Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 15
Kristjana Kristjánsdóttir
göngugarpur . . . . . . . . . . .2
Frá Berlín í
Svarfaðardalinn . . . . . . . . .4
Nennir ekki í tjald . . . . . . .8
Norðurland . . . . . . . . . . .14
Suðurland . . . . . . . . . . . .17
Austurland . . . . . . . . . . . .16
Vesturland og
Vestfirðir . . . . . . . .12 og 13
Fossahopp . . . . . . . . . . . .9
Hvalaskoðun
frá Reykjavík . . . . . . . . . .18
Einar Stefánsson verkfræðingurog eiginkona hans, Sigurlaug
Þórðardóttir hárgreiðslukona, eru
dugleg við ferðalög innanlands.
Þau eiga þrjár dætur, Arndísi,
Stefaníu og Katrínu, sem eru sjö,
fjögurra og hálfs árs gamlar. Fjöl-
skyldan hefur mikið dálæti á
tjaldútilegum hvers konar og vílar
ekki fyrir sér að fara um hálendið
og á jökla.
„Áhuginn vaknaði strax þegar
ég var strákur,“ segir Einar, „fjöl-
skyldan mín ferðaðist mikið og svo
er ég búinn að vera í hjálparsveit
mörg ár.“ Þau hjónin og dæturnar
þrjár ferðast með tjald yfir sumar-
tímann, „og stundum gamlan tjald-
vagn,“ segir Einar.
„Sú yngsta hefur reyndar enn
ekki farið í tjald, en ég hef farið
með þær allar litlar á jökla. Við för-
um í jeppatúra á veturna, en þegar
stelpurnar eru með reynum við að
þræða skála. Þeim finnst þetta
mjög gaman. Það var kannski tíma-
bil hjá hverri þeirra sem þær urðu
hálf órólegar í bíl, en við höfum
verið á ferðinni allt upp í 18 tíma án
þess að það hafi verið vandamál.“
Nenna ekki á ferðamanna-
staði yfir sumartímann
Einar segir engan stað í sér-
stöku uppáhaldi. „Við fórum Vest-
firðina þrjú ár í röð og langar að
fara Austfirðina núna, sem við
höfum reyndar farið áður. En við
eigum svona okkar prívat staði
þar sem við komumst út úr
túrismanum. Við viljum gjarnan
komast inn í einhverja dali svona
til hliðar, þar sem við höfum læki
og vötn út af fyrir okkur. Ég er
ekki mikið fyrir dæmigerða
ferðamannastaði eins og Skafta-
fell eða Landmannalaugar, ég
nenni því ekki yfir sumarið.“
Utanlandsferðir
að vori eða hausti
Einar segir þau stundum fara í
Þórsmörk en þá bara í þeim tilfell-
um þegar um sérstakar uppákom-
ur er að ræða.
Fjölskylda ferðast jafnt ein og í
hóp. „Það er mjög stór vinahópur í
kringum okkur, bæði er ég búnn
að vera í hjálparsveit í 15 ár og
þar er stór hópur, og svo erum við
í ferðaklúbbi. En okkur finnst líka
ljúft að vera ein einhvers staðar.“
Þau fara úr bænum nánast
hverja helgi og tvisvar yfir sum-
arið í tveggja vikna ferðalag.
Einar segist þó ekkert hafa á
móti utanlandsferðum. „Við fór-
um til Danmerkur fyrir tveimur
árum, en mér finnst persónulega
skemmtilegra að ferðast innan-
lands. Konunni minni og stelpun-
um finnst auðvitað mjög gaman að
fara utan af og til, en við tímum
helst ekki að eyða sumrinu í það.
Við förum þá frekar snemma að
vori eða þegar líður að hausti.
Þannig framlengjum við líka sum-
arið.“ ■
Á ferð um landið
allt sumarið
Börnin hin rólegustu
í 18 tíma bílferð
FJÖLSKYLDA Á FARALDSFÆTI
Einar Stefánsson og Sigurlaug
Þórðardóttir víla ekki fyrir sér
langar bílferðir með börnin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ferðalög innanlands
Sérblað um ferðalög 4. júní 2003
ÖRN ÁRNASON
Mikill
tími í át
bls. 6
BRAUTRYÐJANDI
Björn „Bassi“
Gíslason
bls. 8
Á „STOLNU SKIPI“
Hvalaskoðun
frá Reykjavík
bls. 18
Meðal efnis: