Fréttablaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 32
32 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
Játvarður VIII konungurEnglands vildi segja þegnum
sínum frá amerískri heitkonu
sinni, Wallis Simpson, sem skilin
var að borði og sæng. Konungur-
inn vildi segja þegnum sínum að
hann vildi kvænast henni en samt
halda krúnunni. Þetta kemur fram
í skjölum um bresku konungsfjöl-
skylduna sem voru gerð opinber
síðastliðinn fimmtudag og tengjast
afsögn Játvarðs konungs fyrir um
65 árum.
Í skjölunum, sem eru um 100
talsins, má meðal annars finna út-
varpsávarp sem Játvarður hugðist
flytja þegnum sínum. Þáverandi
forsætisráðherra Bretlands,
Stanley Baldwin, meinaði Játvarði
að flytja ávarpið og sagði ríkis-
stjórnina ekki sátta við það.
Það varð því ekkert af því að
konungurinn ræddi opinberlega
um samband sitt og Wallis Simp-
son á þeim stutta tíma er hann bar
krúnuna. Hann afsalaði sér henni
árið 1936.
„Ég get ekki haldið áfram að
bera þá þungu byrði sem hvílir á
mér sem konungur nema vera
hamingjusamlega kvæntur,“ segir
meðal annars í ávarpinu sem Ját-
varður konungur fékk aldrei að
flytja. „Þess vegna ætla ég að
kvænast konunni sem ég elska.“
„Hvorki ég né frú Simpson höf-
um sóst eftir því að hún verði
drottning. Það sem við þráum er að
fá að halda áfram að lifa okkar
hamingjusama lífi með viðeigandi
reisn.“
Í ávarpinu lýsir Játvarður því
að hann vilji fá tilfinningalegt
svigrúm og sé tilbúinn að fara frá
á meðan þjóðin geri það upp við sig
hvort hann fái að halda krúnunni
með eiginkonuna sér við hlið.
„Ég óska þess af öllu hjarta að
fá að snúa aftur í konungsstólinn,“
segir meðal annars í ávarpinu.
Ráðuneyti leggur á ráðin
Stanley Baldwin, forsætisráð-
herra Bretlands, var mótfallinn
því að Játvarður kvæntist frú
Simpson og héldi krúnunni. Sam-
kvæmt bréfum úr ráðuneytinu
sagði forsætisráðherrann að ríkis-
stjórnin þyrfti að samþykkja
ávarp konungsins. Það samþykki
fékkst þó aldrei enda lagðist for-
sætisráðherrann hart gegn því.
Susan Williams, yfirmaður
breska skjalasafnsins, segir að
samkvæmt fundargerðum úr ráðu-
neytinu óttaðist forsætisráðherr-
ann keppinaut sinn, Winston
Churchill. Ráðherrann var hrædd-
ur um að hrapa í vinsældum ef
konungurinn fengi sínu fram og
myndi þá verða af því að fara fyr-
ir nýrri ríkisstjórn. Churchill tók
seinna við stjórnartaumum í
Íhaldsflokknum.
Afsal Játvarðs konungs olli
miklu uppnámi í Bretlandi. Ekki
var talið við hæfi að æðsti maður
konungsríkisins og þar með kirkj-
unnar tæki saman við fráskilda
konu enda hafði kirkjan margoft
fordæmt slíkt athæfi.
Georg VI, yngri bróðir Ját-
varðs, tók við konungstigninni og
Elísabet eiginkona hans varð
drottning. Hinn smánaði konungur
og kona hans urðu hertogi og her-
togaynja af Windsor. Þau lifðu
mestan hluta ævi sinnar í Frakk-
landi.
Skjöl konungs-
fjölskyldunnar
Áður fyrr voru skjöl sem tengd-
ust bresku konungsfjölskyldunni
innsigluð í eina öld. Á tíunda ára-
tug síðustu aldar samþykkti
breska ríkisstjórnin að stytta tím-
ann niður í 30 ár. Undantekningar
voru þó gerðar og skjölin höfð inn-
sigluð í lengri tíma væri rík
ástæða fyrir hendi. Stjórn breska
skjalasafnsins samþykkti að opna
öll skjöl sem tengdust afsali Ját-
varðs á fimmtudag, þrjátíu árum
frá afsali hans.
Í skjölunum er ekkert sem stað-
festir þær sögusagnir að hertoga-
hjónin hafi aðhyllst nasisma. Þar
mátti þó finna skeyti frá frú Simp-
son þar sem hún stærir sig af
væntanlegri heimsókn þeirra
hjóna til Þýskalands árið 1937 þar
sem hún vonaðist til að hitta Adolf
Hitler.
Í skjölunum má einnig finna
gögn frá bresku lögreglunni, sem
fylgdist með frú Simpson um
nokkurt skeið. Þar eru líkur leidd-
ar að því að hún hafi átt í ástarsam-
bandi við bílasala úr norðurhluta
Englands, Guy Trundle að nafni,
sem var kvæntur. ■
Skjöl um afsögn Játvarðs VIII Englandskonungs, sem var mjög umdeild á sínum tíma, hafa verið dregin fram í
dagsljósið. Breska ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að Játvarður færi frá völdum. Hann var seinna talinn stuðnings-
maður nasista. Heitkona Játvarðs, Wallis Simpson, var skilin að borði og sæng þegar þau tóku saman. Hún var
sögð eiga í ástarsambandi við bílasala frá Norður-Englandi á meðan á sambandi hennar og konungsins stóð.
Játvarður vildi
tilfinningalegt
svigrúm
HERTOGAHJÓNIN AF WINDSOR
Játvarður VIII konungur og eiginkona hans Wallis Simpson á brúðkaupsdeginum 3. júní
1937. Játvarður hafði vonast til að fá að halda krúnunni þótt hann kvæntist Simpson.
Honum varð þó ekki að ósk sinni og þau hjónin fluttust til Frakklands.
Wallis Simpson:
Átti í ástar-
sambandi við
ævintýramann
Wallis Simpson átti í ástar-sambandi við enskan bíla-
sala á meðan samband hennar
við Játvarð VIII konung stóð
yfir. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í skjölum um af-
sal konungsins sem opnuð
voru á fimmtudag og bresk
blöð slógu upp á forsíðum sín-
um.
Í skjölunum kemur fram að
frú Simpson hafi átt í ástar-
sambandi við Guy Marcus
Trundle, giftan mann frá York.
Trundle er lýst sem afar heill-
andi ævintýramanni, myndar-
legum og frábærum dansara.
Trundle og Simpson hittust
fyrst í stórum opinberum
veislum. Seinna fóru þau að
hittast á laun, eða það héldu
þau í það minnsta.
Breska leynilögreglan
fylgdi frú Simpson eftir eins
og skugginn. Í skýrslum sem
finna má í skjölunum er því
lýst hvar Simpson og Trundle
hittust og hvað fór þeim á
milli.
„Þau hittast á leynilegum
stöðum þar sem náin kynni
fara fram. Frú Simpson hefur
sagt að maður hennar láti
fylgjast með henni. Hún er
afar varkár í öllum aðgerðum
sínum,“ segir meðal annars í
skýrslunum.
Trundle var vélaverkfræð-
ingur að mennt og sá um um-
boð fyrir Ford Motor fyrirtæk-
ið í Bretlandi. Hann var giftur
dóttur fyrrverandi hershöfð-
ingja.
Frú Simpson var skilin að
borði og sæng frá Bandaríkja-
manninum Ernest Aldrich
Simpson. Ernest þessi var afar
skrafhreifinn þegar hann
drakk og sagði félögum sínum
jafnan að hann ætti von á því
að fá eitthvað að launum fyrir
hlut sinn í málinu.
Breskur embættismaður
var fenginn til að ganga úr
skugga um að Simpson væri í
raun og veru skilin. Á þessum
árum tíðkaðist að fólk gerði
sér upp skilnað.
Ernest Simpson hitti eitt
sinn Játvarð á afar tilfinninga-
þrungnum fundi sem endaði
með því að konungurinn brast
í grát og sagðist vera ástfang-
inn af konu hans. Ernest sagði
konunginn vera „brjálæðing“.
Á meðan á skilnaði Simp-
son-hjónanna stóð komu fram
ásakanir þess efnis að Ernest
hefði verið boðin 150 þúsund
pund til að vera með konu á
hótelherbergi. Það átti að vera
næg ástæða fyrir skilnaði
Simpson-hjónanna. Ásakanirn-
ar voru seinna dregnar til
baka og skilnaðurinn gekk í
gegn. Wallis Simpson gekk síð-
ar að eiga Játvarð. ■
STANLEY BALDWIN
Þáverandi forsætisráðherra Bretlands lagðist gegn því að Játvarður konungur fengi að
flytja ávarp til þjóðar sinnar þar sem hann færi fram á stuðning við að kvænast fráskilinni
amerískri konu. Játvarður flutti þess í stað ræðu um afsögn sína.