Fréttablaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 10
Í Fréttablaðinu á föstudag ergreint frá því að æðsti yfirmað-
ur löggæslu í Kína sé væntanleg-
ur til landsins á sunnudagskvöld
ásamt 40 manna föruneyti. Þessi
maður stjórnaði
aðgerðunum á
Torgi hins himnes-
ka friðar árið 1989
og er talinn bera
ábyrgð á ofsóknum
kínverskra stjórn-
valda á hendur
meðlimum Falun Gong auk ann-
ara Kínverja sem framið hafa
þann glæp að hafa aðra afstöðu til
lífsins en kínversk stjórnvöld
geta sætt sig við.
Hvað er þessi maður að gera til
Íslands? Hverjum datt í hug að
bjóða honum? Þessi maður er
fjöldamorðingi og það er ekki
nokkur ástæða til að efast um að
stór hluti þeirra 40 sem honum
fylgja eru af sama sauðahúsi, líf-
verðir hans, væntanlega þeir sem
best hafa staðið sig í morðum,
nauðgunum og pyntingum á sak-
lausu fólki. Þessir menn koma
hingað væntanlega undir alvæpni
eins og þegar Kínaforseti kom
hingað um árið. Viljum við fá
svona menn til landsins, vopnaða
og þjálfaða til að drepa þá sem
eru ósammála þeim og yfirmönn-
um þeirra?
Mótmæli á Netinu
Þar sem naumur tími er til
stefnu gæti reynst erfitt að efna til
mótmæla vegna komu hans en ég
hvet alla þá sem ósáttir eru við
þetta til að fjölmenna á
http://www.kjosa.is og taka þátt í
umræðu þar um hvort þetta sé
virkilega eitthvað sem við viljum
búa við, hvenær sem ráðamönnum
dettur í hug svona rugl. Hvort við
getum ekki gert eitthvað sem veitir
þeim slíkt aðhald til frambúðar að
þeir hugsi sig tvisvar um áður en
þeir bjóði fleiri fjöldamorðingjum
hingað til lands.
Ég krefst þess að fá að vita
hver bauð þessum manni og hans
föruneyti hingað og í hvers nafni.
Það er ekki gert í mínu nafni. ■
Auglýst hefur verið eftir hús-næði nýrrar heilsugæslu-
stöðvar fyrir Voga- og Heima-
hverfi. Það eru ánægjuleg tíðindi.
Þessi grónu hverfi hafa allt of
lengi verið án heilsugæslu þrátt
fyrir þrjátíu ára
lagaskyldu þess
efnis. Þverpólitísk
samstaða var raun-
ar um það við setn-
ingu þeirra tíma-
mótalaga 1973 að
heilsugæsla í hin-
um dreifðu byggð-
um hefði forgang.
Það gekk eftir.
Það segir meira
en mörg orð um furðustíga ís-
lenskra stjórnmála að hverfi þar
sem hlutfallslega flestir eldri
borgarar búa bíði læknislaus ára-
tugum saman. Hvort það segir
meira um áhugaleysi fjárveiting-
arvaldsins um hagsmuni höfuð-
borgarinnar, heilsugæslunnar eða
málefni aldraðra veit ég ekki.
Hvorki þingmenn né borgarfull-
trúar eiga að láta slíkt óátalið.
Grunnþjónusta
Heilsugæsla er grunnþjón-
usta. Augljóst er að enginn getur
án hennar verið á landsbyggðinni
þar sem langt er á næstu heil-
brigðisstofnun. Allt of fáir átta
sig hins vegar á hversu dýrt er að
beina sjúklingum milliliðalaust á
hátæknisjúkrahús. Ekki aðeins
vegna lengri biðtíma, komu-
gjalda eða vinnu starfsfólks sem
hefur veikari sjúklingum að
sinna. Mestur kostnaður liggur
líklega í rannsóknum sem komast
má hjá.
Hátæknisjúkrahús eru mikil-
vægur hlekkur í heilbrigðisþjón-
ustunni. Þau eru hins vegar
óheppilegur fyrsti viðkomustaður
annarra en bráðveikra sjúklinga.
Ástæðan er sú að læknir sem
þekkir sjúkling og sögu hans er
undir flestum kringumstæðum
betri til að leggja á ráðin með hon-
um um þörf fyrir rannsóknir,
meðferð eða hvenær leita þarf
álits annarra sérfræðinga.
Nýir Vogar og Heimar
Ástæða er til að hvetja heil-
brigðisráðherra til að fylgja fast
eftir ársgamalli yfirlýsingu sinni
um uppbyggingu heilsugæslunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Sam-
kvæmt henni á að búa rótgrónum
heilsugæslustöðvum í Kópavogi
og Árbæ nýtt og stærra húsnæði á
næsta ári. Gangskör í stækkun
Árbæjarstöðvarinnar er löngu
tímabær. Hún hefur verið for-
gangsverkefni Heilsugæslunnar í
Reykjavík í meira en áratug. Nú
er hún brýnni en nokkru sinni
fyrr þar sem henni er ætlað að
þjóna íbúum í hinum nýju hverf-
um í Norðlingaholti og Grafar-
holti. Enginn vill að þar rísi nýir
Vogar og Heimar í heilsugæslu-
málum. Enginn vill nýtt þrjátíu
ára stríð. ■
Einföld, mjúk og áhrifarík, meðferð sem farið
hefur sigurför um Evrópu. Virkar vel á hverskon-
ar vandamál. Kennt á Íslandi 17. okt. - 20. okt.
Íslenskt námsefni og íslenskur kennari
Námskeið í
Bowen Tækni
Upplýsingar og skráning:
Margeir S. 897-7469 og 421-4569
jmsig@simnet.is
www.thebowentechnique.com
Helgina 30. til 31. ágúst var
það helst í fréttum að óhugur er í
erfingjum Halldórs Laxness eftir
að Hannes Hólmsteinn Gizurar-
son ákvað að skrifa hispurslausa
ævisögu Nóbelskáldsins. Talið er
að erfingjarnir láti krók koma á
móti bragði og ráði til starfa
grimman rannsóknarblaðamann
til að skrifa ævisögu prófessors-
ins í þremur bindum um embætt-
isframa dr. Hannesar, ástir og
ferðalög.
Mánudaginn 1. september
spurðist hingað að áfrýjunarrétt-
ur í Dúbæ hefði ákveðið að stytta
fangelsisvist Íslendingsins sem
handtekinn var þar í landi í vor
með byssu og skotfæri. Dúbæing-
ar tóku loks gilda þá skýringu að
manninum hefði blöskrað rjúpna-
veiðibannið á Íslandi og hefði
hann tekið byssuhólkinn með sér í
ferðina til að ganga til rjúpna á
Arabíuskaga.
Þriðjudagur 2. september.
Upphlaup varð hjá Trygginga-
stofnun þegar 1.800 öldungar
hringdu samtímis til að kvarta
undan árvissri skerðingu á ellilíf-
eyri. Ellilífeyrisþegar mega hafa
rúmar 124 þúsund krónur í tekjur
á mánuði án þess að til skerðingar
komi á grunnlífeyri, sem er yfir-
leitt rúmar 20 þúsund krónur
óskertur. Svo getur farið að skatt-
framtal síðasta árs leiði í ljós að
tekjur ellilífeyrisþega hafi verið
of miklar. Það leiðir til skerðingar
á lífeyri. Með þetta í huga er því
ástæðulaust að hafa áhyggjur af
þessu upphlaupi gamla fólksins.
Miðvikudag 3. september kom
það fram að líðandi sumar er það
hlýjasta í Reykjavík frá upphafi
mælinga árið 1871. Meðalhitinn
frá júní til ágústloka var 12,1
gráða í borginni, en var áður
mestur 11,7 gráður árið 1880.
Fimmtudagur 4. september.
Bankakjöt er nú orðið aðalfæða
landsmanna, en lambaket er notað
sem uppfyllingarefni við vega-
gerð. Bankakjöt er hvítt á litinn
og framleitt úr svínum og hænsn-
um sem bankarnir hafa gert að
gæludýrum sínum. Mikill aragrúi
útlendra barna er nú staddur við
Kárahnúkavirkjun. Impregilo
heldur því fram að börnin séu
þangað komin til að ganga í skóla,
en það vekur grunsemdir laun-
þegasamtaka að hvorki er að
finna kennara né skóla í námunda
við virkjunina. Baugsfeðgar og
Sullenberger hafa nú hætt mála-
ferlum sínum og gert drengskap-
arsamkomulag um að hvorugur
aðilinn skuli í framtíðinni rifja
upp fylleríssögur af hinum.
Föstudagur 5. september. Um
hádegi á fimmtudag lagði Regn-
bogahetjan, flaggskip grænfrið-
unga, að bryggju í Reykjavík.
Strax daginn eftir var boðað til
fundar í stjórn Landsvirkjunar og
ráðgert að slá á frest framkvæmd-
um við Norðlingaölduveitu. ■
10 6. september 2003 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Rafpóstur auglýsingadeildar:
auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Í Fréttablaðinu mátti lesa þauóvæntu tíðindi að á morgun,
sunnudag, væri væntanlegur til Ís-
lands með fríðu föruneyti Luo
nokkur Gan er einn æðsti maður
„alþýðulýðveldisins“ Kína og „yfir-
maður löggæslu“ þar í landi. Hann
er í „kynnisferð“ til þess að „kynna
sér dómstóla og réttarfar á Ís-
landi“. Ferð hans er á vegum kín-
verska ríkisins en Luo Gan hefur
óskað eftir því að heimsækja dóms-
málaráðuneytið, Alþingi og Hæsta-
rétt. Forsetar Alþingis munu t.d.
bjóða Luo Gan að snæða með sér á
mánudaginn kemur. Þar verður
Guðmundur Árni Stefánsson gest-
gjafi í fjarveru Halldórs Blöndals.
Og maður hlaut að hugsa: Afsakið,
en er ekki eitthvað í lagi?!
Stýrir aðgerðum
gegn Falun Gong
Að vera „yfirmaður löggæslu“ í
Kína er ekkert puntuverkefni. Luo
Gan stjórnaði m.a. aðgerðum á
Torgi hins himneska friðar 1989
þegar þúsundir friðsamra mótmæl-
enda voru stráfelldar. Undanfarið
hefur hann stýrt aðgerðum kín-
verskra yfirvalda gegn t.d. góð-
kunningjum okkar í trúarsamtök-
unum Falun Gong. Í því felst að
meðlimir samtakanna eru fangels-
aðir, pyntaðir, drepnir.
Þarf að rifja upp söguna frá í
fyrrasumar þegar Jiang Zemin
Kínaforseti kom í heimsókn og ís-
lensk stjórnvöld brugðust við
væntanlegum mótmælum Falun
Gong-félaga með algerlega ein-
stæðum hætti? Vonandi ekki. En
stjórnvöld hafa greinilega ekkert
lært af þeirri „uppákomu“. Ekki
fyrst nú á að taka með viðhöfn á
móti yfirmanni aðgerða gegn
Falun Gong og öðrum sem dirfast
að vera á móti kommúnistastjórn-
inni í Beijing. Manni sem hægt er
að segja án þess að vera sekur um
nokkra tilfinningasemi eða öfgar í
málflutningi að hafi blóði drifnar
hendur. Talsmenn þess að Íslend-
ingar hafi gott og náið samband
við stjórnvöld í Kína, þrátt fyrir
hræðilegt orðspor þeirra í mann-
réttindamálum, segja venjulega
sem svo að þótt skoðanir kunni að
vera skiptar sé mikilvægt að
skera ekki á tengsl milli ríkja, það
geri bara illt verra. Mismunandi
hefðir séu í hverju landi og helst
sé hægt að hafa áhrif á ríki sem
stunda mannréttindabrot með því
að ræða málin, mótmæla og
diskútera á „réttum vettvangi“ –
altso ráðamenn við ráðamenn.
Vinkað kurteisislega
á tröppunum?
Ojæja.
Mun Guðrún Erlendsdóttir for-
seti Hæstaréttar ávíta Luo Gan
stranglega fyrir að standa fyrir
réttarkerfi sem við Íslendingar
hljótum að fyrirlíta – þar sem þús-
undum manna er haldið í fangelsi
fyrir skoðanir sínar? Ætli það.
Ætli hún sýni honum ekki bara
Hæstaréttarhúsið, lýsi starfshátt-
um stuttlega og kynni hann svo
fyrir hinum dómurunum? Og
vinki honum svo kurteislega á
tröppunum þegar hann fer? Eða
Guðmundur Árni? Ætli hann leggi
frá sér gaffalinn eftir vel heppn-
aða máltíð, þurrki sér um munn-
inn og segi svo: „Heyrðu Mister
Luo, er það rétt að þið í Kína haf-
ið sagt löggæslumönnum ykkar að
heimilt sé að fara út fyrir lög og
rétt ef við er að eiga meðlimi
Falun Gong? Og að þeir sem berji
Falun Gong-félaga til bana í fang-
elsum þurfi ekki að óttast máls-
sókn?“ Ég veit ekki. Vissulega
trúi ég því og treysti að Guðmund-
ur Árni muni drepa á óánægju Ís-
lendinga með ástand mannrétt-
indamála í Kína. En ég efast samt
um að því verði leyft að skyggja á
það ágæta lambakjöt eða íslenska
fisk sem Mister Luo verður boðið
upp á.
Björn Bjarnason? Ja, það verð-
ur að minnsta kosti forvitnilegt að
fá að heyra á heimasíðunni hvern-
ig hann hagar mótmælum sínum
þegar Luo Gan kemur að skoða
dómsmálaráðuneytið.
„Ég er fínn maður“
Satt að segja efast ég ekki um að
allir þeir sem þurfa að hitta Luo
Gan í „kynnisferð“ hans vildu
gjarnan geta látið eitthvað gott af
sér leiða í sambandi við mannrétt-
indamál í Kína. En ég efast heldur
ekki um að Luo Gan verður hinn
ánægðasti þar sem hann situr í
flugvélinni og Keflavíkurflugvöllur
hverfur í mistrið: „Kurteist fólk, Ís-
lendingar. Tók vel á móti mér. Og
ég er fínn maður.“ En Luo Gan er
ekki fínn maður. Sjálfur hefur hann
eflaust aldrei barið neinn til bana.
En undirmenn hans gera það og
hafa til þess sérstakt leyfi. En ef
við ætlum að halda því til streitu að
taka vel og kurteislega á móti
hvaða sendingu sem er frá Kína, af
hverju bjóðum við ekki bara böðl-
unum sjálfum? Og gefum þeim líka
eitthvað gott að borða? ■
■ Bréf til blaðsins
JÓN KRISTJÁNSSON
Ástæða er til að hvetja heilbrigðisráðherra til að fylgja fast eftir ársgamalli yfirlýsingu sinni
um uppbyggingu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt henni á að búa rót-
grónum heilsugæslustöðvum í Kópavogi og Árbæ nýtt og stærra húsnæði á næsta ári.
Arabískar rjúpur
Fjöldamorð-
ingjar í boði
Íslendinga
Gunnar Grímsson skrifar:
Eitt eilífðarsmáblóm
ÞRÁINN BERTELSSON
■ hraðspólar fréttir vikunnar.
ILLUGI
JÖKULSSON
■
skrifar um
heimsókn Luo Gan
til Íslands.
Um daginnog veginn
Bjóðum bara
böðlunum sjálfum
LUO GAN
Að vera „yfirmaður löggæslu“
í Kína er ekkert puntuverkefni.
■
Það segir meira
en mörg orð um
furðustíga ís-
lenskra stjórn-
mála að hverfi
þar sem hlut-
fallslega flestir
eldri borgarar
búa bíði læknis-
laus áratugum
saman.
Þrjátíu ára stríð
Skoðun dagsins
DAGUR B. EGGERTSSON
læknir og borgarfulltrúi skrifar um
uppbyggingu heilsugæslu.