Fréttablaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 4
4 6. september 2003 LAUGARDAGUR Hvernig fer landsleikur Íslands og Þýskalands? Spurning dagsins í dag: Viltu að ríkisstjórnin taki áskorun Grænfriðunga um að fá til landsins ferðamenn úr þeirra hópi í stað hval- veiða? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 51,5% 26,9% Þýskaland sigrar 21,5%Jafntefli Ísland sigrar Kjörkassinn ■ ÍrakUtanríkisráðuneytið segir enga ástæðu til að óttast GATS: Ekki frjáls aðgangur að þjónustu STJÓRNMÁL Íslensk sendinefnd, með Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra í fararbroddi, mun halda á lofti sjónarmiðum Íslands á ráðherrafundi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar sem hefst í Mexíkó á miðvikudag. Á viðskiptaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins fengust þær upp- lýsingar að svokallaður GATS- samningur, sem fjallar um við- skipti með þjónustu, verði lítt eða ekki ræddur í Mexíkó. Þar verði megináhersla lögð á landbúnaðar- vörur annars vegar og aðra vöru- flokka hins vegar. Þess utan væri engin ástæða til að óttast að GATS-samningurinn yrði látinn ná til opinberrar þjónustu eins og Páll Hannesson hjá BSRB hefur haldið fram. Í landbúnaðargeiranum er hug- myndin sú að iðnveldin slaki á styrkja- og verndartollastefnu og auðveldi þar með þróunarríkjum aðgang að mörkuðum sínum. Gert er ráð fyrir að samningum um þetta verði lokið á árinu 2005. Íslenska sendinefndin mun leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að hægt verði farið í þessar sakir. Hvað snertir iðnaðarvörur og sjávarafurðir muni Íslendingar mæta til leiks með opn- um huga enda felist hagsmunir þjóðarinnar í auknu frelsi í þeim efnum. ■ Ráðherra vonsvikinn vegna Norðlingaöldu Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir stjórnvöld ekki ráða við kringumstæður vegna Norðlingaölduveitu. Segir samninga við Norð- urál hafa verið með fyrirvara. VIRKJANIR „Þetta eru mikil von- brigði í því ljósi að Norðlingaöldu- veita er mjög hagkvæmur virkjun- arkostur og sú lausn sem hafði verið fundin í sam- bandi við umhverf- ismatið var að mínu mati viðunandi,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar Landsvirkjunar að fresta Norð- lingaölduveitu sökum þess hve óhagkvæmt er að virkja miðað við leyfilega lónhæð. Landsvirkjun hafði óskað eftir því að lónið yrði tveimur metrum hærra en gert var ráð fyrir í úr- skurði Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, en hrepps- nefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnaði þeirri ósk. Landsvirkjun vildi fá að hafa breytilega lónhæð sökum ísingarhættu og í ljósi fyr- irstöðu hreppsnefndarinnar féllst stjórn Landsvirkjunar á þá tillögu Friðriks Sophussonar forstjóra að verkinu yrði frestað. Þar með ríkir fullkomin óvissa um það hvort tekst að útvega næga orku til þess að álverksmiðja Norðuráls geti aukið afköst sín úr 90 þúsund tonn- um á ári í 180 þúsund tonn. Val- gerður er ekkert sérstaklega bjart- sýn á að viðræður við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykja- víkur um virkjun jarðvarma vegna stækkunar Norðuráls skili árangri. „Það er ekkert útséð um það hvernig þeim viðræðum mun lykta. Tímaramminn er orðinn þröngur og það verður að koma í ljós hvernig þessu lyktar,“ segir Valgerður. Hún segir að frá hendi stjórn- valda sé allt klárt hvað varðar stækkun Norðuráls. Lagahliðin sé ljós og fullur vilji hafi verið hjá stjórnvöldum til þess að liðka fyrir stækkun álversins. „Norðurál er gott fyrirtæki sem mikilvægt er að fái að stækka og dafna. En það veltur allt á því að það fái raforku og við ráðum ekki við þessar kringumstæður,“ segir Valgerður. Hún segist ekki óttast að til þess komi að íslensk stjórnvöld verði gagnrýnd á alþjóðavettvangi vegna samningsbrigða, verði ekki hægt að útvega raforkuna sem þarf. Árið 1997 skrifuðu íslensk stjórnvöld undir samninga við Norðurál um að útvega raforku til stækkunar álversins. „Stjórnvöld lofuðu aðeins að fara í gegnum umhverfismat. Þessir samningar voru með þeim fyrirvara að framkvæmdir yrðu samþykktar,“ segir Valgerður. rt@frettabladid.is VANTAR MEIRA FÉ Bandarísk stjórnvöld hyggjast á næstunni fara fram á allt að 70 milljarða Bandaríkjadala aukafjárveitingu vegna stríðsrekstrar í Írak. Upp- hæðin er sögð tvöfalt hærri en áður hafði verið gert ráð fyrir og því mikill álitshnekkir fyrir Bush Bandaríkjaforseta og stjórn hans. RÚSSAR Á LEIÐ TIL ÍRAKS Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands, segir hugsanlegt að rússneskt herlið verði sent til Íraks sem hluti af fjölþjóðlegu friðargæsluliði. Yfirlýsingunni er að mati fréttaskýrenda ætlað að milda andrúmsloftið í samskipt- um Rússa og Bandaríkjamanna fyrir heimsókn Pútíns, forseta Rússlands, til Bandaríkjanna síð- ar í mánuðinum. ANDERS FOGH RASMUSSEN Talar líkt og fleiri fyrir auknu hlutverki Sam- einuðu þjóðanna í Írak. Forsætisráðherra Danmerkur: Vill aukið hlutverk SÞ BÚLGARÍA, AP „Danmörk styður heilshugar að Sameinuðu þjóðirn- ar fái aukið hlutverk í uppbygg- ingarstarfinu í Írak,“ sagði And- ers Fogh Rasmussen, forsætisráð- herra Dana. Nú eru 400 danskir hermenn í Írak og segir Fogh Rasmussen engar breytingar fyrirhugaðar á herliði Dana í Írak fyrr en meiri stöðugleiki ríkir í landinu. Danir taka myndarlegan þátt í Íraks- stríðinu, hyggjast meðal annars senda 14 lögregluforingja til landsins til að þjálfa íraska lög- gæslumenn. Þá hefur danska þingið samþykkt að leggja ríflega 3,5 milljarða króna í uppbygginar- starfið í Írak. ■ HORFT UM ÖXL Kínverskir hjúkrunarfræðingar skoða ljós- myndir sem teknar voru þegar faraldur bráðalungnabólgu geisaði í Kína. HABL-veiran: Lifir enn í dýrum WASHINGTON, AP Veiran sem veldur bráðalungnabólgu í mönnum er náskyld annarri veiru sem finnst í villtum spendýrum sem Kínverj- ar leggja sér til munns. Flest bendir til þess að veiran hafi borist í menn úr dýrunum og lík- legt er að hún muni gera það aft- ur, að sögn kínverskra vísinda- manna. Veiran hefur fundist í nokkrum tegundum smárra spendýra sem seld eru á mörkuðum í Kína. Rannsókn vísindamannanna leiddi meðal annars í ljós að stór hluti sölumannanna hafði myndað mótefni gegn veirunni. Lagt hefur verið til að eftirlit með sölu dýr- anna verði hert verulega. ■ SADDAM HUSSEIN Á nú yfir höfði sér ákæru frá þýskum yfir- völdum vegna morða sem hann framdi á Kúrdum í norðurhluta Íraks fyrir 16 árum. Dómsmálayfirvöld í Þýskalandi: Íhuga kæru á Saddam BERLÍN, AP Þjóðverjar íhuga nú að gefa út ákæru á hendur Saddam Hussein, fyrrum forseta Íraks, fyrir morð sem hann framdi á Kúrdum fyrir 16 árum. Þýskur saksóknari tilkynnti þetta í gær. Ákvörðun um rannsókn var tekin eftir að kúrdísk kona, búsett í Þýsklandi lést af völdum áhrifa sinnepsgass sem Saddam er sagð- ur hafa dælt á Kúrdahérað í Norð- ur-Írak 6. júní 1987. Konan lifði árásina af og komst til Nürnberg í Þýskalandi. Konan lést í vor og segja réttarlæknar í Nürnberg að krufning og læknaskýrslur kon- unnar gefi sterklega til kynna að dánarorsökin sé krankleiki af völdum sinnepsgass. Ríkissak- sóknari í Þýskalandi hefur nú tek- ið við málinu og mun að lokinni rannsókn taka ákvörðun um ákæru á hendur Saddam. ■ ÍSRAEL Háttsettur liðsmaður Ham- as-samtakanna féll þegar ísra- elski herinn gerði áhlaup á fjöl- býlishús í borginni Nablus á Vest- urbakkanum. Einn ísraelskur her- maður lést og fjórir særðust þeg- ar til skotbardaga kom við vopn- aða Palestínumenn sem höfðust við inni í byggingunni. Ísraelski herinn hafði rekið íbúa hússins út og sprengt það í loft upp. Þegar hermennirnir fóru að rannsaka rústirnar sátu palest- ínskir vígamenn fyrir þeim. Að sögn ísraelskra yfirvalda féll Mohammed Hanbali, leiðtogi herskárra Hamas-liða í Nablus, í árásinni. Hanbali er sakaður um að hafa skipulagt fjölda sjálfs- morðsárása á Ísraela. ■ UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Íslenska sendinefndin hjá Alþjóðavið- skiptastofnuninni mun leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að hægt verði farið í til- slökunum í landbúnaðarmálum. ÖRLAGAFUNDUR Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á fundi sínum í gær að fresta Norðlingaölduveitu. Þar með ríkir óvissa um stækkun á Norðuráli. ■ „Stjórnvöld lof- uðu aðeins að fara í gegnum umhverfismat.“ HEIMILISLAUS FEÐGIN Fjöldi palestínskra borgara missti heimili sitt þegar ísraelski herinn sprengdi fjölbýl- ishús í Nablus í loft upp. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Hamas-leiðtogi drepinn: Fjölbýlishús jafnað við jörðu SELDI OG KEYPTI Kjartan Gunn- arsson, varaformaður bankaráðs Landsbankans, færði hlutabréf í einkaeign í Landsbankanum yfir í eignarhaldsfélag sitt Skipholt. Samkvæmt fyrstu tilkynningu til Kauphallar Íslands mátti skilja viðskiptin sem sölu Kjartans. Svo var ekki, heldur var um að ræða millifærslu 148 milljón króna eignar að markaðsvirði, yfir í eignarhaldsfélagið. ■ Viðskipti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.