Fréttablaðið - 01.02.2003, Page 48
Veikindadagar eru fyrirferðar-miklir í íslensku atvinnulífi.
Þykja sjálfsagðir og fólk tekur þá
út eins og sumarfrí. Reiknar þá út
á mánaðarbasis og nýtir í botn.
Veikindadagar eru hluti af kjara-
samningum og einhver glæstasti
árangur verkalýðshreyfingarinn-
ar í viðleitni hennar til að láta
fólk vinna sem minnst. Að vísu
veikjast sumir. Aðrir hvíla sig.
Í Bandaríkjunum er annað
uppi á teningnum. Þar hafa menn
hvorki tíma né kjark til að verða
veikir. Þar verða menn að standa
sína pligt því annars gengur ein-
hver annar í starfið og það jafn-
vel til frambúðar. Þess vegna eru
verslanir í Ameríku fullar af með-
ulum sem varna því að fólk fái
kvef, hálsbólgu eða hósta. Fékk
þetta þrennt einu sinni ytra og fór
þá í Wal Mart. Keypti eiturgult
flensumeðal í sírópsformi sem
hét Day-break. Það átti að taka á
daginn. Annað fjólublátt fylgdi og
það hét Night-break. Átti að taka
á næturnar. Viðkomu eins og
klístraður kandís og sagt sterkara
en hitt.
Skellti í mig sopa af þessu eit-
urgula á götu úti. Útlimir dofnuðu
og urðu loftkenndir. Áhrifin á
heilann svipuð. Fór inn á Star-
bucks og pantaði mér kaffi á
dönsku. Þorði ekki að taka þetta
fjólubláa. Fyrr en um daginn þeg-
ar ég fékk hastarlegt kvef í frost-
inu í Reykjavík. Hafði ekki tíma
til að vera veikur.
Skrúfaði tappann af Night-
breakinu og hellti fjólubláum,
seigfljótandi vökvanum í tappa
sem fylgdi. Drakk eins og snaps
og settist niður til að fylgjast með
leik Íslendinga og Spánverja í
Portúgal. Eftir nokkrar mínútur
leið mér eins og á ópíumbúllu. Ís-
lensku strákarnir á skjánum
breyttust í litfögur fiðrildi og
íbúðin í geimfar. Ef maður talaði
dönsku eftir Day-breakið þá hugs-
aði maður á kínversku eftir
Night-breakið.
Vaknaði upp morguninn eftir
og fékk að vita að strákarnir okk-
ar hefðu tapað. Ég hafði hins veg-
ar sigrað kvefið. Stálsleginn sem
aldrei fyrr. Bandaríska aðferðin
hafði sigrað íslensku veikindadag-
ana. Kannski ætti ASÍ að ná sér í
umboðið?
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
www.IKEA.is
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
Made in USA
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
Geymt en ekki gleymt
Laugardaga ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudaga....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudaga - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30
((
250 kr. 990 kr.
1.990 kr. 790 kr.
1.750 kr.
8.900 kr.
1.490 kr.990 kr.
990 kr.
BRANÅS
karfa 32x35 sm
HÅBOL
kassi m/loki
39x26x17,5 sm, 2 í pk.
LIDINGBY
karfa 28x28x30 sm
KNEP
kassi m/loki
39x48x34 sm 2 í pk.
MOPPE
smáhirsla
32x19x33 sm
MACKIS
kassar m/loki 3 í pk.
GASTA
kassi m/ loki
55x43x18 sm
2 í pk.
EMU
kassi m/loki
2 í pk
IVAR hillueining 83x50, H179 sm