Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2003, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 01.02.2003, Qupperneq 33
Eftir á að hyggja segir Einar MárGuðmundsson rithöfundur tón- leikana með Led Zeppelin í Laugar- dalshöllinni vera þann menningar- viðburð sem helst stendur upp úr í minningunni. Hann var fjórtán ára þá. „Ég gæti svo sem nefnt ýmislegt, eins og til dæmis þegar maður sá Hamlet með Derek Jacobi í Kron- borg-kastala. En það var svo margt sem gerði Zeppelin-tónleikana eftir- minnilega,“ segir Einar Már. „Allt umstangið við að fá miða til dæmis. Svo leit lengi út fyrir að verkfall yrði til þess að koma í veg fyrir tónleikana. Þá fylktum við liði niður á Dagsbrún. Ég man eftir því að Guðmundur Jaki sagði á endan- um: Þið fáið Chaplin-grúppuna ykk- ar“ „Þetta voru gríðarlegir tónleikar, þótt ég hafi kannski ekki áttað mig á því fyrr en seinna. Þetta var svo mikil upplifun. Ekki bara vegna tón- listarinnar, heldur ekki síður vegna þess að maður var á stöðugu vappi um Höllina að hitta fólk.“ Einar Már segist hins vegar hafa verið mjög upptekinn af því á þess- um tíma að reyna að vera öðru vísi en aðrir. „Ég man að það voru útvarps- menn á tónleikunum. Þeir tóku mig tali, en ég gaf lítið út á þetta allt saman. Þess í stað nefndi ég alls konar aðrar hljómsveitir sem mér fannst merkilegri en Led Zeppelin. Það var nú meira út af því að ég vildi spila mig stóran karl.“ Einar Már segir samt að Led Zeppelin hafi elst betur en flest annað sem hann nefndi þá. „Þeir hafa náð að skapa klassík á sínu sviði.“ ■ 33LAUGARDAGUR 1. febrúar 2003 General Electric Helluborð 30% afsl. GE sýningarísskápar 20% afsl. Uppþvottavélar 20% afsl. Ofnar 30% afsl. Háfar 30% afsl. R Ý M U M FYRIR NÝJUM VÖRUM Sýningartæki á 15% - 50% afslætti! Bara á laugardag og sunnudag Þvottavélar og þurrkarar á 15-25% afsl. Opið: Laugardag 11:00 - 16:00 Sunnudag 13:00 - 16:00 Ýmis smátæki á STÓRlækkuðu verði Panasonic þráðlausir símar frá kr. 8.900.- Kenwood hrærivélar frá kr. 23.900.- Kenwood brauðristar frá kr. 1.990.- Kenwood töfrasproti kr. 1.890.- Kenwood djúpsteikingarpottar kr. 5.200.- Kenwood straujárn frá kr. 1.950.- ll l l l HALLDÓR GYLFASON Man eftir því þegar vinur hans kenndi hon- um að reima skó á vegasalti við leikskól- ann Holtaborg. Halldór Gylfason lærði að reima í leiksóla: Óljós minn- ingarbrot leikskólaár- anna Einar Már Guðmundsson segir svo ótalmargt hafa gert Zeppelin-tónleikana árið 1970 eftirminnilega. Fjórtán ára í Höllinni Fyrsta bernskuminningin Eftirminnilegasti menningarviðburðurinn Ég á nú lítið annað en minn-ingarbrot frá æskuárunum,“ segir Halldór Gylfason leikari, sem leikur í Manninum sem hélt að konan sín væri hattur sem Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld. „Ég man að þegar ég var þriggja eða fjögurra ára fór ég niður í þvottahús til að spyrja mömmu hvort ég mætti heim- sækja vin minn í næsta húsi. Svo minnist ég þess að þegar ég var sex ára rak ég vin minn úr afmælinu mínu. Við vorum að spila fótbolta úti í garði og mér fannst hann ekki nógu góður og ekki gefa nógu mikið á mig þannig að ég rak hann heim og lét það fylgja með að ég væri ekkert mjög ánægður með gjöf- ina frá honum heldur.“ Það er helst að Halldór geti rifjað upp atvik úr leikskóla. „Ég var á deild með tvíburunum Ármanni og Sverri Jakobsson- um en við vorum miklir vinir í leikskóla. Einhvern tíma vorum við að lita og annar þeirra kvart- aði yfir því að ég litaði of fast og sagði að ég ætti að venja mig á að teikna lausar. Þá man ég eftir því þegar Pálmi vinur minn kenndi mér að reima skó í leik- skólanum. Hann kunni að reima og mér fannst hann voða flottur. Við sátum á svona vegasalti í Holtaborg. Það tók hann smá tíma að kenna mér þetta og þeg- ar hann var nýbúinn kom pabbi hans að sækja hann.“ ■ EINAR MÁR GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR Led Zeppelin eru klassískir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.