Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 28
28 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR NLP Námskeið Neuro-Linguistic Programming Námskeiðið fer fram 17. til 25. febrúar. NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. Kennt er m.a.: - Að vera móttækilegur og læra á auðveldan hátt - Að skapa nýtt samskiptamál - Að skapa þína eigin framtíð - Að stjórna samtölum - Að vekja snillinginn í sjálfum sér - Að leysa upp neikvæðar venjur - Að lesa persónuleika fólks - Venjur til varanlegs árangurs Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP Upplýsingar í síma: 588 1594 • Netfang: koe@islandia.is Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com Myrkir músíkdagar hefjast ámorgun með tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í Listasafni Íslands. Á síðustu árum hefur skapast sú hefð að Kamm- ersveitin opni hátíðina. „Þetta er einn albesti kammer- hópur sem við eigum á Íslandi,“ segir Kjartan Ólafsson, sem hefur haldið utan um skipulagningu Myrkra músíkdaga. „Hún hefur gert mikið af því að panta og frumflytja íslensk tónverk allt frá því hún var stofnuð fyrir rúmum aldarfjórðungi.“ Að þessu sinni frumflytur Kammersveitin á Íslandi tónverk frá árinu 1995, sem er eftir Úlfar Haraldsson. Tónleikarnir enda á verki eftir John Speight, en á milli þessara tveggja íslensku verka eru tvö erlend. „Annað er bandarískt eftir Charles Ives frá 1905, hitt er rúss- neskt verk frá árinu 1971 og er eftir Sofia Gubaidulina. Það má því segja að þessir tónleikar rammi inn alla tuttugustu öldina.“ Myrkir músíkdagar hafa fyrir löngu unnið sér sess sem einn helsti vaxtarbroddurinn í ís- lensku tónlistarlífi. „Þarna er fók- usinn settur á nýsköpun og nýja tónlist. Þetta er íslensk fram- leiðsla í bland við nýleg verk er- lendis frá. Oft hafa tónverk sem hafa verið frumflutt á Myrkum músíkdögum náð brautargengi er- lendis og hlotið ýmiss konar við- urkenningu, þannig að þetta er kjörinn vettvangur fyrir íslensk tónskáld til þess að koma verkum sínum á framfæri, bæði handa þeim sem vilja heyra og þeim sem vilja ekki heyra.“ „Þetta er 23. árið sem við höld- um þessa hátíð. Flutt verða 65 tón- verk og hátt í tuttugu þeirra eru frumflutt. Þar á meðal eru fjögur íslensk hljómsveitarverk, sem er töluverð aukning á tölu íslenskra hljómsveitarverka. Það er sjald- gæfasti flokkurinn, bæði vegna þess að það tekur lengri tíma að skrifa hljómsveitarverk og svo tekur lengri tíma að fá þau flutt. Kjartan segir gæta margra at- hyglisverðra grasa á hátíðinni. „Þarna er til dæmis alveg splunkunýtt verk eftir Atla Ing- ólfsson, sem er einkennandi fyrir anda þessara daga, þetta nýja- brum sem er á verkunum. Svo geta menn í fyrsta sinn á Íslandi fengið að heyra í svo- nefndum flautukór. „Þar koma allir helstu þver- flautuleikarar landsins saman og blása samtímis í pípur sínar. Úr því verður mikill hljómur, sem verður á Nýja sviði Borgarleik- hússins.“ Frá Austurríki kemur svo spunahópur sem Sibyl Urbancic er í forystu fyrir. „Hún er eigin- lega íslensk en er reyndar búin að vera búsett ansi lengi í Austur- ríki. Hún kemur með sinn spuna- hóp og ætlar að blanda saman hljóðfæraslætti og dansi og hreyfingum. Hugsanlega verður þetta jafnvel framið með þátttöku einhverra úr salnum. Þó veit það enginn nákvæmlega, því dagskrá- in hjá henni er þannig að hún leggur gróflega línurnar en svo getur þetta spunnist út í nánast hvað sem er. Þannig að þetta er hálfgert stjórnleysi á þeim tón- leikum, sem er bara mjög gott.“ „Svo er það raftónlistin, sem verður að þessu sinni í Salnum í Kópavogi. Við köllum þessa tón- leika Víðóma vegna þess að við ætlum að freista þess að láta hljóðin ekki koma bara úr einni eða tveimur áttum heldur fleiri. Sum verkin á þessum tónleikum eru beinlínis samin með það í huga að vera flutt úr öllum áttum. Önnur verða blönduð. Þar á meðal er eitt af elstu íslensku raftón- verkunum, sem er eftir Þorkel Sigurbjörnsson og heitir La Jolla Good Friday.“ „Kórinn Hljómeyki er líka með mjög fína dagskrá,“ segir Kjart- an. Auk þess verða tvær lúðra- sveitir með tónleika á Myrkum músíkdögum þetta árið. „Það er mjög sérstakt að hafa tvo lúðrasveitartónleika. Blásara- sveit Reykjavíkur ætlar að frum- flytja verk eftir mjög ung tón- skáld, sem eru ennþá í námi. Síð- an er gamli Eikarpopparinn Lárus Grímsson með Lúðrasveit Reykjavíkur. Að sjálfsögðu spila þeir alltaf í lúðrasveitarbúning- unum. Þar á meðal er verk eftir Lárus sem var á Listahátíð í vor, Ann ég dýrust drósa, sem Stein- dór Andersen kvæðamaður ætlar að kveða í kapp við lúðrasveit- ina.“ Kjartan bendir einnig á að spennandi orgeltónleikar verða í Hallgrímskirkju. „Við eigum eitt af glæsilegri orgelum sem eru til í heiminum. Það er á við heila sinfóníuhljóm- sveit. Eyþór Jónsson organisti ætlar að spila mjög blandaða dag- skrá með verkum eftir Jón Leifs meðal annars.“ gudsteinn@frettabladid.is KJARTAN ÓLAFSSON Myrkir músíkdagar eru einn helsti vettvangur íslenskra tón- skálda til þess að koma nýjustu verkum sínum á framfæri. Myrkir músíkdagar eru að hefjast í 23. sinn. Kammersveit Reykjavíkur ríður á vaðið í Listasafni Íslands á morgun. Tónlistarveisla í skammdeginu Grínistarnir David O’Dohertyfrá Írlandi og Nýsjálending- urinn Rhys Darby eru væntan- legir hingað til lands til að skemmta á uppistandskvöldun- um Rosalegt uppistand sem Húllabalú Kompaní stendur fyr- ir. Rosalegt uppistand hyggur á uppákomur á sex vikna fresti með erlendum sem innlendum grínistum. „Hugmyndin er að gera þetta að reglulegum atburðum í menn- ingarlífinu,“ segir Ágústa Skúla- dóttir, ein aðstandenda Húllabalú Kompaní, sem stendur fyrir uppistandinu. „Við prufukeyrð- um þetta í Kaffileikhúsinu fyrir rúmu ári síðan og þá fengum við tvo Breta til landsins. Það varð alveg rífandi gleði og fólk var mjög ánægt. Í kjölfarið fór það að spyrja hvort við myndum ekki endurtaka þessi kvöld.“ Ágústa fór á Edinborgarhátíð- ina í fyrra ásamt Neil Haigh, sem sýndi einleikinn Englar alheims- ins. Þar komust þau í kynni við marga atvinnuuppistandara sem höfðu frétt af uppistandskvöld- unum og vildu ólmir koma hingað til lands að skemmta. Ágústa segir að Íslendingar séu frábærir áhorfendur. „Þeir eru með á nótunum frá fyrstu sekúndu. Ég hef líka séð það á uppistandsviðburðum á Ís- landi að það er mikil ásókn í þetta.“ Fyrstu skemmtanirnar verða haldnar á Sportkaffi dagana 13., 14. og 15. febrúar. Ágústa mun sjálf sjá um kynningar auk þess að fara með gamanmál. ■ ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR Er ekki óvön gríninu. Hún keppti í nýliðakeppninni „So you think you’re funny“ í Bretlandi og komst í undanúrslit. Hún er einnig leikstjóri Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur. Vikuleg uppistandskvöld: Erlendir atvinnugrínarar skemmta FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.