Fréttablaðið - 04.06.2003, Qupperneq 22
Fyrstu helgina í júlí verðursérstakur dagur á Bakkaflötí Skagafirði helgaður Birni
Gíslasyni, Bassa, sem var braut-
ryðjandi í gúmmíbátasiglingum á
íslenskum ám ásamt Villu, konu
sinni. Þau komu fyrst að Bakka-
flöt árið 1993 og prófuðu að sigla
Vestari- og Austari-Jökulsárnar
með vini og kunningja með sér í
bátunum. Þegar árnar höfðu ver-
ið prófaðar við mismunandi að-
stæður og starfsfólk verið þjálf-
að var loks farið að bjóða upp á
fastar ferðir niður þessar ár . Síð-
an hafa þúsundir manna notið
þeirrar upplifunar sem dró þau
Bassa og Villu að þessum
skemmtilegu ám.
Á Bassadegi er vinum, kunn-
ingjum og öðrum velunnurum
Bassa boðið upp á að koma á
Bakkaflöt og í siglingar niður
Austari- og Vestari-Jökulsár. Öll
innkoma af siglingum þessum á
Bassadegi rennur óskipt í ferða-
sjóð fjölskyldu Bassa. Allar upp-
lýsingar og bókanir hjá Bátafjöri
á Bakkaflöt í síma 453-8245 eða
bakkaflot@islandia.is. ■
4. júní 20038 Ferðalög innanlands
Í 40 ár hefur Avis gert betur – Það er betra.
Við erum í 170 löndum og á 5000 stöðum.
Minnum á tilboð Visa og Avis.
Barcelona, Milano og Verona.
Hringdu í síma 591 4000
Póstfang: avis@avis.is - heimasíða: www.avis.is
We try harder – Við gerum betur
Avis auglýsing frá árinu 1963 enn í fullu gildi
Brautryðjandi
í gúmbátasiglingum
Ari Trausti Guðmundsson erekki bara þekktur veður-fræðingur og skáld heldur
líka mikill náttúruunnandi sem
hefur yndi af að ferðast og klífa
fjöll. Aðspurður um uppáhalds-
stað kemur hik á Ara Trausta, sem
segir það vissulega fara eftir því
hvort hann er einn á ferð eða með
fjölskyldunni. „Ef ég ætlaði að
gera eitthvað bara fyrir sjálfan
mig og klifra færi ég til dæmis
inn í Kálfafellsdal í Suðursveit.
Það er mjög flottur staður og sem
betur fer ekki bílvegur nema
hluta leiðarinnar inn í dalinn, sem
er mjög langur og mjór. Dalurinn
skerst inn í suðurhlíðar Vatnajök-
uls og allt í kringum hann eru fjöll
sem eru á bilinu 1.000-1.500 metr-
ar. Í endann fellur skriðjökull sem
mjög fáir þekkja og heitir Brókar-
jökull. Heillandi staður,“ segir Ari
Trausti. „Ef ég ætti hins vegar að
nefna stað sem er aðgengilegri
flestum yrði það örugglega
Langisjór inn á Suðuröræfum.
Langisjór gengur upp af Suður-
landinu og nær inn undir Vatna-
jökul fyrir norðan Eldgjá. Þetta er
einhver fallegasti staður á land-
inu.“
Ari Trausti segir einhverja
jeppaslóð að suðurenda vatnsins,
en ekki sé fært fólksbílum. „Það
geta þó flestir komist þarna inn
eftir og þar er gríðarleg náttúru-
fegurð.
Til að nefna svo einn stað sem
er aðgengilegur öllum nefni ég
Arnarstapa og svæðið í kringum
Snæfellsjökul. Þangað er auðvelt
að komast og eitthvað fyrir alla til
að njóta.“
Ari Trausti kveðst ekki vera
mikil tjaldmaður núorðið. „Ég er
búinn að liggja í tjaldi meira og
minna alla ævi frá þremur og upp
í fjórar vikur í senn og er búinn að
fá nóg af því.“ Hann segist þó enn
gista í tjaldi af og til, en aðallega
sæluhúsum. ■
Íshestar hafa boðið upp á ævin-týraferðir um innsveitir og há-lendið í rúm 20 ár og í sumar
bjóða þeir upp á ferð um Eyja-
bakka og Dimmugljúfur. Að sögn
Ingvars Jónssonar hjá Íshestum er
lagt af stað á sunnudegi og komið
aftur til byggða á laugardegi sex
dögum síðar. Hann segir Íslend-
inga einhverra hluta vegna sjald-
séða í þessum ferðum, en það sé
hins vegar ólýsanleg upplifun að
ferðast um landið á baki íslenska
hestsins. „Þátttakendur þurfa ekk-
ert að taka með sér nema reiðfatn-
að og góða skapið því að Íshestar
sjá um allt annað, eins og hesta,
reiðtygi, regngalla, svefnpoka,
fæði og húsnæði,“ segir Ingvar.
„Þetta mun verða í síðasta
skipti sem tækifæri gefst til að
skoða þetta umtalaða svæði á hest-
baki áður en því verður sökkt und-
ir vatn. Íshestar munu þó að sjálf-
sögðu halda áfram ferðum um
Austurland og hver veit nema að
nýr áningarstaður ferðarinnar
verði kaffi og kleinur í stjórnstöð
Landsvirkjunar við Eyjabakka?“
segir Ingvar. ■
BJÖRN GÍSLASON
Sérstök hátíð verður til-
einkuð Birni, eða
Bassa, á Bakkaflöt í
Skagafirði í byrjun júlí.
Dagur
helgaður Bassa
Uppáhalds
staðurinn minn
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
Sækir helst á fáfarna staði þar sem hann
getur klifið fjöll. Hann nefnir þó Snæfells-
nesið sem frábæran stað sem er aðgengi-
legur öllum.
Nennir
helst ekki
í tjald lengur
HESTAR Í ÍSLENSKRI NÁTTÚRU
„Að ferðast um landið á hestbaki er ólýsanleg upplifun,“ segir Ingvar.
Hestaferð um Eyjabakka:
Síðustu forvöð