Fréttablaðið - 28.03.2003, Síða 36
■ ■ FUNDIR
8.00 Morgunmálþing um áhrif um-
bóta í ríkisrekstri 1991-2000 verður
haldið Grand Hótel í Reykjavík. Aðalfyr-
irlesari verður Ómar H. Kristmundsson,
sem nýverið hefur skrifað doktorsritgerð
um efnið. Friðrik Sophusson, Magnús
Pétursson, Sigurður Þórðarson, Þor-
kell Helgason og Birgir Björn Sigur-
jónsson taka þátt í umræðum.
9.00 Örverufræðifélag Íslands efnir
til ráðstefnu um örverur og þorsk í
Norræna húsinu. Fjallað verður um
mikilvægi þorsks fyrr og nú, um örverur
og sníkjudýr í þorski og örverur í fiskiðn-
aði.
12.00 Ólafur Þ. Harðarson, pró-
fessor, flytur fyrirlestur um samkyn-
hneigð og breytingar á gildismati al-
mennings á Vesturlöndum. Fyrirlesturinn
er haldinn í stofu 101 í Odda, Háskóla
Íslands, í röð hádegisfyrirlestra sem
Samtökin 78 efna til í samvinnu við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands, Mann-
réttindaskrifstofu Íslands og FSS, Félag
samkynhneigðra og tvíkynhneigðra
stúdenta.
12.00 Á friðarstund í Neskirkju í
hádeginu munu Martin Frewer, fiðlu-
leikari, Dean Ferrell, bassaleikari og
Steingrímur Þórhallsson, organisti flytja
Rósakranssónötur eftir Biber. Séra Örn
Bárður Jónsson, flytur ritningarorð og
leiðir bænagjörð. Fólk er hvatt til að
sýna samstöðu með saklausum fórnar-
lömbum stríðsins í Írak og biðja fyrir
þeim og deiluaðilum beggja vegna víg-
línunnar.
13.00 Faghópur leikskólasérkenn-
ara og Félag leikskólakennara standa
fyrir námstefnu um fötluð börn í leik-
skólum á Hótel Sögu í Reykjavík. Aðal-
fyrirlesari verður Ulf Janson, heimspek-
ingur og prófessor í menntunarfræðum
við Stokkhólmsháskóla. Hrönn Pálma-
dóttir lektor við Kennarháskóla Íslands
flytur einnig erindi við upphaf námstefn-
unnar.
15.00 Ráðstefna um Evrópusam-
bandið og byggðamál verður haldin í
stofu L201 á Sólborg á Ísafirði. Valgerð-
ur Sverrisdóttir, Halldór Halldórsson
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytja er-
indi. Búist er við líflegum umræðum um
borgarmál og byggðamál.
16.30 Kanadíski sagnaþulurinn
Ruth Christie heldur fyrirlestur í Þjóðar-
bókhlöðunni, þar sem hún segir frá
fjölskyldu sinni og samskiptum hennar
við íslensku innflytjendurna sem settust
að á „Nýja Íslandi“ árið 1875. Langa-lan-
gafi hennar var indíáninn John Ramsey
sem reyndist íslenskum innflytjendum
mjög vel.
■ ■ KVIKMYND
17.15 Heimildarmyndin Dagsverk
eftir Kára Schram verður sýnd á sýningu
helgaðri Degi Sigurðarsyni í Nýlista-
safninu.
■ ■ LEIKSÝNINGAR
14.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn
kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ.
Sýningum fer fækkandi.
20.00 Rauða spjaldið eftir
Kjartan Ragnarsson og Sigríði Mar-
gréti Guðmundsdóttur er sýnt á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst
Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Maðurinn sem hélt að
konan hans væri hattur eftir Peter
Brook og Marie-Hélène Estienne Nýja
sviði Borgarleikhússins.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
21.00 Leikritið Beyglur með öllu
verður sýnt í næst síðasta sinn í Iðnó í
kvöld.
■ ■ SKEMMTANIR
24.00 Hollenska hjómsveitin Instil
leikur á Grand Rokk ásamt Changer og
Dys.
Sálin hans Jóns míns skemmtir á
Gauk á Stöng í kvöld.
Á Broadway verður í kvöld frumsýnd
Eurovision söngskemmtun í beinni,
þar sem farið verður yfir þekktustu vinn-
ingslögin úr keppninni og nokkrum ís-
lenskum skotið inn á milli. Söngvarar
eru Davíð Olgeirsson, Hafsteinn Þórólfs-
son, Hjördís Elín Lárusdóttir, Guðrún
Árný Karlsdóttir og Guðbjörg Magnús-
dóttir. Hljómsveitarstjóri er Gunnar Þórð-
arson.
Le’ Sing á litla sviðinu í Broadway.
Rally-Cross verður á miðhæðinni á
22.
DJ Andri rokkar á Laugavegi 11.
DJ Kúreki og Valkvíði skemmta á
Vídalín.
Þór Óskar trúbador skemmtir á
Kránni.
Óskar Einarsson trúbador leikur á
hollenska staðnum De Boomkikker
við Hafnarstræti.
Hljómsveitin Víkingasveitin leikur á
Fjörukránni í Hafnarfirði.
Hljómsveitin Hunang spilar á
Champions Café.
Dúettinn Acoustic skemmtir á Ara í
Ögri.
Ókeypis inn í kvöld á Johnny Dee í
Leikhúskjallaranum.
DJ. Master heldur uppi stuði langt
fram á morgun á Café Amsterdam.
Hljómsveitin Á móti sól leikur á
stórdansleik að lokinni krýningu Fegurð-
ardrottningar Suðurlands á Hótel Örk í
Hveragerði.
Hljómsveitin Í svörtum fötum
skemmtir í Félagsheimilinu á Hnífsdal.
Hljómsveitin 3some spilar á Celtic
Cross.
■ ■ SÝNINGAR
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovéskum
veggspjöldum úr eigu safnsins, sem
hafa ekki komið áður fyrir almennings-
sjónir. Heilbrigði, hamingja og friður er
yfirskrift sýningarinnar.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir einka-
sýning Patrick Huse sem nefnist
Penetration. Sýningin er síðasti hluti
trílógíu sýninga listamannsins, sem fjalla
um samband manns og náttúru á norð-
urslóðum.
Hlutabréf í sólarlaginu nefnist sýn-
ing helguð Degi Sigurðarsyni, sem
hófst um síðustu helgi í Nýlistasafninu.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðu-
listir og frásagnarhefðir Indlands
stendur yfir í Listasafninu á Akur-
eyri. Þetta er í fyrsta sinn sem ind-
versk myndlist er kynnt með jafn víð-
feðmum hætti hér á landi.
36 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 31
MARS
Föstudagur
Vestur-Íslendingar hafa talaðmikið um samskipti sín við
frumbyggja Kanada, og jafnan
lagt áherslu á hve þau samskipti
voru góð. Frægar eru sögurnar
af indjánahöfðingjanum John
Ramsey, sem reyndist íslensku
innflytjendunum afar vel.
„Ég er fyrsti afkomandi John
Ramseys, sem kemur til Ís-
lands,“ segir kanadíski sagnaþul-
urinn Ruth Christie. Ramsey var
langalangafi hennar. Hún þekkir
hina hliðina á samskiptum frum-
byggja við íslensku innflytjend-
urna. Og frá þeirri hlið er sagan
ekki alveg samhljóða þeirri sem
sögð hefur verið í hópi Íslend-
inga.
Til dæmis kom upp smitfar-
aldur sem dró flesta úr hópi
langalangafa míns til dauða.
„Þegar þeir báðu um hjálp, sem
þeir þurftu mjög á að halda,
fengu þeir enga nema hafa ein-
hver verðmæti til að gefa í stað-
inn. Þetta var virkilega sorglegt.
Í raun og veru voru Íslending-
arnir að ræna frumbyggjahóp-
inn.“
Hún segir móður sína hafa
alist upp fyrir norðan bæinn
Riverton, þar sem Íslendingar
voru fjölmennir. „Þegar fólk
gerði sér ferð í bæinn fór það í
sín bestu föt, var nýstrokið og
með peninga á sér. Móðir
mín sagði mér að íslenskir
karlmenn hefðu þá komið
út úr bjórkránum, gert
hróp að frumbyggjakon-
um og jafnvel hrækt á
þær. Hún sagði reynd-
ar að þetta hefði svo
snúist við, því sumir
íslensku karlmenn-
irnir fundu sér eig-
inkonur úr hópi
frumbyggja.“
Sjálf segist Ruth Christie
hafa verið alin upp við að vera
stolt af uppruna sínum. Sam-
skiptin við Íslendinga voru líka
oft á tíðum mjög góð. Hún segist
muna vel eftir Íslendingi, Árna
Jónssyni, sem var fjölskyldu-
vinur á heimili hennar í æsku.
„Hann reyndist mér mjög
vel, setti mig oft á hné sér og ég
man að ég togaði í eyrun á hon-
um.“
Ruth Christie
forðast eins og
heitan eldinn að
nota orðið
„ i n d j á n a r “ ,
enda er það
sprottið af
misskilningi
K r i s t ó f e r s
Kólumbusar
forðum daga.
Hún flytur fyrirlestur í Þjóð-
arbókhlöðunni í dag, þar sem
hún segir frá samskiptunum við
Vestur-Íslendinga. Á morgun
klukkan tvö ætlar hún að segja
frá tungumáli Cree-ættbálksins
á sama stað. Næstu vikurnar
verður hún svo á ferð um landið
að segja sögur í skólum og sam-
komuhúsum. ■
■ SAGNAÞULUR
Vestur-Íslendingar
og frumbyggjarnir
SAGNAÞULURINN
RUTH CHRISTIE
Hún hefur margar sög-
ur að segja af sam-
skiptum Vestur-Íslend-
inga við frumbyggja
Kanada. Í dag má
hlýða á mál hennar í
Þjóðarbókhlöðunni
klukkan 16.30.
KRISTJÁN BJARKI JÓNASSON
Ég væri sannarlega til í að fara áráðstefnu um byggðamál og
Evrópusambandið,“ segir Krist-
ján Bjarki Jónasson, útgáfustjóri
Forlagsins. „En því miður er hún
haldin á Ísafirði og þangað er of
langt. Enn er ég ekki búinn að sjá
hina rómuðu sýningu Beyglur
með öllu og vegna þess að nú eru
allra síðustu sýningar ætla ég að
skella mér. Og ef einhver dugur
væri í manni færi maður á krýn-
ingu Fegurðardrottningar Suður-
lands á Hótel Örk til að sjá sætar
stelpur.“
Val Kristjáns Bjarka
Þetta lístmér á!
Þetta er bestaleikrit Ólafs
Jóhanns til
þessa,“ segir
Gísli Marteinn
B a l d u r s s o n
þáttastjórnandi.
„Persónurnar eru vel skrifaðar og
samtölin áreynslulaus. Jóhann
Sigurðarson fer á kostum í sýn-
ingunni og leikritið er oft fyndið.
Maður hefur svo sem séð verk
með flóknari fléttu en á heildina
litið er Rakstur góð skemmtun.“
Mittmat
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ
Laugard. 22 mars kl:14 og 17
Sunnud. 23 mars kl:14 og 17
Laugard. 29 mars kl:14
Sunnud. 30 mars kl: 14
Laugard. 5. apríl kl:14
Laugard. 12 apríl kl:14
Miðasala allan sólarhringinn
í s í m a 5 6 6 - 7 7 8 8
Laugavegi 32 561 0075
✓
✓
✓
✓