sautján manns ATVINNA Eimskipafélag Íslands hefur ráðist í skipulagsbreyting- ar, einkum á markaðs- og rekstr- arsviði sínu. Þessar breytingar hafa það í för með sér að sautján almennum skrifstofumönnum hefur verið sagt upp. Hefur þeim verið tilkynnt um uppsagnirnar. Markmið breytinganna er að auka hagræði í rekstri og gera fyrir- tækið samkeppnisfærara og arð- samara. Eimskip hefur fengið ráðningarfyrirtækið Mannafl til að aðstoða viðkomandi starfs- menn vegna uppsagnanna. ■ DÆMDUR MAÐUR Richard Reid taldi sig vera hermann í heilögu stríði en dómarinn var á öðru máli. Skósprengjumaðurinn: Hlaut hámarks- refsingu BOSTON, AP Bretinn Richard Reid hefur verið dæmdur í lífstíðar- fangelsi fyrir að reyna að granda farþegaþotu með sprengju sem hann faldi í skósóla sínum. Reid hlaut hámarksrefsingu enda hafði hann ítrekað lýst yfir stuðningi sínum við hryðjuverkasamtökin al Kaída og fordæmt utanríkis- stefnu Bandaríkjanna gagnvart múslímaríkjum. Sakborningurinn notaði tæki- færið og öskraði svívirðingar í garð Bandaríkjastjórnar þegar dómurinn var kveðinn upp en dómarinn kvað hann í kútinn. ■ 25 ÁREKSTRAR Mikil árekstra- hrina varð í Reykjavík í gærdag þegar snöggfrysti. Frá klukkan sjö um morgunin og til klukkan fimm síðdegis höfðu tuttugu og fimm árekstrar orðið. Að sögn lögreglu var allur lögregluflotinn vítt og breitt um bæinn í skýrslu- gerð. KEYRÐI Á GRINDVERK VIÐ LEIK- SKÓLA Ökumaður missti stjórn á bíl sínum um fjögurleytið í fyrra- dag með þeim afleiðingum að hann hafnaði á grindverki við úti- vistarsvæði leikskólans Sól- brekku á Seltjarnarnesi. Til allr- ar hamingju voru engin börn að leik þegar óhappið var. Að sögn lögreglu voru börnin komin inn og biðu þess að foreldrar sóttu þau. KVIKNAÐI Í VINNUSKÚR Eldur kviknaði í vinnuskúr í Leirdal í Kópavogi á fimmta tímanum í gærdag. Þegar Fréttablaðið hafði samband var ekki búið að ganga úr skugga um hvort mikil verðmæti hefðu verið í skúrn- um. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins slökkti eldinn. Að sögn lögreglu er skúrinn mikið skemmdur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.