Fréttablaðið - 01.02.2003, Page 46
Það hefur dregist nokkuð aðVinstri grænir í kraganum
gengju frá framboðslista og eru
margir orðnir langeygir eftir því
að starfi uppstillingarnefndar
ljúki. Það kom bersýnilega í ljós
á félagsfundi í Hafnarfirði á mið-
vikudagskvöld. Eftir langar um-
ræður um hin ýmsu mál kom til
harkalegra og háværra deilna
þegar sumir fundarmenn fóru að
krefjast skýringa af uppstilling-
arnefndarmönnum um hvað væri
á seyði og vönduðu þeim ekki
kveðjurnar, enda biðlundin á
þrotum.
Arnar Jónsson hélt upp á sex-tugsafmæli sitt á dögunum
eins og frægt er orðið en svo
skemmtilega vildi til að persónan
sem hann leikur í leikritinu Veisl-
unni í Þjóðleikhúsinu fagnar ein-
mitt einnig 60 ára afmæli í veisl-
unni sem verkið fjallar um. Það
var því slegið upp sérstakri há-
tíðarsýningu í Þjóðleikhúsinu á
afmælisdegi Arnars og hann hélt
upp á það í tvennum skilningi.
Arnar fékk miða á sýninguna til
ráðstöfunar og bauð vinum og
vandamönnum á hana. Að sýning-
unni lokinni ávarpaði Stefán
Baldursson þjóðleikhússtjóri
mannskapinn og bauð öllum upp í
Kristalssal til að fagna með leik-
aranum. Þar söfnuðust vinir og
venslamenn Arnars saman, ásamt
öðrum sýningargestum, þar sem
vel var veitt. Þegar gleðskapnum
lauk segir sagan að Arnari hafi
verið afhentur reikningurinn fyr-
ir herlegheitunum og allt útlit er
fyrir að hann sitji uppi með hann.
46 1. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS
Í faðmi flokksins og
stemningsfjölskyldu
Guðrún Ebba Ólafsdóttir er fjörutíu og sjö ára í dag. Hún er mikil
afmælisstelpa enda heldur stórfjölskyldan henni við efnið þegar
svo ber undir.
47 ÁRA „Jájá, ég er voðalega
mikil afmælisstelpa. Í gamla
daga hélt mamma alltaf fínar
afmælisveislur og til eru ekta
sætar myndir af kjólklæddum
litlum stelpum við dekkað borð;
afmælistertur með kertum,
servíettur, litlar kókflöskur
með lakkrísröri og öllu því sem
tilheyrir,“ segir afmælisbarn
dagsins, borgarfulltrúinn Guð-
rún Ebba Ólafsdóttir.
Guðrún Ebba er titluð kenn-
ari í símaskrá og var hún um
hríð varaformaður Kennara-
sambandsins. Þeim kafla er
lokið, segir hún, en þó skaust
hún í það núna að leysa af í
Ölduselsskóla þar sem hún hóf
sinn kennsluferil fyrir tuttugu
árum. „Ég hef ekki kennt frá
því 1994 og það er ærinn starfi
að vera borgarfulltrúi en það er
gefandi að rifja upp kennara-
hlutverkið.“
Afmælisdagurinn verður
annasamur framan af. Borgar-
stjórnarflokkur Sjálfstæðis-
manna heldur vinnufund á Hót-
el Geysi í dag þannig að ekki
gefst ráðrúm til að undirbúa
neina veislu. „En ég er svo
heppin að um kvöldið fer ég í
þorramat til systur minnar og
hlakka mikið til. Stórfjölskyld-
an er dugleg að hafa eitthvað
við að vera - mikil stemnings-
fjölskylda. Þannig er að dag-
setningin er þess eðlis að marg-
ir muna afmælisdag minn.
Þeim finnst öllum að ég eigi að
gera eitthvað í tilefni dagsins
og ef ég geri ekkert sjálf þá fæ
ég hjálp. Til dæmis buðu for-
eldrar mínir mér í Perluna fyr-
ir tveimur árum.“
Foreldrar Guðrúnar Ebbu
eru þau Ólafur Skúlason biskup
og Ebba Guðrún Brynhildur
Sigurðardóttir. Þau hafa reynd-
ar þegar gefið dóttur sinni af-
mælisgjöf, kjól sem hún fór í á
árshátíð borgarstjórnar 4. janú-
ar. „Já, þau eru alltaf voðalega
góð við frumburðinn sinn og
vegleg í gjöfum sínum. Mig
grunar hvað dætur mínar tvær
gefa mér, en ég veit þó ekki
hvort rétt er að segja Frétta-
blaði það? Það er ein gjöf sem
ég hafði óskað mér í jólagjöf
sem ekki skilaði sér...“
Þegar Guðrún Ebba varð
fertug hélt hún minnisstæða
veislu í sal Kennarahússins.
„Þetta var ofsalega gaman, al-
vöru stórveisla og þá fékk ég
margar fallegar gjafir sem ég
held mikið upp á.“
jakob@frettabladid.is
AFMÆLI
Ámyndlistarskólaárunum, uppúr 1970, var brotist inn í
Cortínu móðurbróður míns og hún
skemmd. Vonlítið þótti að gera við
nema með ærnum kostnaði svo
hann frændi minn gaf mér hana.
Ég kom bílnum á götuna aftur.
Þetta reyndist háskagripur. Ég
man okkur frændur í Cortínunni,
dregna af jeppabrjálæðingi á 130
km hraða vestur allt sunnanvert
Snæfellsnes til að komast tíman-
lega á ball á Arnarstapa - mesti
hraði sem Cortínan komst á.
Sjaldnast voru nothæf dekk undir
bílnum, pústkerfið samantjaslað
og viðgert með asbestborðum,
blikkrenningum og asfalti. En eitt
hafði þessi bifreið fram yfir aðra
bíla. Pardusáklæði af bestu gerð
skreytti öll sæti sem maður
strauk ósjaldan yfir með aðdáun
er sest var í bílinn - jafnvel þótt að
treglega gengi að starta.
Eitt sinn ákvað ég að skutla
elstu systur minni í foreldragarð í
Keflavík. Í Stapanum kom í ljós að
pústkerfið hafði brennt gat í
gegnum gólfið og kveikt í gúmmí-
mottu undir fótum mér.
Logaði glatt, bifreiðin stöðvuð í
snarhasti og við út. Ég öskraði á
systur mína: Ertu með gos eða
vatn? „Nei“ heyrðist handan
brennandi bílsins.
Þá eins og fyrir kraftaverk
verður mér mál, hleyp hugsunar-
laust að opnum bílnum, renni nið-
ur og slekk eldinn á innan við mín-
útu.
Þegar systir mín komst að
hvað ég hafðist að greip hana slík-
ur hlátur að ég varð að hjálpa
henni inn í bifreiðina eftir að hafa
komið fyrir málningardósarloki
yfir brunagatið.
Stuttu seinna fékk frændi minn
Cortínuna að láni, týndi af henni
öllu bensíninu uppi í Árbæ og
skildi þar eftir utan vegar. Enginn
gerði tilkall til hennar nema að
Guðbergur nokkur Auðunsson
vildi gjarnan eignast gripinn og
skrifa grein um þetta í DV. Hann
hætti við eftir að hafa opnað pard-
usdrossíuna - svo stæk var lyktin.
Systir mín hefur gjarnan haft
að orði eftir þetta: Svo mikils ör-
yggis er gætt í Skjaldartraðarætt-
inni að sumir skilja slökkvitækið
aldrei við sig. ■
Valdimar Jörgensen byggingafræðingur
segir æsispennandi sögu af því þegar
kviknaði í Cortínu sem hann átti og sér-
stæðum slökkviaðgerðum. Hann skorar á
félaga sinn Jón (mínus) Þórisson leik-
myndateiknara að gera næstu frásögn skil.
Sagan
Brunavarnir á Keflavíkurveginum
GUÐRÚN EBBA ÓLAFSDÓTTIR
Ef hún sjálf hefur ekkert við í tilefni dagsins kemur stórfjölskylda hennar til skjalanna. Í
kvöld er það systir hennar sem heldur þorrablót.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
VALDIMAR JÖRGENSEN
Móðurbróðir hans gaf honum ævintýra-
lega Cortínu sem kom sögumanni vorum
oft í hann krappann.Hafnfirðingur var nýbúinn aðfá sér hund þegar Garðbæ-
ingur kemur labbandi framhjá.
„Viltu leika við nýja hundinn
minn fyrir mig?“ spurði Hafnfirð-
ingurinn nágranna sinn.
„Æ, ég veit ekki, bítur hann?“
spurði Garðbæingurinn.
Hafnfirðingurinn svaraði að
bragði: „Það er það sem ég vill
finna út.“
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÍMAMÓT
566 metrar yfir sjávarmáli.
Kaffi Reykjavík.
Claudia Schiffer.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Þjórsárver er ekki verslunar-
miðstöð á Suðurlandi.
Leiðrétting
Húsið opnað stundvíslega klukkan 21.00.
Þórscafe • Brautarholti 20 • Sími 511 0909
American Graffiti ball
laugardaginn 1. feb. kl. 21.00.
Fram koma:
Berta Biering, Einar Júlíusson,
Garðar Guðmundsson, Skapti Ólafsson og
Þorsteinn Eggertsson, sem er einnig kynnir kvöldsins.
Hljómsveitin „Heiðursmenn og Kolbrún“
leika fyrir dansi fram á rauða nótt.
Heiðursmenn eru Guðmar Marelsson trommur,
Gunnar Bernburg bassi, Baldur Már Arngrímsson gítar,
Ólafur Már Ásgeirsson hljómborð
og Kolbrún Sveinbjörnsdóttir söngkona.
Miðaverð 1.800 kr. við dyrnar en 1.400 kr. í forsölu
á milli kl. 12 og 18 laugardaginn 25. janúar í Þórscafé.
Þórscafé kynnir með stolti:
JARÐARFARIR
13.30 Guðrún Sveinfríður Jakobsdóttir,
Smáragrund 12, Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðár-
krókskirkju.
14.00 Bjarney Ingibjörg Ólafsdóttir,
Hlíf II, Ísafirði, verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju.
14.00 Elín Þórðardóttir, Sæviðarsundi
35, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Hvalsneskirkju.
14.00 Guðmundur Kristján Sigurðsson
verður jarðsunginn frá Hafnar-
kirkju.
14.00 Hildur Árnason frá Vestur-Sams-
stöðum í Fljótshlíð, til heimilis á
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarð-
sungin frá Breiðabólsstaðarkirkju í
Fljótshlíð.
14.00 Óskar Andrésson frá Saurum,
Borgarbraut 70, Borgarnesi, verð-
ur jarðsunginn frá Borgarnes-
kirkju.
14.00 Róbert Birkir Viggósson, Heima-
haga 9, Selfossi, verður jarðsung-
inn frá Reyniskirkju.
14.00 Þórdís Pálína Einarsdóttir verður
jarðsungin frá Eskifjarðarkirkju.
14.00 Þórhildur Björg Kristjánsdóttir,
Ketilsbraut 5, Húsavík, verður
jarðsungin frá Húsavíkurkirkju.
Að hugsa. Og af því að það kost-ar ekki neitt þá er eins gott að
hugsa nógu stórt. Ekki um baðflís-
ar eða annan hégóma. Heldur
frekar um Suðurhafseyjar eða
jafnvel heimsyfirráð. Teygja sig
inn í leyndustu afkima sálarinnar
og draga þar fram skrautútgáfur
af því geggjaðasta. Gætið þess
bara að hugsa ekki upphátt. Það
gæti orðið dýrkeypt. Í hljóði er
þetta ókeypis. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T