Fréttablaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 17
17LAUGARDAGUR 6. september 2003
LEXUS IS200 MONTGOMERIE
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
22
06
6
8
/2
00
3
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
SPECIAL EDITION
IS200 MONTGOMERIE
LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS.
IS 200 MONTGOMERIE ER GLÆSILEGA
ÚTBÚINN LÚXÚSBÍLL. TÆKNI OG FÁGUN
Á HEIMSMÆLIKVAR‹A. GULLI‹ TÆKI-
FÆRI FYRIR fiÁ SEM VILJA NJÓTA
VELGENGNI Á VEGUM MEISTARANNA.
HÖFUM TAKMARKA‹ MAGN TIL SÖLU
NÚ fiEGAR. VERI‹ VELKOMIN Í REYNSLU-
AKSTUR.
Það er vegna þess að móðurminni fannst það við hæfi,“
svarar Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra spurningunni:
Hvers vegna heitir þú Siv?
En þarna hangir lengri saga á
spýtunni. Umhverfisráðherra vor
heitir fullu nafni Björg Siv Juhlin
Friðleifsdóttir. „Þannig var að
þegar mamma var ung stúlka í
Noregi var hún mikill náttúruunn-
andi, var í skátunum og svo fram-
vegis,“ segir hún. „Með henni í
menntaskóla var maður að nafni
Sverre Martin Fjellstad sem
seinna varð einn þekktasti fugla-
ljósmyndari Noregs. Hann var
með náttúrupistla í sjónvarpi –
einskonar David Attenborough
þeirra Norðmanna. Hann eignað-
ist dóttur sem hann gaf nafnið Siv
og þaðan má segja að hugmyndin
sé fengin. Þetta er nokkuð algengt
nafn í Noregi.“
Faðir Sivjar vildi að hún héti
jafnframt Björg í höfuðið á móður
hennar og afi Sivjar á ættir að
rekja til Svíþjóðar og þaðan er
ættarnafnið Juhlin – þannig að til-
urð þessa mikla nafns má heita
nokkuð flókin. „Að auki tengist
þetta goðafræðinni, því kona
þrumuguðsins hét Sif eða Siv.“
Siv fékk endalausar ákúrur
fyrir að kunna ekki að skrifa nafn-
ið sitt þegar hún var stelpa og not-
aði hún þá ritháttinn Sif. En nafn
hennar er í öllum skírteinum með
vaffi og þegar hún óx úr grasi tók
hún þann rithátt upp aftur.
„Ég hef ekki lent í sérstæðum
atvikum tengdu nafni mínu. Þó
má nefna að við vinkonurnar
vorum einhvern tíma, á mínum
sokkabandsárum, að labba rúnt-
inn niðri í bæ. Við sátum á bekk á
Austurvelli og það kemur ungur
maður og sest við hliðina á mér.
Hann var búinn að fá sér í aðra
tána og ekki viðlit að losna við
hann – hvað þá þegar ég sagði
honum hvað ég héti. Hann hét sem
sagt Þór og taldi þetta einhvers
konar goðfræðilega forsjá eða
teikn að við skyldum hittast.“
Maður Sivjar heitir ekki Þór
heldur Þorsteinn – steinn Þórs.
„Það gerði reyndar ekki útslagið á
sínum tíma. Svo getur Siv einnig
þýtt sef á norsku, en það er önnur
saga.“ ■
■ NAFNIÐ MITT
Sögð ekki kunna
að rita nafn sitt
Sverrir Þór Sverrisson, eðaSveppi dagskrárgerðarmaður
á PoppTívi, á um 200 vínylplötur
sem hann getur ekki hlustað á.
Hann á engan spilara og hefur því
lengi ætlað sér að fara í gegnum
þær og reyna að selja eitthvað.
„Einhverju vil ég halda því inni
á milli leynist snilld,“ segir
Sveppi. „Til dæmis á ég Kinks
eins og þeir leggja sig á vínyl og
mér er sagt að ég eigi ekki að
selja það.“
Hann á svipað magn af geisla-
diskum og þar eru rúmlega þrjátíu
stykki með sömu hljómsveitinni,
The Rolling Stones. „Ég varð harð-
ur Stónsari 12 ára eftir að eldri
bróðir minn leyfði mér að hlusta á
„Sympathy for the Devil“. Mér
fannst það alveg frábært lag og fór
að safna Stonesdiskum. Ég varð að
eiga allt og á því líka sólóplötur
með Keith Richards og Bill Wym-
an. Fullt af alls konar viðbjóði sem
maður varð að eignast.“
Sveppi segir bestu plötuna
vera Sticky Fingers en hann er
einnig hrifinn af December’s
Children og Beggar’s Banquet.
Hann er ekki ýkja hrifinn af nýrri
plötum Stones en kaupir þær þó
til þess að svala safnaraáráttunni.
Mikið er af hljómsveitarokki í
safni Sveppa og glittir þar í plötur
Verve, R.E.M, Queen og U2.
Eitthvað er að finna af ís-
lenskri tónlist í safninu og segist
Sveppi hrifinn af Megas, Brimkló
og eldra efni Bubba Morthens.
„Núna er svo Lög unga fólksins
með Hrekkjusvínunum í spilar-
anum. Ef maður hlustar á
barnarásina 102,2 heyrir maður
oft lög af þessari plötu. Svo þeg-
ar maður fer að hlusta á textana
á plötunni er þar smá ádeila á
þjóðfélagið. Svona gleðipólitískir
textar.“
Aðspurður um hvaða tónlistar-
stefna sé honum minnst að skapi
segir hann það vera sykurpoppið
sem umlykur hann allan daginn í
vinnunni. „Ég myndi aldrei kaupa
mér disk með Britney Spears,
Beyoncé Knowles eða Christinu
Aguilera. Mér finnst þetta leiðin-
leg tónlist. Ég er svolítið gamal-
dags. Ég hef t.d. gaman af söng-
leikjum á borð við Jesus Christ
Superstar, Rocky Horror Picture
Show, Little Shop of Horrors og
Grease,“ segir Sveppi að lokum. ■
■ PLÖTUKASSINN MINN
Mikill Stónsari
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
O
R
ST
EN
BJÖRG SIV JUHLIN
FRIÐLEIFSDÓTTIR
Á sokkabandsárunum hitti hún ung-
an mann á rúntinum sem hét Þór.
Hann taldi það goðfræðilegt teikn að
þau hefðu hist.