Fréttablaðið - 28.03.2003, Side 26
26 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR
KLESSTUR VIÐ GLERIÐ
Það er oft hart barist í bandarísku NHL-
deildinni í íshokkí. Það sannaðist í leik
Phoenix Coyotes og Calgary Flames á dög-
unum þegar Shane Doan, leikmaður
Flames, ýtti Steve Montador hjá Coyotes
harkalega upp við glerið. Hvorugum varð
þó meint af enda teljast slíkar hrindingar
aðeins eðlilegur hluti af leiknum.
Íshokkí
BT Skeifunni • BT Hafnarfirði • BT Kringlunni
BT Smáralind • BT Akureyri • BT Egilsstöðum
#2
#3
#4
Pizza frá
Domino´s
2 Lítrar af
kók og 6 glös
Bíómiði
á Final
Destination
Áskrift að Sýn
til 7. apríl 2003
fylgir með 500
fyrstu leikjunum*
4.999
Kaupauki #1
Sjáðu Man. Utd.
og Liverpool í beinni!
laugardaginn 5. apríl
Ótrúlegirkaupaukarfylgja!
*Gildir aðeins fyrir þá sem eru
nú þegar með afruglara frá ÍÚ
KAPPAKSTUR David Coulthard, liðs-
maður McLaren í Formúlu 1
kappakstrinum, hefur fulla trú á
því að hann geti barist um heims-
meistaratitilinn á þessari leiktíð
svo lengi sem nýi bíllinn frá Mc-
Laren sé álíka góður og nýi bíllinn
frá Ferrari.
„Ef við mætum til leiks í góðu
formi og bíllinn er fljótur getur
allt gerst,“ sagði Coulthard í ný-
legu viðtali.
Nýju bílar beggja liða verða
kynntir til sögunnar á næstunni.
Búist er við því að bíllinn frá
Ferrari verði tilbúinn í næsta
mánuði en bíll McLaren ekki fyrr
en í maí í fyrsta lagi. ■
David Coulthard:
Allt getur
gerst
COULTHARD
David Coulthard ætlar ekkert að gefa eftir
á þessu keppnistímabili í Formúlu 1.
FÓTBOLTI Þýska knattspyrnufélagið
Schalke sagði þjálfaranum Frank
Neubarth upp störfum á miðviku-
dag. Neubarth tók við Schalke í
fyrra en tókst ekki að fylgja eftir
góðu gengi félagsins á sex ára
valdatíð Huub Stevens.
Neubarth er sjötti þjálfarinn í
Búndeslígunni þýsku sem missir
starf sitt í vetur og sá 266. frá
stofnun deildarinnar árið 1963.
Þar með hafa uppsagnir vetrarins
náð meðaltalinu í 40 ára sögu
deildarinnar. Marc Wilmots, leik-
maður Schalke, var ráðinn eftir-
maður Neubarth.
Schalke er í 6. sæti Búndeslíg-
unnar og efst þeirra félaga sem
hafa rekið þjálfara sinn í vetur.
Schalke hefur ekki unnið leik frá
því um miðjan febrúar og mögu-
leikarnir á sæti í Meistaradeild-
inni hafa minnkað verulega. Auk
þess var Schalke slegið snemma
út úr UFEA-bikarnum og þýsku
bikarkeppninni.
Andreas Brehme var rekinn
frá Kaiserslautern þegar eftir 3.
umferð í haust, Wolfgang Wolf frá
Wolfsborg og Hans Meyer frá
Borussia Mönchengladbach í
byrjun mars og Austurríkismað-
urinn Peter Pacult frá 1860
München um miðjan þennan mán-
uð.
Klaus Toppmöller kom Bayer
Leverkusen í hæstu hæðir í fyrra
og keppti félagið um veigamestu
titlana í Evrópu og heima fyrir.
Framhaldið var ekki á sömu nót-
um og lauk þeirri raunasögu með
því að félagið sagði Toppmöller
upp störfum um miðjan síðasta
mánuð.
Klaus Augenthaler, þjálfari
Nürnberg, fékk stuðningsyfirlýs-
ingu stjórnar eftir 0:3 tap gegn
Hertha fyrir tíu dögum. Þannig
yfirlýsingar hafa oftar en ekki
reynst undanfari uppsagnar.
Andstaðan við örlög þessara
manna er staða Eduard Geyer,
þjálfara Energie Cottbus. Félagið
hefur verið í neðsta sæti deildar-
innar í allan vetur en engu að síð-
ur framlengdi félagið samninginn
við Geyer í upphafi árs og mun
hann halda starfinu hvort sem
Energie heldur sæti sínu í deild-
inni eða ekki. ■
Þriðjungur rekinn
og einn í hættu
Frank Neubarth var rekinn frá Schalke á miðvikudag. Sex af átján
þjálfurum í þýsku Búndeslígunni hafa misst starf sitt í vetur.
SCHALKE
Leikmenn Schalke hafa ekki staðist álagið í
vetur eftir velgengni undanfarin ár.
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Liechtenstein og England
leika í undankeppni Evrópumeist-
arakeppninnar 2004 á laugardag.
Leikið verður á Rheinparkstadion í
höfuðstaðnum Vaduz og er uppselt
á leikinn fyrir löngu. Völlurinn
rúmar 3.548 áhorfendur eftir end-
urbyggingu sem lauk árið 1998.
Andstæðurnar verða varla
meiri í evrópskri knattspyrnu en í
viðureign þessara þjóða. Englend-
ingar léku fyrsta landsleik knatt-
spyrnusögunnar gegn Skotum árið
1872 en viðureignin gegn Liechten-
stein verður 800. leikur þeirra.
Liechtenstein leikur hins vegar
sinn 62. landsleik. Liechtenstein
hefur sigrað Kína, Azerbaídsjan,
Indónesíu og Malasíu og gert jafn-
tefli í sjö landsleikjum, þar á með-
al gegn Írlandi, Makedóníu og
Ungverjalandi á heimavelli.
Liechtenstein hefur tapað 50 leikj-
um og markatalan er þegar orðin
óhagstæð um 200 mörk.
Engin deildakeppni er í
Liechtenstein en bikarkeppnin
hófst árið 1946. FC Vaduz hefur 31
sinni orðið bikarmeistari og er um
þessar mundir sterkasta félag
Liechtenstein. Sjö leikmanna byrj-
unarliðs Liechtenstein leika með FC
Vaduz. Félagið, sem var stofnað árið
1932, keppir í svissnesku deildinni
eins og önnur félög frá Liechten-
stein. Vaduz á góða möguleika á
sæti í efstu deild á næsta tímabili.
Góður árangur í B-deildinni dugar
þó ekki einn og sér því samkomulag
Sviss og Liechtenstein gerir ekki
ráð fyrir að félög frá smáríkinu
megi leika í efstu deild. ■
Liechtenstein - England:
Þegar andstæðurnar
verða mestar
MICHAEL OWEN
Liechtenstein og England leika í Vaduz á morgun. Enskir veðbankar telja góðar líkur
á því að Owen og félagar skori tíu mörk í leiknum.