Fréttablaðið - 01.02.2003, Page 4
4 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Skiptir það þig máli hversu
langt íslenska landsliðið nær í
HM í handbolta?
Spurning dagsins í dag:
Ferðu í kirkju?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
33,2%
23,4%Nei
43,4%
HANDBOLTI
Rúmlega 40%
þátttakenda telja
gengi hand-
boltalandsliðsins á
HM skipta máli.
Veit ekki
Já
AFGANISTAN, AP Öflug sprenging
eyðilagði brú skammt frá borg-
inni Kandahar í suðurhluta
Afganistans í gær. Rúta með tutt-
ugu manns innanborðs var á leið
yfir brúna þegar sprengingin
varð og létust 18 farþegar sam-
stundis.
Enginn hefur lýst ábyrgð á
sprengingunni á hendur sér en
yfirvöld í Kandahar telja að
flóttamenn úr röðum Talibana og
al Kaída standi á bak við ódæðið.
Bandaríski herinn álítur aftur á
móti að fylgismenn uppreisnar-
leiðtogans Gulbuddin Hek-
matyar hafi átt hlut að máli.
Líklegt þykir að sprengju hafi
verið komið fyrir á brúnni og
hafi hún verið ætluð afgönskum
hermönnum.
Bílstjórinn sem lifði spreng-
inguna af telur aftur á móti að
rútan hafi ekið yfir jarðsprengju
sem komið hafi upp á yfirborðið
í kjölfar mikilla rigninga. Auk
þess hefur hann bent á að atvikið
hafi átt sér stað á fáfarinni leið
sem sjaldan sé notuð af her-
mönnum.
Bandaríski herinn staðfesti
enn fremur í gær að fjórir her-
menn hefðu látist þegar herþyrla
hrapaði í æfingaflugi nálægt höf-
uðborginni Kabúl á fimmtudag-
inn. ■
SKÓLAMÁL Líklegt er að nýr skóli í
Staðahverfi verði byggður á til-
settum tíma eða árið 2006 að sögn
Stefáns Jóns Hafstein, formanns
fræðsluráðs Reykjavíkurborgar.
„Ég vil samt ekkert vera að
lofa eða gefa fyrirheit um hluti
sem ég er að láta meta fyrir mig
hlutlægt og er ekki komin niður-
staða í,“ sagði Stefán Jón. „Það er
ljóst að í upphafi, árið 1999, var
Korpuskóli hugsaður til bráða-
birgða til sex til sjö ára. Þegar við
höfum náð einingu um það hvern-
ig við sjáum fyrir okkur þróunina
í hverfinu á næstu árum er hægt
að taka upplýsta ákvörðun um ný-
byggingu og hversu fljótt hún
verður byggð.“
Stefán Jón segir að fjöldi
barna í hverfinu muni ná hámarki
í kringum 2006 til 2007 og þá þurfi
að koma til móts við þann fjölda
með nýju skólahúsnæði.
„Það er líkleg niðurstaða að
nýr skóli mun ekki hýsa allan
þann fjölda nemenda sem verður í
hverfinu á árunum frá 2006 til
2010. Þá munum við hugsanlega
reyna að nýta Korpuskóla fyrir
elstu bekkina. Þegar hverfið er
komið í jafnvægi munu um 120
börn vera þar og því mun nýi skól-
inn verða mjög lítill.“
Stefán Jón segir það rétt að að-
gengi fyrir fatlaða sé ekki gott í
Korpuskóla, en börnin fái ekki
neitt verri menntun þar en gengur
og gerist í öðrum skólum í borg-
inni.
„Þetta er ekki fullkominn skóli
en það er mjög margt gott við
hann. Þarna er verið að þróa náms-
aðferðir og nýjar kennsluleiðir
sem hafa getið sér mjög góðan
orðstí. Væri vandamálið ekki hús-
næðið heldur allt hitt þá væri ég
verulega áhyggjufullur.“ ■
MANNRÉTTINDABROTUM MÓTMÆLT
Mannréttindabrotum stjórnvalda í Myan-
mar, sem áður hét Burma, hefur verið
mótmælt víða um heim.
Amnesty International:
Söguleg för
MYANMAR, AP Tveir fulltrúar Am-
nesty International eru komnir til
Myanmar, lands sem samtökin
hafa gagnrýnt harkalega fyrir
mannréttindabrot en verið mein-
að að koma til, þar til nú.
Hvorki Amnesty International
né stjórnvöld í Myanmar hafa
viljað staðfesta neitt um för
sendimannanna. Þeir áttu þó fund
með Aung San Suu Kyi, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, sem hefur
löngum verið haldið í stofufang-
elsi.
Talið er að 1.200 manns séu
samviskufangar í Myanmar. ■
BEÐIÐ EFTIR ÁFYLLINGU
Það tekur allt langan tíma í Venesúela
þessa dagana. Strákurinn á myndinni
þurfti að bíða lengi eftir gasi á eldavélina
heima.
Venesúela:
Verkfallið
að fjara út
CARACAS, AP Stuðningur við verk-
fallið sem átti að koma Hugo
Chavez, forseta Venesúela, frá
völdum hefur minnkað verulega
heima við. Stjórnarandstæðingar
hafa í kjölfarið leitað stuðnings út
fyrir landsteinana.
Verslanir, bankar og skólar
opna flest eftir helgi og olíufram-
leiðsla eykst jafnt og þétt þó enn
sé hún lagt undir því sem hún var
áður en verkfallið hófst. Stjórnar-
andstæðingar reyndu því að hafa
áhrif á erlenda sendimenn sem
eru staddir í landinu til að stilla til
friðar. ■
ÍRAKSDEILAN Nelson Mandela réðist
harkalega að Bretum og Banda-
ríkjamönnum fyrir afstöðu þeirra
gagnvart Írak og fyrirsjáanlega
innrás þeirra.
Mandela sagði rík-
in tvö grafa undan
stöðu Sameinuðu
þjóðanna og gaf í
skyn að framferði
þeirra réðist að
nokkru leyti af
kynþáttafordóm-
um.
„Það sem ég for-
dæmi er að eitt
stórveldi, með fyr-
irhyggjulausan for-
seta sem getur ekki
hugsað almenni-
lega, skuli vilja steypa heiminum í
nýja helför,“ sagði Mandela á ráð-
stefnu í Jóhannesarborg. Hann
sagði Bandaríkin aðeins vera á
eftir olíunni í Írak og George W.
Bush Bandaríkjaforseta vera að
gera stærstu mistök lífs síns með
því að eiga upphaf að miklum
blóðsúthellingum. Þess vegna
ætti bandarískur almenningur að
kjósa Bush burt við fyrsta tæki-
færi.
„Hvers vegna haga Bandarík-
in sér á svona hrokafullan hátt?
Vinir þeirra, Ísraelar, búa yfir
gjöreyðingarvopnum. En vegna
þess að þeir eru bandamenn
þeirra biðja Bandaríkjamenn
Sameinuðu þjóðirnar ekki um að
losa heiminn við þau.“ Hann
rifjaði upp að Bandaríkin væru
eina ríkið sem hefði beitt kjarn-
orkuvopnum. „Þeir ákváðu að
drepa saklaust fólk í Japan.
Hverjir eru þeir að þykjast vera
lögreglumenn heimsins?“ sagði
hann og bætti við: „Ef það er til
ríki sem hefur gert sig sekt um
ólýsanleg ódæðisverk er það
Bandaríkin.“
Mandela velti því fyrir sér
hvort framkoma Bandaríkjanna
og Bretlands gagnvart Samein-
uðu þjóðunum réðist af því að
aðalritarinn, Kofi Annan, væri
svartur maður. „Bæði Bush og
Tony Blair eru að grafa undan
hugmynd sem forverar þeirra
studdu. Er þetta vegna þess að
aðalritarinn er nú svartur mað-
ur? Þeir gerðu þetta aldrei með-
an aðalritarinn var hvítur.“
Reiði Mandela beindist ekki að-
eins að Bandaríkjunum. Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
fékk einnig að kenna á því. „Hann
er utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hann er ekki lengur forsætis-
ráðherra Bretlands.“
Ari Fleischer, talsmanni Banda-
ríkjaforseta, þótti lítið til orða for-
setans fyrrverandi koma. „Forset-
inn skilur að það verður alltaf fólk
sem finnst þægilegra að gera ekk-
ert þegar vaxandi ógn getur breyst
í helför.“ ■
STEINGRÍMUR HERMANNSSON
Sá sem rekur lestina ber vissa ábyrgð.
Framsóknarflokkurinn:
Steingrímur
vill ekki
heiðurssæti
STJÓRNMÁL Steingrím Hermanns-
son, fyrrum formann Framsókn-
arflokksins og forsætisráðherra,
er hvergi að finna á framboðslist-
um síns gamla flokks og skipar
þar hvergi heiðurssæti:
„Ég ákvað að hætta í stjórn-
málum og ber ekki lengur nokkra
ábyrgð. Sá sem skipar heiðurs-
sæti á lista rekur lestina og ber á
þann hátt vissa ábyrgð. Það vil ég
ekki lengur,“ segir Steingrímur,
sem er mjög ánægður með úr-
skurð Jóns Kristjánssonar varð-
andi Norðlingaöldu: „Þarna sýndi
Jón skynsemi og framsýni eins og
ég reyndar bjóst við af honum. Ef
Jón hefði haldið þessu óbreyttu
hefði ég hins vegar aldrei tekið í
mál að skipa heiðurssæti á
nokkrum lista Framsóknar,“ segir
Steingrímur. ■
Sprenging í Kandahar:
Rúta sprakk í loft upp
Fyrirhyggjulaus
forseti ræður för
Nelson Mandela fór harkalegum orðum um Breta og Bandaríkjamenn
vegna afstöðu þeirra gagnvart Írak. Hann sakaði þá um hroka, sérhags-
munagæslu og óvirðingu fyrir mannslífum.
NELSON MANDELA Í HAM
Forsetinn fyrrverandi sagðist styðja þær aðgerðir sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu.
Það kæmi alls ekki til greina að einstök ríki kæmust upp með að fara í stríð í óþökk
Sameinuðu þjóðanna.
„Það sem ég
fordæmi er að
eitt stórveldi,
með fyrir-
hyggjulausan
forseta sem
getur ekki
hugsað al-
mennilega,
skuli vilja
steypa heim-
inum í nýja
helför.“
Deilur foreldra og borgaryfirvalda í Staðahverfi:
Nýr skóli rís
líklega árið 2006
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar segir að fjöldi barna í Staðahverfi muni ná há-
marki í kringum 2006 til 2007 og að bregðast þurfi við því með byggingu nýs skóla.
Piltur í Keflavík:
Fangelsi fyrir
sms-hótanir
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur piltur í
Keflavík hefur verið dæmdur í 75
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
að senda þrítugum manni líflátshót-
anir með sms-skilaboðum.
Hann hefur áður hlotið skilorðs-
bundinn dóm fyrir líkamsárás.
Héraðsdómur Reykjaness segir
piltinn hafa framið „brotin í geðs-
hræringu eða reiði vegna þess að
unnusta hans kann að hafa komist í
mikið uppnám skömmu fyrir brotið
eftir samskipti við kæranda máls-
ins, sem hún hafði grunað um kyn-
ferðislegt ofbeldi gagnvart sér, þó
að það réttlæti ekki verknað
ákærða.“ ■
ÚRSKURÐUR UM HALLSVEG
STENDUR Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur hafnað kröfum nokk-
urra íbúa í Grafarvogi um að
felldur verði úr gildi úrskurður
umhverfisráðuneytisins um að
staðfesta úrskurð Skipulagsstofn-
unar um mat á umhverfisáhrifum
Hallsvegar í Reykjavík, sem er
tveggja akreina vegur frá Fjall-
konuvegi að Víkurvegi.
GÁLEYSI Í RÆKJUVINNSLU Fisk-
vinnslufyrirtæki hefur verið
sýknað af bótakröfum konu sem
lærbrotnaði þegar hún féll úr
stiga við rækjufæruiband. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur telur kon-
una sjálfa ábyrga fyrir slysinu
með gáleysi.
DÓMSMÁL
DAPURLEG AÐKOMA
Fólk hjálpaðist að við að safna saman lík-
amshlutum þeirra sem fórust í sprenging-
unni. Líkin voru flest afar illa farin og því
erfitt að bera kennsl á hina látnu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T