Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 35
14.00 Honk! Ljóti andarunginn eftir
George Stiles og Anthony Drewe
á Stóra sviði Borgarleikhússins.
14.00 Benedikt Búálfur eftir Ólaf G.
Guðlaugsson í Loftkastalanum.
15.00 Hin smyrjandi jómfrú, einleikur
eftir Charlotte Bøving, sýnt í Iðnó.
16.00 Aukasýning á Dýrlingagenginu
eftir Neil Labute í EGG-leikhúsinu
í Listasafni Reykjavíkur.
20.00 Hátíðarsýning Nemendaleikhúss-
ins á Tattú eftir Sigurð Pálsson í
Smiðjunni.
20.00 Með fulla vasa af grjóti eftir
Marie Jones á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins.
20.00 Sölumaður deyr eftir Arthur Mill-
er á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Hin smyrjandi jómfrú, einleikur
eftir Charlotte Bøving, sýnt í Iðnó.
21.00 Leikritið Salka miðill sýnt í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu. Gengið er
inn af Vesturgötu, ekki hafnar-
megin.
SÝNINGAR
Í dag lýkur sýningu Díönu Hrafnsdóttur
í Gallerý Hár og list - Hjá Halla rakara,
Strandgötu 39, Hafnarfirði. Hún sýnir þar
leirverk undir yfirskriftinni Krossmörk.
Heimildir nefnist sýning Hafdísar
Helgadóttur í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin er á vegum Kvennasögusafns. Á
fjórðu hæð er spjaldskrá með sjálfs-
myndum listamannsins frá 1963-1998,
en í sýningarkassa á 2. hæð eru blöð
með myndum af sömu verkum.
Í Þjóðarbókhlöðunni stendur yfir sýn-
ing um skrif erlendra manna um Ís-
land og Íslendinga fyrr á öldum.
Smákorn 2003 nefnist sýning á smá-
verkum 36 listamanna í Baksalnum í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Þetta
er í þriðja skipti sem Gallerí Fold efnir til
smáverkasýningar. Eina reglan um gerð
verka er að innanmál ramma sé ekki
meira en 24x30 sentimetrar.
María Kristín Steinsson sýnir olíumál-
verk í Café Cozy, Austurstræti.
Margrét Oddný Leópoldsdóttir sýnir
„Storesarnir eru að hverfa“ í gluggum
sínum í Heima er best, Vatnsstíg 9. Sýn-
ingin stendur til 26. febrúar.
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau
Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Halls-
son og Jessica Jackson Hutchins verk
sín.
Nú stendur yfir samsýning 7 málara í
Húsi málaranna, Eiðistorgi. Allir þessir
málarar eru löngu þjóðkunnir fyrir verk
sín og einkennir fjölbreytni sýninguna.
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru:
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Ein-
ar Þorláksson, Guðmundur Ármann,
Kjartan Guðjónsson, Jóhanna Bogadóttir
og Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur
til 2. mars.
35LAUGARDAGUR 1. febrúar 2003
Fiðlutónleikar í Salnum:
Pólskir tónar
og söknuður
TÓNLIST Annað kvöld verða tón-
leikar í Salnum í Kópavogi með
fiðluleikaranum Szymon Kuran
ásamt Júlíönu Rún Indriðadóttur
píanóleikara. Þau ætla að frum-
flytja hér á landi tónverkið
‘Mity’, sem er eitt af fallegustu
fiðluverkum pólska tónskáldsins
Karol Szymanowski. Þá leika þau
þrjú virtúósaverk eftir Henryk
Wieniawski, sem sjálfur var einn
mesti fiðlusnillingur sögunnar.
„Þetta er tónlist sem er mér
afar kær,“ segir Szymon Kuran.
„Sjálfur er ég fæddur í Póllandi
og mig langar til að kynna þessa
tónlist fyrir fólki hér.“
Tónleikunum lýkur svo með
tveimur verkum eftir Szymon
Kuran sjálfan.
„Annað þeirra er örstutt verk
sem ég samdi fyrir tuttugu
árum. Þetta er eins konar þjóð-
dans og heitir ‘Kujawiaczek’.
Hitt verkið skrifaði ég í fyrra.
Það heitir ‘Um nóttina’ og er
byggt á ljóði sem dóttir mín
samdi þegar hún var, held ég, tíu
ára. Hún er núna 13 ára. Báðum
þessum verkum tengist viss
söknuður, þótt 20 ár séu á milli
þess sem ég samdi þau.“ ■
SZYMON KURAN OG JÚLÍANA RÚN INDRIÐADÓTTIR
Býsna langt er síðan Szymon Kuran hefur komið fram á einleikstónleikum
í klassískum dúr.
Glímt við örlögin
Íslenska óperan frumsýnir í kvöld óperuna Macbeth eftir Verdi.
Ólafur Kjartan Sigurðsson vonar að barnaverndarnefnd komi ekki
á sýningarnar.
TÓNLIST „Þegar Shakespeare og
Verdi eru saman í einum pakka
held ég að blandan geti vart orðið
öflugri,“ segir Ólafur Kjartan Sig-
urðarson óperusöngvari. Hann
syngur sjálfan Macbeth í sam-
nefndri óperu eftir Guiseppe
Verdi, sem frumflutt verður í Ís-
lensku óperunni í kvöld.
Elín Ósk Óskarsdóttir syngur
lafði Macbeth, hina kaldrifjuðu
eiginkonu sem eggjar mann sinn
til þess að myrða Duncan Skota-
konung.
„Þetta er auðvitað algert
draumahlutverk,“ segir Elín Ósk.
„Það er stórkostlegt tækifæri fyr-
ir dramatískan kóleratúrsópran
að fá að syngja þetta.“
„Hlutverk Macbeths og lafði
hans eru bæði mjög stór,“ segir
Ólafur. „Við erum nánast á sviðinu
allan tímann. Þetta krefst mikils
aga fyrir röddina, svo maður
tæmi sig ekki í fyrsta þætti og eigi
þá þrjá eftir.“
Leikstjóri sýningarinnar er
Jamie Hayes og Petri Sakari
stjórnar hljómsveitinni. Sviðs-
myndina gerir Will Bowen.
Vitað er að Verdi vann þrot-
laust mánuðum saman með þeim
tveimur söngvurum sem frum-
fluttu stykkið. Meðal annars skrif-
aði hann að ekki mætti syngja
hlutverk lafðinnar „of fagurt“.
Elín Ósk er spurð hvernig það
gangi að fylgja slíkum fyrirmæl-
um eftir.
„Já, þetta var náttúrlega út af
því að karakterinn var talinn það
ljótur að það þyrfti að koma fram
í röddinni líka. En við erum samt
ekkert að skrumskæla röddina,
þótt það hafi verið talað um þetta
í gamla daga. Maður notar samt
ýmsar aðferðir, til dæmis brjóst-
tónasöng og ákveðin karakter-
skipti í röddinni.“
Þau Elín og Ólafur segja bæði
að mikið sé lagt bæði í sviðsmynd-
ina og alla umgjörð sýningarinnar.
„Ætli megi ekki áætla að um
150 manns starfi við uppfærsluna
á hverju kvöldi, þannig að þetta er
engin smásýning,“ segir Ólafur
Kjartan. „Þetta sýnir hins vegar
glöggt þörfina á almennilegu óp-
erusviði á Íslandi. Ég veit að þessi
uppfærsla okkar myndi sóma sér
á hvaða sviði í heimi og á betra
skilið en Gamla bíó.“
Svo vill til að tvö af börnum
Ólafs Kjartans fara með hlutverk
í sýningunni.
„Já, þau drógust inn í þetta ein-
hvern veginn,“ segir Ólafur.
„Strákurinn minn er þarna með
tvö lítil hlutverk og dóttir mín
eitt.“
Hann segir óneitanlega gaman
að hafa þau með sér á sviðinu. „En
það er illa farið með þau greyin,
þau eru ötuð í blóði og ógeði,
þannig að ég vona bara að barna-
verndarnefnd komi ekki á sýning-
ar.“
gudsteinn@frettabladid.is
MACBETH OG LAFÐI HANS ÁSAMT BÖRNUM ÓLAFS KJARTANS
Þau Elín Ósk og Ólafur Kjartan eru á sviðinu næstum því allan tímann. Svo fara börn
Ólafs með hlutverk í óperunni líka. Myndin var tekin áður en lokaæfing hófst í gær.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Hleypa konur
körlum inn?
Ráðstefna um jafnréttismál verður haldin mánudaginn
3. febrúar kl. 16.00-17.30 í Norræna húsinu.
Dagskrá:
16.00 Setning: Bryndís Bjarnarson formaður jafnréttis-
nefndar Framsóknarflokksins.
16.05 Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur
og fv. formaður Jafnréttisnefndar: Hugmyndafræði
samþættingar í flokksstarfi.
16.15 Dr. Ingólfur V. Gíslason félagsfræðingur kallar erindi
sitt: Kvenlegir eiginleikar?
16.45 Steinunn Hjartardóttir félagsráðgjafi kallar erindi sitt:
Að skapa sátt milli atvinnulífs og fjölskyldulífs.
17.15 Umræður og fyrirspurnir.
Stjórnandi: Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri.
17:30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri: Una María Óskarsdóttir, formaður LFK.
Allir velkomnir.
Landssamband Framsóknarkvenna.