Fréttablaðið - 01.02.2003, Page 34
ÚTIVERA
11.00 Gigtarfélag Íslands stendur fyrir
gönguferð um Laugardalinn. Hist
verður við inngang Gigtarfélagsins
að Ármúla 5. Gert er ráð fyrir
fremur þægilegri klukkutíma
göngu sem ætti að henta flestum.
Ekkert gjald.
FUNDIR
14.00 Mótmælastaða við bandaríska
sendiráðið, Laufásveg 14, á veg-
um samstarfshópsins „Átak gegn
stríði“ til að leggja áherslu á and-
stöðu friðarsinna við stríðsáform
Bandaríkjastjórnar í Írak.
14.00 Ármann Jakobsson íslenskufræð-
ingur ver doktorsritgerð sína,
Staður í nýjum heimi: Konungs-
sagan Morkinskinna. Doktorsvörn-
in fer fram í Hátíðasal Háskóla Ís-
lands, aðalbyggingu, og er öllum
opin meðan húsrúm leyfir.
16.00 Dönsk bókmenntakynning í
Norræna húsinu. Lise Hvarre-
gaard og Jens Lohfert Jørgensen
sendikennarar kynna nýjar dansk-
ar bækur og rithöfundurinn
Christina Hesselholdt les upp úr
verkum sínum.
OPNANIR
14.00 Opna galleríið verður á Lauga-
vegi 51 (gamla „Blanco y negro“)
eins og jafnan á löngum laugar-
degi. Allir listamenn eru velkomn-
ir með verk og uppákomur sér að
kostnaðarlausu nokkru fyrir sýn-
ingu. Sýningin verður tekin niður
klukkan sex.
15.00 Hópurinn Akvarell Ísland opnar
fjórðu sýningu sína í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar. Þeir sem sýna að þessu
sinni eru: Alda Ármanna Sveins-
dóttir, Ásta Árnadóttir, Björg Þor-
steinsdóttir, Daði Guðbjörnsson,
Eiríkur Smith, Guðrún Svava Svav-
arsdóttir, Hafsteinn Austmann,
Helga Magnúsdóttir, Jón Reykdal,
Katrín H. Ágústsdóttir, Kristín Þor-
kelsdóttir, Torfi Jónsson og Þór-
unn Guðmundsdóttir.
16.00 Ingimar Waage opnar sýningu á
málverkum í Gallerí Skugga,
Hverfisgötu 39. Sýningin er opin
alla daga nema mánudaga kl.
13–17 og lýkur sunnudaginn 16.
febrúar.
TÓNLEIKAR
15.00 Fyrri nemendatónleikar Jazzsöng-
deildar Tónlistarskóla FÍH í sal
skólans, Rauðagerði 27.
16.30 Seinni nemendatónleikar Jazz-
söngdeildar Tónlistarskóla FÍH í
sal skólans, Rauðagerði 27.
17.00 Kristin R. Sigurðardottir sópran
og Antonia Hevesi píanóleikari
flytja þekktar aríur og íslensk
sönglög í Siglufjarðarkirkju. Að-
gangseyrir er kr. 1500.
KVIKMYND
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir í
Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnar-
firði, kvikmyndina Sölku Völku,
sem gerð var árið 1954 eftir sam-
nefndri skáldsögu Halldórs Kiljan
Laxness í leikstjórn sænska leik-
stjórans Arne Mattsson.
FRUMSÝNINGAR
19.00 Íslenska óperan frumsýnir
Macbeth eftir Guiseppe Verdi.
20.00 Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Uppistand um jafnréttismál, þrjú
einleiksverk eftir Sigurbjörgu
Þrastardóttur, Guðmund Kr. Odds-
son og Hallgrím Oddsson.
20.00 Maðurinn sem hélt að konan
hans væri hattur eftir Peter
Brook og Marie-Hélène Estienne
verður frumsýnt á Nýja sviði Borg-
arleikhússins.
Söngleikurinn Frelsi eftir Flosa Einars-
son og Gunnar Sturlu Hervarsson verður
frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi.
Um 40 nemendur úr 8.-10. bekk skól-
ans standa að flutningnum.
LEIKSÝNINGAR
20.00 Nemendaleikhúsið frumsýnir
leikritið Tattú eftir Sigurð Pálsson
í Smiðjunni.
20.00 Söngleikurinn Með fullri reisn
eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir
Sálina og Karl Ágúst Úlfsson á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Aukasýning á Rómeó og Júlíu eft-
ir William Shakespeare í þýðingu
Hallgríms Helgasonar á Litla sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Hin smyrjandi jómfrú, einleikur
eftir Charlotte Bøving, sýnt í Iðnó.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir Björk
Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
SKEMMTANIR
Þeir félagar Magnús Eiríksson og Pálmi
Gunnarsson í Mannakornum koma
fram á Kringlukránni í kvöld, annað
kvöldið í röð.
Hætt-a-Telja með Halla og Ladda í
Loftkastalanum. Um páskana taka önnur
verkefni við hjá bræðrunum og því eru
nú aðeins örfáar sýningar eftir.
„Valíum“, þeir óborganlegu Hjörtur og
Halli skemmta á Ara í Ögri, Ingólfsstræti
3.
Spútnik leikur á Players í Kópavogi.
H-O-D sveitin, skipuð þeim Ómari Guð-
jónssyni á gítar, Helga Svavari Helgasyni
á trommur og Davíð Þór Jónssyni á
hljómborð, leikur á Café Kulture í Al-
þjóðahúsinu.
Á Cafe Romance skemmta Harold Burr
og Kjartan Valdimarsson gestum.
Sign og Eivör Pálsdóttir rokka á
Grandrokk í kvöld.
Diskórokktekið og plötusnúðurinn DJ
SkuggaBaldur verður á Svörtuloftum,
Hellissandi, ásamt ljósagangi, reyk,
þoku og tónlistarinnskotum síðustu 50
ára.
MESSUR
11.00 Drengjakór Neskirkju syngur við
messu.
20.00 Bjarni Arason og Silja Rut Ragn-
arsdóttir leiða sönginn á fyrstu
léttmessu ársins í Árbæjarkirkju.
FUNDIR
12.30 Framhaldsnámskeiðið Alfa II
hefst í Neskirkju. Kennarar verða
séra Örn Bárður Jónsson, Elín
Salóme Guðmundsdóttir og Rún-
ar Reynisson.
14.00 Kári Bjarnason ræðir um undur
íslenskra handrita í forsal þjóð-
deildar á 1. hæð í Þjóðarbók-
hlöðu.
15.00 Aðalfundur Félagsins Ísland-
Palestína verður haldinn á Korn-
hlöðuloftinu við Lækjarbrekku,
Bankastræti.
OPNUN
14.00 Opnun sýningar í GUK+ á fjórum
stöðum samtímis: í garði við Ár-
tún 3 á Selfossi, garðhýsi í Lejre,
Danmörku, gangi í Hannover,
Þýskalandi og á skjá fartölvu sem
verður stödd á Akureyri á opnun-
ardaginn.
LEIÐSÖGN UM SÝNINGU
14.00 Guðný Magnúsdóttir hönnuður
verður með leiðsögn í Norræna
húsinu fyrir almenning um sýn-
inguna Young Nordic Design: The
Generation x.
16.00 Guðný Magnúsdóttir hönnuður
verður með leiðsögn í Norræna
húsinu fyrir almenning um sýn-
inguna Young Nordic Design: The
Generation x.
KVIKMYNDIR
15.00 Rússneska kvikmyndin „Þjófur-
inn“ (Vor) verður sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10. Myndin er frá
árinu 1997 og leikstjóri er Pavel
Tsúkhraj. Myndin er með íslensk-
um texta. Aðgangur ókeypis og
allir velkomnir.
19.20 ‘Mugison’, eins manns hljómsveit
Arnars Elíasar Guðmundssonar,
heldur tónleika á undan hinni
nýju íslensk/ensku kvikmynd
‘Þriðja nafnið’ eftir Einar Þór
Gunnlaugsson í Bíóhöllinni á
Akranesi.
TÓNLEIKAR
15.00 Kristín R. Sigurðardóttir sópran
og Antonia Hevesi pianóleikari
flytja aríur og þekkt íslensk
sönglög í Miðgarði í Varmahlíð.
Aðgangseyrir er kr. 1500.
20.00 Kammersveit Reykjavíkur opnar
Myrka músíkdaga árið 2003
með tónleikum í Listasafni Ís-
lands. Leikin verða verk eftir Úlfar
Inga Haraldsson, Charles Ives,
Sofia Gubaidulina og John
Speight.
20.00 Tónleikar Tríós Reykjavíkur verða
endurteknir í síðasta sinn á
sunnudagskvöld kl. 20 í Hafnar-
borg. Tríóið skipa þau Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari,
Gunnar Kvaran sellóleikari og Pet-
er Máté píanóleikari. Þau hafa
fengið til liðs við sig söngvarana
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Berg-
þór Pálsson.
20.00 Szymon Kuran fiðluleikari og Júl-
íana Rún Indriðadóttir píanóleik-
ari halda tónleika í Salnum í
Kópavogi. Þau flytja verk eftir
Szymanowski, Wieniawski og flytj-
andann sjálfan, Szymon Kuran.
20.30 Örn Magnússon píanóleikari leik-
ur tvær sónötur Mozarts og stök
verk eftir Chopin á tónleikum í
Hveragerðiskirkju.
LEIKSÝNINGAR
14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eftir
Guðrúnu Helgadóttur á Stóra
sviði Þjóðleikhússins. Allra síð-
ustu sýningar.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thorbjörn
Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
34 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR
1. FEBRÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
SUNNUDAGUR
2. FEBRÚAR
Frumsýning:
Maðurinn sem
hélt að konan hans
væri hattur
LEIKHÚS Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir leikritið Maðurinn
sem hélt að konan hans væri
hattur á Nýja sviðinu í Borgar-
leikhúsinu í kvöld. Leikritið,
sem er eftir hinn kunna leik-
stjóra Peter Brook og sam-
starfskonu hans Marie-Hélène
Estienne, segir frá taugasjúk-
lingum sem berjast við það á
hverjum degi að lifa eðlilegu
lífi um leið og það er óður til
mannsins, sálarinnar og hug-
ans.
Verkið byggir á þekktri bók
Oliver Sacks, Maðurinn sem
hélt að konan hans væri hatt-
ur, en hann segist sjálfur vera
rómantískur taugafræðingur.
Leikendur í verkinu eru
Gunnar Hansson, Halldór
Gylfason, Halldóra Geir-
harðsdóttir, Harpa Arnardótt-
ir, Sóley Elíasdóttir og Þór
Tulinius. Leikstjóri er Peter
Engkvist en leikmynd og bún-
inga gerir Stígur Steinþórs-
son. ■
TAUGASJÚKAR HVUNNDAGSHETJUR
Fólk sem lifir og hrærist „annars staðar“ þar sem öll mörk eru óljós eða öllu heldur
önnur en „hér“. Oftast lokar það sig inni í þessum heimi en stundum kemur það til
baka í stutta stund inn í raunveruleika okkar hinna og hverfur svo aftur inn í „ann-
an“ heim.
Glæsileg ítölsk leðursófasett
stakir sófar og hornsófar
Erum einnig með glæsilegar
ítalskar eldhúsinnréttingar,
komið og skoðið sýningar-
eldhúsin á staðnum eða fáið
sendan myndalista.
– gæðahúsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.
Sími 565-1234
Módel IS 1000 3+1+1, fullt verð 265.000.- stgr.
Litir: koníaksbrúnt, antíkbrúnt, svart, búrgundírautt og ljóst.
Módel IS 200 3+1+1 3+2+1 í Bycast leðri og taui.
3+2+1 í Bycast leðri fullt verð 298.000 stgr.
Leðurhornsófar 2+H+2 og 2+H+3 með og án skemils.
Litir: koníaksbrúnt og antíkbrúnt.
Módel King 3+1+1, fullt verð 329.000.- stgr.
Koníaksbrúnt, rauðbrúnt og dökkbrúnt bycast leður.
Opið mán.–fös. 10–18 og lau. 10–16
Tilboð 179.000 stgr.
Tilboð 298.000 stgr.
Tilboð 198.000 stgr.
Tilboð 268.000 stgr.