Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 19
19LAUGARDAGUR 1. febrúar 2003 999kr Kauptu 4 flöskur af 2ja lítra Coca Cola og fáðu leður handbolta* með á aðeinsi *Krakka handbolti. Hentar 6 - 12 ára krökkum M/s Baldur: Smíðaár: 1991, maí Skipasmíðastöð: Vélsmiðja Seyðisfjarðar Stærð: 64 brúttótonn Lengd: 20,06 metrar Breidd: 5,20 metrar Djúprista: 1,65 metrar Ganghraði: 12 sjómílur V/s Týr: Smíðaár: 1975, mars Skipasmíðastöð: Aarhus Flydebok a/s Stærð: 1.214 brúttótonn Lengd: 71,15 metrar Breidd: 10,00 metrar Djúprista: 5,80 metrar Ganghraði: 19 sjómílur + Togkraftur: 56 tonn Fallbyssa: 40 mm Bofors L60 MK 3 V/s Ægir: Smíðaár: 1968, júní Skipasmíðastöð: Aalborg Værft a/s Stærð: 1.128 brúttótonn Lengd: 69,84 metrar Breidd: 10,00 metrar Djúprista: 5,80 metrar Ganghraði: 19 sjómílur + Togkraftur: 56 tonn Fallbyssa: 40 mm Bofors L60 MK 3V/s Óðinn: Smíðaár: 1960, janúar Skipasmíðastöð: Aalborg Værft a/s Stærð: 910 brúttótonn Lengd: 63,68 metrar Breidd: 10,00 metrar Djúprista: 5,40 metrar Ganghraði: 18 sjómílur + Togkraftur: 48 tonn áætlað Fallbyssa: 40 mm Bofors L60 MK 3 Skipakostur Landhelgisgæslunnar Algjörlega óviðunandi staða LANDHELGISGÆSLAN Staða Landhelgis- gæslunnar er algjörlega óvið- unandi að mati Guðjóns A. Krist- jánssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, sem vakti athygli á mál- efnum Gæslunnar í utandag- skrárumræðum á Alþingi í vik- unni. „Mér finnst að það þurfi að vera þrjú varðskip á sjó yfir vetr- armánuðina,“ segir Guðjón og vís- ar til þess að nú er löggæsla á hafi í sögulegu lágmarki og aðeins tvö varðskip að gæta landhelginnar. „Látum það nú vera að það gerist yfir sumartímann að það séu fá skip á sjó, eða kannski bara eitt, en að standa þannig að málum yfir svartasta skammdegið nær ekki nokkurri átt.“ Guðjón segir að það þyrfti að vera eitt varðskip við Vestfirði, eitt á Norðausturlandi og eitt fyr- ir sunnan. „Með þessu væri hægt að tryggja nokkurn veginn að það væri ekki miklu meira en átta til tíu tíma sigling að einhverjum slysstað. Þetta kerfi sem nú er í gildi veitir ekki nálægt því nægj- anlegt öryggi. Þegar síldarflutn- ingaskipið Ice Bear var að sökkva fyrir sunnan land voru 27 klukku- stundir í næsta varðskip, sem þá var statt út af Vestfjörðum.“ Guðjón segist ekki skilja hvers vegna dómsmálaráðherra sé að þæfa málið í hægfara afgreiðslu, sérstaklega ekki með tilliti til nið- urstöðu stjórnsýsluendurskoðun- ar Ríkisendurskoðunar, þar sem bent sé á að Landhelgisgæsluna vanti 50 til 80 milljónir króna á ári til að geta haldið rekstrinum gangandi. „Ég tel að dómsmálaráðherra beri ábyrgð á því að málið er kom- ið í þennan farveg. Hún er búin að hafa þessar upplýsingar í tvö ár. Þetta er ekki eðlileg stjórnsýsla að mínu viti. Að ætla sér að leysa málið með að setja á fót þriðja starfshópinn, sem væntanlega skilar af sér á vordögum þegar hún verður vonandi farin úr ráðu- neytinu, er ekki forsvaranlegt. Það þarf engan starfshóp til að leysa þetta mál. Það er hægt að gera við Óðin fyrir 10 til 12 millj- ónir og koma honum í stand til næstu tveggja til þriggja ára og þá verður vonandi nýtt varðskip komið til landsins.“ ■ GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON „Látum það nú vera að það gerist yfir sumartímann að það séu fá skip á sjó, eða kannski bara eitt, en að standa þannig að málum yfir svartasta skammdegið nær ekki nokkurri átt.“ Þegar síldar- flutningaskipið Ice Bear var að sökkva fyrir sunnan land voru 27 klukkustundir í næsta varðskip. ,, LANDHELGISGÆSLAN Það kom Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráðherra verulega á óvart þegar forstjóri Landhelgisgæslunnar tilkynnti henni að enn vantaði talsvert fjár- magn til að endar næðu saman í rekstri stofnunarinnar. „Það verður að fá það upplýst hvar vandinn liggur vegna þess að ég hef ekki nærtækar skýringar á því,“ segir Sólveig. „Þess vegna hef ég ákveðið að setja á laggirnar nýj- an starfshóp til að fara yfir þær fjárhagsáætlanir sem hafa verið gerðar um rekstur Landhelgisgæsl- unnar og gera tillögur til úrbóta.“ Sólveig segir að öryggismál úti á hafi séu í góðu lagi og vöktun land- helginnar ekki í neinni hættu. „Það kann að vera að Landhelg- isgæslan hafi verið með fleiri skip í útgerð en nú, en til þess verður að líta að þau voru ekki jafn öflug. Þá ræður Landhelgisgæslan yfir tveimur þyrlum og nýrri tækni eins og fjareftirliti sem breytir stöðunni talsvert. Hins vegar get ég alveg skilið áhyggjur manna því ég tel að starfsemi Landhelgis- gæslunnar sé mjög mikilvæg. Starfsmenn hennar hafa unnið ómetanleg störf í þágu þjóðarinnar og þess vegna vil ég leggja mikla áherslu á það að búa vel að stofn- uninni.“ Sólveig segir að varðskipið Óð- inn sé orðið gamalt skip og að sam- kvæmt fyrstu upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafi viðgerð- arkostnaður verið metinn á marga tugi milljóna. Nú hafi forsvars- menn Landhelgisgæslunnar hins vegar upplýst að ef til vill sé hægt að koma skipinu í nothæft ástand fyrir miklu lægri upphæð. Ef sú sé raunin sé hún alveg opin fyrir þeim möguleika. Hún segist hins vegar vonast til þess að hægt verði að bjóða út nýtt varðskip fljótlega. Það yrði mikil lyftistöng fyrir Land- helgisgæsluna. Sólveig segir að starfshópur sem hún skipaði fyrir um ári síðan til að fara yfir rekstur Landhelgis- gæslunnar hafi skoðað skýrslu Rík- isendurskoðunar og meðal annars tekið mið af henni í tillögum sínum sem lagðar hafi verið fram um mitt síðasta ár. Hópurinn hafi lagt til að 120 milljóna króna uppsafnaður halli yrði þurrkaður út og það hafi verið gert. Hún segir að jafnframt hafi hópurinn lagt til að framlag í viðhalds- og stofnkostnaðarsjóð yrði aukið um 20 milljónir á fjárlög- um 2003 og að á það hafi verið fall- ist. Á síðustu tveimur árum, eða síðan skýrsla Ríkisendurskoðunar var fyrst kynnt, hafi framlag til Landhelgisgæslunnar verið aukið verulega. ■ Öryggismál eru í góðu lagi SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Dómsmálaráðherra segir að nú hafi for- svarsmenn Landhelgisgæslunnar upplýst að ef til vill sé hægt að koma Óðni í not- hæft ástand fyrir miklu lægri upphæð en upphaflega hafi verið talið. Ef sú sé raunin sé hún alveg opin fyrir þeim möguleika. Víðfeðmt hlutverk Samkvæmt lögum um Landhelgis- gæslu Íslands hefur hún mjög viða- miklu hlutverk að gegna. Meginhlut- verk hennar eru: Landhelgisgæslan hefur með hönd- um almenna löggæslu og eftirlit á haf- inu umhverfis Ísland, landhelgi Íslands, samkvæmt íslenskum lögum og ákvæðum alþjóðalaga, annast eftirlit í efnahagslögsögu með auðlindum á og í hafsbotninum og hafinu yfir honum, rannsóknum og verndun hafsins. Landhelgisgæslan fer með ábyrgð og yfirstjórn á leitar- og björgunarþjón- ustu við sjófarendur á hafsvæðinu um- hverfis Ísland, í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Landhelgisgæslan annast bjarganir og sjúkraflutninga á landi sé þess óskað og aðstoðar þá aðila sem fara með ábyrgð og yfirstjórn á leitar- og björg- unarþjónustu vegna flugs á landi eða á sjó. Landhelgisgæslan veitir afskekktum stöðum eða byggðarlögum nauðsyn- lega hjálp eða aðstoð þegar eðlilegar samgöngur bregðast af ófyrirsjáanleg- um orsökum s.s. vegna hafíss, snjóa- laga, ofviðris eða annara náttúruham- fara, sem og annarra óviðráðanlegra orsaka. Landhelgisgæslan annast fiskveiði- og veiðarfæraeftirlit á hafi úti og fylgist með aflamagni innlendra og erlendra skipa. Landhelgisgæslan annast eftirlit með lax- og silungsveiðum í sjó. Landhelgisgæslan tekur þátt í vísinda- störfum á hafsvæðinu umhverfis Ísland eftir því sem kann að verða ákveðið hverju sinni. Landhelgisgæslan annast tilkynning- arskyldu erlendra skipa samkvæmt ís- lenskum lögum og alþjóðasamningum. Landhelgisgæslan skal tilkynna, fjar- lægja og gera skaðlaus reköld, tundur- dufl, sprengjur eða aðra hluti, sem sjó- farendum eða almenningi getur stafað hætta af. Ég get alveg skilið áhyggjur manna því ég tel að starfsemi Landhelgisgæsl- unnar sé mjög mikilvæg. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.