Fréttablaðið - 01.02.2003, Qupperneq 30
Það hefur verið viðloðandi tón-listarbransann að allt sem sé
svalt snúist um „kynlíf, dóp, rokk
og ról“. Fyrsta alvöru kynlífsbylt-
ingin í gegnum poppmenningu átti
sér stað á hippatímanum. Blóm,
friður og „frjálsar ástir“ þóttu
sjálfsagðir hlutir en áður hafði
daður við erótík aðeins verið til
þess að gleðja augað.
Ræturnar liggja þó dýpra. Ára-
tug áður ögraði Elvis Presley fína
fólkinu með mjaðmahreyfingum
sínum sem þóttu langt yfir vel-
sæmismörkum á sínum tíma.
Margar af þekktari kvikmynda-
stjörnum Hollywood prýddu flug-
vélar, sprengjur og veggi her-
mannaskála á fimmta og sjötta
áratugnum. Þá þótti ekki tiltöku-
mál þegar kvikmyndastjörnur á
borð við Marilyn Monroe, Ritu
Hayworth, Jayne Mansfield og
fleiri létu mynda sig í ögrandi
klæðnaði og jafnvel allsnaktar.
Staðreyndin er sú að popptón-
listarmenn og kvikmyndastjörnur
hafa lengi notað kynþokka sinn til
þess að koma sér á framfæri. Það
virðist þó alltaf jafnauðvelt að
hneyksla almenning. Kynhvötin er
ein af frumhvötum mannsins og
því verður kynþokki vopn sem
alltaf bítur þá sem feimnari eru.
Tískan hefur orðið til þess að al-
menningur virðist umburðarlynd-
ari gagnvart erótísku efni.
Aðrir hafa svo réttilega áhyggj-
ur af því hvaða áhrif það hafi á
börn þeirra að ungar föngulegar
stúlkur á nærbuxunum hristi rass-
inn framan í þau daglega á sjón-
varpsskjánum.
Munurinn er kannski að mestu
leyti sá að áður fyrr var daðrað við
erótík, í dag er daðrað við klám.
Áhrif Madonnu
Kynlíf var alltaf viðloðandi
diskóhreyfinguna á áttunda ára-
tugnum. Það var þó ekki fyrr en
áratug seinna þegar Madonna not-
aði kynþokka sinn markvisst til
þess að markaðssetja sig að al-
menningur fór að roðna. Lag henn-
ar frá 1984, „Like a Virgin“, fjall-
aði í rauninni um ástina en samlík-
ingin, þar sem sögupersónan
minntist þess hvernig það var að
vera saklaus og forvitin um kynlíf,
vakti usla. Madonna lék sér með
kynferðisdaður sitt með því að
liggja uppi í rúmi á plötuumslag-
inu með beltissylgju þar sem á var
ritað „Boy Toy“.
Á tónleikaferð sinni „Blonde
Ambition Tour“ sem hún fór í árið
1990 lék hún á hverju kvöldi
sjálfsfróunaratriði þegar hún tók
lagið. Það er svo hægt að sjá í
mynd hennar „In Bed With
Madonna“ sem kom út ári síðar. Í
nokkrum ríkjum í Bandaríkjun-
um átti hún á hættu að verða
handtekin fyrir athæfið. Árið
1992 steig hún skrefið til fulls
með bók sinni og ljósmyndarans
Steven Meisel, „Sex“, sem inni-
hélt nektarmyndir af henni auk
vangaveltna um kynlíf.
Nýlega greindi Madonna frá því
að eftir að hún varð móðir hafi hún
iðrast þessa alls og stöðvaði hún
meðal annars endurútgáfu bókar-
innar „Sex“ sem áætluð var í fyrra.
Í kjölfar Madonnu fylgdu
nokkrar stúlkur í poppinu sem
gerðu nær eingöngu út á kynþokka
sinn. Hin breska Samantha Fox
fékk plötusamning eftir að hún
birtist berbrjósta á síðu 3 í The
Sun og átti nokkrum vinsældum að
fagna með laginu „Touch Me“ árið
1986. Varla birtust myndir af henni
og Sabrinu (sem söng „Boys, boys,
boys“) án þess að sjá mætti glitta í
geirvörtur þeirra.
Söngkonan Gloria Trevi, sem oft
hefur verið kölluð hin mexíkanska
Madonna, fór svipaða leið og þær
tvær í upphafi tíunda áratugarins.
Hún var handtekin í Brasilíu árið
2000 fyrir að hafa haldið stúlku
undir lögaldri í kynlífsánauð ásamt
umboðsmanni og kærasta. Hún var
í fangelsinu í tvö ár, varð þar ófrísk
á dularfullan hátt og eignaðist son
bak við lás og slá. Snemma á þessu
ári var hún framseld til heimalands
síns þar sem hún mun bráðlega
svara til saka.
Upphaf klámtískunnar
Um miðjan tíunda áratuginn fór
að bera á myndböndum sem studd-
ust við svipaða myndatöku og
þekkist í klámljósmyndum og
kvikmyndum. Þetta var aðallega í
hiphop-myndböndum.
Tvær dömur sem voru á snær-
um Puff Daddy og Notorious
B.I.G. gengu sérstaklega langt í
þessum efnum. Þær voru heldur
ekkert að fela hvaðan þær drægju
ímynd sína. Lil’ Kim gaf út breið-
skífuna „Hard Core“ árið 1996 og
var myndin af henni á plötu-
umslaginu eins og klippt út úr
klámblaði. Hún var afar léttklædd,
krjúpandi á loðfeldum.
Foxy Brown var kannski aldrei
jafn kræf í sinni ímyndarsköpun
en greip þó athygli karlpeningsins.
Fram að þessu höfðu það að
mestu verið karlmenn sem döðr-
uðu við klám í hiphoppi og þá aðal-
lega textum. Snoop Dogg gerði það
að yrkisefni á plötu sinni „Doggy-
style“ og N.W.A. kenndu munngæl-
ur í einu laga sinna. Snoop gekk
síðar alla leið og gerði stutta klám-
mynd sem bar sama nafn og áður-
nefnd breiðskífa hans frá árinu
1993.
Klámtískan var orðin að stað-
reynd og það er engin tilviljun að
karlatímarit á borð við FHM, Stuff
for Men og Maxim voru öll stofnuð
á þessum tíma.
Hollywood fékk einnig klám á
heilann og myndin „Boogie
Nights“, sem gaf raunsæja mynd
af heimi klámmyndaiðnaðarins,
leit dagsins ljós árið 1997.
Í kjölfar hennar fylgdu raun-
verulegar heimildarmyndir þar
sem skyggnst var á bak við tjöldin.
Gerð var heimildarmynd um klám-
myndaleikkonuna Annabel Chong
á þeim tíma er hún hafði mök við
251 karlmann á einum degi. Fyrr-
um húsmóðirin Stacy Valentine
leyfði kvikmyndatökuliði að fylgj-
ast með sér í vinnunni og nú síðast
var það Íslands-“vinurinn“ Ron
Jeremy sem var gerður ódauðleg-
ur í heimildarmynd.
Áhugi Hollywood á klámi virð-
ist ekkert vera að dvína og nýlega
bárust fregnir af því að Angelina
Jolie muni fara með aðalhlutverkið
í mynd um „Deep Throat“-leikkon-
una Lindu Lovelace.
Klámið kemst í poppið
Það varð æ algengara að ljós-
myndir og jafnvel auglýsingar í
tískublöðum væru á erótísku nót-
unum. Það ætti því ekki að hafa
komið neinum á óvart að ungar
poppstjörnur á borð við Britney
Spears, Christinu Aguilera, Jenni-
fer Lopez og Kylie Minouge hafi
allar notað kropp sinn sem hjálp-
artæki upp á stjörnuhimininn.
Í tónlistarbransanum er hug-
takið „The Whole Package“ oft
notað. Það vísar til þess að stúlk-
urnar þurfi: a) að geta sungið eins
og englar, b) að geta dansað eins
og Michael Jackson, c) að vera vel
vaxnar (helst af náttúrunnar
hendi) og d) að kunna fyrirsætu-
störf. Það eru sem sagt ekki litlar
kröfur sem lagðar eru á ungar
stúlkur í stéttinni. Athygli vekur
að tónlistarhæfileikar eru aldrei
nefndir þegar hugtakið er notað.
Þetta er gífurlega harður heimur og
allar klær eru úti.
Af einhverjum ástæðum hefur
Britney Spears alltaf verið tengd
þessari bylgju þrátt fyrir að hafa
haldið sig að miklu leyti frá henni.
Hún sást dansa um á nærbuxunum
í kvikmyndinni „Crossroads“ auk
þess sem það olli miklu umtali þeg-
ar hún réð fyrrum klámmyndaleik-
stjóra til þess að gera eitt mynd-
banda sinna. Allt umtal um kynlíf
og Britney Spears fór á flug eftir að
hún fullyrti að hún ætlaði að fara
sem hrein mey inn í brúðkaupsnótt
sína.
Kylie Minogue endurvakti feril
sinn með einu pari af gylltum stutt-
buxum er hún klæddist í mynd-
bandi lagsins „Spinning Around“
frá árinu 2000. Eftir það hefur hún
verið gjörn á að sýna skinn og lék
meðal annars í djarfri undirfata-
auglýsingu sem var bönnuð í
bresku sjónvarpi.
Sú sem hefur verið hvað kræfust
í þessum efnum er án efa Christina
Aguilera. Hún virðist vísvitandi
hafa ákveðið að nota kynþokka sinn
til þess að vekja á sér athygli. Það
virðist líka ganga afar vel hjá
henni. Myndband hennar „Dirrty“
þykir vera alveg á mörkunum og
nýlega birtist hún nakin framan á
forsíðu Rolling Stone. Hún hefur
svo greinilega lent í því alþekkta
vandamáli að „eiga ekkert til þess
að fara í“ fyrir síðustu myndatökur
því hún hefur nánast án undantekn-
inga verið nakin.
Ef það er list að ganga fram af
sem flestum með ögrandi ímynd
hlýtur hún að vera sigurvegarinn.
Spurningin er því, ef ekki er hægt
að ganga lengra, hvað er þá til ráðs?
Neyðin kennir víst naktri konu að
spinna. Hafið þið ekki áhyggjur,
samkvæmt þeirri reglu ætti Christ-
ina að verða klæðameiri í framtíð-
inni.
biggi@frettabladid.is
30 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
VIÐ RÝMUM FYRIR NÝJUM GERÐUM OG BJÓÐUM
BAÐINNRÉTTINGAR Á BOTNVERÐI
120 cm innrétting
(5 skápar, höldur, ljósakappi
með 3 halogenljósum,
borðplata og spegill)
Botnverð 59.900,-
90 cm innrétting
(3 skápar, höldur, ljósakappi
með 3 halogenljósum,
vaskborðplata og spegill)
Botnverð 65.900,-
150 cm innrétting
(4 skápar, 2 hillur, höldur,
ljósakappi með 3 halogen-
ljósum, borðplata og spegill)
Botnverð 72.900,-
Við bjóðum einnig eldhúsinnréttingar,
þvottahúsinnréttingar og fataskápa á frábæru verði
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERSLA Í FRÍFORM . . .
Hver einasta bylgja á sérmótsvar. Þannig ætti það ekki
að koma neinum á óvart að nokkr-
ar ungar og upprennandi tónlistar-
stúlkur í Bandaríkjum hafi sam-
einast í ákvörðun sinni að nota ekki
kynþokka sinn til þess að koma sér
á framfæri.
Þar á meðal má nefna Avril
Lavigne, Noruh Jones, Vanessu
Carlton, Fionu Apple, Aliciu Keys
og Michelle Branch.
Þær eru allar af nýrri kynslóð
söngkvenna sem semja sjálfar lög
sín og flytja. Allar bera þær þokka
og virðast staðráðnar í því að
skapa sér persónulegri stíl og láta
tónlistina eina tala sínu máli. ■
AVRIL LAVIGNE
Er ein þeirra söngkvenna sem segist ekki
ætla að nota kynþokka sinn til þess að
koma sér á framfæri. Hún virðist ekki
þurfa þess og hefur nú þegar unnið til
fjölda verðlauna fyrir frumraun sína, „Let
Go“, sem hún gaf út á síðasta ári.
NORAH JONES
Er talin ein efnilegasta djasssöngkona
Bandaríkjamanna. Hún sópaði til sín
Grammy-verðlaunum um daginn. Hún
hefur tónlistina í blóðinu, er dóttir Ravi
Shankar, sem vann m.a. með Bítlunum.
Ungar tónlistarstúlkur:
Stelpur
gegn
klámtísku
Við lifum á tímum er landamæri kláms og poppmenningar eru oft óljós. Stærstu poppstjörnurnar ráða
til sín klámmyndaleikstjóra fyrir myndbandagerð. Leið stúlkna upp á stjörnuhimininn er í gegnum síður
karlatímarita. Er þetta nýtt fyrirbrigði? Ef ekki, hvað hefur þá breyst?
Klámið tröllríður poppinu
CHRISTINA AGUILERA
Þótti fyrst afar ögrandi í myndbandi lags-
ins „Lady Marmalade“. Þá var hún, ásamt
Pink, Lil’ Kim og Myu, að leika franska
vændiskonu frá París við lok 19. aldar.
Hefur í dag tamið sér það að ögra fólki
með ímynd sinni. Nýjasta breiðskífa
hennar heitir til dæmis „Stripped“.