Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 36
36 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
HALF PAST DEADb.i. 16 5.30, 8 og 10.15 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 2, 5 og 8
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Kl. 2, 4 og 8 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 9.30
kl. 2 og 5.50 HAFIÐ
kl. 3GULLPLÁNETAN m/ísl.tali
kl. 2 og 4HARRY POTTER m/ísl.tali
kl. 2 og 4 LILO OG STITCH m/ísl.tali
7, 9 og 11IRREVERSIBLE enskur texti b. 16 ára
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15
ANALYZE THAT kl. 8 og10 VIT
HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 2 og 5 VIT
LILO OG STITCH m/ísl.tali 2 og 4 VIT
GULLPLÁNETAN kl. 1.40, 3.50, 5.55 VIT
THE HOT CHICK kl. 2, 4, 6, 8 og 10 VIT
JUWANNA MANN 2, 4, 6, 8 og 10 VIT
kl. 2, 4, 6 , 8 og 10STELLA Í FRAMBOÐI
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i.14.ára
FRÉTTIR AF FÓLKI
Skífan verður með sérstaka mið-næturopnun í verslun sinni á
Laugarveginum að
loknu sunnudags-
kvöldi í tilefni
þess að ný breið-
skífa Nick Cave,
„Nocturama“,
kemur út á mánu-
dag. Sérstök tvö-
föld útgáfa plöt-
unnar, sem aðeins
er gefin út í takmörkuðu upplagi,
verður til boða á einföldu verði.
Umboðsmaður leikkonunnarMeryl Streep segir að hún
hafi misst af leikaraverðlaunum
í Screen Actors Guild Award
vegna mistaka. Í
flokknum „besta
leikkonan“ fékk
hún tvær tilnefn-
ingar, fyrir
myndirnar
„Adaptation“ og
„The Hours“.
Umboðsmaðurinn
segir hins vegar
að hún hefði átt að vera tilnefnd
fyrir aukahlutverk fyrir
„Adaptation“ en ekki aðalhlut-
verk. Vegna þessa hafi atkvæðin
í aðalleikkonuflokknum skipst í
tvennt og því hafi hún ekki átt
möguleika á að vinna. Streep
vann Golden Globe-verðlaunin
fyrir aukahlutverk í
„Adaptation“.
Rapparinn 50 Cent er að vinnalag þar sem áður óútgefin upp-
taka frá rapparan-
um Tupac Shakur
er notuð. Það var
plötusnúðurinn Dj
Whoo Kid sem átti
upptökuna og
ákvað að hrinda
verkefninu í fram-
kvæmd. Lagið
verður þó ekki að
finna á væntanlegri breiðskífu 50
Cent „Get Rich or Die Tryin“.
SEX IS COMEDY kl. 10.15
HARRY - UN AMI... kl. 8
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
TÓNLIST Þegar síðasta breiðskífa
Nick Cave, „No More Shall We
Part“, kom út fyrir tæpum tveim-
ur árum höfðu aðdáendur hans
beðið eftir nýrri plötu í fjögur ár.
Sú langa útgáfuþögn var algjört
stílbrot fyrir kappann sem fram
að því hafði aldrei látið líða meira
en tvö ár á milli útgáfna frá því að
hann hóf sólóferil sinn árið 1984. Í
viðtölum viðurkenndi Cave að
hafa í fyrsta skipti á ævinni lent í
sköpunarstíflu.
Hann hafði áður talað um það
að samband sitt við skáldagyðj-
una væri viðkvæmt. Það var til
dæmis helsta ástæðan sem hann
gaf fyrir því að hafa afþakkað til-
nefningarnar sem hann fékk til
MTV-tónlistarverðlaunanna 1996.
Í bréfi sagðist Cave ekki vera í
keppni við nokkurn mann, þakk-
aði sjónvarpstöðinni fyrir stuðn-
inginn en bað um að vera tekinn
út af útnefningalistanum. Hann
bað svo vinsamlegast um að vera
leystur undan þeirri byrði að vera
tilnefndur í framtíðinni.
Til allrar lukku virðist sam-
band Cave og skáldagyðjunnar
vera á batavegi. Hann hefur
greint frá því í viðtölum að hann
sé komin yfir tónlistarhraða-
hindrunina sem stöðvaði hann
nánast. Hér eftir ætli hann sér að
hrista breiðskífurnar fram úr
erminni á svipuðum hraða og áður
fyrr. Hann segist til dæmis langt
kominn með lagasmíðar fyrir þá
næstu.
Það sem einkennir nýju plöt-
una, „Nocturama“, er hversu laus
í tauminum hún er. Hvað spila-
gleði varðar svipar henni að
mörgu leyti meira til „Let Love
In“ frá árinu 1994 en síðustu
tveimur plötum, „No More Shall
We Part“ (‘01) og „Boatman’s
Call“ (‘97). Hún var hljóðrituð á
mettíma, á sjö dögum, í hljóðveri í
Melbourne í heimalandi Cave,
Ástralíu. Allt var hljóðritað lif-
andi og litlu sem engu bætt inn á
band eftir á. Hér og þar á plötunni
má því alveg heyra sveitina leika
á tónbilum, sem áður hefðu
kannski þótt dæmi um „mannleg-
an ófullkomleika“, en staðreyndin
er náttúrlega sú að það tæki
hvaða forritara sem er marga
klukkutíma að ná með tölvu sinni.
Þetta er vinnuaðferð sem Cave
segist ætla að tileinka sér hér eft-
ir.
biggi@frettabladid.is
NICK CAVE
Liðskipan The Bad Seeds, undirleikssveit
Cave, hefur tekið mörgum breytingum í
gegnum árin. Hún hefur þó verið sú sama
síðan árið ‘97. Mick Harvey (sem hefur
fylgt honum síðan á tímum The Birthday
Party) á gítar og orgel, Blixa Bargeld (höf-
uðpaur Einstürzende Neubaten) á gítar,
Thomas Wydler á trommur, Martyn Casey
á bassa, Jim Sclavunos á slagverk og fiðlu-
leikarinn Warren Ellis. Athygli vekur að pí-
anóleikarinn Conway Savage fékk aðeins
að syngja bakraddir að þessu sinni.
Cave sættist við
skáldagyðjuna
Á mánudag gefur Nick Cave út breiðskífuna „Nocturama“. Þetta er tólfta hljóð-
versplata hans frá því að hann hóf sólóferil sinn árið 1984. Platan var hljóðrituð á
mettíma í fyrra og segist Cave vera langt kominn með þá næstu.
MEL C
Breskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að
birta myndir af stúlkunni þar sem hún hef-
ur átt í baráttu við aukakílóin. Svona leit
hún út fyrir rúmum tveimur árum síðan.
Söngkonan Mel C:
Talar
opinskátt
um þung-
lyndi sitt
FÓLK Fyrrum kryddpían Mel C tal-
aði í fyrsta skiptið um þunglyndi
sitt opinberlega í viðtali er birtist
í nýjasta hefti Marie Claire. Hún
greinir þar frá því að vegna and-
legra veikinda sinna hafi hún ver-
ið tilneydd til þess að draga sig í
hlé frá skemmtanabransanum í
tvö ár. Hún segist einnig hafa
glímt við átröskun. Hún gat ekki
fundið kraft né vilja til þess að
fara úr rúminu og segist hafa
verið „líflaus og dauðskelkuð“.
„Ég var alveg líflaus og grét
stanslaust,“ segir hún m.a. í við-
talinu. „Stuttu eftir aldamótin
leið mér svo illa að ég fór heim til
fjölskyldu minnar þar sem ég
hékk í rúminu alla daga. Ég
komst loks á það stig að ég var
ekki viss um að ég kæmist ein af.
Þess vegna leitaði ég mér hjálp-
ar.“
Mel segir að þó hún hafi aldrei
íhugað sjálfsmorð hafi hún átt í
erfiðleikum með að finna eitt-
hvað til þess að lifa fyrir. „Það
var stórt skref fyrir mig að við-
urkenna að ég ætti við geðvanda-
mál að stríða.“
Mel C gefur út nýja smáskífu,
„Here It Comes Again“, þann 24.
febrúar næstkomandi. Hún ræðst
svo í tónleikaferð um Bretland í
apríl. ■
Sýnd kl. 8 og 10.50 b.i.16.ára
Sýnd í lúxus kl. 5, 8 og 10.50
TÓNLIST Breska hljómsveitin Radio-
head segir að væntanleg plata sé
eins konar sambræðingur þeirra
stefna er hafa verið ríkjandi á
þremur síðustu breiðskífum. Upp-
tökum á plötunni er nú lokið en
eftirvinnslu hennar lýkur ekki
fyrr en um miðjan febrúar.
Liðsmenn segja að eins og stað-
an er í dag komi tvö heiti til
greina. Annaðhvort „2+2=5“ eða
„Are You Listening?“.
Gítarleikarinn Ed O’Brien
greindi frá því í viðtali við NME
að andinn innan sveitarinnar væri
mjög góður þessa dagana, ólíkt
þeirri stemningu sem sveif yfir
vötnum við gerð platnanna „Kid
A“ og „Amnesiac“. Hann líkir
sveit sinni við The Rolling Stones
og segir að honum finnist að sveit-
in hafi loksins náð að finna rétta
hljóminn.
Trommuleikarinn Phil Selway
sagði í viðtali við Q að hann hafi í
fyrsta skipti verið sjálfsöruggur í
hljóðverinu. Hann segir að söngur
Thom Yorke á plötunni sé magn-
aður og að hann sé hápunktur plöt-
unnar. ■
RADIOHEAD
Verður þá Thom Yorke jafn sprækur og
Mick Jagger á sextugsaldri?
LYKILPLÖTUR NICK CAVE
1984 From Her to Eternity
1988 Tender Prey
1994 Let Love In
1996 Murder Ballads
1997 Boatman’s Call
Radiohead:
Líkja sjálfum sér við The Rolling Stones