Fréttablaðið - 04.06.2003, Qupperneq 19
Hildur Helga Sigurðardótt-ir, fréttamaður og fram-bjóðandi Nýs afls í nýaf-
stöðnum alþingiskosningum,
segir Þingvelli vera þann stað á
landinu sem hún hefur hvað
sterkastar taugar til. „Þingvellir
eru náttúrlega engu líkir. Bæði
er það sagan, náttúran, stemmn-
ingin og birtan. Mér finnst Þing-
vellir vera svona töfrastaður,“
segir hún.
Hildur Helga dvaldist löngum
á Þingvöllum sem barn og þekkir
staðinn vel á öllum árstíðum.
„Pabbi var alltaf í Þingvallanefnd
og nefndin hafði aðgang að íbúð í
prestbústaðnum, sem er reyndar
núna orðinn sumarbústaður for-
sætisráðherra. Bærinn var auð-
vitað miklu minni þá en þar
bjuggu nú samt séra Eiríkur og
frú Kristín með mikinn barna-
skara. En mér finnst sumsé alltaf
yndislegt á Þingvöllum, sama
hvernig viðrar, og hver árstíð
hefur sína töfra. Nálægðin við
vatnið, þó það sé djúpt og kalt, er
einhvern veginn svo seiðandi og
engu lík.“
Vötn sem glampa eins og
óteljandi silfurdiskar
Hildur Helga viðurkennir að
hún sé ekki mikið fyrir tjaldferð-
ir, það sé ekki alveg hennar
deild. „En mér finnst ofsalega
gaman að fara á hesbak og reyni
að fara á hverju sumri í nokk-
urra daga hestaferðir. Að ríða út
með góðu fólki er mín uppáhalds-
útivist í íslenskri náttúru.“ Hild-
ur Helga hefur riðið á Þingvöll
og talsvert í Borgarfirðinum og
reið yfir Arnarvatsnheiði, sem
hún segist verða að telja upp sem
eina af perlunum í íslenskiri
náttúru. „Við riðum heiðina
þvers og kruss, veiddum okkur
til matar í vötnunum og gistum í
sæluhúsi efst á heiðinni. Að vera
einn um sumarnbótt á Arnar-
vatnsheiði að veiða fyrstu bleikj-
una slær allt út.“
Vötnin eru eitt af því sem er
óteljandi á Íslandi og glampa
eins og þúsund silfurdiskar.“
Hildur tók sem kunnugt er
þátt í kosningaslagnum í vor fyr-
ir Nýtt afl og var þar af leiðandi
á ferð um sitt kjördæmi í vor.
„Ég komst því miður ekki yfir
að heimsækja nema takmarkað-
an hluta af kjördæminu, en það
sem ég fór um Vestfirðina var al-
veg stórkostlegt. Hrikaleg og
dramatísk fegurð. Mér finnst
meira að segja Þorskafjarðar-
heiðin fögur.“
það er ekki skrýtið að Hildur
Helga telji Vestfirðina með sem
einn af uppáhaldsstöðunum því
hún er ættuð að vestan. „Pabbi er
fæddur og uppalinn í Vigur og
frændur mínir búa þar ennþá.
Fjölskyldan er líka með sumar-
hús í Vigur og þangað reyni ég að
komast á hverju sumri. Þarna er
mikil paradís fyrir börn og bara
frábært að vera.“
Nú er Hildur Helga komin á
flug og vil endilega nefna Snæ-
fellsnesið. „Að ógleymdum ynd-
islegum stöðum í Húnavatnssýsl-
um og Skagafirði,“ segir hún og
skellihlær. „Ísland er bara slíkt
undraland.“ ■
Uppáhalds
staðurinn minn
4. júní 2003
g g
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
12
61
05
/2
00
3
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
...fyrir
kröfuharða
Meindl Island eru einna mest seldu
gönguskór í Evrópu síðastliðin 10 ár.
Lesendur Outdoor í Þýskalandi völdu
Meindl Island bestu gönguskóna 2001.
Eigum úrval af Meindl gönguskóm,
allt frá léttum og þægilegum til
sterkra og öflugra.
Komdu og prófaðu.
Þeir henta þér líka.
Meindl Island. Sérlega gott
lag fyrir íslenska fætur.
Vatnsvarið nubuk leður. Heil
tunga og sérlega vandaður
frágangur. Frábærlega léttir!
Aðeins 830 g (stærð 42).
Vatnsvörn og útöndun með
Gore-Tex. Úrvals vibram
veltisóli með fjöðrun. Mjög
góður stuðningur við ökkla.
Fáanlegir í herra- og
dömustærðum.
Góðir gönguskór...
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
12
61
05
/2
00
3
...fyrir
kröfuha ða
Meindl Island eru einna mest seldu
gönguskór í Evrópu síðastliðin 10 ár.
Lesendur Outdoor í Þýskalandi völdu
Meindl Island bestu gönguskóna 2001.
Eigum úrval af Meindl gönguskóm,
allt frá léttum og þægilegum til
sterkra öflugra.
Komdu og prófaðu.
Þeir henta þér líka.
Meindl Island. Sérlega gott
lag fyrir íslenska fætur.
Vatnsvarið nubuk leður. Heil
tunga og sérlega vandaður
frágangur. Frábærlega léttir!
Aðeins 830 g (stærð 42).
Vatnsvörn og útöndun með
Gore-Tex. Úrvals vibram
veltisóli með fjöðrun. Mjög
góður stuðningur við ökkla.
Fáanlegir í herra- og
dömustærðum.
HILDUR HELGA
Hefur taugar til margra staða á landinu
sínu góða, en nefnir þó sérstaklega Þing-
velli, Vestfirði og Arnarvatnsheiðina.
Undralandið
Ísland
www.utilif.is Góðir gönguskór...